Alþýðublaðið - 22.09.1972, Side 12
alþýðu
I mm
í A\\
Alþýöubankinn hf ykkar hagur/okkar ntetnaður KÓPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 : Sunnudaga milli kl. 1 og 3 •
StmXBtLASfOfMN HF
SCHUMANN EXKI
SÁTTASEMIARI
. • •
Ekki vildi franski utanrikisráð-
herrann, Maurice Schumann,
staðfesta það á fundi með islenzk-
um blaðamönnum i gær, að hann
væri hingað kominn sem milli-
göngumaður i landhelgisdeilu Is-
lendinga og Breta eða að Frakkar
hygðust taka að sér milligöngu i
deilunni. Þvert á móti sagði hann
allar slikar fullyröingar rangar.
Heimsókn hans hingað til lands
hefði fyrir löngu verið ákveðin og
þá ekki i sambandi við land-
helgismálið, heldur aðeins sem
regluleg vináttuheimsókn ráð-
herra eins lands til annars.
Franski utanrikisráðherrann
hélt siðla i gærdag fund með is-
lenzkum blaðamönnum. Var
hann þá rétt nýkominn frá bing-
völlum, en þangað hafði hann far-
ið i boði islenzku rikisstjórnarinn-
ar. Um morguninn hafði hann
ORDROMUR I
UGANDA OLLI
ORVÆNTINGU
Orðrómur um innrás i Uganda
skapaði i gær hræðslu og örvænt-
ingu fólks i höfuðstað landsins,
EINS GOTT
ÞAU VERÐI
EKKI VEIK
Tveir starfsmenn sakadóms
Reykjavikur hafa það verk-
efni með höndum að inn-
heimta allar sektir og annast
fullnustu refsidóma, inn-
heimtu meðlaga og sekta á öll-
um Norðurlöndum auk ýmis-
legs annars.
Nú er svo komið, að flest
þessi verkefni falla á hendur
einni manneskju, þar sem
hinn starfsmaðurinn er upp-
tekinn flesta daga við að aka
föngum frá Litla-Hrauni og
Kviabryggju til Reykjavikur.
Ef fangi þarf að fara til
læknis eða sinna öðrum nauð-
synlegum erindum i Reykja-
vik þarf þessi starfsmaður að
flytja hann á milli.
Hingað til hefur þetta alltaf
verið töluvert starf, en fyrst
keyrði um þverbak þegar
vinnuhælið á Litla-Hrauni var
stækkað.
Siðan hefur starfsmaðurinn
varla getað sinnt öðrum verk-
efnum.
Þetta kom fram i viðtali,
sem Alþýðublaðið átti við Sig-
urlaugu Páimadóttur hjá Inn-
heimtudeild sakadóms.
Hún er sá starfsmaður
deildarinnar, sem ekki er á
ferðinni.
Hún hefur þvi meira en nóg
að gera og er nánast ,,á kafi
upp fyrir haus”, eins og hún
orðaði það.
Kampala. Fólk tók að flýja út úr
borginni, og búðum i miðborginni
var lokað.
Þá hefur borizt frétt um.að
hæstaréttardómari landsins,
Benedicto Kiwanuka, hefði verið
handtekinn, en ekki hefur fengizt
staðfest hvort lögreglan var þar
að verki, eða menn úr öfgasam-
tökum.
Herforingi i Ugandaher sagði i
útvarpsræðu i gærkvöldi, að fólk
skyldi vera rólegt, engin ástæða
væri til að óttast, en þeir
sem reyndu að efna til óróa yrðu
tafarlaust handteknir.
Herforinginn sagöi ennfremur,
að menn, sem létust vera frá ör-
yggislögreglunni hefðu hótað að
handtaka menn i mikilvægum
stöðum. Hann sagði ekkert nánar
um það, hvaða embættismenn
hefðu fengið slikar hótanir, en
fréttamenn i Kampala álita, að
Kiwanuka, hæstaréttardómari
hafi veriðnuminn brott af slikum
mönnum. Sjónarvottar segja, að
hann hafi verið færður frá hæsta-
réttarbyggingunni, en þeir hefðu
haldið, að herlögreglan væri þar
Framhald á 2. siðu.
hins vegar átt viðræður við for-
sætisráðherra, utanrikisráð-
herra, sjávarútvegsráðherra,
menntamálaráðherra og emb-
ættismenn i stjórnarráðinu.
Blaðamannafundurinn með
ráðherranum i gær snerist svo til
einvörðungu um landhelgismálið.
Tók ráðherrann það hvaö eftir
annað fram, sem svar við spurn-
ingum fréttamanna, að Frakkar
hygðustekki skipta sér af málinu,
— a.m.k. ekki á þessu stigi.
— Bretar og Frakkar geta að
sjálfsögðu rætt þetta mál sin á
milli og sömuleiöis tslendingar
og Frakkar, en það er fáránlegt,
að málið verði að bitbeini Breta
og Frakka, sagði ráðherrann.
Aðspurður um, hvort land-
helgismálið hefði verið rætt á
fundinum með islenzku ráðherr-
Framhald á 2. siðu.
ÞAU REYNA
HVAÐ ÞAU
GETA TIL
AÐ HALDA
VERÐINU
Á BOTNI
Við höfum komið verðinu á
erlendu námsbókunum niður
um 30%, sagöi Sigurður Helga-
son, nemandi i MR, sem er einn
þeirra sem standa fyrir bóksölu
nemenda.
Bækurnar eru allar erlendar
og nýjar, en bóksalan hefur ekki
enn fengið að selja innlendar
bækur, en fullur hugur er fyrir
hendi. Ritföng eru einnig á boð-
stólum.
Áður verzlaði bóksalan ein-
göngu með gamlar bækur, en
þvi hefur nú verið hætt, þar sem
rýrnun var mikil. Þetta er þvi
fyrsta tilraunin til að selja nýjar
bækur, og hefur hún tekizt von-
um framar, að sögn Sigurðar.
Allt er selt á kostnaðarverði
og öll vinna við söluna er sjálf-
boðavinna, en þetta tvennt gerir
hið lága verð mögulegt.
HVERNIG MANNAR
LANDHELGISGÆZL-
AN HVALBÁTANA?
Margir hafa velt þvi fyrir sér
hvernig Landhelgisgæzlan hafi
hugsað sér að manna hvalveiði-
skipin tvö, sem ef til vill verða
tekin til gæzlustarfa.
t samtölum við Alþýðublaðið
hafa bæði Pétur Sigurðsson, for-
stjóri gæzlunnar og Hafsteinn
Hafsteinsson, blaðafulltrúinn lét-
ið i ljós þá skoðun, að það sé eng-
um vandkvæðum bundið.
Mjög mikið framboð er af ung-
um mönnum i hásetapláss, en
Framhald á bls. 4
OFFRAMBOÐ A KEMNURUM
A REYKIAVlKURSVÆÐIHU
Fræðsluyfirvöld standa enn
frammi fyrir þeim vanda, sem
skýtur upp kollinum á hverju
hausti, að mjög erfitt er að fá
kennara að skólum utan Stór-
Reykjavikur svæðisins. Ástandið
er jafnvei ekki betra i næsta ná-
grenni Reykjavikur, í Keflavik og
Sandgerði er nýlega búið að ráða i
allar stöður við gagnfræða- og
unglingaskólana, en i Hveragerði
vantar enn kennara að gagn-
200.000 ORÐA SKYRSLA: KLAM ER
ÞAÐ SEM LÍTILLÆKKAR SAMLÍFIÐ
Klámalda hefur riðið yfir
brezku þjóðina, og svo langt hefur
æðið náð, að menn eru þegar
farnir að verða milljónamæring-
ar á framleiðslu klámkvikmynda
og útgáfu klámbókmennta, er
niðurstaða 52 manna nefndar,
sem i eitt ár hefur rannsakað
áhrif hins ,,nýja frjálslyndis” i
Bretlandi.
t 200.000 orða skýrslu, sem
nefndin hefur gert um athuganir
sinar, segir meðal annars: ,,Við
teljum okkur ekki vera neina
siðapostula, en við höfum komizt
að raun um það að i okkar þjóðfé-
lagi eru að verki öfl, sem stefna
að þvi að spilla hinni sönnu ham-
ingju og litillækka manneskj-
una”.
f nefndinni eru meöal annarra
fjórir biskupar, fjórir lögfræðing-
ar, rithöfundar, pop-söngvari og
plötusnúður. Formaður nefndar-
innar, sem er sjálfskipuð, er hinn
66 ára gamli Longford lávarður,
sem i fyrra hóf rannsókn sina
með þvi að skreppa til Kaup-
mannahafnar og skoöa samlifs-
sýningar, svonefnd „live-show”
og klámvöruverzlanir. Heimleið-
is hafði hann með sér i kilóavis
klámblöð, og var fyrsti lávarður-
inn, sem þurft hefur að gefa toll-
vörðum itarlega skýringu á þess
háttar i farangri sinum.
Nefndin leggur til ýmsar laga-
breytingar, sem miði að þvi að
draga úr klámi — en þar er nekt
ekki talin klám, né heldur myndir
og mál. sem fjalla um kynlif,
heldur það sem gerir þessa hluti
„niðurlægjandi og ómannlega”,
eins og sagt er i skýrslunni.
fræðaskólanum.
Ástæðan fyrir þvi, hve erfiðlega
gengur að fá kennara þangað, er
eflaust m.a. sú, að ekkert húsnæði
er til fyrir hann. En það kemur
Hvergerðingum spánskt fyrir
sjónir, að meðan húsnæðisleysi
veldur þvi, að kennarar fást ekki
að skólanum, stendur nýtt hús
upp á niu milljónir, sem upphaf-
lega ver byggt fyrir bankastjóra
staðarins, autt og yfirgefið.
Á höfuðborgarsvæðinu er
ástandið annað og betra en þar
sóttu 132 um þær 35 stöður, sem
losnuðu við barnaskólana i haust,
og 66 um 33 lausar stöður við
gagnfræðaskólana Þetta þýðir, að
um 2,9 umsækjendur voru að
meðaltali um hverja stöðu.
Uti á landi er ástandið þannig,
að sögn Sigurðar Helgasonar hjá
Fræðslumálaskrifstofunni, að ó-
ráðið er I 11 kennarastöður við
gagnfræðaskólana og eina skóla-
stjórastöðu. Við barnaskólana
vantar sömuleiðis 11 kennara.