Alþýðublaðið - 14.03.1973, Blaðsíða 9
Iþróttir 2
KR-ÞÓR 105:50 (46:25)
Það voru Þórsarar sem gerðu fyrstu körfu leiks-
ins, en KR jafnar, og var leikurinn aðeins jafn
þessar fyrstu minútur leiksins, staðan var jöfn 4:4,
en þá kom góður kafli hjá KR og þeir komast i 15:8
og seinna 25:12.
Það leit lengi vel út fyrir að hin
þunga pressa KR-inga ætlaði ekki
að heppnast vel, en siðan rættist
úr vandanum og allt gekk KR i
haginn.
Það að Þórsarar gerðu aðeins
25 stig i hvorum hálfleik sýnir
glöggt hve sterkur varnarleikur
KR var.
Guttormur Ólafsson sá leik-
maður i liði KR sem bezt þekkir
Akureyringana, var ekki með KR
aö þessu sinni og mætti ætla að
það væri KR-ingum nokkur skaði,
en svo varð ekki, þvi KR-iiðið er
skipað mörgum frábærum
einstaklingum. Gunnar, Hjörtur,
Kristinn og Kolbeinn voru beztu
menn KR i leiknum, en þeir eru
allir þrautreyndir landsliðsmenn.
Eftir nokkurn leik i siðari hálf-
leik var staðan orðin 60:33 fyrir
KR og varð þá ljóst að hverju
stefndi, ennþá jókst munurinn,
70:39 og 86:45 sást t.d. á töflunni.
Leikmenn Þórs verða heldur
betur að herða sig ef þeir ætla að
forða sér frá falli niður i aðra
deild, og er frekar hæpið að þeim
takist það, þótt heimaleikirnir
gegn 1S og Val gætu gefið stig.
Leikmenn KR hafa verið eitt-
hvað miður sin eftir tapið gegn
1R, en nú virðast þeir aldeilis
vera að hressast, aö minnsta
kosti léku þeir vel i þessum leik,
þótt mótstaðan væri frekar litil.
Segja verður að lið 1R og KR
séu hnifjöfn að styrkleika i dag,
og þvi ógjörningur að segja til um
hvort liðið sigrar i mótinu.
Stigahæstir: KR: Kolbeinn
Pálsson 23, Hjörtur Hansson 20,
Kristinn Stefánsson 19, Gunnar
Gunnarsson 17 og Bjarni 14.
ÞÓR: Þröstur Guðjónsson 15,
Eyþór Kristjánsson 12 og Rafn
Haraldsson 10.
Vitaskot: KR: 21:17.
ÞÓR: 15:9.
► ► ► ► ►
Kristinn Jörundsson tR átti
góöan leik gegn Ármanni. Ilér
skorar Kristinn glæsilega i leik
gegn KR. Myndina tók nafni
hans Benediktsson.
IR með fullt hús
1R
KR
Armann
1S
UMFN
HSK
Valur
Þór
10 10 0 915:644 20
10 9 1 845:675 18
9 54 638:646 10
10 5 5 755:754 10
11 4 7 797:932 8
826 538:615 4
927 659:683 4
9 1 8 484:682 2
Stigahæstu leikmenn:
David Dewany UMFN
Agnar Friðrikss. 1R ..
Bjarni Gunnár IS......
Kristinn Jörunds. 1R .
Kolbeinn Pálsson KR .
.207
. 193
. 178
. 174
. 167
IR-Ármann 74:59 (32:28)
Þetta var mikill baráttu-
leikur, og sýndu bæöi liöin
frekar lélegan körfuknattleik,
en samt sem áöur var hér um
nokkuö jafnan leik aö ræöa.
íslandsmeistararnir byrja
leikinn vel og komast i 8:2, og
siðan í yfirburðastöðu 14:6, en
þá taka Armenningar við sér,
þeim tekst að minnka muninn i
aðeins 4 stig, 18:14 fyrri 1R.
Fjarvera Einars Sigfússonar,
hins sterka miðherja IR-liðsins
kom sér mjög illa fyrir liöið,
annars voru allir leikmenn tR
með allra daufasta móti, og
voru IR-ingar heppnir að mót-
herjarnir áttu mjög slæman
leik, annars heföi getað farið
ilia.
I hálfleik skilur aðeins 4 stig
liðin, og eftir örstuttan leik i
siöari hálfleik haföi Ar-
menningum tekizt að jafna
34:34, og siðan komast Ar-
menningar tvö stig yfir 36:34,
tR jafnar, en Armann kemst
aftur yfir 38:36.
Þegar staðan er jöfn 40:40,
kemur ágætur kafli hjá 1R-
ingum og þeir komast yfir 50:44
og siðan 52:45 og eftir það var
sigur IR tryggður.
Jón Sigurösson bezti maöur
Armanns gat ekki beitt sér sem
skyldi i siðari hálfleik þvi aö
hann var kominn með 4 villur,
einnig var Agnar of harður i
vörninni, og fékk hann fimmtu
villuna á 10. minútu siðari hálf-
leiks, en Jón Sigurðsson á 18.
min.
Kristinn Jörundsson var bezti
maöur leiksins, en Kolbeinn hjá
tR og Björn Christensen hjá Ar-
manni áttu einnig ágætan leik.
Armanns-liöiö verður að
teljast mun lakara en i fyrra, og
hafa menn orðiö fyrir vonbrigð-
um með liöiö svo og Vals-liðiö,
en UMFN og HSK hafa aftur á
móti komið sekmmtilega á
óvart.
Þessi leikur er fyrsti leikurinn
i mótinu sem 1R tekst ekki aö
skora yfir 80 stig, liðið hefur náð
100 stiga markinu þrivegis i
mótinu, og skorað yfir 90 stig i
þremur öðrum leikjum. Af
þessu sést að liðið hefur yfir
mörgum góðum leikmönnum
að ráöa, og leikmenn liðsins eru
ávallt fastir fyrir i vörninni. tR
er meö 20 stig eftir 10 leiki, fullt
hús stiga.
Stigahæstir:
1R: Kristinn 24, Kolbeinn 17
og Birgir 13.
Armann: Björn 17 og Jón
Sigurðsson 16.
Vitaskot: IR: 14:10. Ármann:
16:9.
PK.
DAWANY NAÐI AÐ JAFNA STIGAMET ÞORIS
UMFN-ÞÓR
(46:29)
107:77
UMFN-liðiö, sem komiö hefur
á óvart i mótinu fyrir ágæta
frammistöðu, forðaði sér frá
falli með þvi að sigra Þórsara i
annað sinn. Liðið hefur nú 8 stig.
Strax i upphafi varð ljóst að
hverju stefndi, þá sást m.a. á
töflunni: 6:0, 14:2, 22:8 og 30:15,
fyrir UMFN.
Þórsarar voru lengi aö venj-
ast aðstæðum vallarins, og
fyrstu minútur leiksins gátu
leikmenn UMFN hreyft sig og
skorað að vild, þvi vörn Þórs
var mjög léleg i leiknum.
t slðari hálfleik kom fyrir
staðan 50:30 og seint I leiknum
þrjátiu stiga munur 91:61
UMFN i vil.
David Dewany átti enn einn
stórleikinn fyrir UMFN, og
þessi bandarísk-islenzki piltur
er nú stigahæsti leikmaöur ts-
landsmótsins, og hefur hann
samt ekki leikiö alla leiki liðs
sins.
Hinn kunni knattspyrnumað-
ur frá Akureyri, Magnús Jóna-
tansson lék meö ÞOR I leiknum,
en virðist I litilli æfingu sem
stendur, Eyþór Kristjánsson er
bezti maður Þórs-liösins, en Jón
Pálsson og Þröstur Guðjónsson
eru efnilegir.
Leikmenn UMFN féllu alveg i
skuggann hjá David, sem gerði
49 stig i leiknum, en þaö er jafn-
framt jöfnun á stigameti
einstaklings, sem Þórir
Magnússon átti.
ÞOR veröur að teljast lak-
asta lið i 1. d. nú. Samt er það
eiginlega of gott lið til þess a-
vera i annarri deild, liðið varð
að sjá á eftir mörgum góöum
leikmönnum nú i upphafi
keppnistimabilsins, meöal
þeirra sem léku með ÞÓR i
fyrra voru Guttormur Ólafsson
og Jón Héðinsson.
Stigahæstir: UMFN: David
Dewany 49, Jón Pálsson 20 og
Magnús og Þröstur 12 hvor.
Vitaskot: Þór: 23:10. UMFN:
18:13.
pk.
s.
Miövikudagur 14. marz 1973
o