Alþýðublaðið - 06.12.1972, Side 9

Alþýðublaðið - 06.12.1972, Side 9
íþróttir 2 / ARSEHAL OC LIVERPOOL LEIKA A ÚTIVELLI OM HELGINA - EN LEEDS FJER SINN LEIK HEIMA Þrjú liö hafa nú tekið afgerandi forystu i 1. dcild og kænii mér mjög á óvart, cf eitthvert þeirra hreppir ekki titilinn i ár. Liverpool er með :iO stig eftir 20 leiki, en Arsenal skipti um sæti við Leeds og er nú i 2. sæti með 27 stig eftir 21 leik. Þá kemur Leeds með 20 stig eftir 20 leiki. Tottenham er i 4. sæti nieð 2:tstig, en sfðan koma Chelsea og Ipswich með 22 stig. Baráttan á botninum er ekki siöur hörð og erfitt er aö gera sér grein fyrir þvi, nú þegar keppnin er rétt hálfnuö, hvaða lið komi til með að falla niður I 2. deild. Leicester, Stoke og Crystal Pal. eru á botninum meö 14 stig og senni- lega fcllur eitthvert þessara liða. WBA er meö 15 stig, en Man. Ctd., Birmingham og Sheff.Ctd. eru meö 16stig. Spámenn blaðanna stóðu sig i meöallagi vel I siðustu spá, þeir voru meö þetta frá 4-6 leiki rétta. Að venju var nokkuð um óvænt úrslit i leikjum siöustu lielgar, en þaö lelst nú vart til tiðinda, þvi þannig hefur það verið undanfarnar vikur. Kkki er von til að þetta lagist næstu vikurnar, þvi nú taka vellir að spillast á Englandi og viö slikar aðstæöur ske oft óvænt úrslit i meira lagi. Næsti getraunaseðil! býöur upp á marga skemmtilega leiki, sem gaman væri að sjá, en þar sem þess er ekki kostur, verðum viö að láta okkur nægja að vega og meta liðin, með þvi að reyna að koma einum, tveim eöa exinu á réttan stað og lifa svo i voninni fram til næsta laugardags um að nú sé loksins komið að mér eöa þér, aö fá stóra vinn- inginn. Og i bjargfastri trú um að nú takist okkur vel upp, þá snú- um við okkur að leikium næsta laugardags: BIIIMINGHAM-T.EICESTER 1“ Eftir hina góðu frammistöðu Birmingham gegn Liverpool á Anfield Road um s.l. helgi, finnst mér flest benda til þess að óhætt sé að spá liðinu sigri gegn Leicester, sem nú er i neðsta sæti i deildinni. Að visu átti Leicester ágætis leik um s.l. helgi og sigraði WBA örugglega, en eigi að siður hef ég meiri trú á heimaliðinu að þessu sinni. C'IIELSEA-NORWICH 1 Chelsea hefur átt i nokkrum erfiðleikum i undanförnum leikjum, en virðist nú vera að ná sinni fyrri getu. Að visu náði liðið ekki nema jafntefli við Stoke um s.l. helgi og var óheppið að hirða ekki bæði stigin. Norwich tapaði loks á heimavelli, en þar hafði liðið leikið 32 leiki án taps. Mér sýnist Chelsea öllu sigurstranglegra i þessum leik og spái þvi heimasigri. DERBY-COVENTRY 1 Þetta er einn af erfiðari leikjum á þessum seðli, þvi hér eigast við lið, sem bæði hafa leikið mjög vel að undanförnu og unnið marga góða sigra. Coventry hefur hlotið 14 stig af 16 mögulegum i siðustu 8 leikjum og Derby hefur lagt Olf- ana og Arsenal aðvelli i siðustu tveim leikjum. Allir mögu- leikar eru fyrir hendi i þessum leik, en ég spái heimasigri. EVERTON-WOLVES X Aftur erfiður leikur þar sem bæði liðin hafa náð misjöfn- um árangri að undanförnu. Everton hefur gengið slaklega i siðustu þrem heimaleikjum og sama má segja um Úlfana á heimavelli, þar sem þeir hafa tapað siðustu þrem leikjum þar. Helzt virðist manni sem Úlfarnir geti krækt sér i stig á útivelli og spái ég, að þeim takist að halda i annað stigið i þessum leik. IPSWICH-CRYSTAL PAL. 1 Ipswich hefur gert það ágætt i vetur og er nú i hópi efstu liða i deildinni með 22 stig eftir 19 leiki. Crystal Pal. er aftur á móti á botninum með 14 stig eftir jafnmarga leiki. Þótt Crystal Pal. hafi tekizt að gera jafntefli i siðustu tveim úti- leikjum, gegn Derby og Chelsea, á ég ekki von á öðru en heimasigri i þessum leik, en rétt er að hafa jafntefli i huga. LEEDS-WEST HAM 1 Leeds tapaði óvænt fyrir Arsenal á Highbury um s.l. helgi VEROUR GISLI BLONDAL MED VAL f KVÖLD? Allar likur eru á þvi aö Gisli Blöndal leiki aö nýju meö Val i kvöld, en sem kunnugt er hefur hann veriö frá keppni vegna meiösla frá Ólympiuleikunum i sumar. Gisli hefur aö sögn æft vel aö undanförnu, og hann er miklu léttari en i fyrra. Verður liann liðinu eflaust mikill styrkur. Tveir leikir fara fram i islandsmótinu i kvöld, klukkan 20,15 leika Vikingur og Arinann, og strax á eftir lcikur Valur gegn KK. og er nú i 3ja sæti á eftir Liverpool og Arsenal með 26 stig eftir 20 leiki. West Ham hefur heldur slakað á klónni að undanförnu, eftir ágæta frammistöðu, náði aðeins jafntefli við Newcastle á Upton Park á laugardaginn. Mér sýnist heimasigur vera nokkuð öruggur i þessum leik og kæmi raunar á óvart ef öðruvisi færi. MAN.UTD.-STOKE 1 Loksins virðist vera að rofa til hjá hinu fræga liði Man. Utd., sem það sem af er hefur haldið sig á botninum i 1. deild, sem er óvanalegt i þeim herbúðum. Fyrsti útisigurinn á keppnistimabilinu vannst um s.l. helgi á Carron Road gegn Norwich. Þá hefur liðið unnið siðustu tvo heimaleiki, svo ekki er út i hött að spá Man. Utd. öruggum sigri að þessu sinni, enda er lið Stoke heldur slakt þessa dagana án Gordon Banks. NEWCASTLE-SOUTHAMPTON 1 Ég hef haft það fyrir venju að spá Newcastle sigri á heimavelli gegn lakari liðunum i deildinni, en jafntefli gegn þeim sterkari. Að visu er þetta ekki óbrigðult frekar en annað, en hefur oft gefizt vel, þvi Newcastle tapar ógjarnan á St. James Park. Þar sem Southampton er slakt útilið og að minu viti i hópi lakari liða, spái ég heimasigri i þessum leik. SIIEEE.UTD.-Man.CITY X Það hefur verið erfitt að átta sig á Sheff. Utd. i vetur, þvi liðið á það til að leggja hin beztu að velli, en tapa siðan fyrir þeim slakari. Man City hefur verið aö sækja sig að undan- förnu og vann t.d. Leeds i siðasta útileik. Þótt ég þori ekki að ganga lengra, en spá jafntefli i þessum leik, finnst mér útisigur koma sterklega til greina. TOTTENIIAM-ARSENAL X Tottenham gerði ekki meira, en að ná i annað stigið gegn Dýrlingunum frá Southampton um s.l. helgi, en Arsenal vann dýrmætan sigur yfir Leeds, eftir hrakfarirnar i tveim siðustu leikjum, gegn Derby i deildinni og Norwich i deildarbikarnum. Liðin skildu jöfn á White Hart Lane i lyrra og ég spái sömu úrslitum að þessu sinni. W.B.A.-LIVERPOOL 2 Liverpool heldur öruggri forystu i 1. deild með 30 stig eftir 20 leiki, en WBA er aftarlega i röðinni með 15 stig eftir 20 leiki, en WBA er aftarlega i röðinni með 15 stig eftir jafn- marga leiki. Það sýnist þvi næsta öruggt að spá Liverpool sigri i þessum leik. WBA á að visu til, að koma á óvart og vann t.d. Liverpool i fyrra á The Hawthorns, en ég á ekki von á slikum úrslitum nú og spái þvi útisigri. PR ESTON-BLACKPOOL X Þá erum við komin að 2. deildar leiknum á þessum seðli og eins og svo oft áður er úr vöndu að ráða. Liðin eru i hópi efstuliðai deildinni og hafa náð svipuðum árangri og er þá sama hvort um heima- eða útleiki er að ræða. Það er þvi bezt að fara að öllu með gát og spá jafntefli. o Miövikudagur 6. desember 1972

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.