Alþýðublaðið - 31.01.1973, Page 9
íþróttir 1
*
DOAAARAR-FRÉTTAMENN
OMAR ER
TROMPIÐ!
1 leikhléi pressuliðsins i kvöld fer fram leikur sem margir hafa ósk-
að eftir, nefnilega leikur milli dómara og iþróttafréttamanna. Er ekki
vonum seinna að komið sé á leik milli þessara tveggja hópa, sem
óumdeilanlega hafa mest vit á íþróttum. Vegna tómaskorts (illar
tungur segja vegna skorts á úthaldi), verður reynt að hafa leikinn
ekki of langan.
Búið er að velja liðin, og verða þau skipuð þessum leikmönnum.
Fyrst er það dómararnir:
Kristófer Magnússon, Einar Hjartarson, Hannes Þ. Sigurðsson,
Valur Benediktsson, Magnús V. Pétursson, Óli Olsen, Karl Jóhanns-
son, Björn Kristjánsson, Ingvar Viktorsson, Sveinn Kristjánsson.
Og iþróttafréttamenn:
Ómar Ragnarsson, (Sjónvarp) Alfreð Þorsteinsson, (Timinn)
Steinar J. Lúðviksson, (Morgunblaðið) Jón Ásgeirsson, (útvarp)
Hallur Simonarson, (Visir) Sigurdór Sigurdórsson, (Þjóðviljinn) Sig-
tryggur Sigtryggsson, (Alþýðublaðið) Sigmundur Steinarsson, (Tim-
inn) Agúst Jónsson (Mbl.) Jón B. Pétursson, (Visir) Vilhelm G.
Kristinsson (Útvarp).
Eins og af upptalningunni sést, eru þetta mjög öflug lið. Dómarar
eru með margfalda landsliðsmenn i broddi fylkingar, þá Karl Jó-
hannsson og Kristófer Magnússon. Litið er um slika kappa i liði
iþróttafréttamanna, en þeir eru þó ekki bangnir. 1 fararbroddi þeirra
verður Jón Asgeirsson, en leynivopnið verður Ómar Ragnarsson,
sem svo sannarlega á eftir að koma á óvart i kvöld.
Þess má geta strax, svo fólki bregði ekki við er liðin hlaupa inn á
völlinn i kvöld, að iþróttafréttamenn leika-i náttfötum, en dómarar
klæðast að sjálfsögðu sinum svörtu búningum, sem þeir venjulega
bera við dómgæzlustörf sin —SS.
Ómar Ragnarsson verður leynivopn Iþróttafréttamanna i baráttunni
við dómara I Laugardalshöli I kvöld.
og í pressunni eru trompin mörg!
Aðalleikurinn i kvöld verður
að sjálfsögðu sjálfur pressuleik-
urinn. Hann hefst stundvlslega
klukkan 20,15, eða strax og for-
leiknum er lokið. tþróttafrétta-
menn binda að sjálfsögðu mikl-
ar vonir við lið sitt i kvöld, og
þeir vona heitt að lið þeirra
standi sig vel, og þá allra helzt
að það vinni.
Þvi ber ekki að neita, að lið
landsliðsnefndar er sterkt á
pappírunum. En þvi ber heldur
ekki að neita, að i liði pressunn-
ar eru mörg nöfn sem jaðra við
landslið, og jafnvel nöfn sem
mörgum finnst að eigi heima I
landsliðinu nú þegar.
Má þar nefna þá Þorstein
Björnsson og Ólaf Benediktsson
i markinu, sem hafa sýnt jafn-
beztu markvörzluna i undan-
förnum leikjum, Brynjólf
Markússon, Vilberg Sigtryggs-
son, Sigfús Guðmundsson, Viðar
Simonarson, Jón Karlsson og
jafnvel fyrirliðann Ingólf
Oskarsson, sem hefur átt marga
stórleiki i vetur. Það er ekki út i
hött að nefna hann sem
kandidat i landsliðið á nýjan
leik.
Leikurinn i kvöld gefur öllum
þessum mönnum gullið tæki-
færi.
Landsliðsnefnd HSI valdi lið
sitt fyrst, en það er þannig skip-
að: Hjalti Einarsson FH, Birgir
Finnbogason FH, Geir Hall-
steinsson FH, Auðunn óskars-
son FH, Björgvin Björgvinsson
Fram, Sigurbergur Sigsteins-
son, Fram, Axel Axelsson,
Fram, Gunnsteinn Skúlason,
Val, sem er fyrirliði, Agúst Og-
mundsson Val, Ólafur H. Jóns-
son Val, Einar Magnússon Vik-
ing og Guðjón Magnússon Vik-
ing, sem ekki hefur verið valinn
i landslið áður.
Lið iþróttafréttamanna er
þannig skipað:
Ólafur Benediktsson Val, Þor-
steinn Björnsson Fram, Sigfús
Guðmundsson Viking, Viðar
Simonarson FH, Brynjólfur
Markússon 1R, Páll Björgvins-
son Viking, Vilberg Sigtryggs-
son Armanni, Jón Sigurðsson
Viking, Ingólfur óskarsson
Fram, fyrirliði, Agúst Svavars-
son 1R, Stefán Gunnarsson Val
og Jón Karlsson Val.
Það er rétt að minna hand-
knattleiksunnendur á, að láta
ekki þennan leik fara fram hjá
sér og mæta timanlega i
Laugardalshöllina i kvöld, þvi á
undan leiknum fer fram leikur
milli unglingaliöa.
FATT VIRDIST ÆTLA AB STOÐVA
SIGURGOHGU VALS f 1. DEILD
Valur er aðeins einu stigi á eftir
FH I 1. deild eftir sigurinn yfir
Vfking á mánudagskvöldiö. Þótt
kannski sé fullsnemmt að spá um
úrslit mótsins, sýnist mér samt,
að það veröi FH og Valur, sem
komi til með að berjast um hinn
eftirsótta tslandsmeistaratitil.
Leikur Vals og Vikings var
skemmtilegur og vel leikinn af
báðum liðum, en spennandi varð
hann aldrei, þar sem sigur Vals lá
i loftinu svo að segja allan tim-
ann. Munaði þar mestu um, að
Ólafur Benediktsson i marki Vals
varði frábærlega vel, þar á meðal
þrjú vitaköst frá Einari Magnús-
syni. Er greinilegt, að Ólafur ætl-
ar að halda sæti sinu sem lands-
liðsmarkvörður. Þegar Ólafur er
i stuði og Valsvörnin sömuleiðis,
er ekki að sökum að spyrja, og
það fengu Vikingar að reyna á
mánudagskvöldið.
Jón Sigurðsson skoraði fyrsta
markið fyrir Viking, en Gunn-
steinn jafnaði rétt á eftir. Guðjón
Magnússon skoraði þá aftur fyrir
Viking, en Ólafur Jónsson, sem
var i strangri gæzlu allan leikinn,
jafnaði fyrir Val, en Bergur
Guðnason kom Val yfir með þvi
að skora úr vitakasti.
Þegar um 13 min. voru liðnar
var staðan jöfn, 4-4, en eftir það
tóku Valsmenn forystuna og
héldu henni til leiksloka, en i hálf-
leik var staðan 12 mörk gegn 9
fyrir Val.
Jón Karlsson skoraði fyrsta
markið i siðari hálfleik, en þá
komu tvö mörk Vikjngs og þeir
áttu tækifæri á aö minnka muninn
niður i eitt mark, en ólafur varði
vitakast frá Einari.
Eftir þetta var forysta Vals
þetta 3-4 mörk, en mestur varð
munurinn 5 mörk, 19-14 er 5 min.
voru eftir af leiknum og aftur rétt
fyrir leikslok, en ólafi Friöriks-
syni tókst að skora 17 mark Vik-
ings á síðustu minútunni, þannig
að lokastaðan varð 21-17 fyrir
Val.
Bergur Guðnason var i essinu
sinu i leiknum og skoraði alls 8
mörk, þar af þrjú úr vitaköstum.
Ólafur Jónsson, Gunnsteinn
Skúlason, Jón Karlsson og Gisli
Blöndal skoruðu 3 mörk hver og
Agúst Ogmundsson 1. Einar
Magnússon skoraði flest mörk
Víkings, eða 5, en hann er nú
markahæstur i 1. deild með 60
mörk. Guðjón Magnússon skoraði
4 mörk, Ólafur Friöriksson 3,
Viggó Jónsson 2, Stefán Halldórs-
son, Jón Sigurðsson og Sigfús
Guðmundsson 1 mark hver.
Hdan-
FRAM
VANN
SIGUR
Framarar unnu Hauka 16:14 á
mánudagskvöldið I heldur
bragðdaufum leik I 1. deild. Það
var aðeins i siðari hálfleik sem
eitthvert lif færðist i leikinn, eða á
þeim tima er Framarar misstu
fjögurra marka forystu niður i
jafntefli. En þá kom sprettur hjá
Fram sem tryggði nauman en
verðskuldaðan sigur.
Mestu munaði um það hjá
Fram, að Björgvin Björgvinsson
lék ekki með. Þar með vantaði
broddinn i sóknaraðgerðir, og auk
þess sterkan mann i vörn. En
félagi hans Axel Axelsson bjarg-
aði þvi sem bjargað varð i sókn-
inni, og gerði 8 falleg mörk.
1 lið Hauka vantaði einnig
nokkra sterka leikmenn, og auk
þess meiddust þeir Þórður og
Stefán i leiknum. Var það einkum
bagalegt fyrir þá Hauka að missa
Stefán út af, þvi hann hafði loks-
ins sýnt glampa af sinu gamla
formi, i fyrsta sinn i mótinu.
Ólafur Ólafsson skoraði að vanda
flest mörk Haukanna, 4 talsins
-SS.
STAÐAN
Staðan i 1. deild er nú þessi:
FH 8 6 1 1 154-142 13
Valur 8 6 0 2 170-130 12
Vikingur 9 5 1 3 200-184 11
Fram 8 5 1 2 154-140 11
ÍR 8 5 0 3 161-145 10
Armann 8 2 1 5 140-171 5
Ilaukar 8 1 1 6 133-152 3
KR 9 0 1 8 152-200 1
— og þeir markahæstu
Markahæstu lcikmenn eru
þessir:
Einar Magnússon, Vikingi..60
Geir Hallsteinsson, FH....56
Brynjólfur Markússon, IR..47
Bergur Guðnason, Val......46
Ingólfur Óskarsson, Fram..46
Haukur Ottesen, KR........44
Ólafur ólafsson, Haukum...40
Björn Pétursson, KR.......39
Vilberg Sigtryggsson, A ...39
Vilhj. Sigurgeirsson, IR ..39
Guðjón Magnússon, Vikingi.... 33
Hörður Kristinsson, Armanni.. 32
LEEDS VANN 5:0!
Eftir tvo jafnteflisleiki milli
Leeds og Norwich i bikarkeppn-
inni ensku, fengust loks úrslit i
fyrrakvöld. Þá vann Leeds stórt,
5:0, og mætir Piymouth heima á
laugardaginn i 4. umferð. Leeds
lék nú I fyrsta sinn með fuilt lið.
Þá vann WBA lið Nottingham
Forest 3:1, og mætir Swindon.
TVISTRAST LID IBV?
SPA OG KARFA BIÐA VEGNA ÞRENGSLA
Vegna mikilla þrengsla i blaðinu þessa vikuna, verður frásögn
Péturs Kristjánssonar af leikjum helginnar i körfuknattleik enn að
biða. Þá verður getraunaspá Helga Danielssonar einnig að biða af
sömu sökum, svo og töflur og staðan i Englandi.
Nú rikir heldur meiri bjart-
sýni um framtið byggðar i Vest-
mannaeyjum, þótt ljóst sé að
allra næstu ár verði ekki búið
nema að litlu leyti i Eyjunum.
Af þeirri ástæðu hefur þeirri
spurningu skotið upp, hvort
þetta verði til þess að ibúar
Vestmannaeyja tvistrist um allt
land, og þar með þeirra frækna
knattspyrnulið.
„Það verður allt kapp lagt á
það að halda liðinu saman og
senda það til keppni”, sagði
einn framámaður i knatt-
spyrnumálum þeirra Eyja-
manna er blaðið ræddi við hann
i gær.
Af þessum orðum má ráða, að
ieikmenn liðs IBV muni halda
sig á Stór-Reykjav.svæðinu og
halda þar hópinn og senda fram
lið, Iíklega undir merki IBV.
Eins og fram hefur komið I
fréttum, hefur Vestmannaey-
ingum boðizt margvisleg
aðstaða i Reykjavik. KRR hefur
boðið fram Melavöllinn, og
einstök félög hafa boðið fram
aðstöðu, bæði á völlum sinum og
i Iþróttahúsum, Um næstu helgi
verður væntanlega haldinn
fundur með leikmönnum IBV,
og gæti svo farið að æfingar
hæfust upp úr helginni, enda
stutt I meistarakeppni KSl.-SS
Miðvikudagur 31. janúar 1973