Alþýðublaðið - 31.01.1973, Síða 5
IfWH
Alþýöublaösútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjórt
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjóm-
ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666.
Blaðaprent h.f..
Stórmál morgundagsins
Nú um þessar mundir eru danskir jafnaðar-
menn i þann veginn að leggja fram á þingi
frumvarp til laga um þátttöku launþega i stjórn
atvinnufyrirtækja. Hafa danski Alþýðuflokkur-
inn og danska verkalýðshreyfingin fjallað um
málið talsvert lengi, bæði sitt i hvoru lagi og
saman. Á milli jóla og nýárs hófust viðræður um
það á milli forsvarsmanna danska Alþýðu-
flokksins og SF-flokksins og náðist samkomu-
lag, sem tryggði þar með málinu þingmeiri-
hluta. Eru flokkarnir nú i sameiningu að leggja
siðustu hönd á smiði frumvarpsins og er ætlunin
að fá það lögfest þegar á þessu ári, þannig að á
næsta vetri verði lög um aðild launþega að
stjórn atvinnufyrirtækja gengin i gildi i Dan-
mörku. Þá hafa Danir stigið fyrsta skrefið á
braut atvinnulýðræðis.
Meðal vinstri manna á Islandi hafa atvinnu-
lýðræðismálin nú um nokkurt skeið verið til um-
ræðu. Ungir jafnaðarmenn munu fyrstir hafa
brotið upp á þeim hugmyndum og settu atvinnu-
lýðræði á stefnuskrá sina fyrir hart nær áratug,
en þá sömdu ungir jafnaðarmenn itarlegan
stefnuskrárkafla um atvinnulýðræði, sem i öll-
um meginatriðum er samhljóða þeirri fram-
kvæmd, sem siðar hefur á orðið i þeim málum i
nágrannalöndunum fyrir atbeina þarlendra
jafnaðarmanna.
Að frumkvæði ungra jafnaðarmanna var mál-
ið svo tekið upp i Alþýðuflokknum og ákvað
flokkurinn að taka það upp á sina arma. Var Al-
þýðuflokkurinn fyrstur islenzkra stjórnmála-
flokka til þess að gera sér grein fyrir mikilvægi
þessa máls og fyrstur til að ljá hugmyndunum
fylgi. Hafa Alþýðuflokksþingmenn m.a. tekið
málið upp á Alþingi og sem dæmi um það má
nefna tillögur Benedikts Gröndals, varafor-
manns flokksins, um aðild starfsmanna
Sementverksmiðjunnar og Áburðarverksmiðj-
unnar að stjórn þessara fyrirtækja frá þvi á s.l.
vetri. Einnig hafa Alþýðuflokksmenn i sveitar-
stjórnum flutt atvinnulýðræðishugmyndirnar
þangað inn og sem dæmi um það má nefna, að
það var fyrir frumkvæði Alþýðuflokksins, sem
bæjarstjórn Keflavikur veitti fyrir nokkrum
misserum starfsmönnum ákveðinna stofnana á
vegum bæjarfélagsins aðild að stjórn þeirra.
Atvinnulýðræðishugsjónin er griðarlega yfir-
gripsmikil, stórbrotin og nýstárleg. Hugmynd-
irnar um hvernig þvi marki skuli náð, sem hug-
sjónin um atvinnulýðræði felur i sér eru marg-
ar. Hver og ein þeirra felur i sér mikla réttarbót
fyrir launamanninn og stórfellda félagslega
framför. Ásamt hugmyndinni um þjóðareign á
landinu er hugmyndin um atvinnulýðræði sú
lang-stórbrotnasta i þjóðfélagsmálum og stjórn-
málum vorra tima.
Allir vita og viðurkenna, að það var Alþýðu-
flokkurinn sem hóf baráttuna fyrir almanna-
tryggingum, afnámi fátækralöggjafarinnar og
öðrum stórum félagslegum átökum og umbót-
um, sem öðrum fremur hafa gert ísland að vel-
férðarriki. Enginn getur heldur neitað þvi, að
það var fyrst og fremst Alþýðuflokksins verk að
bera þau mál fram til sigurs. Nú hefur Alþýðu-
flokkurinn enn einu sinni fyrstur islenzkra
stjórnmálaflokka tekið upp baráttuna fyrir stór-
málum morgundagsins, — þeim málum, sem
allir munu gjarna vilja láta þakka sér eftir ára-
tug eða svo. En nú, þegar baráttan er háð fyrir
framgangi þeirra, er andstöðunnar að mæta frá
sömu aðilum og á sinum tima reyndu að drepa
almannatryggingarnar. Fólk ætti að veita þvi
athygli og draga af þvi lærdóma.
hjAlpið hækkerup
AÐ SPflHA
RlKISFÉ -
BflÐ „AKTUEIT"
SPARIÐ
HANN SJALFAN!
SVARAÐI EINN LESENDANNA
Viö sögöum frá þvi i Alþýöu-
blaðinu fyrir nokkrum dögum, að
danska jafnaðarmannablaöiö
,,Aktuelt” heföi birt áskorun á al-
menning um að hjálpa Hækkerup,
danska fjármálaráðherranum,
viö að spara, en eins og kunnugt
er, þá stendur nú yfir mikil
sparnaöarherferö i Danmörku
hjá þvi opinbera, — riki og
sveitarfélögum. Baö blaöiö les-
endur sina um að senda sparn-
aðarhugmyndir, sem þaö myndi
svo koma á framfæri
’ viö Hækkerup og sparnaðarnefnd
hans, og hét 15 þús. d.kr. verb-
launum fyrir beztu hugmyndina.
Daglega hefur „Aktuelt” svo
greint frá viöbrögöum lesenda og
ekki getur það kvartað yfir, aö
hjálparbeiöninni hafi ekki veriö
sinnt. Fjöldinn allur af bréfum
hefur borizt meö alls kyns
sparnaðarhugmyndum, — sum-
um vel unnum og útreiknuðum
öörum með skyndihugdettum um
niðurskurð á flestu þvi, sem rikis-
valdið greiöir fé fyrir.
Ýmsar slikar hugmyndir ætti
fólk á Islandi mætavel að kannast
við frá umræðum islenzks al-
mennings um útgjöld islenzka
rikisins og sparnað á þeim.
T.a.m. hugmyndirnar um sparn-
að i utanrikisþjónustu, um aö
svipta ráðherra ráðherrabilum
og bilstjórum, um að lækka við þá
og þingmenn launin o.s.frv.,
o.s.frv. Þessar sparnaðarhug-
myndir frá almenningi birti
„Aktuelt” m.a. s.l. laugardag:
„Skerið niður menntamála-
ráðuneytið. Peningunum er ausið
út I svokallaða listamenn, —
þ.e.a.s. auðnuleysingja og
bragðarefi. Sparið það!”
„Leggið efnahagsmálaráðu-
neytið og allt, sem þvi tilheyrir,
niður — þar sem það getur hvort
eð er ekki fundið neinar sparn-
aðarleiðir sjálft!”
„Sparið Hækkerup! Gamall
krati!’
„Lækkið iaun allra rikisstarfs-
manna og byrjið á drottningar-
fjölskyldunni”.
„Sparið alla hjálp við eitur-
lyf jasjúklinga. Látið þá sigla sinn
sjó”.
„Hættið allri opinberri aðstoð
við lækna og iæknanema ef þeir
nenna ekki að sækja tfma dag-
lega”.
„Það ætti að reka alla þá og
svipa eftirlaunum, sem eyða
opinberu fé án heimildar. Slikt
myndi spara stórfé”.
„Lokið öllum fóstruskólum.
Það er hiægiiegt og djöfull dýrt að
senda ungt fóik á þriggja ára
skóla til þess að læra að passa
börn”.
„Sparið flugferöir og dýrar
máltiðir opinberra starfsmanna.
Sparið bréfsefni’.
Þannig eru m.a. sparnaðarhug-
myndir almennings I Danmörku.
Myndu ekki svipaöar hugmyndir
koma fram hér ef Halldór E. léti
svo litið að spyrja almenning
ráða?
Ó 0
FLOKKSSTARFIÐ
GUMA-FELAGAR
Munið fundinn miðvikudaginn 31. janúar n.k.
kl. 20,30 á Hótel Esju. Gestur fundarins verður
Gunnar Thoroddsen, alþingismaður. Áriðandi
að allir mæti.
Stjórnin
ALÞYÐUFLOKKSFELAG REYKJAVÍKUR AUGLYSIR
VIÐTALSTIMAR
ÞINGMANNA OG BORGARFULLTRÚA ALÞÝÐUFLOKKSINS
Eggert G. Þorsteinsson
Stjórn Alþýðuflokksfélags Reykjavikur hefur ákveðiö að gang-
ast fyrir þvl, að Reykvlkingum gefist tækifæri á að hitta að máli
þingmenn Alþýðuflokksins úr Reykjavlk og borgarfulitrúa. 1
þeim tilgangi mun stjórnin auglýsa viötalstlma reglulega hvern
fimmtudag á timabilinu frá kl. 5 til 7 e.h., þar sem hinir kjörnu
fulltrúar Reykvíkinga úr Alþýðuflokknum skiptast á um að vera
til viðtals. Viðtalstlmarnir verða haldnir á skrifstofu Alþýðu-
Uokksins, Hverfisgötu 8—10.
Fimmtudaginn 1. febrúar, er það Eggert G. Þorsteinsson, sem
verður til viðtals á skrifstofu Alþýðuflokksins frá kl. 5 til 7 e.h.
Reykvikingar eru hvattir til þess aö nota tækifærið til viðræðu
við þingmanninn. Síminn I viðtalsherberginu hefur númerið 1-50-
20. .
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur
Miðvikudagur 31. janúar 1973
©