Alþýðublaðið - 18.01.1973, Side 9
íþróttir 1
ER MONTREAL UR LEIK
ÁRIB 1978?
Þunglega horfir nú fyrir Ólympiuieikununi i Montreal sumarið
1976. Bendir margt til þcss að hætt verði við að halda leikana þar,
og að þeir verði fluttir til Amsterdam i Hollandi. Lét Willi Daume
að þessu liggja fyrir helgina, en Daume er varaformaður
Alþjóða ólympiunefndarinnar.
Daume skýrði frá þessu á fundi i Munchen i Þýzkalandi. Sagði
hann að nefndin mundi á næstunni endurskoða staðarval sumar-
leikanna 1976. Astæðan væri sú, að ýmis vandamál hefðu skotið
upp kollinum i sambandi við leikana, og svo virtist sem fólk i
Kanada væri ekki ýkja hrifið að fá leikana til höfuðborgar sinnar.
Þá eru fjárhagsvandræði stór þáttur. Aðstendendur leikanna
hafa átt i erfiðleikum með að afla til þeirra fjár, og nú er t.d. ekki
búið að ganga enn frá ákveðnum hugmyndum um skipulag
leikjanna og mannvirkja þeim viðkomandi. Kanadastjórn og
Montrealborg standa frekar höllum fæti fjárhagslega þessa
stundina.
Þetta ásamt áhugaleysi fyrir ólympiuleikum i allri Norður-
Ameriku þessa stundina, hafa gert framtið Montrealleikanna
óljósa. 1 næsta mánuði kemur Alþjóða ólympiunefndin saman til
fundar. Þar verður þetta mál ofarlega á baugi, þótt helzta málið
verði þó að velja aðra borg i stað Denver i Bandarikjunum fyrir
vetrarleikana 1976, en eins og kunnugt er hefur Denver afsalað
sér leikunum. Liklegast er að þeir verði haldnir i borginni Salt
Lake City i staðinn, en hún er einnig i Bandarikjunum.
Það getur þvi farið svo, að báðar borgirnar sem fengið höfðu
Ólympiuleikanna 1976, verði að afsala sér þeim. Er framtið
leikanna sjálfra þvi i hættu. —SS.
VÍÐAVANGSHLAUP
Á VEGUM UMSK
Nú á næstunni munu félög
innan UMSK gangast fyrir opnum
viðavangshlaupum.
KÓP AVOGSHLAUP verður
haldið á vegum Frjálsiþrótta-
deildar Breiðabliks sunnudaginn
OPIÐ MÓT TBR
Sunnudaginn 28. janúar n.k.
gengst TBR fyrir opnu móti i
badminton. Keppt verður i ein-
liðaleik karla i meistara-, a- og b-
flokkum og i einliöaleik kvenna a-
flokki. Mótið hefst i Laugardals-
höllinni klukkan 12. Þátttaka til-
kynnist til Hængs Þorsteinssonar,
simar 35770 og 82725, fyrir 23. jan.
ásamt 200 króna þátttökugjaldi.
21. jan. kl. 14,00.Keppendur verða
að mæta við Vallargerðisvöll kl.
13,00.
BESSASTAÐAHLAUP verður
haldið á vegum Stjörnunnar og
Umf. Be'ssastaðahrepps á Alfta-
nesi. Hefst það sunnudaginn 11.
feb. kl. 14,30 við Bessastaðaveg.
ALAFOSSHLAUP verður
haldið á vegum Aftureldingar i
Mosfellssveit 11. marz kl. 14,00.
Hlaupið hefst við vegamót Úlfar-
fellsvegar og Vesturlandsvegar.
011 þessi hlaup verða opin og
ætluð fólki eldra en 14 ára. Karlar
hlaupa um 5 km. en konur um 2
km.
Verðlaun verða veitt sigur-
vegara i flokki karla og kvenna.
Verða það veglegir farandgripir
sem keppt verður um árlega.
FH 08 IR TðPllRU f 6ÆRKVÖLDI
- SPENNAN INÁMARKI k Nf!
^Lagos, January 1973«i
by Tshimpumpu
wa Tshimpumpu
Við rákumst á
grein eftir þennan
mann i erlendu
blaði. Við gátum
ekki stillt okkur
um að birta nafn
lannsins.
GRYUFF
SÝNDI
ÁIBROX
Skozka liðið Glascow Rangers
er 100 ára á þessu ári. t fyrra-
kvöld lék liðið afmælisleik við
Ajax, og fór leikurinn fram á
heimavelli Rangers, Ibrox, að
viðstöddum 60 þúsund -áhorfend-
um.
Ajax lék ákaflega vel, og
sigraði verðskuldað 3:1
Snillingurinn Johan Gryuff var
maðurinn að baki sigrinum, og
hann hélt einskonar sýningu i
knatttækni. Hann skoraði eitt
marka Ajax, og lagði auk þess
grunninn að hinum tveimur.
AJAX GEGN
BAYERN!
í gær voru dregin saman lið i 8-
liða úrslitum Evrópukeppninnar.
P'ór drátturinn i'ram i Frankfurt.
Úrslit dráttarins urðu þcssi:
Evrópukeppni meistaraliða:
Ajax, Hollandi-Bayern Munchen,
V-Þýzkalandi.
Dynamo Kiev, Sovétrikjunum —
Real Madrid, Spáni.
Juventus, ttaliu — Ujpest Dozsa,
Ungverjalandi.
Spartak, Tékkóslóvakiu — Derby,
Englandi.
Evrópukeppni bikarmcistara:
Hibernian, Skotlandi — Hadjuk
Split, Júgóslaviu.
Shalke 04, V-Þýzkalandi — Sparta
Prag, Tékkoslóvakiu.
Spartak Moskva, Sovétrikjunum
— AC Milan, ttaliu.
Leeds, Englandi — Rapid
Bukaresti, Rúmeniu.
UFEA-bikarkeppnina
Kaiserlauten, V-Þýzkalandi —
Framhald á bls. 4
AUKA
AÐALFUNDUR
Troðfullt var i Laugardals-
höllinni i gærkvöldi, og stemning i
hámarki. 1 fyrri leiknum, milli 1R
og Vikings, stafaði spennan af þvi
hversu leikurinn var jafn lengst
af. Leit lengi vel út fyrir að enn
eitt jafntefli þessara liða væri i
uppsiglingu, en i lokin áttu
Vikingarnir mjög góðan sprett,
og tókst að tryggja sér sigurinn.
Það var einkum ungum pilti að
þakka, Viggó Sigurðssyni, sem
undir lokin gerði fjögur mörk i
röð á örlagatimum. Er þar mikið
efni á ferðinni. Þá vakti mark-
varzla Eiriks Þorsteinssonar
verðskuldaða athygli, en hann lék
nú sinn fyrsta leik fyrir Viking i
mörg ár.
Einar Magnússon var mark-
hæstur Vikinga með sex mörk, en
hjá ÍR var Vilhjálmur
Siggeirsson markhæstur með átta
mörk. I heild var leikurinn góður,
og mestu munaði um það hjá 1R,
að Geir Thorsteinsson var ekki i
stuði i markinu.
Valsmenn mættu sérlega
ákveðnir til leiks gegn FH, og má
segja að þeir hafi i byrjun gert út
um leikinn. Vörnin var nú loks
eins og i gamla daga, sannkölluð
mulningsvél. Sýndu Valsmenn
bezta varnarleikinn sem sést
hefur hér i vetur.
Staðan i hálfleik var 10:5, og
Valsmenn komust jafnvel I 14:5
um tima, eða niu mörk yfir. En
upp frá þvi fóru þeir heldur að
slaka á klónni, enda orðnir
þreyttir, en samt var það full-
mikil gjafmildi að gefa eftir svo
mörg mörk sem reynd varð á.
Lokastaðan var 20:15.
Sem fyrr segir var vörn Vals
frábær, og fann FH ekkert svar
þar við. Þá varði Ólafur Bene-
diktsson frábærlega vel. Mark-
hæstur Valsmanna var Jón
Karlsson með sex mörk, en hjá
FH gerði Viðar fimm mörk.
Frekar slakur leikur. Nánar
verður sagt frá leikjunum á
morgun.
-SS.
Aukaaðalfundur Sundráðs
Reykjavikur verður haldin laug-
ardaginn 27. janúar i fþróttamið-
stöðinni i Laugardal og hefst kl.
14,00. Fundarefni: Stofnun aga-
nefndar eða sunddómstóls Sund-
ráðs Reykjavikur.
Nú hefur heldur betur færzt spenna i íslands-
mótið i handknattleik. í gærkvöld lauk uppgjöri
toppliðanna á þann veg að Vikingur vann ÍR
21:18, og Valur vann FH 20:15. Þar með eiga
fimm lið enn góða möguleika á sigri, FH, ÍR,
Vikingur, Valur og Fram.
.lóii lljaltalin Magnússon
JON HEIM I VOR
t vor lýkur Jón Hjaltalin Magnússon verkfræðinámi I Lundi I Svi-
þjóð. Hefur Jón stundað þar nám frá haustinu 1968, en um vorið
það ár lauk hann stúdentsprófi frá Menntaskólanum i Reykjavik.
Jón hyggst koma hingað til lands strax að loknu námi. Mun hann
þvi ganga i raðir Vikinga að nýju strax i vor, og leika með liðinu
næsta keppnistimabil. Þá mun hann væntanlega æfa með lands-
liðinu i sumar, þvi fullvist má telja að hann verði valinn i lands-
liðshópinn fyrir heimsmeistarakeppnina 1974, en undirbúningur
að henni hefst bráðlega.
Þegar Jón verður kominn i raðir Vikinga að nýju, verður ekki
vöntun á stórskyttum i þvi liði, þvi auk Jóns yrðu þeir Einar
Magnússon, Guðjón Magnússon, Magnús Sigurðsson og Páll
Björgvinsson iliðinu. Vikingar þurfa þvi greinilega ekki að kviða
skyttuleysi i framtiðinni. —SS.
Fimmtudagur 18. janúar 1973
o