Alþýðublaðið - 22.03.1973, Page 2

Alþýðublaðið - 22.03.1973, Page 2
Nýlokið er á Akureyri nám- skeiði fyrir trúnaðarmenn á vinnustöðum, sem haldið var á vegum Menningar- og fræðslusambands alþýðu og Aiþýðusambands Norður- lands. Námskeiðið sóttu 46 nemendur af svæðinu frá Sauðárkróki til Kópaskers. Nemendur störfuðu i AlþýðuhUsinu og Félags- heimili Verkalýðsfélagsins Einingar i Þingvallastræti 14. Þá var dvalið einn dag við hópvinnu i orlofshUsum verkalýðsfélaganna að Illuga- stöðum. Leiðbeinendur voru: Sigurður Lindal prófessor, Jón Ingimarsson form. Iðju, Öskar Garibaldason form Vöku, Guðjón Jónsson form Félags járniðnaðarmanna i Reykjavik og Jón Asgeirson form. Einingar á Akureyri Einnig svöruðu þeir Þóroddur Jónasson héraðs- læknir, Björn Guðmundsson heilbrigðisfulltrUi og Sigmundur MagnUsson öryggiseftirlitsmaður spurn- ingum þátttakenda. Stjórnandi námskeiðsins var Helgi Guðmundsson starfsmaður verkalýðsfél. á Akureyri. A meðfylgjandi mynd eru m.a.: Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, Jón Sigurðsson og Óskar Garibaldason, öll frá Siglu- firði. í ræðustól er Jón Ásgeirsson formaður Einingar á Akureyri. Að ofan: Guölaugur Tryggvi Karlsson, formaður skenimti- nefndar FUJ. Til hægri: Jón B. Gunnlaugsson, kynnir. fyrir í þriðja sinn Á sunnudaginn frumsýnir Leikfélag Akureyrar Fjalla-Eyvind eftir Jóhann Sigurjönsson. Þetta er i þriðja sinn sem LA setur þetta leikrit á svið. Leikstjóri er MagnUs Jónsson. Magnús Pálsson hefur gert leiktjöld, og með helztu hlutverk fara Sigurveig Jónsdóttir sem leikur Höllu, Jón Kristinsson sem leikur Agnesi, Marfnó Þorsteinsson sem leikur Björn hreppstjóra og Þráinn Karlsson sem leikur titilhlutverkið, Kára. Leikfélag Akureyrar tekur Fjalla-Eyvind LÉT SIG HAFA MD AD DRfPA DÍTARINN EFTIR ÁRATUGS HLÉ - OD GERDISTORMANDILNKKU „Hún Mæja litla með Ijósa hárið, hún líkist helzt álfamær." Þannig söng ungur maður inn á hljóm- skífu fyrir tæpum einum og hálfum áratug siðan, og í nokkur ár gekk þessi slagari í óskalagaþáttum útvarpsins ásamt öðrum söngafrekum Guðbergs Auðunssonar, sem ekki helgaði sig dægur- hljómlistinni öllu frekar heldursneri sérað ýmsum öðrum störfum. t dag rekur Guðbergur auglýsingastofuna Tigris, en hefur þó ekki gleymt öllum gitargripum — og lét verða af þvi að koma fram opinberlega enn á ný, eftir óralangt hlé, þegar Félag ungra jafnaðar- manna i Reykjavik hélt fyrir viku siðan geysifjölmenna árs- hátið i veitingahúsinu við Lækjarteig. Þetta var tilraun hjá Guð- bergi, en hann vakti lukku — og hver veit nema hann láti verða meira af þvi á næstunni að gripa gitarinn og skemmta fólki með sérkennilegri Utsetningu sinni af ,,The House of the Rising Sun”og öðrum klassiskum pop- verkum. Guðlaugur Tryggvi Karlsson, formaður skemmtinefndar FUJ sagði að árshátiðin hefði tekizt mjög vel. HUn var með óvenju- legu sniði, óformleg — og menn skemmtu sér vel, sagði hann. Af starfi skemmtinefndar fé- lagsins sagði hann það helzt að frétta að félagið hyggði næst á „sveitaball” fyrir austan fjall, en ekki vissi hann enn hvenær það yrði. Kynnirá árshátiðinni var Jón B. Gunnlaugsson. sem að sjálf- sögðu „talaði tungum” annarra manna og sá fyrir þvi m.a. að hátiðargestir gætu notið söngs Kristins Hallssonar, þótt Kristinn væri viðs fjarri. 0 Fimmtudagur 22. marz 1973

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.