Alþýðublaðið - 09.01.1973, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 09.01.1973, Blaðsíða 9
íþróttir 2 ÞAÐ FÚR EINS OG MENN SPÁDU - TOPPLIDIN UNNU ÚLL SÍNA LEIKI Staöa Manchester United er | ákaflega alvarleg þessa stundina, og virðist það aðallega sök varnar liðsins, sem er hreint út hörmu- leg. Hún gaf alltaf eftir i leiknum, og þótt Bobby Charlton reyndi að hjálpa til, dugði það skammt. Ted McDougall vermdi varamanna- bekkinn allan leikinn. Leeds gat nú aftur sent fram lið, eftir að inflúenza hafði lagt allt liðið i rúmið um siöustu helgi. Þrátt fyrir að fjórir leikmenn væru þar enn, bar Leeds örugg- lega sigurorð af Tottenham á Ell- an Road. Mick Jones skoraöi á 14. minútu, og nokkru siðar Peter Lorimer úr vitaspyrnu. t seinni hálfleik meiddist Norman Hunt- er, og meðan stumrað var yfir honum skoraði Alan Gilzen frá- bærlega fallegt mark með skalla, eftir fyrirgjöf Cyril Knowles. Hunter var borinn útaf, og mörk- in urðu ekki fleiri. Bezti maður leiksins var að sögn BBC, sem lýsti leiknum, Alan Clarke fram- : herji Leeds. ’[ I Ipswich, sem þokað hefur sér upp i hóp þeirra efstu, með þvi að tapa aðeins einum af siðustu 15 leikjunum, vann enn góðan sigur á laugardaginn. Newcastle átti aldrei möguleika, og mátti jafn- vel þakka fyrir að sigurinn varð ekki stærri en 1:0. Markið gerði Trevor Whymark á 23. minútu með skalla, eftir að hafa fengið sendingu frá Morris. Annars urðu úrslit leikjanna á laugardag þessi: Arsenal-Manchester Utd. 3:1 Coventry-Leicester 3:2 Crystal P. Birmingh. Frestað Derby-Norwich 1:0 Everton-Stoke 2:0 Ipswich-Newcastle 1:0 Ledds-Tottenham 2:1 Manchester C.-Chelsea frestað Shefff. Utd.-West Brom. 3:0 West Ham-Liverpool 0:1 Wolves-Southampton 0:1 Aston Villa-Burnley 0:3 Derby er nú komið upp i fimmta sæti i 1. deild, og varð það sigur yfir Norwich á laugardaginn sem gerði útslagið. Derby byrjaði með miklu fjöri, en Norwich varðist vel, allt þar ti! á 37. minútu að Kevin Hector var brugðið innan vitateigs, og Alan Hinton skoraði úr vitaspyrnunni sem réttilega var dæmd. Keelan var frábær i markinu hjá Norwich, og hjá Derby var miðherjinn ungi Davies liflegur. Er þar mikið efni á ferðinni. stór, sterkur og hefur það umfram marga stóra, knatt- spyrnumenn að hafa frábæra boltatækni. I seinni hálfleik fjar- aði Derby alveg út, og munaði oft litlu að Norwich tækist að jafna. Coventry sigraði að vanda heima, en það er jafn öruggt og að liðið tapar á útivelli. Mörk liðsins gerðu Stein, Carr og svo mótherji úr liöi Leicester. Worthington og Weller gerðu mprk Leicester. Sheff. United tókst nú loks að sigra, og fórnarlambið var West Brom. Billy Dearden gerði tvö af mörkum liðsins, og McKenzie rak endahnútinn með góðu marki. Þá virðist Everton einnig ganga bet- ur þessa siðustu daga, John Conólly og Mike Buckley skoruðu mörkin tvö sem dugðu til sigurs yfir Stoke. Og þá má ekki gleyma Southampton, sem vann einn sinna örfáu útisigra á laugar daginn, i hörðum leik gegn Wolverhamton. Sigurmarkið gerði Mike Channon i fyrri hálf- leik. ' Staða efstu og neðstu liðanna i 1. deild er þessi eftir leiki helgar- innar. Liverpool Arsenal Leeds Ipswich Birmingham West Brom Crystal P. Manch. Utd 26 17 6 3 50:26 40 27 15 7 5 37:25 37 25 14 7 4 47:26 35 26 12 9 5 36:26 33 26 5 9 12 31:43 19 25 6 7 12 24:35 19 24 5 8 11 25:32 18 25 5 7 13 23:41 17 t 2. deild virtist sem Burnley ætliaðhalda sinu striki. 38 þúsund áhorfendur á Villa Park, velli Aston Villa, horfðu skelfingu lostnir á Burnley gjörsigra heimaliðið 3:0 Keith Newton (áð- ur Everton og enska landsliðinu) skoraði fyrsta markið á 14. minútu, Nulty gerði mark númer tvö og siðasta markið gerði Bing- ham. Þá vann Queens Park Rangers stórsigur yfir Preston 3:0, og heldur öðru sætinu. Tvö af mörk- um QPR gerði Don Givens, leik- maður sem Manchhester United og siðar Luton þótti ekki nógu góður, en er nú markhæstur i 2. deild með 18 mörk. t neðsta sæti i deildinni er Brighton & Howe Albion, sem á laugardaginn tapaði sinum 10 leik i röð! Fátt getur bjargað Brighton úr þessu, og 3. deildin blasir við liðinu að nýju. 1 3. deild hefur Bournmouth for- ystuna, og þar gerir Brian Clark það gott, hefur skorað 11 mörk siðan hann var keyptur til liösins til að fylla skarð Ted McDougall. t 4. deild er Mancfield i efsta sæti. Rúmlega 56 þúsund manns sáu leik Arsenal og Manchester United, sem var hæsta áhorf- endatala i Englandi. En hún er bara lág i samanburði við 72 þús undin sem voru á Ibrox i Glasgow ogsáu leik erkióvinanna Rangers og Celtic. Og fagnaðarlætin voru æðisgengin, þegar Rangers tókst að skora mark á 89. minútu sem tryggði 2:1 sigur. Markið gerði Conn, en áður hafði McParland skorað fyrir Rangers og Dixie Deans fyrir Celtic. Hibernian sigraði East Fife á laugardaginn 1:1, og komst þar með i efsta sæti, Rangers er i öðru sæti og Celtic verður að láta sér nægja þriðja sætið.En Celtic hefur það framyfir hin liðin, aö hafa leikið færri leiki. En sem sagt, nú virðist loks ætla að færast virki- leg spenna i skozku knattspyrn- una, eftir áralanga einokun Celtic - SS. URUGSKAHIGKIPIR KCRNELÍUS JONSSON SKÖLAVOROUSTlG 8 BANKASTRÆ Tl 6 18588-18600 Karl Ben. KARL LANDSLIÐSÞJÁLFARI Stjórn HSÍ gekk á laugardag- inn endanlega frá ráðningu landsliðsþjálfara i handknatt- lcik og skipun landsliðsnefndar. Var Karl Benediktsson ráðinn landsliðsþjálfari fram yfir hcimsmeistarakeppnina i Aust- ur-Þýzkalandi 1974, og i lands- liðsnefnd með honum voru skip- aðir þeir Jón Erlendsson, sem verður formaður nefndarinnar, og Páll Jónsson, núverandi liðs stjóri Fram. Þessi skipan mála kom alls ekki á óvart. Vitað hefur verið um langan tima að Karl yrði fyrir valinu, og að hann setti sem skilyrði fyrir ráðningu aö Páll Jónsson yrði með honum i landsliðsnefnd. Þá var það einn- ig vitað að Jón Erlendsson yrði formaður nefndarinnar. Hefur verið sagt frá þessari skipan mála áður hér á siðunni. Þar sem um svona langtima ráðningu er að ræða, ákvað stjórn IISÍ að flana ekki að neinu, heldur ganga frá öllum smáatriðum áður en gengið væri frá ráðningu. Fyrir liggur áætlun nokkur ár fram i timann, unnin af nefnd fimm inanna. Nær hún i smáatriöum fram yfir IIM 1974, og eftir það i stærri dráttum fram til ársins 1976. Þeir þremenningarnir eru all- ir vel þekktir i handknattleikn- um. Karl var um nokkurra ára skeiö fastur maður i islenzka landsliöinu, og siðar landsliðs- þjálfari. Jón hefur um árabil starfað að handknattleiksmál- um, á siðastliðnum árum sem formaður iandsliðsnefndar. Þá hefur Páll Jónsson getið sér gott orð sem liðsstjóri tslands- meistaraliös Fram. V'æntanlega verður farið hægt i sakirnar i byrjun, en liklega verður einhver landsliðshópur valinn i lok þessarar viku, og þá væntanlega með lcikina við Grúsiumenn i huga, en þeir verða i byrjun febrúar. Lands- liðið hefur Laugardalshöll til af- nota á miðvikudagskvöldum, ásamt unglingalandsliöi pilta og kvennalandsliði. Væri vel til fundið hjá lands- liösncfnd að efna til pressuleiks áður en hún velur landsliðshóp. Nú er einmitt rétti timinn til slikra leikja — SS. Liverpool hélt sinu striki á toppi 1. deildar i Englandi á laugardag- inn, með þvi að sigra Wcst Ham á útivclli 1:0. Þar með heldur Liverpool þriggja stiga forystu umfram næsta lið, sem er Arsenal. Annars breyttist staöa efstu liðanna ekki innbyrðis á laugardaginn, þvi þau sigruðu öll fjögur i sinum leikjum. Liverpool var eina liðið sem sigraði á úti- velli, Arsenal, Leeds og Ipswich unnu öll hcima. Þetta eina og dýrmæta mark Liverpool gerði hinn ungi enski landsliösmaður Kevin Keegan á 74 minútu. Hann fékk góða send- ingu frá vinstri, þar sem Steve Highway hafði brotizt upp að endamörkum, og sendingu High- ways skutlaði Keegan fallega i netið. Þetta var mikilvægt mark, og jafnframt 50. mark Liverpool i deildinni. West Ham átti öllu meira i fyrri hálfleik, þrátt fyrir að bæði Bonds og Brooking vantaði i liðið. Kom það á móti að Emelyn Hughes varð að fara af miðjunni i bak- varðarstöðuna hjá Liverpool, i stað Alec Lindsay sem var veik- ur. Þá vantaði einnig John Tos- hack. • Þrátt fyrir að West Ham ætti meira i leiknum, dugði það ekki til marks i fyrri hálfleiknum, en litlu munaði eitt sinn hjá Clyde Best. I siðari hálfleik tók Liver- pool völdin i sinar hendur, og náði þvi takmarki sem öll iið keppa að, skora mark, og það dugði til sigurs. A Highbury gat Tommy Docherty ekkert að gert þegar Arsenallék sér að nýja liðinu hans, Manchester United, Kennedy reið á vaðiö á 35. minútu, og George Graham, fyrrum Arsenal leik- maður, hjálpaði við að koma knettinum i eigið net. A 48. min- útu skoraði George Armstrong, og Alan Ball fullkomnaði verkið stuttu siðar. Sjö minútum fyrir leikslok tókst Brian Kidd aðeins að rétta stöðuna, og leiknum lauk 3:1. Askriftarsíminn er : 86666 Kevin Kecgan skoraði markið mikilvæga sem tryggði sigur Liverpool yfir West Ham. Þetta var jafnframt 50. mark Liverpool i 1. deild á keppnistimabilinu. HORSFIELD HÆSTUR Arthur Horsfield miðherji 3. I deildarliðsins Charlton Athletic, er nú markhæstur leikmanna i Englandi. Hann hefur gert 21 mark fyrir lið sitt. Horsfield þessi | lék lengi með Middlesbrough og Swindon, og með þeim félögum hefur hann gert yfir 100 mörk. i 1. deild er Martin Peters Tott- enham markhæstur með 18 mörk, en á hæla hans koma John Richards Wolves, Martin Chivers Tottenham og Brian „pop” Robson Wcst Ham með 17 mörk hver. Malcholm McDonald New- castle, John Radford Arsenal og Don Rogers Crystal Palace hafa gert 14 mörk, Bob Latchford Birmingham, John Toschack Liverpool og Jogn Tudor New- castle hafa gert 13 mörk, og Ted McDougall Manchester United og Rodney Marsh Manchester City hafa gert 12 mörk. I 2. deild er Don Givens QPR markhæstur með 18 mörk, en næstur kemur svo Alf Milwall með 13 mörk. Wood lék í fyrra með Shrewsbury, og var þá næst markhæstur allra í Englandi. Bobby Owen Carlisle og Brian Joicay Sheffield Wednesday hafa gert 12 mörk. Erfitt verður fyrir Horsfield að ná sama markafjölda og Ted McDougall tvö siðustu keppnis- timabil, en hann gerði nær 50 mörk hvort timabil — SS. Þriðjudagur 9. janúar 1973 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.