Alþýðublaðið - 22.09.1972, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 22.09.1972, Blaðsíða 6
Jazzballettskóli Báru Dömur, ATHUGIÐ Nýr þriggja vikna kúr i likamsrækt og megrun, nuddi og sauna, hefst mánu- daginn 25. september. Upplýsingar i sima 83730, alla daga kl. 1-5. — Siðasti þriggja vikna kúrinn á sumrinu. Jazzballettskóli Báru (25. leikvika —leikir 16. sept. 1972). Úrslitaröö: X22 — 121 — 111 — 1IX I. vinningur: 10 réttir — kr. 21.500.00. nr. 622 nr. 33136+ nr. 42649 nr. 48736 nr. 5991 nr. 38165 nr. 46443+ nr. 60396+ nr. 22092+ nr. 38713+ nr. 46813+ nr. 60640 + nr. 27318 nr. 41612+ + Nafnlaus. Kærufrestur er til 9. okt. Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 25. leik- viku verða póstlagðir cftir 10. okt. liandhafar nafnlausra seöla veröa aö framvfsa stofni cöa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiösludag vinninga. Of margir scðlar (166) komu fram meö 9 réttar tausnir í 2. vinn. og fellur vinningsupphæöin til 1. vinnings. GETRAUNIR —REYKJAVÍK. -íþróttamiðstöðin Tilkynning Menntamálaráðuneytið gengst fyrir nám- skeiði i Gagnfræðaskóla Austurbæjar fyr- ir væntanlega iðnaðarmenn, sem ekki hafa lokið miðskólaprófi og eru orðnir 18 ára. Innritun á námskeiðið fer fram i skól- anumföstudaginn22. sept. kl. 17-18. Mikil- vægt er, að allir sem óska að sækja nám- skeiðið, mæti til innritunar, eða staðfesti fyrri umsókn með simskeyti. Menntamálaráðuneytið. Skrifstofur vorar, útsölur og vörugeymslur verða lokaðar i dag, föstudaginn 22. september eftir há- degi. Áfengis- og tóbaksverzlun rikisins Lyfjaverzlun rikisins. Auglýsingasíminn okkar er 8-66-60 Lokað vegna jarðarfarar herra Ásgeirs Ásgeirssonar, fyrrverandi forseta íslands, i dag föstudaginn 22. sept. 1972, kl. 13 - 15.30. Alþýðubankinn h.f. Iðnaðarbanki íslands h.f. Samvinnubanki íslands h. f. Verzlunarbanki islands h.f. HAFIÐ. BLAA HAFIÐ . . . Ungir menn eru alla tiö að erindast sitthvaö, og þá komast þeir i feitt þegar þeir fá i hendurnar skútur til að fara með niður á Tjörn. Þessi heppni sex ára gamli athafnamaður heitir Þorsteinn, og við rákumst á hann niðri við Tjörn á laugardagseftirmiödaginn, þar sem hann rogað- ist með skonnortu i fanginu i hópi vina sinna til fundar við afa sinn, Guðna, sem smiðað hefur skútuna og aðra til, sem reyndar var ein- hvers staðar á siglingu, þegar okkur bar að, og skipin hefur hann bæði gefið Þorsteini. Og þegar afinn kom i ljós var ekkert verið að tvinóna, — hann stillti segl og möstur af kunnáttu, og sjósetti skútuna, og þar með máttu athafnamennirnir ekki vera að þvi að ræða við okkur. í URUGUAY FREMIA ÞEIR NÚ MORDIN Á FORELDRAFUNDUM Stúdentaóeirðirnar hafa breiðst út til gagnfræðaskólanna, — fyrst með því að nemendur tóku að misþyrma kennurum og fremja spjöll en nú einnig með beinum líkamsórósum og morðum ó fólki ó foreldrafundum. f gagnfræðaskóla nokkrum i borginni Montevideo i Uruguay var haldinn foreldrafundur kvöld eitt. Skyndilega gengu i fundar- salinn 15-20 grimubúnir vopnaðir menn. Uppnám varð i salnum, skothvellir heyrðust og stúdent féll á gólfið. Sveit úr herliðinu handsamaði nokkra árásar- mennina. Stúdentinn, sem fallið hafði á gólfið, Miguel Rodriques, var látinn. Næsta dag var félagi hans einn að setja upp vegaspjald með mynd af Miguel á háskólan- um. Bifreið keyrði hægt fram hjá og skothvellir heyrðust. Stúdentinn særðist illa. Billinn hvarf á braut. Þetta er að visu dálftið öfgakennt dæmi, en þó lýsir það þvi ástandi, sem er um þessar mundir i Uruguay. Fólk hefur kennt hægri öfgasinnum um þessar tvær árásir, en hægri öfgastefna er ný- mæli i Uruguay. Fyrrmeir voru það ofbeldisverk framin af vinstrisinnuðum öfgamönnum, sem einkenndu skólalifið i landinu. Ógnarverkin hafa alið á ógnarandsvörum skrifar þýzka blaðið Neue Zurcher Zeitung. Háskólinn i Montevideo er mið- stöð vinstri sinnuðustu öfga- sinnanna og sá staður, þar sem Tupamoros-skæruliðar hafa fast- lega mátt reikna með stuðningi. Stúdentarnir eru óánægðir með það, að rikið skuli skulda háskólanum fleiri millj. pesos. A stæðan er sú, að i fyrsta lagi er rikissjóður i fjárþröng og i öðru lagi óttast stjórnvöld, að peningarnir muni verða látnir i té til stuðnings við starfsemi vinstri sinnaðra öfgahópa, en þeim verði ekki varið til þess að standa undir kostnaði við nám og kennslu. Átökin milli vinstri- og hægri- manna hafa nú færzt niður i gagn fræðaskólana. Svo er sagt, að ný justu ofbeldis- verkin séu framin af hægri-mönn- um, en vinstrisinnarnir hafa samt hvergi nærri haft hljótt um sig. VinsælaSti framgangsmátinn er sá, að koma fram með ýmsar kröfur, — sumar réttmætar, aðrar ekki. Þegar þær eru ekki uppfylltar gripa námsmennirnir til „aðgerða”. Byggingar og kennslutæki eru skemmd og eyði- lögð, ráðist er á kennara og þeir meiddir og sprengjum kastað að húsum óvinsælla kennara. Þegar alger ringulreið og upplausn hefur skapazt er rikið ásakað fyrir að vanrækja menntamálin og stuðla visvitandi að þvi, að for- heimska æskulýðinn. ÞÓRDUR ENDURKJÖRINN Dagana 15.—17. þessa mánaðar héltSamband isl. berklasjúklinga 18. þing sitt I Domus Medica. Mættir voru 70 fulltrúar frá deildur sambandsins. A þinginu voru rædd ýmis mál er varða skipulag og verkefni sambandsins auk velferðarmála berkla- og brjóstholssjúklinga. Þórður Benediktsson var endurkjörinn formaður sam- bandsins. Forystumenn aðgerðanna eru oftast nær undir lögaldri, svo ekki er hægt að refsa þeim. Uruguay er land i hnignun. Fyrir tiu árum gat það hreykt sér af þvi að vera það land i Suður- Ameriku, sem aflaði mestra tekna á ibúa, bjó við stöðugastan gjaldmiðil og átti að fagna öruggu stjórnarfari og tryggu stjórn- málaástandi allar götur siðan árið 1903. Lög landsins voru nýtizkuleg, jarðvegurinn frjó- samur og vinnuvikan sex dagar. Áfallið kom á árum siðari heimsstyrjaldarinnar. Þjóð- félagskerfið sem var reist á þvi, að þjóðinni fjölgaði jafnt og þétt, brotnaði niður við það að fólkinu i landinu hætti að fjölga og sifellt fleiri vel menntaðir menn yfir- gáfu landið. Nú er I Uruguay lægsta hlut- fallstala fæðinga af öllum löndum á suðurhveli jarðar og i landinu er fleira fólk yfir fimmtugu, en undir. Óánægja hefur nú fest rætur meðal flestra hópa i þjóðfélaginu og ýmsir telja nú verðbólgu, sem nemi undir 100% á ári, bezta táknið um framfarir. Fólkið I landinu hefur afsiðast og Jorge Pacheco Areco, forseti landsins, tók árið 1967 mjög harða afstöðu gegn verkfallsmönnum, uppreisnargjörnum stúdentum og uppreisnarfólki i hans eigin flokki, — Colorado. Pacheo hefur náð vissum árangri. Verðbólgan er nú ekki nema u.þ.b. 15% á ári, en óánægju gætir enn meðal þjóðarinnar og einstakra hópa. Margir eru nú farnir að hafa orð á þvi, að stjórn herforingja sé eina leiðin út úr vandanum. Enginn hefur áður heyrt svo mikið sem ymprað á slikum hlut um i hinu fyrrmeir svo lýðræðis- sinnaða Uruguay. Óánægja skólafólksins virðist ekki ávallt vera réttlætanleg. Ráðist var á kennslukonu og henni misþyrmt vegna þess að hún vildi ekki samþykkja vinstri sinnaðar skoðanir nemendanna. Nýskipaður skólastjóri, sem ætlaði sér að innleiða lýðræðis- lega stjórnunarhætti I kvenna- skóla einum, sætti einnig líkams- árásum. Engin skýring hefur enn fengist á þvi, hvers vegna. Fyrir utan það, að slást við kennarana slást nemendahópar einnig inn- byrðis og saka hver annan um, að vera hægri- eða vinstrisinnar. Einn skólanna ber byltingar- nafn og skreytir veggi sina með myndum af Che Guevara. A veggi annars er letrað: „Þegar málið fer að snúast um menninguna, þá gripur fasisminn til vopna". Slikar setningar muna þeir, sem minnast þess tima er Göbbels réði i Þýzkalandi. Sú setning á skólaveggnum, sem hér er frá sagt, er undirrituð með heiti samtaka hægri öfgasinna. Þó þarf það ekki að vera, að sam- tök þessi hafi látið rita setninguna á skólavegginn. Það tiðkast nefnilega mjög i átökunum að falsa slik ummæli hver eftir öðr- um. Tónlistarhátiðsú, er ber nafnið „Tónlist unga fólks- ins” og nýtur stuðnings Sambandsráðuneytisins fyrir æskulýðs- , fjölskyldu- og heilbrigðismál verður æ vinsælli. Aðdragandi hennar á hverju ári er keppni unglinga um land allt i hæfni til tónlistar- flutnings á hin ýmsu hljóðfæri. Siðan koma þau saman, er fram úr skara, og i ár hittust þau i háskólabænum Erlangen, þar sem unga tónlistar- fólkið sýndi aðdáunarverða hæfni. Töfrandi fiðlu- leikur 8 ára gamallar stúiku hafði djúp áhrif á dómara keppninnar. Uirike-Anima Mathé frá smá- bænum Baldshut vann fyrstu verðlaun i fiðluleik. Við leik sinn naut hún aðstoðar 10 ára gamallar systur sinnar, er átti stóran þátt i árangri „litlu” systur sinnar með frábærum pianóleik sinum. Allir þeir, er verðlaun hlutu, gcta vænzt þess, að gáfur þeirra verði metnar að verðleikum á komandi árum. o Föstudagur 22. september 1972. Föstudagur 22. september 1972. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.