Alþýðublaðið - 17.02.1973, Page 5

Alþýðublaðið - 17.02.1973, Page 5
Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sighvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórnar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666. Blaðaprent h.f. VERSTI KOSTURINN Hi t gengistnálunum afréö ríkis- stjórnin aö fylgja Bandarfkja- dollarnum eftirog fella gengi is- lenzku krónunnar um 10%. Þar valdi hún versta kostinn fyrir almenning. Ekki vegna þess, aö ráðherrunum sé sérlega uppsig- aö viö fólkiö I landinu. Heldur vegna þess, aö rikisstjórnin greip þarna tækifærið til þess aö bæta fyrir eigin syndir I efna- hagsmálum þjóöarinnar meö þvi aö fella gengi islenzku krón- unnar töluvert meira, en gengisbreyting Bandarfkjadoll- ars gerði nauðsynlegt. Sést þetta bezt af þvi, aö Island er eina Evrópurikiö, sem felldi gengi sins gjaldmiöils jafn mik- iö og Bandarikjamenn. Sum lönd, eins og t.d. Danmörk, hafa engar breytingar talið nauösyn- legt að gera á skráöu gengi sins gjaldmiðils þrátt fyrir „fall” dollarans. önnur lönd, eins og t.d. Sviþjóö og Finnland, hafa ekki taliö nauösynlegt aö breyta gengi sins gjaldmiöils nema um brot af þvi, sem Bandarikjadalur breyttist. ts- land eitt fylgdi Bandarikjunum auösveipt eftir. Ekki vegna þess, aö landið ætti ekki ann- arra kosta völ. Heldur vegna þess, aö islenzka rikisstjórnin greip tækifæriö til þess aö dul- búa raunverulega gengislækkun krónunnar I þvi augnamiði aö bæta fyrir sinar eigin syndir i efnahagsmálum, sem hóta aö sliga þjóöarbúiö áöur en langt um liöur. Það er óneitanlega kátlegt aö fylgjast meö útskýringum Þjóö- viljans á þvi, hvers vegna is- lenzka rikisstjórnin telji svona bráönauösynlegt aö elta Bandarikin á röndum i efna- hagsaögeröum. Einhvern tima hefðu þeir Þjóöviijamenn þótzt kunna önnur og betri ráö, en aö feta nákvæmlega i sporaslóö forysturikis auövaldsheimsins i efnahagsmálum. En viö hverju er líka aö búast frá mönnum, sem fyrir örfáum dögum töldu þaö handhægasta úrræöiö aö taka verkfallsréttinn af verka- lýöshreyfingunni meö lögum? Rök og leiöir auövaldsins virö- ast um þessar mundir eiga greiöan gang aö Þjóövilja- mönnum — hvaö svo sem veld- Sú gengisfelling, sem nú er gerö, er hin þriöja formlega, sem ráöizt hefur verið i hálfs annars árs valdaferli rikis- stjórnar ólafs Jóhannessonar. Sú rikisstjórn sagöi 1 málefna- samningi sinum: „Rikisstjórnin mun ekki beita gengislækkun gegn þeim vanda, sem viö er aö etja i efnahagsmálunum.....”. Ráöherrar þeirrar rikisstjórnar margendurtóku i viðtölum viö blöö, útvarp og sjónvarp og i ræöum sinum á þingi og annars staöar, aö aldrei — ALDREI —■ myndu þeir felia gengiö. Nú hafa þeir þrivegis framkvæmt gcngislækkun á þvi einu og hálfa ári, sem þeir hafa vermt ráðherrastólana. Og tvö og hálft ár eiga þeir aö eiga eftir, þótt engum lifandi manni detti nú I hug, aö rikisstjórnin eigi eftir aö tóra allan þann tima. Stjórnarsáttmálinn og lof- oröasöngleikir ráöherranna frá fyrstu valdamánuðunum eru á góöum vegi meö aö veröa meö meiri háttar bókmenntaverkum siðariára á lslandi. Ekki vegna þess, aö þar hafi veriö ritaöur svo góöur „texti”. Heldur vegna innihaldsins og imyndunarafls- ins, sem beitt hefur veriö viö samninguna. Þvl ekkert getur veriö fjarri veruleikanum en stjórnarsáttmálinn og loforða- söngieikirnir. Þaö er eins og þetta hafi veriö skrifaö fyrir verur á öörum hnetti. Sagnfræöingar slöari tima munu ekki eiga i ýkja mikium öröugleikum meö aö fjalla um rikisstjórn ólafs Jóhannessonar frá raunhæfu sjónarmiöi. Þeir munu segja: Frá og meö miöju sumri 1971 var tsland stjórn- laust land. Sú rikisstjórn, sem þá átti aö taka viö völdum, var i rauninni aidrei til nema sem skáldsaga. Hún var bara imyndun: helber hugarburöur. LIFEYRISSJOÐ FYRIR LANDS MENN ALLA! RÆÐA GYLFA UM ÞINGS- Allir þingmenn Alþýöu- flokksins flytja nú á Al- þingi þingsályktunartil- lögu um Lifeyrissjóð allra landsmanna. Tillagan var tekin til fyrstu um- ræðu á fundi Sameinaðs Alþingis s.l. fimmtudag og mælti Gylfi Þ. Gisla- son fyrir tillögunni. Urðu um hana töluveröar um- ræður og var henni m.a. mjög vel tekið af núver- andi og fyrrverandi fjár- málaráðherrum. 1 framsöguræðu sinni með tillögunni geröi Gylfi Þ. Gislason ítarlega grein fyrir málinu, eins og þingmenn Alþýöuflokks- ins leggja það upp. Hann sagði: I þessari tillögu felst það, að Alþingi feli rikis- stjórninni að láta undir- búa og leggja fyrir Al- þingi frv. til laga um Lif- eyrissjóð allra lands- manna. Það hefur verið og er stefna Alþýðu- flokksins, að allir lands- menn skuli vera i lifeyris- sjóöi. Þegar þeir Emil Jónsson og Eggert G. Þorsteinsson fóru með félagsmál i rikisstjórn, höföu þeir forgöngu um, að Itarlegar athuganir voru gerðar á þessu máli, og var Haraldi Guð- mundssyni, fyrrum for- stjóra Tryggingarstofn- unar rikisins, falin sér- stök könnun þess. Samdi hann vandlega álitsgerð um málið, og var þar að þvi stefnt, að lífeyrismál tslendinga kæmust I svip- að horf og á sér stað á Norðurlöndum, þar sem skipan þessara mála má teljast komin I einna bezt horf. Aður en unnt reynd- ist að ganga frá fullbúnu frv. um nýskipan lifeyris- málanna, en hér er um mjög flókið og vandasamt efni að ræða, tóku lif- eyrismálin i heild hins vegar nokkuð aðra stefnu hér á landi en Alþýðu- flokkurinn hafði gert ráð fyrir og fylgt haföi veriö annars staðar. Stofnun lifeyrissjóða fyrir þá, sem ekki nutu slikra rétt- inda, varð að þætti I kjarasamningum laun- þegasamtaka og vinnu- veitenda, og var þar að sjálfsögöu um miklar hagsbætur að ræöa. I kjölfar viðtækra kjara- samninga 1969 var komið á fót nýjum lifeyrissjóð- um fyrir mikinn fjölda manna. Áður en hinum nýju sjóðum var komiö á fót, munu um 25-35 þús. manns hafa átt aðild að lifeyrissjóðum, en nú má ætla, að tala félaga i lif- eyrissjóðum sé komin upp I 50-60 þús. manns. Fjöldi vinnandi manna i landinu mun nú um 83 þús., svo að enn eiga margir ekki aðild aö lif- eyrissjóði. Það á að vera megintilgangur þeirrar löggjafar, sem hér er lagt til, að undirbúin verði, að tryggja þeim, sem nú eiga ekki aðild að lifeyris- sjóði, þau réttindi, sem þvi fylgja. Of mikið ósamræmi Þá hefur það komið i ljós, að það er galli á nú- verandi kerfi, hversu lif- eyrissjóðirnir eru margir og að réttindi þau, sem þeir veita, skuli ekki vera samræmd og óllkar regl- ur gilda um starfsemi þeirra aö öðru leyti og þá fyrst og fremsf ráðstöfun þeirra á fé sinu. 1 þvl sambandi má t.d. nefna, að sumir sjóðir eru verð- tryggðir af atvinnurek- endum, en aðrir ekki. Verðtryggðir sjóðir eiga tæplega helming af heildareign allra sjóð- anna, en hinn helmingur- inn er ekki verðtryggður. Er hér um að ræða eitt meginvandamáliö i sam- bandi við framtið lifeyris- sjóðanna og réttindi félaga þeirra. Voldugar stofnanir Sem dæmi um það, að hér er um viðtækt og mik- ið fjárhagsmál aö ræða, má geta þess að eignir lif- eyrissjóðanna munu i árslok 1971 hafa numið 4760 millj. kr. Fimm stærstu llfeyrissjóöirnir, sem allir eru gamlar og grónar stofnanir, eiga tæplega 57% þessara eigna. Iðgjaldatekjur nýjustu sjóðanna, sem stofnaðir voru i kjölfar kjarasamninganna 1969, voru um 180 millj. kr. árið 1971. Á árinu 1971 var ráð- stöfunarfé lifeyrissjóð- anna til eignaaukningar um 1140 millj. kr. Sparnaður þeirra það ár nam 913 millj. kr., og svarar það til tæplega 6% af heildarsparnaði þjóðarinnar. Sést á þessu, að hér er um mjög mikil- væg fjárhagsatriði að ræða, sem skipta miklu máli i Islenzku efnahags- lifi. Stór hluti fjármagns sjóðanna er bundinn i út- lánum, eða um 3560 millj. kr. af 4760 millj. kr. heildareignum. Verð- tryggðu lifeyrissjóöirnir eiga um 2050 millj. kr., en 2710 millj. kr. eru I sjóð- um, sem eru ekki verö- tryggðir. Hið nýja skipulag Þessi tillaga gerir ekki ráð fyrir þvi, að þeir lif- eyrissjóðir, sem nú starfa, verði lagðir niður eða að væntanleg löggjöf breyti starfsreglum þeirra. Til þess er ekki ætlazt, aö ný löggjöf breyti réttindum þeirra, sem nú eiga aðild að lif- eyrissjóði, eða rýri að nokkru leyti vald þeirra stjórna, sem stjórna þeim lifeyrissjóöum, sem nú starfa. Hins vegar er gert ráð fyrir þvi, aö allir lif- eyrissjóðir, sem nú starfa, verði aðilar að allsherjarlifeyrissjóön- um, Lifeyrissjóði allra landsmanna, og skuli honum stjórnað af sér- stöku fulltrúaráði og sér- stakri stjórn. I fulltrúa- ráöinu skulu eiga sæti fulltrúar þeirra lifeyris- sjóöa, sem aðild eiga að Lifeyrissjóði allra lands- manna, en I stjórn hans fulltrúar, kjörnir af full- trúaráði, forstjóri Trygg- ingastofnunar ríkisins og fulltrúi fjármálaráð- herra, sem vera skal for- maður stjórnarinnar. I þriðja lagi skal þaö vera verkefni Lifeyrissjóðs allra landsmanna að stuðla að þvi, að rekstur lifeyrissjóðanna verði sem hagkvæmastur. Ég gat þess áðan, að meginhlutverk Lifeyris- sjóðs allra landsmanna skuli vera að vinna að þvi, að þeir, sem nú njóta ekki lifeyrisréttinda, ööl- ist þau. Annað megin- verkefni hins nýja alls- herjarlifeyrissjóðs á siö- an að vera að samræma störf þeirra Hfeyrissjóða, sem nú starfa, bæði er varðar réttindi þau, sem þeir veita, og ráðstöfun á fjármagni þeirra. Réttur húsmæðra Rétt er aö vekja athygli á nokkuð sérstæðu vanda- máli i sambandi við lif- eyrismál, en þaö eru hugsanleg lifeyrisréttindi húsmæðra, sem starfa á heimilum. Konur, bæði giftar konur og ógiftar, eiga nú að sjálfsögðu að- ild að ýmsum lifeyris- sjóðum. T.d. eiga verka- konur aðild að lifeyris- ' I sjóði Dagsbrúnar og Verkakvennafélagsins Framsóknar, og fjöl- margar konur, bæöi gift- ar og ógiftar, eiga að sjálfsögðu aðild að Lif- eyrissjóði verzlunar- manna. En húsmæður, sem starfa á heimilum, hafa engin lifeyrisréttindi og engin skilyrði til aö öðlast þau, að frátöldum ekkjulifeyri úr sjóöum þeim, sem eiginmenn þeirra eru aðilar aö og ekkjulifeyri úr almanna- tryggingakerfinu. Þessi skipan mála stendur i sambandi við reglur þær, sem gilda um sameigin- lega skattgreiðslu og út- svarsgreiðslu af tekjum og eignum hjóna. Ég hefi lengi verið þeirrar skoðunar, að reglum þessum ætti að breyta, og að gift kona, sem starfar á heimili, eigi aö veröa sjálfstæður skattþegn meö þeim hætti, að henni séu reiknaðar til tekna hluti af tekjum eigin- manns sins sem endur- gjald fyrir heimilisstörf- in, en skattstigum þá að sjálfsögðu breytt til sam- ræmis við þetta. Fyrir hönd þingflokks Alþýðu- flokksins flutti ég breytingartillögu varð- andi þetta efni, er skatta- lögin voru til meðferðar á siðasta Alþingi. t tilefni af flutningi þessarar tillögu og umræðum um hana lýsti hæstv. fjármálaráð- herra þvi yfir, að þessi hugmynd skyldi verða at- huguö rækilega i sam- bandi við þá framhalds- endurskoðun skattalag- anna, sem ákveðin var og nú stendur yfir, en hér er um mjög flókið og vand- meðfarið mál að ræöa. Vegna þessarar yfir- lýsingar varð samkomu- lag um, að tillagan skyldi dregin til baka, og treysti ég þvi að sjálfsögðu, aö hugmyndin fái nauðsyn- lega, sérfræðilega athug- un. Ef gildandi reglum um skattgreiðslur hjóna yrði breytt á þann veg, að gift kona, sem starfar á heimilúverði sjálfstæður skattþegn, yrði það eðli- leg afleiðing af þvi, að hún gæti eignazt sjálf- stæða aðild að lifeyris- sjóði. Meginvandamálið i þvi sambandi er það, hvaða aðili ætti að greiöa I slikan lifeyrissjóð á móti eiginkonunni, eins og at- vinnurekandi greiöir nú mótframlag vegna greiðslu starfsmanns sins og opinberir sjóðir vegna framlags opinberra starfsmanna. Þetta vandamál yröi með ein- hverjum hætti að leysa á vegum almannatrygg- ingakerfisins, þvi að ekki væri eðlilegt, aö eigin- maðurinn væri sá aðili, sem mótframlagið greiddi. Stórmál Við þingmenn Alþýðu- flokksins teljum, að lög- gjöf sú, sem þessi tillaga fjallar um, sé stórmál fyrir islenzka launþega og þá um leið fyrir lands- menn alla. Það spor verð- ur að stiga til fulls, að all- ir landsmenn eigi aðild að lifeyrissjóði, þ.e.a.s. aö þeir landsmenn, sem nú eru ekki I lifeyrissjóði, öðlist slika aöild. Vegna þess, hve lifeyrissjóöirnir hafa yfir miklu fjárpiagni að ráða, teljum við nauö- synlegt, að stefna þeirra og störf séu samræmd til þess að tryggja sem skynsamlegasta nýtingu þeirrar fjármagns- myndunar sem um er að ræöa, frá sjónarmiði heildarinnar, án þess að skerða sjálfstæði sjóð- Framhald á bls. 6 Laugardagur 17. febr. 1973 ©

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.