Alþýðublaðið - 07.01.1973, Page 3
RABBAMERKI - KONA
bundin heimili sinu og börnum.
Hún mundi og telja mjög skorta
á allt öryggi, og þurfa á meira
langlundargeði að halda en
henni er gefið til þess að geta
unað sambúðinni við þennan
mann.
Krabba merkiskona og
karl-
maður fæddur undir
KRABBAMERKI,
21. júni—20. júlí
Hjónaband tveggja aðila,
fæddra undir sama stjörnu-
merki, er sjaldnast. auðvelt eða
hamingjusamt, þar sem tvær
persónur, mjög likar að allri
gerð, fá fljótt leiða hvor á ann-
arri. Hvort um sig mundi gera
mjög miklar kröfur, og liklegt
er að vonbrigðin létu ekki á sér
standa, þegar það kæmi á dag-
inn, að gagnaðilinn væri ekki
eins fullkominn og skyldi. Bæði
mundu þau frekar láta geð og
tilfinningar ráða fyrir sér held-
ur en rökhyggju og skynsemi
og þvi hætt við að ákvarðanir
þeirra kynnu ekki alltaf góðri
lukku að stýra. Jafnvel þótt þau
geti haft harla sterkt aðdráttar-
afl hvort á annað, og ást þeirra
að vera einlæg ,kunna þau að
vilja drottna hvort yfir öðru i
hjónabandinu, og ef til sundur
þykkis kemur er hætt. við að
hvorugt vilji láta undan. Hvort
um sig þarfnast sterkari aðila
til öryggis. Hvort um sig mundi
ætlast til að þvi væri auðsýnd
umhyggja og tillistsemi, og litið
upp til þess, og finnast það
blekkt af hinu, þegar sú yrði
ekki raunin.
Krabbamerkiskona og
karl-
maöur fæddur undir
LJÓNSMERKI,
21. júli—21. ágúst.
Hjónaband þessara aðila getur
orðið hamingjusamt á margan
hátt, þvi að Ljónsmerkingur
gæti búið þannig að henni og
komið þannig fram við hana, að
henni þyki öryggi sinu vel borg-
ið i sambúðinni við hann. Lik-
legt er að hann auðsýni henni
umhyggju og væri henni trúr, en
sennilegt er lika að hann mundi
nokkurs af henni krefjast i stað-
inn, til dæmis að hún auðsýndi
honum fyllstu virðingu. Ljóns-
merkingurinn ástundar yfirleitt
virðulega framkomu, og þeir
sem umgangast hann, verða þvi
mjög að gæta þess að særa ekki
stolt hans. Sjálfur er hann mjög
nærgætinn þeim, sem hann ann
og liklegt er að honum mundi
þykja skorta skilning sinn og
samúð, þegar hún tæki þegj-
andaköstin. Hann vill eiga að-
laðandi konu, og geta verið
stoltur af henni, og afleiðingin
yrði ef til vill sú að hún yrði að
verja meiri tima til að snyrta
sig og við að halda þokka sinum,
en nun teldi sig mega missa frá
heimilisstörfunum. Með um-
burðarlyndi, skynsemi og gagn-
kvæmri velvild ætti hjónaband
þeirra að geta orðið hamingju-
samt.
Krabbamerkiskona og
karl-
maður fæddur undir
MEYJARMERKI
22. ágúst—22. sept.
Þarna gæti orðið hið ágætasta
hjónaband, báðum aðilum til
mikillar hamingju. Hann er
raunhygginn og lætur tilfinn-
ingarnar ekki hlaupa með sig i
gönur, en þó er sennilegt að
hann kynni vel ástriki hennar.
Hann mundi hafa róandi áhrif á
hana, og hún mundi telja sig ör-
ugga i umsjá hans og álita sig
hafa af honum traust og skjól.
Hann er venjulega friðsamur
náungi og tiltölulega auðvelt að
hafa gottsamkomulag við hann,
það er halzt að hann þusi i
sambandi við smámuni, en
hann mundi aldrei gera eigin-
konu sinni gramt i geði vitandi
vits. Hann mundi veita henni þá
hversdagslegu kjölfestu, sem
hún þarfnast og fullnægja hold-
legri ást hennar þannig, að til-
finningar hennar héldust nokk-
urnveginn i jafnvægi. Og þar
sem hann er fremur hlédrægur
sjálfur að eðlisfari, mundi hann
láta sig einu gilda þó að hún
væri þá dálitið þegjandaleg á
köflum. Væru þau bæði fús til að
leggja nokkuð á sig i þvi skyni
að hjónabandið yrði affarasælt,
er ekki að efa að þeim mundi
takast það.
Krabbamerkiskona og
karl-
maöur fæddur undir
VOGARMERKI,
23. sept.—22. október.
Nokkurra erfiðleika gæti gætt ef
þessar tvær persónur gengju i
heilagt hjónaband. Hann er
yfirleitt ekki heimilisrækinn
maður, enda þótt hann geti átt
það til að eyða miklu fé til að
búa heimili sitt allskonar ó-
venjulegum þægindum og
skarti. Honum er ekki gjarnt að
spara fyrir ókomna tima, vill
heldurnjóta peninga sinna á lið-
andi stund. Fyrir bragðið er
ekki vist að hann gæti veitt
henni það öryggi, sem kven-
mönnum; fæddum undir
Krabbamerki, er svo mjög
nauðsynlegt. Ekki er hann yfir-
leitt mjög tilfinningarikur, get-
ur virzt dálitið utan við sig á
köflum, en eigi að siður getur
hann verið mjög ástriðuheitur.
Eflaust gæti honum reynst tor-
veltað skilja það hve hún móðg-
ast oft af litlu tilefni, eða engu,
enda eru tilfinningar hens ekki
eins sterkar eða staðfastar og
hennar. Hann getur verið um-
hyggjusamur, og vel liklegt- er
að hann gæti séð eiginkonu sinni
fyrir daglegum þörfum og það
ef til vill rikmannlega á köflum,
en aftur á móti er hætt við að
henni fyndist sér ekki fullnægt
tilfinningalega i hjónabandinu
við Vogmerkinginn.
Krabbamerkiskona og
karl-
maöur fæddur undir
DREKAMERKI,
23. okt.—22. nóv.
Drekamerkingur og kona fædd
undir Krabbamerki eiga aftur á
móti all vel saman. Hann á það
til að vera ráðrikur og kröfu-
harður, en hún mundi að öllum
likindum kunna þvi vel sem
merki um að hann vildi sjá vel
fyrir henni og veita henni nauð-
synlegt öryggi. Hann er oft
mjög ákafur og leggur sig allan
fram, þegar hann tekur sér eitt-
hvað fyrir hendur, en um leið er
hann þurfandi fyrir hvatningu
og hrós, og er liklegt að hún
mundi fús að láta honum hvoru
tveggja i té, þar eð hún mundi
kunna vel að meta ást hans og
umhyggju. Yfirleitt ætti svo til
finningarik og geðmikil kona að
vera honum stoð og styrkur, þar
eð hún mundi leitast við að upp-
fylla þarfir hans og kröfur, og
takast það. Hlédrægni hans
mundi ekki koma á neinn hátt
illa við hana, þar sem hún vill
oft vera ein um hugsanir sinar
sjálf. Jú, vandamál gætu gert
vart við sig i hjónabandinu, en
með skilningi og ástriki ætti
þeim að takast að leysa þau.
Krabba merkiskona og
karl-
maöur fæddur undir
BOGAMANNSMERKI,
23. nóv.—20. des.
Heldur er það ólikt að Bogmað-
ur hafi sterkt aðdráttarafl hvað
þá konu snertir, þar eð þau eiga
harla fátt sameiginlegt. Kæmi
samt sem áður til hjónabands
með þeim, mundi henni finnast
nóg um hve laus hann virðist i
rásinni, og ekki telja mikils ör-
yggis af honum aö vænta, og þar
eð hann yrði sennilega mikið að
heiman, er hætta á að hún teldi
sig vanrækta. Ekki er liklegt að
hann kynni réttilega að meta
viðleitni hennar til að halda
heimilinu hreinu og þægilegu,
að minnsta kosti ekki eins og
vert væri. Ekki yrði heldur
stundarviðmiðun hans samfara
áhugaleysi gagnvart þvi ó-
komna verða til að auka á ör-
yggiskennd hennar. Hann hefur
oft rikt skopskyn, en eins vist að
henni þyki það alls ekki hlægi-
legt, sem hann skopast að. Sök-
um þess hve móðgunargjarnt
henni er, gæti henni sárnað við
hann stórlega, þegar það væri
alls ekki ætlun hans að gera
henni gramt i geði. Og yfirleitt
•nundi hann vera um of hvarfl-
andi og fljótur að skipta um
skoðun, til þess að hún gæti
fundiðhamingjui hjónabandi við
hann, en ef til hjónabands kæmi,
þyrftu bæði að gera mikið átak
ef það ætti að verða affarasælt.
Krabbamerkiskona og
karl-
maður fæddur undir
STEINGEITARMERKI,
21. des.—19. jan.
Það er ekki óliklegt að nefnd
kona mundi laðast að þessum
manni, en þar eð skapgerð
þeirra er ólik, má gera ráð fyrir
að bæði yrðu nokkuð á sig að
leggja til þess að hjónabandið
gæti orðið hamingjurikt, ef til
hjónabands kæmi. Hann yrði að
öllum likindum meira háður
starfi sinu en heimiíi, og ef til
vill mundi hann ekki sinna eig-
inkonu sinni eins og hún kysi og
á þann hátt. Aftur á móti kemur
svo það, að hann er yfirleitt far-
sæll og dugmikill, og mundi þvi
reynast þess umkominn að
tryggja henni efnahagslegt ör-
yggi og hið glæsilegasta og
þægilegasta heimili. Ef til vill
yrði hann um leið um of af-
skiptasamur að hennar dómi
um heimilisreksturinn, og
mundu henni gremjast allar
spurningar hans þar að lútandi.
Traustur og trúr eiginmaður er
hann oftast nær, þegar hann
hefur á annað borð lagzt við hjú-
skaparstjórann. Með þvi að
beita skynsemi og skilningi af
beggja hálfu, sýnist ekkert þvi
til fyrirstöðu að kona fædd undir
Krabbamerki og eiginmaður
fæddur undir Steingeitarmerki
gætu jafnað með sér allan
ágreining og hjónaband þeirra
orðið hamingjusamt.
Krabbamerkiskona og
karl-
maður fæddur undir
VATNSBERAMERKI,
20. janúar—18. febrúar.
Fátt eitt á sá karlmaður sam-
eiginlegt við þá konu, en þó er
þar ekki um algerar andstæður
að ræða. Hann er ekki sérlega
heimakær, og eins liklegt að
hann yrði jafnvel langdvölum
heiman að. Hún mundi að öllum
likindum þykjast vanrækt af
hans hálfu, og þegar svo þar viö
bættist að henni þætti hann
sennilega allt of örlátur á pen-
inga og umgangast á gálaus-
lega, mundi það verða til þess
að henni þætti litils öryggis að
vænta i sambúðinni við hann. Þó
að hann sé maður hversdags-
gæfur og flestum veitist auðvelt
að komast af við hann er mjög
sennilegt að konu, fæddri undir
Krabbamerki þætti hvorki fýsn
hans nógu sterk eða ástriða
nógu heit, og fyndist þá hvoru
tveggja á vanta, öryggið og full-
næginguna, eða það tvennt sem
henni er mest i mun. Sakir þess
hve hann er yfirleitt jafnlyndur,
mundi hann ef-til vill ekki telja
sig hafa neina ástæðu til að
kvarta i hjónabandinu, en hún
hins vegar verða þar fyrir sár-
um vonbrigðum, tilfinningalega
og likamlega.
Krabbamerkiskona og
karl-
maöur fæddur undir
FISKAMERKI,
19. febrúar—20. marz.
Þar sem sá maður er oft og tið-
um mjög tilfinningarikur og ör
til ásta, getur hann reynst þess-
ari konu heppilegur eiginmað-
ur. Hún mundi kunna vel að
meta ástriki hans og umhyggju,
og telja sig eiga öryggi og ham-
ingju að fagna i hjónabandi við
hann. Hann mundi ekkert hafa á
móti þvi að hún auðsýndi honum
móðurlega umhyggju og nostr-
aði við hann, og hann er ekki
siður heimiliskær en hún. Þau
ættu þvi bæði að verða harla
hamingjusöm i sambúðinni, og
heimilið að verða þeim ánægju-
legt. Sjálfur er hann viðkvæmur
og oft auðsærður, og mundi þvi
skilja tilfinningalega afstöðu
hennar og gera sér far um að
forðast að særa hana á nokkurn
hátt. Og þar eð hann er yfirleitt
óframfærinn fremur en fram-
gjarn, mundi hann kunna þvi
vel að hún tæki ákvarðanir i
flestum málum, eftir þvi sem á
stæði. Hann mundi og hrifast af
ástriki hennar og gera allt sem i
hans. valdi stæði til að veita
henni þá fullnægingu, að hún
hefði ekki yfir neinu að kvarta.
Það eru sumsé mikil likindi til
að hjónaband þessara aðila gæti
fært báðum hamingju og lifs-
fyllingu, og samfarir þeirra
verða góðar.
NÆST:
KARL í
wrnm
MERKI
þögn og tómlæti á hinar óbætan-
legu fornminjar verða hægfara
eyðileggingu að bráð að undan-
förnu, virtust allt i einu taka að
rumska. Og eftir miklar um-
ræður og vangaveltur urðu allir
að lokum sammála um hvar
skyldi hafizt handa. Elzta vis-
indaakademia i Róm hefur að-
setur sitt i Farnesina, gömlu
renessansesloti. Og nú var
ákveðið að vernda hina gömlu
og virðul. stofnun og hið virðu-
lega slot fyrir hávaða og titringi
vegna hinnar gifurlegu umferð-
ar vélknúinna farartækja um
Tiberstræti þar skammt frá,
með því að leggja þekju úr
gerviefni á akbrautirnar á 500 m
spotta. Það lag kemur i veg fyr-
ir allan titring og dregur úr há-
reystinni eins og þykk ábreiða á
gólfi.
Sunnudagur 7. janúar 1973
o