Alþýðublaðið - 17.02.1973, Blaðsíða 3
KAUP RISAÞOTA ERU A Vlfl UPP-
BYGGINGU SKUTTOGARAFLOTANS
Alfreð Elíasson: Aðalleiðirnar í sameiningunni eru þrjár:
• Eitt stórt félag
v / :< v ^ m 1» ; ’1 l : &j • Eitt innanlandsfélag og annað með utanlandsflug
Jfl llfl • Óbreyttur flugrekstur með hæfilegri samkeppni en markvisst stefnt að samruna
Er möguleiki, að úr flugi verði
til Chicago og hvernig verður
þvi þá háttað? (Verður það t.d.
tengt Skandinaviuflugi, eða
verður það beint til Luxcm-
bourgar)?
Við erum um það bil að ljúka
undirbúningi Chicagoflugs, sem
hefst 2. mai n.k. Flogið verður
frá Luxembourg þrisvar i viku
um Keflavik. Farþegar tilog frá
Norðurlöndum og Bretlandi
geta skipt um flugvél i Keflavik
og haldið áfram til Chicago, eða
öfugt. t Chicago, verður lent á
O’Hare-flugvelli, en nokkrir
erfiðleikar hafa verið á að fá af-
greiðslu á flugvélunum þar. Um
tima var um að ræða Mexi-
canska félagið „Mexicana”,
eða irska flugfélagið „Irish
International”, til þess að af-
greiða vélarnar. Eg held, aö nú
sé öruggt að Irarnir afgreiði
okkur og telja vist allir, að
hugsunarháttur og tengsl við
trana séu nánari og heppilegri,
en við þá fyrrnefndu, að þeim
ólöstuðum.
Er möguleiki á útfærslu Loft-
leiða i austurveg?
Ég tel ekki að við framlengj-
um flug okkar á næstunni til
Austurlanda. að öðru leyti en
þvi sem eignaraðild okkar er i
Cargolux. bað félag flýgur um
allan heim og reglulega þrisvar
i viku til Hong Kong, en það er
annað mál.
Er von á nýjum vélum á næst-
unni, eins og t.d. DC-10, Lock-
heed, eða Bocing 747?
Að sjálfsögðu kemur að þvi að
við verðum að taka risabreið-
þotur i notkun, en það verður
ekki fyrr en öruggt er, að þeirra
timi sé kominn hjá Loftleiðum.
betta, ef af verður, er átak á við
kaupin á skuttogaraflotanum.
betta er það stór biti, að litið
flugfélag, og jafnvel okkar þjóð-
félag gætu varla risið undir þvi,
ef um einhver mistök yrði að
ræða.
Hvað er nýtt að frétta al
sameiningarviðræðum flug-
félaganna? Er slik sameining
æskiieg eða ekki?
Ég geri ráö fyrir þvi, aö þegar
þetta samtal er komið á prent,
þá verði vitað hvernig
samningaviðræðum flugfélag-
anna lýkur. Hins vegar er um
þrjár aöalleiðir að ræða:
a) Að eitt félag annist allt flug,
þ.e. innanlands- og miili-
landaflug tslendinga, eins og
stefnt er að i viðræðunum.
b) Að annað félagið annist
innanlandsflug, en hitt milli-
landaflug. bessi skoðun
breytist e.tv. þegar innan-
lands- og millilandaflug er
komið á einn stað og á ég þar
við Keflavik. bað er talað um,
að dýrt sé að reka tvö flug-
félög, en hvað skyldi sparast
mikið við að leggja Reykja-
vikurflugvöll niður?
c) Að flugrekstur haldist
óbreyttur, með hæfilegri
samkeppni, en markvissri
stefnu um vinsamlega sam-
vinnu með sparnað og hag-
kvæman rekstur sem aðal-
markmið. bað hefir sýnt sig
nú þegar, að engir árekstrar
hafa orðið á þeim sviðum,
sem islenzku flugfélögin hafa
tekið upp samvinnu um, til
dæmis get ég nefnt fraktaf-
greiðslu bæði i Reykjavik og
Keflavik o.fl. Ég tel þessa sið-
astnefndu leið vænlegustu
leiðina til samvinnu, eða
samruna félaganna siðar
meir.
Mörg stóru flugfélögin i
Evrópu eru rekin af rikinu.
Hvort cr æskilegra, einka-
eða ríkisrekstur i flugi?
Ég tel hiklaust að flugfélög
eigi að vera I einkarekstri
meö hæfilegum pólitiskum
stuðningi rikisins og jafnvel
um leið hæfilegu eftirliti, en
ekki eignarhlutdeild. bað er
ekki rétt, eins og nú er, að rik-
ið eigi hlut i öðru fiugfélaginu
og sé jafnvel að nokkru leyti
háð þvi, svo að möguleiki sé á
hlutdrægni.
Rætt hcfur verið um brottför
varnarliðsins frá Keflavik.
Gæti slikt haft áhrif á loft-
Iciðasamninginn við
Bandarikin og þá á afkomu
Loftleiða h.f.?
Ég ætla mér ekki að fara inn á
hápólitiskan ágreining, en
mitt álit á Bandarikjamönn-
um er það, að þeir myndu
ekki beita smælingjann nein-
um bolabrögðum, þó sú slysni
yröi, að þeim yrði bolað héð-
an.
Viðtal þetta við Alfreð
Elíasson, forstjóra
Loftleiða, birtist í Kyndli,
blaði Félags ungra
jafnaðarmanna
Væntanlega
fækkar nú
flugrónum
Bandarikin og Kúba undir-
rituðu i gær samning þar sem
kveðið er á um varnir gegn
flugránum. Samkvæmt samn-
ingnum hljóta flugvélaræn-
ingjar harða refsingu, en i
honum er þó gert ráð fyrir, að
bæði rikin geti veitt flugvéla-
ræningjum pólitiskt hæli.
ÞRIDJA BOEING ÞOTA F.í.
(NOTKUN NÆSTA SUMAR?
INúeríathugunhjáFIugfélagi íslands, að lagsins þá þrjar talsins. Kyndli, blaði ungra jafnaðarmanna. Segir
taka á leigu Boing 727 þotu yfir háannatim- betta kemur fram i samtali við Svein Sæ- Sveinn þar aö nauösynlegt geti reynzt að
ann i sumar. Yrðu þoturnar i flugflota fé- mundsson blaðafulltrúa F1 i nýútkomnum taka á leigu eina þotu i viðbót.
Loks ákveðið að kaupa tværvara-
rafstöðvar fyrir Ríkisútvarpið
1 gærmorgun var tekin
ákvörðun um aö kaupa vararaf-
stöö fyrir útvarpið, eftir að stjórn
útvarpsins, Almannavarnaráð og
rikisvaldið komust aö samkomu-
lagi um hver ætti að greiða stöð-
ina, en þetta mál hefur verið til
umræðu undanfarin ár.
Blaöiö hafði samband við
Gunnar Vagnsson fjármálastjóra
útvarpsins i gær, og sagöi hann að
rikissjóður keypti stööina, en út-
varpiö sæi væntanlega um
rekstur og viðhald.
Pósti og sima hefur nú verið
falið að sjá um kaupin og upp-
setningu, en tvær stöövar verða
keyptar. önnur veröur staðsett á
Vatnsendahæð, en hin viö Skúla-
götuna. Bjóst Gunnar við að
stöðvarnar yrðu jafnvel komnar
upp fyrir haustið, en kaupverö
þeirra er um 5,5 milljónir króna.
Engar ákvarðanir hafa enn
verið teknar um kaup á vararaf-
stöðvum til endurvarpsstöðvanna
á Eiöum, i flijaldarvik og á
Hornafirði.
Bjóst Gunnar þó við aö þeim
yrði komið upp þar I eðlilegu
áframhaldi af þeim stöðvum, sem
komið verður upp i sumar. —
D
Laugardagur T7. febr. 1973