Alþýðublaðið - 21.01.1973, Qupperneq 3
ERKI
KONA
22.
Kona fædd í
Ljónsmerki og
karlmaður fæddur í
MEYJARMERKI,
ágúst—22. sept.
Litlar likur eru á þvi að ljónynj-
an mundi laðast að þeim karl-
manni, eða hann að henni. Hann
eroftast nær mjög hlédrægur og
litt næmur fyrir áhrifum, og set-
ur skynsemina ofar tilfinning-
unum. Er ekki ósennilegt að hún
teldi hann vanrækja sig vegna
kaldlyndis hans. Auk þess er
hann mjög aðgætinn i peninga-
sökum, og mundi þvi aldrei liða
henni að sóa peningum i klæðn-
að og skartgripi. Hann er oft
gagnrýninn að eðlisfari og
mundi vafalitið særa stolt henn-
ar með endurteknum leið-
beiningum um hvernig hún ætti
að haga hlutunum, þá er og lik-
legt að hann skorti nokkuð þann
metnað og framkvæmdavilja,
er henni væri að hæfi. Hinir
mörgu vinir hennar og margvis-
legu áhugamál mundi hann ef-
laust láta sér fátt eitt um finn-
ast, og á samkvæmislifi og fé-
lagslifi hefur hann oftast litinn
áhuga. Það er þvi, satt bezt að
segja, ekki svo ýkjamargt sem
mælir með hjónabandi ljónynju
og manns, sem fæddur er i
Meyjarmerki, en hins vegar
býsna margt, sem mæ-lir i mót
þvi.
Kona fædd í
Ljónsmerki og
karlmaður fæddur í
VOGARMERKI, 23.
æpt,—22. okt.
Það eru ýmsar ástæður fyrir þvi
að það gæti orðið farsælt hjóna-
band ef ljónynjan gengi að eiga
mann, sem fæddur er undir
þessu stjörnumerki. Henni
mundi falla vel hvað sá maður
er yfirleitt vandaður og geðgóð-
ur, vinnandi i framkomu, glað-
vær og hugulsamur. Hann er oft
hinn skemmtilegasti félagi, hef-
ur yndi af að vera i glöðum sam-
kvæmum, og mundi þvi taka
þátt i samkvæmislifi og félags-
lifi með henni sem eiginkonu
sinni. Gallinn yrði að visu senni-
lega sá, að hann reyndist ekki
eins metnaðargjarn og harð-
duglegur og hún kysi, það er lik-
legt að hún yrði að brýna hann
og hvetja til að ná þeim árangri
i starfi og viðskiptum, er hún
teldi að keppa bæri að. Hann
mundi ekki taka henni illa upp
þó að hún eyddi talsverðu fé i
klæðnað og munað. Hann getur
verið ákafur i ástum og ástriðu-
heitur, en hætt er við að þar yrði
þol hans samt öllu minna en
hennar. Ekki mundi hann vera
konu sinni samþykkur, ef hann
fyndi að hún hefði á röngu að
standa, og ekki heldur þegja um
þess háttar, þvi að hann er
hverjum manni hreinskilnari.
En þrátt fyrir allt og allt, þá
niundi þeim sennilega koma vel
saman og hjónaband þeirra
geta orðið farsælt, ef bæði legðu
sig fram.
Kona fædd í
Ljónsmerki og
karlmaður fæddur i
DR EKAMERKI
23. október — 22.
nóvember.
Jafnvel þótt sá maður muni
hafa sterkt aðdráttarafl á ljón-
ynjuna þá eiga þau ekki vel
saman, og eins vist að þau yrðu
að sigrast á mörgum erfiðum
vandamálum, áður en sambúð
þeirra gæti orðið hamingjusöm.
Hann er oft ráðrikur og afbrýði-
samur og mundi sennilega ekki
þola neinum karlmanni að sýna
henni aðdáun. Auk þess er hann
oft harla ógætinn i orði og mein-
yrtur, og gæti sært vini hennar
og fjölskyldu með háði sinu, og
þá ekki siður hana sjálfa með
hreinskilnislegum athugasemd-
um. t stað þess að sýna henni
hugulsemi og fórnfýsi, er eins
vist að hann krefðist mikils af
henni, og léti sér fátt finnast um
framlag hennar. tmyndunarafl
hans er oft og tiðum ofvirkt, og
gæti hann þvi lagt aðra og meiri
meiningu i orð hennar og gerðir
en efni stæðu til og þar eð bæði
eru harla auðmóðguð, mundi
þurfa meiri þolinmæði en þeim
er gefin til þess að hjónaband
þeirra gæti orðið eins farsælt og
skyldi.
Kona fædd i
Ljónsmerki og
karlmaöur fæddur i
BOGMANNSMERKI,
23. nóvember—20.
desember.
Það ætti að verða þeim báðum
til hamingju og larsældar, ef
þau gengju i hjónaband. Hann
er yfirleitt ástrikur og ástriðu-
mikill og mundi þvi aðlagast vel
eðli hennar og uppfylla þarfir
hennar og kröfur hvað það
snertir. Þar eð hann er
sjaldnast ráðrikur eða eigin-
gjarn, mundi það ekki skerða
neitt hamingju hans þó að hún
fengi að fara sinu fram og sinna
sinum áhugamáluin. Sjálfur á
hann oft ýms áhugamál utan
heimilisins og atvinnu sinnar,
einkum á sviði iþrótta. Hún
mundi hins vegar sennilega
hafa áhyggjur af spilafysn hans
og hneigð til að tefla á tvær
hættur, þar eð hún er einnig gef-
in fyrir að tefla djarft og nýtur
alls sem er æsilegt. Það er til að
hann hróflaði eitthvað við virðu-
leika hennar með glettni sinni,
enda þótt gamanyrði hans séu
alltaf að kalla laus við alla ill-
kvittni. Hann hefur yndi af
skemmtunum allskonar og allri
tilhreytingu og er oftast nær
skemmtilegur l'élagi. Þau ættu
þvi að geta notið margvislegrar
ánægju i hjónahandi, og þegar
áhugi þeirra stefndi sitt i hvora
áttina, mundi hvorugt álasa
hinu fyrir það. Bæði eru þau trú
og trygg að eðlisfari svo öll
ástæða er til að ætla að hjóna-
band þeirra gæti orðið hiö far-
sælasta.
Kona fædd i
Ljónsmerki ocj_
karlmaður fæddur i
STEINGEITARMERKI
21. desember—19.janúar.
Enda þótt ljónynjan geti haft
harla sterkt aðdráttarafl á
þennan mann, er óliklegt frem-
ur að hann reyndist vel til þess
fallinn að gerast eiginmaöur
hennar. Ef hún giftist honum
samt, sýnist sem hún yrði að
gera ýmsar breytingar á eðlis-
lægum og geðlægum kröfum
sinum og mati, áður en hún gæti
orðið hamingjusöm með honum.
Tilfinningar hans yrðu ekki við-
lika rikar og hennar, og hlé-
drægni hans gæti leitt til þess að
hún teldi sig vanrækta og niður-
lægða. Hann er yfirleitt þannig
skapi farinn að hann vill vera
húsbóndi á sinu heimili, og þvi
er ekkert liklegra en að honum
yrðu á þau mistök að fara að
skipa henni fyrir verkum. Þá er
hann og oftast nær harla aðsjáll
i peningamálum og mundi ekki
leyfa henni að fara með fé
þeirra eins og hún vildi. Hann
mundi vilja að hún miðaði
fatnaðarkaup sin fremur við
endingu og gæði, en að það væru
skartflikur. Þó að hann sé eigin-
konu sinni trúr og tryggur, á
hann það til að vera henni ráð-
rikur og kröfuharður og leggja
hömlur á frjálsræði hennar.
Kona fædd i
Ljónsmerki og
karlmaöur fæddur í
VATNSBERAMERKI,
20. janúar—18. febrúar.
Jafnvel þólt að Vatnsberinn
kunni að hal'a mikið aðdráttar-
afl á ljónynjuna, mundi hún
þurfa að leggja hart að sér til
þess að hjónaband þeirra yrði
hamingjusamt, og þó einkum er
l'rá liði. En hvað um það, el'
henni tækisl að sigrast á þeim
mismun, sem á þeim er, gæti
hjónebandið orðið ákaflega
hamingjusamt. Þar eð hann
hel'ur ol'tast nær öllu meiri
áhuga á þjóðflokkum og fjar-
hegum kynflokkum heldur en
konu sinni og fjölskyldu er lik-
legt að ljónynjunni, eiginkonu
hans, þælti meira en litið skorta
á umhyggju hans og tillitssemi.
Hætt er við að henni fyndist
hann kaldur og seinvakinn, eins
brennandi og hún er i ástriðum
sinum og þurfamikil i ástum,
eins þó að hann gerði ekki neitt
af ráðnum huga, sem hun gæti
tekið na>rri sér. í rauninni gæti
hann unnað eiginkonu sinni hug-
ástum, þó að hinn mikli áhugi
hans á velferðarmálum al-
mennings eða alþjóðavanda-
málum hel'ði það i för með sér
að henni fyndist hann vanrækja
sig svo að ekki yrði við unað,
þar eðhenni er það alltaf mjög i
mun að vera i brennideplinum.
Einnig mundi hún eiga erfitt
með að sælta sig við hve heimil-
ið skipti hann litlu máli — sem-
sagt, það er hætt •'»#s.ið hana
skorti það umburfæ 5ondi, sem
frá hennar sjónarmiði þyrfti
með til þess að hjónaband
þeirra gæti orðið farsælt i lengd
og bráð.
Kona fædd í
Ljónsmerki og
karlmaöur fæddur i
FISKAMERKI,
19. febrúar—20. marz
Ekki væri það liklegur grund-
völlur að varanlegri hamingju
ef þau tækju þá ákvörðun að
ganga i hjónaband. Maður
fæddur i Fiskamerki er allt of
hneigður til dagdrauma og gef-
ur imyndunaraflinu um of laus-
an tauminn til þess að hún gæti
fellt sig við það. Hann er oft og
tiðum harla óraunsær og litt
hagsýnn og getur þvi átt örðugt
með að ná fótfestu i þessu harð-
vituga klifi samkeppninnar á
öllum sviðum. Hún vill aftur á
móti að eiginmaðurinn sé metn-
aðargjarn og mikill athafna-
maður, og að öllu leyti þannig
að hún geti litið upp til hans fyr-
ir glæsilegan árangur i lifinu, og
er þvi hætt við að hann brigðist
þar vonum hennar og stolti. Þar
sem skapgerð hans er ekki eins
sterk og skyldi, mundi hún
drottna yfir honum, og hætta er
á að svo færi að hún hefði hann
algerlega undir pilsfaldinum,
eins og áður var sagt. Jafnvel þó
að hann auðsýndi henni mikið
ástriki og umhyggju, mundi það
ekki na'gja lil þess að hún bæri
virðingu fyrir honum, ef hann
lcyfði henni að ráða yfir sér.
Þar eð hann er oft mjög við-
kvæmur, mundi hún trauðla
geta skilið hann. Þau þyrftu
bæði mikið á sig að leggja, ef
hjónaband þeirra ætti að bless-
ast — nokkurn veginn.
NÆST:
KARL í
LJÚNS-
MERKI
I'
þá er þvi miður margt sem
bendir til að þar munir þú eiga
við nokkurn andbyr að striða,
einkum fyrstu mánuði ársins. í
april og eins i júni munu vinir
þinir og nánir ættingjar veita
þér ómetanlega aðstoð, og
heilsufar innan fjölskyldunnar
fara mjög batnandi i april-
mánuði. I júlimánuði er ekki
óliklegt að einhver viðkvæm
einkamál verði farsællega til
lykta leidd.
Vogin,
23. sept.-22. okt.
Það má með sanni segja að
það liti út fyrir að verða til-
breytingarikt ár sem þú átt *i
vændum. Allt bendir til að þú
teflir býsna djarft og það á
ýmsum sviðum i febrúar, marz
og april og hafir þá heppnina
með þér. Getur þetta staðið i
einhverju sambandi við starfs-
köllun eða sérstæðar fyrirætl-
anir. Júnimánuður er mjög
vafasamur fyrir margra hluta
sakir.
ótrúlegt virðist að taka
nokkrar ákvarðanir, sem fyrst
og fremst snerta einkalifið og
tilfinningarnar, eða gera áætl-
anir þar að lútandi, nema undir
lok janúarmánuðar, um miðjan
marz, i lok maimánaðar og upp
úr miðjum júlimánuði.
Drekinn,
23. okt.-22. nóv.
Þú gætir orðið fyrir alvarlegu
tjóni efnahagslega, ef þú tækir
mikilvægar ákvarðanir eða
gerðir samninga, sem snertu
efnahag þinn og afkomu siðast i
mai eða fyrst i júni, og annað
slikt hættubil er svo siðast i
ágúst og fram i miðjan septem-
ber. Á þessum timabilum gæti
öll fjárfesting valdið miklum
vonbrigðum og tapi, saman-
sparað fé eyðst til einskis og
aðilar, sem ekki er treystandi
náð iskyggilega sterkum tökum
á efnahag viðkomanda.
Allt sem snertir vináttu og
jafnvel enn innilegri tilfinn-
ingar, á sér óskadaga i janúar
og febrúar og eins i júni og júli.
Árið mun reyna allmikið á taug-
arnar. Mikið veltur á að þú
undirbúir vel allar ákvarðanir
og haldir svo þinu striki eins
fyrir það þótt eitthvað blási á
móti.
Bogmaðurinn,
23. nóv.-20. des.
Efnahagslegu öryggi þinu ætti
ekki að vera nein hætta búin á
þessu ári, svo framarlega sem
þú lætur ekki heimskulegar og
glannalegar áætlanir ábyrgðar-
lausra aðila hafa áhrif á þig.
Aftur á móti virðist gæta
nokkurrar óvissu hvað til-
finningalifið snertir. Þér er
vissara að láta höfuðið ráða
fyrir hjartanu, en ekki hið gagn-
stæða, mestan hluta ársins.
Ýmsar aðstæður kunna að skap-
ast i marzlok, sem ýta undir
fljótfærnislegar ákvarðanir,
eins i júnimánuði og þegar liður
á desember, en það eru einmitt
slikar ákvarðanir, sem reynst
geta harla óheppilegar, og ber
aö forðast þær. Eins ber þér að
varast að bindast tengslum
kunningsskapar eða vináttu við
menn, sem þú þekkir einungis
litið eitt, og verða kunna á vegi
þinum á þeim tima, sem áður er
getið.
Steingeitin,
21. des.-19. jan.
Svo virðist sem þin biði þvi
sem næst ótakmörkuð tækifæri
á þessu ári til að sækja fram á
flestum sviðum og ná einkar
drjúgum árangri. Þér ætti þvi
svo sannarlega að geta tekizt að
bæta aðstöðu þina til muna,
bæði efnahagslega og hvað álit
snertir.
Heillavænlegast virðist fyrir
þig að taka allar mikilvægar
ákvarðanir, sem snerta tilfinn-
ingar og einkamál sérstaklega,
fyrir miðjan marzmánuð. Eftir
það verður þróunin á þvi sviöi
ekki eins hagstæð, og virðist þar
einkum hætta á óstöðugleika, og
að ekki verði eins takandi mark
á loforðum fólks eða orðum yfir-
leitt, og fyrir áður nefndan
tima. Má jafnvel reikna með
brigðmælgi, sem getur haft
alvarlegar afleiðingar, hafi eitt-
hvað verið fastmælum bundiö.
Vatnsberinn,
20. jan.-l9. feb.
Þau timabil, sem einkum
virðast öðrum betri, eru til
dæmis janúar allur — þegar þér
mun heppnast flest það sérlega
vel, er þú tekur þér fyrir hend-
ur, auk þess sem þú nýtur þá að
öllum likindum ómetanlegrar
aðstoðar einhvers vinar þins —
og frá þvi i byrjun april og fram
i miðjan mai, þegar ekki er ólik-
legt að þú njótir nokkurs fjár-
styrks sem þú hafðir ekki
reiknað með. 1 júlimánuði og
ágúst ætti efnahagur þinn að
standa traustum fótum, en þó
munu tekjur þinar ná hámarki
siðustu tvo mánuði ársins.
Þaö verður þvi ekki annað
sagt en að árið geti reynst þér
gott efnahagslega, og i einka-
málum ætti það einnig að verða
þér gott, en þá bezt fyrstu tvo
mánuðina, siðan i júni og fyrri
hluta ágústmánaðar. Ættirðu
þvi að taka þær ákvarðanir,
sem einkum snerta tilfinningar
þinar og einkalif á þeim tima-
bilum.
Fiskarnir, 19.
febr.-20. marz.
Allt bendir til þess að þú eigir
harla góðu gengi að fagna fyrstu
tvo mánuði ársins, bæði efna-
hagslega og i tilfinningamálum.
Þann tima ættirðu þvi að nota
eins og unnt reynist til ákvarð-
ana og framkvæmda á báðum
sviðum, enda sakar ekki, þegar
slikt getur fylgst að. t marz og
april verður hins vegar margt
erfiðara viðfangs að þvi er virð-
ist, meöal annars vegna þess að
skyldustörfin rekist þá á viss
atriði einkalifsins, og að þér
reynist á stundum allerfitt að
velja þar á milli.
Einhver hneigð til nýbreytni
virðist segja til sin, jafnvel við
óliklegustu aðstæður. En vissast
mun þér verða að fara þar gæti-
lega, jafnvel þótt freistandi
kunni að virðast að breyta til.
o
Sunnudagur 21. janúar 1973