Alþýðublaðið - 04.01.1973, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 04.01.1973, Blaðsíða 12
KQPAVOGS APÖTEK Opiö öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og 3 NQKKUR LAUS? Talsverö brögð voru aö þvi i gær, að erfitt reyndist að fá leigubila, og þess voru jafnvel dæmi, að fólk þyrfti að biða eftir bil i allt að hálftima. Alþýðublaðið grennslaðist fyrir um ástæður fyrir þessum leigubilaskorti, og sá sem varð fyrir svörum hjá BSR sagði, aö hjá þeim hafi bilaflotinn verið fullkomlega nýttur i gær. Þar sagði hann, að spilaði inn i, að margar jólatrésskemmtanir hafi veriö haldnar i gær fyrir börn, benziniö væri orðið dýrt, og krónan fallin, auk þess sem færðin hafi ekki verið beint góð framan af deginum, og þegar þannig stæði á skildu margir eftir bila sina heima. Simakona á Hreyfli staðfesti einnig að miklar annir hafi verið i gær á þeirri stöð og nefndi sem eina ástæðu óvanalega mikið innan- landsflug, en reiknað var með, að nokkrar þúsundir farþega tækju sér flugfar. EN ÞEIR HAFA EKKI VERIÐ Á HVERJU STRÁI UNDANFARIÐ - LEIGUBÍLARNIR Sá sem svaraði á BSR bætti þvi við, að hann myndi ekki eftir öðrum eins önnum hjá stöðinni um þetta leyti, og þær hafi lika Framhald á 3. siðu.. ÞINGID I STRlDI VID NIXON VEGNA STRÍDSINS í VfETNAM ENDIR BUNDINN MEÐ LAGASETNINGU ? I NTB frétt frá Washington i gærkvöld segir, að bandariska þingiö hafi komið saman til fundar að nýju i gær og hefði þinghaldiö einkennzt af þeim vilja meirihluta þingmanna, að bundinn verði endir á striðið í Indókina með lagasetningu, ef Nixon forseti finnur ekki endanlega lausn á þvi alveg á næstunni. Talsmenn rikisstjórnarinnar vöruðu i gær við of mikilli bjartsýni um skjótan árangur hinna leynilegu viðræðna Dr. Henry Kissingers, aðalsamninga- manns Nixons forseta, og Le Duc Tho, aðal- samningamanns Norður- Vietnama, i Paris i næstu viku. Þrátt fyrir yfirburðasigur i forsetakosningunum i nóvember stendur Nixon forseti nú frammi fyrir al- varlegri andstöðu af hálfu demókrata en nokkru sinni fyrr i bandariska þinginu, þar sem demókratar hafa meirihluta. Er gert ráð fyrir, að i þvi striði, sem nú stendur yfir milli löggjafarvaldins (þingsins) og fram- kvæmdavaldsins (forsetans), muni koma til átaka á fjöldamörgum sviðum bandariskra stjórnmála, þó að hæst muni deiluna um striðið i Indókina bera. „Áður en við höfum fundið lausn varðandi striðið, er engin ástæða til að ætla, að okkur takist að veröa sammála á öðrum sviðum”, sagði Mike Mansfield, forystumaður demókrata i öldungadeildinni, daginn áður en þingið kom saman. Mike Mansfield sagði m.a. i þinginu i gær: „Til- raunir til þess aö komast frá þessu tilgangslausa striði án þess að tapa andlitinu algerlega hafa aðeins leitt til ennþá meiri eyðileggingar og hafa skaðað málstað bandarisku þjóðarinnar ennþá meira en áður var búið að gera”. Mansfield átti viðræður við Nixon um striös- reksturinn i Vietnam i fyrradag. — VERKALÝDSFÉLÖGIN Á RÁDSTEFNU: SEGJA ÞAD DPP SAMN- INGUNUM? I lok næstu viku kemur I ljós, Jiver viðbrögð verkalýðsfélag- ánna viö gengisfellingu islenzku krónunnar verða, en miðstjórn Alþýðusambands Islands hefur nú boðað til ráðstefnu þeirrar, sem ASl-þing samþykkti, að haldin yrði, þegar rikisstjórnin hefði lyft hulunni af fyrirhug- uðum efnahagsaðgerðum sinum. Ráðstefnan hefst föstudaginn 12. janúar næstkomandi i ráð- stefnusal Hótel Loftleiða. Eins og kunnugt er geta verka- lýðsfélögin sagt upp samningum sinum við vinnuveitendur með eins mánaðar fyrirvara, ef breyt- ingar verða á gengi íslenzku krónunnar. A ráðstefnunni kemur væntan- lega i ljós, hvort verkalýðsfélögin munu fýlgja þessu ákvæði samn- inganna eða ekki, en það er I valdi Gátu ekki gefið neina skýringu á 400 þús. kr. Tveir ungir Islendingar voru teknir til yfirheyrslu hjá embætti lögreglustjóra á Keflavikurflug- velli i gær, en sterkar likur benda til að þeir séu aðal tengiliðir milli útlendinganna tveggja, sem teknir voru með kiló af hassi á Vellinum fyrir mánuði, og is- lenzkra neytenda. A annan tug tslendinga haf^pý, tengst málinu allt frá ’ ,dreifingu) til neyzlu, að þvi er blaðiö fregnaði hjá fiknilyfjadeild lög- reglunnar i gær. Stöðugt er veríð að yfirheyra útlendingana, sem enn sitja i gæzluvarðhaldi og hefur ýmis- Framhald á 3. siðu. hvers verkalýðsfélags fyrir sig, hvort það segir samningum upp, en ákvarðast ekki af miðstjórn ASt. - SYNGUR FYRIR NICARAGUA SÖFNUNINA Næstkomandi þriðjudag, 9. janúar, heldur Aðalheiður Guð- mundsdóttir, söngkona, ljóða- og ariutónleika i Austubæjarbiói, en allurágóði af tónleikunum rennur i Nicaragua-söfnunina. Aðalheiður Guðmundsdóttir er eiginkona Sveins Einarssonar, verkfræðings, sem að undanförnu hefur verið við störf i Nicaragua á vegum Sameinuðu þjóðanna. Aðalheiður kemur hingað frá Þýzkalandi og er á förum til Nicaragua. Meðleikari á tónleikunum á þriðjudag verður Gisli Magnús- son, pianóleikari. Hérlendis söng Aðalheiður siðast fyrir fjórum árum, er hún héltkirkjutónleika á ýmsum stöð- um. Siðast liðin þrjú ár hefur hún verið búsett ásamt eiginmanni sinum i Mið-Amerikurikinu E1 Salvador og sungið þar opinber- lega við mörg tækifæri. — Viðtal Geirs við Magnús og Eið var undir- búningslaust Ætla mætti að Geir Hallgrimsson hafi látið af störfum borgarstjóra til þess að fara út i „skemmtana- bransann”, svo vel tókst honum til i sjónvarpinu, þegar hann tók að sér að hafa viðtal við frétta- mennina Eið og Magnús Bjarnfreðsson i þættinum „Hvað er i kassanum?” sem var fluttur á gamlárskvöld. Alþýðublaðið hafði samband við Stefán Halldórsson, sem stýrði þættinum ásamt Vigdisi, Finn- bogadóttur ásamt Vigdisi Finn- spurði hann hvernig hafi gengið að fá Geir i tuskið. Það gekk mjög vel, sagði Stefán, Geir var strax til i að taka þátt i grininu, og hann bætti þvi við, að viðtalið hafi verið alveg undirbúningslaust, það eina sem ákveðið var fyrir- fram var, að þekktur stjórn- málamaður spyrði frétta- mennina um starfið. Og svo er spurningin: Eru veðurfræðingarnir fjórir virki- lega allir svona lagvissir? Við spurðum þvi Stefán, hvort þeir hafi sungið sjálfir, eða aðrir fengnir- til þess að lána söng- raddir sinar. Það sagði Stefán, að væri leyndarmál, en „Kannski veðurguðirnir hafi hjálpað þeim" bætti hann við. t lok þáttarins var getið flestra eða allra þeirra, sem lögðu hönd á plóginn, og þar á meðal höfunda hins talaða orðs. En sennilega hefur það farið framhjá mörgum, svo við báðum Stefán að rifja upp nöfn þeirra. Textahöfundarnir eru reyndar fleiri en svo, að hann myndi nöfn þeirra allra i einni svipan, en efsta á blaöi sagði hann vera Jón Hjartarson leikara og fyrrverandi blaða- mann, Björn Björnsson hjá Sjónvarpinu og Hermann Jó- hannsson hjá Sjónvarpinu. Framhald á 3. siðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.