Alþýðublaðið - 22.09.1972, Blaðsíða 2
Utför Asgeirs
Ásgeirssonar
gerð í dag
I dag klukkan tvö hefst i Dóm-
kirkjunni i Reykjavik útför Ás-
geirs Asgeirssonar, fyrrum for-
seta Islands. Biskup íslands,
herra Sigurbjörn Einarsson
jarðsyngur.
Útförin er gerð á vegum is-
lenzka rikisins, og þeir sem
bera kistuna úr kirkju verða
forsætisráðherra, ólafur Jó-
hannesson, Einar Agústsson,
utanrikisráðherra, Eysteinn
Jónsson, forseti Sameinaðs Al-
þingis, Logi Einarsson, forseti
Hæstaréttar, Magnús Tolfi
Ólafsson menntamálaráðherra,
Magnús Kjartansson, heil-
brigðis- iðnaðar- og tryggingar-
ráðherra, Gylfi Þ. Gislason, for-
maður Alþýðuflokksins og Jó-
hann Hafstein, formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Utanrikisráðuneytið hefur
mælzt til þess að allar þær opin-
berar stofnanir, sem tök hafa á,
gefi fri eftir hádegi i dag, og var
tilkynnt i gær að stjórnarráðið
muni loka eftir hádegi. Sams
konar tilkynningu hafa bank-
arnir sent frá sér.
bá hefur menntamálaráðu-
neytið mælzt til þess að veitt
verði fri i skólum frá hádegi i
dag.
Útvarpað verður frá athöfn-
inni i dómkirkjunni.
Asgeir Ásgeirsson fæddist að
Króanesi á Mýrum 13. mai árið
1894. Voru foreldrar hans Ásgeir
Eyþórsson kaupmaður þar og
siðar bókhaldari i Reykjavik og
kona hans Jensina Björg Matt-
hiasdóttir.
Asgeir lauk stúdentsprófi viö
menntaskólann i Reykjavik áriö
1912 og cand. theol. prófi frá Há-
skóla tslalands 1915. Þá stund-
aöi hann og framhaldsnám viö
háskólana i Kaupmannahöfn og
Uppsölum 1916—17. Hann var
biskupsritari 1915—1916 og
bankaritari i Landsbankanum
1917—1918.
Asgeir Asgeirsson lét fræðslu-
og skólamál mjög til sin taka.
Hann var kennari i Kennara-
skóla Islands frá 1918 til 1926,
settur fræðslumálastjóri áriö
1926 og skipaöur i það embætti
árið eftir. Hann var útgefandi
og ritstjóri Skólablaðsins
1921—22 og Menntamála frá
1924 til 1932. Þá var hann einnig
meðútgefandi Unga Islands
1922— 25 og Vöku 1927—’29.
Ásgeir Asgeirsson var fyrst
kosinn á þing árið 1923, og var
siðan alþingismaður Vestur-ts-
firðinga allt til ársins 1952, að
hann var kjörinn forseti tslands.
Hann var fjármálaráðherra
1931—1934 og forsætisráðherra
1932—1934. Forseti sameinaðs
Alþingis var hann 1930— '31,
kosinn i milliþinganefnd i
Framhald á bls. 4
Formaður Alþýðuflokksins,
dr. Gylfi Þ. Gislason, hefur ritað
eftirfarandi minningarorð um
Asgeir Asgeirsson:
„Hann sameinaði það með sjaldgæfum hætti að þekkja skyldu
hefðarmannsins og skilja hugsun alþýðumannsins”
Islendingar urðu fátækari við
lát Ásgeirs Asgeirssonar. En i
lifi sinu hafði hann auðgað þjóð
sina, ekki fyrst og fremst með
þvi að gegna helztu heföarstöð-
um fullvalda rikis, heldur með
hinu. að fylla jafnan sæti sitt
þannig, að fyllsti sómi var að.
Þegar ég tók sæti á Alþingi
1946, yngstur þingmanna, var
Ásgeir Ásgeirsson ekki i hópi
hinna elztu, en ég fann fljótt, að
hann var meðal hinna reynd-
ustu og áhrifamestu. Hann var
einn mestur mannasættir, sem
ég hef kynnzt. Vistmunir hans
voru frábærir og velvilji hans
einstakur. Það var engin tilvilj-
un, að slikum manni væru falin
mikil metorð.
Þegar pianósnillingurinn
heimskunni, Wilhelm Kempf,
hélt hér tónleika fyrir nokkrum
árum, bar fundum okkar for-
seta lslands saman, og hafði
hann þá orð á þvi, að hann hefði
gaman af að hitta þennan mikla
listamann. Hann vildi helzt
spjalla við hann einan, og talað-
ist svo til, að við hjónin skyldum
færa Kempf boð forsetans, og
þáði hann það með þökkum.
Enginn annar var á Bessastöð-
um en sonur forsetans, Þórhall-
ur Ásgeirsson. Þeir ræddu lengi
og mikið saman, forsetinn og
pianðsnillingurinn, um
heimsmál og trúmál, og komust
m.a. að raun um, að þeir áttu
sameiginlega kunningja um alla
Evrópu og þá ekki sizt Nathan
Sönderblom, erkibiskup i
Uppsölum, en þar hafði forset-
inn stundað nám og Kempf ver-
ið þar organleikari i dómkirkj-
unni. t lok samtalsins spyr
Kempf mig að þvi, hvort ég
haldi, að forsetinn hefði gaman
af, að hann léki eitt eða tvö lög á
hljóðfæri það, sem hann sá i
salnum. Þegar ég spurði forset-
ann, kvað hann já við þvi og
sagði um leið við son sinn: „Við
skulum lofa stúlkunum að
hlusta á”. Þegar Kempf er
setztur við hljóðfærið, koma inn
tvær ungar stúlkur. Kempf
stendur strax á fætur, sækir tvo
stóla, setur þær sina til hvorrar
handar sér og leikur þrjú lög,
m.a. ,,Ftir Elise” eftir Beet-
hoven.
Á heimleiðinni segir hann við
okkur, að þetta muni verða sér
ógleymanleg stund. Forseti ls-
lands sé með vitrustu mönnum,
sem hann hafi hitt. ,,En hverjar
voru þessar ungu og hæversku
stulkur’í”, spurði hann. Við
svöruðum, að önnur hafi verið
sonardóttir forsetans, en hin
dóttir bifreiðastjóra hans. Þá þá
þagði pianósnillingurinn góða
stund og sagði siðan: ,,Óhugs-
andi hefði þetta verið i minu
ungdæmi. Og ég held satt að
segja, að þetta gæti hvergi gerzt
nema á Islandi. Ég óska ykkur
til hamingju með forsetann ykk-
ar”.
Við þessi orð eins mesta lista-
manns samtimans þarf engu að
bæta. Ásgeir Asgeirsson sam-
einaði það með sjaldgæfum
hætti að þekkja skyldu hefðar-
mannsins og skilja hugsun al-
þýðumannsins. Þannig eiga
þjóðhöfðingjar að vera. Þess
vegna verður hans ávallt
minnzt með þakklæti og virð-
ingu.
Gylfi Þ. Gíslason.
FAGMAÐUR HEFUR
ORÐIÐ OG...
MÆLIR EINDREGID MED
VARDVEIZLU BERNHOFTSTORFU
Karsten Rönnow, einn færasti
sérfræðingur Dana á sviði varð-
veizlu gamalla bygginga, hefur i
bréfi til bórs Magnússonar, þjóð-
minjavarðar, eindregið hvatt til
varðveizlu elztu húsaraðar i
Reykjavik, Bernhöftstorfunnar.
Skoðun sina byggir Rönnow á
athugun, sem hann gerði á húsun-
um i sumar. Hann var fenginn
hingað til lands i þvi skyni að gera
tillögur um lagfæringar á
Sivetsens-húsi i Hafnarfirði, auk
þess, sem hann fór norður i Hóla i
Hjaltadal i sama tilgangi.
Hann rannsakaði jafnframt
Bernhöftstorfuhúsin og i umsögn
sinni um þau segir hann.að þau
séu tvimælalaust i það góðu
ástandi. að þau beri að gera við
og varðveita. þar sem þau nú
standa.
Einu skemmdirnará húsunum
telur hann þær. sem tilkomnar
eru á siöustu árum vegna niður-
niðslu og hirðuleysis.
Bréf sérfræðingsins hefst á þvi,
að hann rekur þróunarsögu mið-
bæjarins.
Siðan fer hann i gegnum hvert
smáatriði i uppbyggingu hús-
anna, hvar þau hafi verið gerð,
hvernig þeim hafi verið breytt i
hvaða ásigkomulagi þau séu og
hvað sé hægt að gera.
Samkvæmt könnun Rönnows
kemur i ljós. að húsunum hefur
veriðsáralitið breytt. Og hann til-
tekur sérstaklega tvö nyrztu hús-
in. sem hann telur ekki vera f jarri
sinni upprunalegu mynd.
Heildarmat hans á húsunum er
mjög jákvætt og telur hann sára-
litið vera ónýtt i þeim. Skemmd-
irnar i þeim séu nýjar og stafi af
vanhirðu frá siðustu árum.
Og niðurstaða hans er semsagt
sú, að miðað við ásigkomulag
húsanna núna, sé ekkert þvi til
fyrirstöðu að lagfæra þau.
I bigerð er að stofna á breiðum
grundvelli áhugamannasamtök
um varðveizlu Bernhöftstorfunn-
ar. Má búast við að af félágs-
stofnuninni verði upp úr mánaða-
mótunum næstu.
En sjálf Torfan heldur áfram
að grotna niður. Þar er ekki hitað
upp og hlerar eru fyrir gluggum,
en það hvort tveggja er mjög
óhollt fyrir viðinn i húsunum.
KARTÖFLU
VERTÍDIN
LflKARI
ENÍ
FYRRA
Allt útlit er fyrir, að kartöflu-
uppskeran verði mun minni i ár
en i fyrra, a.m.k. á Suðurlandi, að
Þorgils Steinþórsson hjá Græn-
metisverzlun landbúnaðarins
sagði i viðtali við blaðið i gær.
Hann sagði of snemmt að segja
nokkuð endanlega um samdrátt-
inn þar sem enn væri verið að
taka upp, en ljóst er af þvi sem
upp er komið, að minna hefur
sprottið i ár en i fyrra þótt álika
mikið hafi verið sett niður.
Þorgils sagði, að þær kartöflur,
sem Grænmetisverzluninni hafi
þegar borizt, væru yfirleitt með
betra móti, stærðin heppileg og
kartöflurnar vel útlitandi.
Einnig er mjög litið um sýktar
kartöflur, en litilsháttar hefur
borið á frostskemmdum. Vanda-
málið með forstskemmdirnar er
það, að skemmdin kemur yfirleitt
ekki fram fyrr en búið er að
pakka kartöflunum og þær jafn-
vel komnar til neytenda, en ein-
kennin eru þau, að sýkta kartafl-
an blotnar upp og skemmir út frá
sér.
Af þessum sökum hefur Græn-
metisverzlunin þurft að taka við
einhverju magni af skemmdum
kartöflum, en Þorgils sagði, að
það yrði alveg úr sögunni með
haustinu, eða strax og ekki þyrfti
að láta kartöflurnar alveg nýjar á
markað.
FRAMHÖLD
Orðrómur 12
að verki. Fulltrúar stjórnarinnar
hafa neitað þvi, að tilskipun um
handtöku dómarans hafi verið
gefin út.
Adi Amin, forseti Uganda, hef-
ur gefið skipun um áframhald
loftárásanna á Tanzaniu til þess
að koma i veg fyrir frekari til-
raunir til innrásar, en Nyerere
Tanzaniuforseti sagði, að fleiri
loftárásir geti einmitt leitt til inn-
rásar.
Þá hafa borizt fregnir af þvi, að
allt herflug frá Libiu til Uganda
yfir Sudan verði stöðvað, og flug-
vélarnar neyddar til að lenda i
Khartoum. Yfirmaður lofthers
Libiu tilkynnti i gær, að flugvélar
yrðu sendar til úganda, en allt
bendir til, að þeirra biði sömu ör-
lög hinna fimm, sem voru stöðv-
aðar i Súdan i fyrradag.
Schumann 12
unum i gærmorgun svaraði
franski utanrikisráðherrann að-
eins: Þið getið nærri, hvert aðal-
umræðuefnið hefur verið.
Þá tók ráðherrann það fram, að
sér virtist sem lausn deilunnar
lægi i umræðum og samkomu-
lagstilraunum, annað hvort á tvi-
hliðaviðræðugrundvelli eða með
viðræðum fleiri aðila i senn.
— Að sjálfsögðu eru málsatvik
landhelgismálsins mér nú mun
ljósari, en i gær, sagði ráöherr-
ann.
Heimsókn Maurice Schumann
hingað til lands var fyrsta opin-
bera heimsókn fransks ráðherra
til lslands.
Franski ráðherrann hélt utan i
gærkvöldi.
o
Föstudagur 22. september 1972.