Alþýðublaðið - 22.03.1973, Síða 12
alþýðu
n mm
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
kl. 1 og 3.s|mi40102
Snarpar umræður i tyrkneska
þinginu i gær enduðu með slags-
málum. Þingmenn létu hendur
skipta, og skjálamöppur og
blómsturpottar flugu um þing-
salina. Varð að flytja a.m.k.
einn þingmann á sjúkrahús.
Þessar sérstæöu „umræður”
spruttu af deilum i stjórnar-
skrárnefnd þingsins, vegna
frumvarps um að framlengja
embættistima Sunsays forseta.
Stærsti flokkur Tyrklands, Rétt-
lætisflokkurinn. lagði i gær
fram frumvarp til breytinga á
stjórnarskrá landsins, sem
lengir embættistíma forsetans
Ekki allir
sammála um
,,réttlætis-
mál" Rétt-
lætisflokksins
um tvo ár, ef samþykkt verður.
Er augljóst, að ekki eru allir á
einu máli um þetta „réttlætis-
mál” Réttlætisflokksins.
Saksóknari rikisins hefur nú
ákært tvo útlendinga, Banda-
rikjamann og Hollending, fyrir
brot á fiknilyfjalöggjöfinni, en
brot á henni geta varðað allt að
sex ára fangelsi. Þetta er i fyrsta
skipti sem saksóknari ákærir út-
lendinga fyrir fiknilyfjasmygl og
sölu hér.
Einn Islendingur, var einnig
ákærður i tengslum viö útlending-
ana og heimiluð var dómsátt á
málum fjögurra Islendinga tii
viðbótar. Hollendingurinn er
ákærður fyrir að hafa smyglað
hingað hassi i þeim tilgangi að
dreifa þvi hér og selja, og Banda-
rikjamaðurinn fyrir að hafa að-
stoðað Hollendinginn. Einnig
dreifði hann nokkru magni at
hassi, en þaö fékk hann hjá þriðja
útlendingnum, sem hafði smygl-
að þvi hingað.
AD SEUA
HASS
tslendingurinn er ákærður fyrir
að hafa aðstoðað Bandarikja-
manninn við dreifingu og sölu, en
heimiluð er dómsátt i málum
þeirra fjögurra, sem játað hafa
kaup og neyzlu á hassi.
t ákæru saksóknara er þess
m.a. krafizt að það hass, sem út-
lendingarnir voru teknir með,
verði gert upptækt. Það er tæpt
kiló, og verðmæti þess nálægt 400
þúsund krónur á markaði hér.
Röskar 200 þúsund krónur, sem
'fundust i fórum Bandarikja-
mannsins verði gerðar upptækar,
mennirnir verði dæmdir til
greiðslu sakakostnaðar, og fari af
landi brott eftir að hafa tekið út
refsingu hér. — Mennirnir sitja
báðir i gæzluvarðhaldi, og hafa
þeir verið i varðhaldi á fjórða
mánuð. Málið verður bráðlega
■ þingfest.
Auðveld
björgun
Giftusamlega tókst að bjarga danska flutningaskipinu Tomas
Bjerco af strandstað þess á Eyjafjatlasandi. Björgunarskipiö Goð-
inn kom með skipið I togi til Reykjavikur um miðjan dag f gær. Haft
er eftir framkvæmdastjóra Björgunar h.f. Kristni Guðbrandssyni,
að björgun Bjercos hafi reynzt sú auðveldasta, sem hann hafi átt
aðild að til þessa. Myndina tók Friðþjófur I Reykjavikurhöfn I gær,
þegar skipið kom þangað. —
Eina leigubílstjóranum
í Eyjum var synjað um
atvinnuleyfi í Reykjavík
Eina leigubilstjóranum, sem
starfandi var i Vestmannaeyj-
um áður en cldgosið hófst, hefur
vcrið synjað um atvinnuleyfi
hér i Reykjavík. Samgöngu-
■nálaráðuneytið staðfesti neit-
unina i gær, en það vcitir leigu-
bilstjórum atvinnuleyfi.
Manninum tókst að bjarga bil
sinum óskemmdum i Innd og
sellisl að i Reykjavik, enda taldi
liann beztu atvinnumöguieikana
vera hér. I.agði hann fram öll
tilskilin gögn auk þess sem liann
cr á nýjum og góöum hil, en allt
kom fyrir ckki. Ráðuneytið sá
sér ekki fært að bæta einum
leiguhil við þá nánast 500 sem
fyrir cru i borginni.
Þar sem maðurinn bjóst við
að fá leyfið, kom liann sér vel
fyrir á meðan hann beið eftir
svarinu. Nú þarf hann sjálfsagt
enn að rifa sig upp með rótum,
þar sem hann gctur ekki stund-
að erfiðisvinnu, og þvi bundinn
leiguakstrinum.
Maöurinn var sjómaður, en
varð fyrir slysi, sem varð þess
valdandi að starfsgeta hans
rýrnaði, og fór hann þá út i akst-
urinn. —
ALLT ADSEXARA
FANGELSIFVRIR
RIKISSJJÓRNIN BANNAR FREKARI
VERKFÖLL OG VERKBÖNN '.....1
Rikisstjórnin lagði i gær fram
frumvarp um lögfestingu á
kaupi yfirmanna á togurum og
bann við frekari verkföllum og
verkbönnum, þannig að togara-
verkfallinu ljúki.
t kvöld hefur togaraverkfall
staðið i nákvæmlega 60 daga.
Það hófst að kvöldi 22. janúar
með verkfalli undirmanna, og
siðar tók við verkfall yfir-
manna.
Ögjörningur er að reikna út
með nokkurri nákvæmni það
tjón, sem verkfallið hefur haft i
för meö sér fyrir þjóðarbúið, en
það skiptir sjálfsagt hundruðum
milljónum króna.
t frumvarpi rikisstjórnarinn-
ar, sem búizt var við, að afgreitt
yrði á Alþingi i gærkvöldi eða
nótt sem leið. felst, að siðustu
tillögur yfirmanna verði lög-
festar, — eins og Alþýðublaðið
hefuráður skýrt frá. Útgerðar-
menn eru mjög andvigir frum-
varpinu, þar eð þeir telja fyrir-
sjáaniegt tap á rekstri togar-
anna. Rikisstjórnin mun hafa
boðið eitthvað aukna rekstrar-
styrki, en útgeröarmenn telja
þá ekki nægilega.
Hannibal Valdimarsson, fé-
lagsmálaráðherra, mælti fyrir
frumvarpinu og kvað þjóðar-
nauðsyn að levsa togaradeiluna.
Gylfi Þ. Gislason, formaður A1
þýðuflokksins, minnti á, að með
hverri vikunni fjölgaði þeim
stefnuyfirlýsingum stjórnar-
flokkanna, sem þeir brygðust.
Þeir framkvæmdu gengislækk-
un, þeir breyttu samningum
með lögum og þeir breyttu visi-
tölugrundvellinum með lögum.
Þá hefðu þeir viljað gera miklu
meira gegn vilja launþegasam-
takanna en þeir hefðu komizt
upp með.
Gylfi sagði ennfremur i um-
ræðunum um frumvarpið á Al-
þingi i gær. að mergurinn máls-
ins væri sá, hvort launahiutfall-
inu milli undirmanna og yfir-
manna vær breytt. Ýmislegt
virtist benda til þess, að þvi
væri breytt undirmönnum i ó-
hag. Ef þetta væri lagfært, eða
það reyndist misskilningur,
myndu þingmenn Alþýðuflokks-
ins greiða atkvæði með frum-
varpinu. —
Frumvarp rikisstjórnarinnar
var sainþykkt við 2. umræðu i
neðri deild Alþingis i gærkvöldi
klukkan 22.20og málinu visað til
2. umræðu. Hún stóð fram á
nótt. Frumvarpið liklega sam-
þykkt i deildinni, og visað til efri
deildar.