Alþýðublaðið - 23.03.1973, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 23.03.1973, Qupperneq 9
: V ■ Það kom strax i ljós að KR-ingar óttuðust David Dewany mest, og reyndu mjög að gæta hans og fór svo að David skoraði „aðeins” 33 stig, en það þykir ekkert sérstakt þegar hann á i hlut, þvi hann gerir oftast meira en 40 stig i leik, Davið er nú stigahæsti leikmaður Islandsmótsins, og hefur hann samt sleppt nokkrum leikjum úr. KR-ingar byrjuðu betur i leiknum, og komust t.d. í 20:10 i byrjun, og sami munur, kom fyrir seinna 35:25, en KR tókst aldrei að hrista Njarðvikinga af sér fyrir hle. Siðari hálfleikur var keimlikur þeim fyrri, hvað snertir KR-inga, þeir gerðu 55 stig i hvorum hálfleik og sigruðu stórt. Það var siðustu minúturnar sem KR-ingarnir voru beztir, enda kepptu þeir þá að 100 stiga markinu, sem þeir náðu svo enn einu sinni i lokin. Kolbeinn Pálsson átti nú góðan leik fyrir KR, sömu sögu er að segja um þá Gunnar Gunnarsson og Kristin Stefánsson þá voru þeir Hjörtur Hansson og Bjarni Jóhannesson ágætir. Hjá UMFN var David að venju beztur, samt var hittnin hjá honum ekki samkvæmt þvi sem maður á að venjast. Þá var Gunnar Þorvarðarson mjög duglegur. UMFN með sin átta stig i deildinni þarf ekki að kviða framtiðinni, i þessum leik sýndi liðið oft á tiðum góðan leik. Stigahæstir: KR: Kolbeinn 33, Hjörtur Hansson 22, Kristinn 17 og Gunnar 14, UMFN: David Dewany 33, Gunnar Þorvarðarson 14 og Hilmar 10 Vitaskot: KR: 21:6. UMFN: 14:9. —PK VALUR STÚÐ í (R Það munaði sannarlega ekki miklu að Valsmenn gerðu KR-ingum stóran greiða, með þvi að sigra 1R, en 1R bjargaði þvi sem bjargað varð á siðustu minútum leiksins, og mcga teljast heppnir að hafa unnið leikinn, Valsmenn voru sízt iakari aðilinn. Valur komst fljótlega yfir 3:2 og siðan 5:4 en þá slaka Valsmenn á, og ÍR kemst i 20:11, en þá gera Valsmenn 17 stig á meðan 1R gerir aðeins 8 stig og staðan breytist i aðeins eins stigs forskot 1R 28:27, og 30:29. Siðan komast Valsmenn yfir við mikinn fögnuð áhorfenda, staðan er 37:34 fyrir Val, næstu minútur eru mjög spennandi og jafnar, t.d. rétt eftir hlé 49:49, 51:51. og 53:51 fyrir Val, og liðin skiptast á forystunni þar til staðan er 75:73 ÍR i vil, þá gera islands- meistararnir út um leikinn. Þórir Magnússon var ÍR-ingum erfiður ljár f þúfu, og skoraði hann mikið úr sinum alkunnu langskotum, þá átti Kári einnig góðan ieik með Val. Kristinn Jörundsson og Agnar Friðriksson voru beztir i liði IR, en Birgir Jakobsson var sterkur að venju. Leikurinn var alian timann mjög skemmtilegur á að horfa, og er vonandi að fleiri áhorfendur leggi leið sina út á Seltjarnarnes á næst- unni til að horfa á körfuboltaleikina sem margir hverjir eru mjög spennandi. Stigahæstir: ÍR: Kristinn 24, Agnar 22, Kolbeinn og Birgir 11 hvor og Anton Bjarnason 10. Valur: Þórir Magnússon 32, Kári 16og Jóhannes Magnússon 14. Vitaskot: ÍR: 27:20. Valur: 18:10. —PK Vilborg Júliusdóttir er byrjuð sundæfingar á nýjan leik. Hún synti 200 metra skriðsundið mjög vel og tryggði sér afreksbikar kvenna. Friðþjófur tók þessa mynd af henni eftir sundið. ÆGIR VAR I SÉRFLOKKI Viö höfum skýrt stuttlega frá úrslitum í bikarkeppni Sundsambandsinssem fram fór um síðustu helgi. Þar sigraði Ægir með miklum yfirburðum, fékk helmingi fleiri stig en næsta félag. Arangur var mjög góður í einstökum greinum, enda landskeppni framundan um helgina, og sundfólk okkar í toppæfingu. Bezta afrek kvenna vann Vilborg Júlíusdóttir Ægi, en bezta karlaafrekið vann Guðjón Guðmundsson Akranesi. Ægir hlaut 294,5 stig, ÍA 120 stig og KR 117,5 stig. Alls tóku níu félög þátt í keppninni. Hér koma timar tveggja fyrstu í nokkrum greinum en vegna þrengsla verður birting afgangsins að bíða. 400 metra bringusund kvenna min. Helga Gunnarsdóttir, Æ 6:14,5 Guðrún Pálsdóttir, Æ 6:24,5 400'metra bringusund karla Min. Guðjón Guðm.son, IA 5:15,9 Guðm. ÓlafssonSH 5:33,4 800 metra skriðsund kvenna min. Vilborg Júliusd. Æ 10:18,9 Salome Þórisdóttir, Æ 10:24,5 800 metra skriðsund karla Friðrik Guðm.son, KR 9:29,3 Sigurður Ólafsson Æ 9:35,4 400 metra fjórsund kvenna BáraólafsdóttirrÁ 5:50,4 Þórunn J. Alfreðsd., Æ 5:54,9 200 metra flugsund karla Gunnar Kristjánss., A 2:28,5 Axel Alfreðsson, Æ 2:33,1 100 metra skriðsund kvenna Vilborg Sverrisd., SH 1:04,4 Vilborg Júliusd., Æ ' 1:05,8 100 metra baksund karla Guðm. Gislason, A 1:05,5 Páll Ársælsson, Æ 1:09,2 200 mctra bringusund kvenna Helga Gunnarsd. Æ 2:59,7 Guðrún Pálsdóttir, Æ 3:01,5 100 metra bringusund karla Guðjón Guðm .son 1A 1:09,3 Guðm. Ólafsson, SH 1:11,4 100 metra fiugsund kvenna Guðmunda Guðm.d. HSK 1:14,9 Hildur Kristjánsd. Æ 1:16,2 200 metra skriðsund karia Sigurður Ólafss. Æ, 2:03,8 Friðrik Guðm.son, KR 2:04,5 islandsmótið i lyftingum var haidið siðastiiöinn föstudag i Laugardalshöllinni. Arangur var frekar slakur i efri flókkuin. en góður i léttari flokknum. A meðan1 mótið fór fram, var sifellt ónæði af handknattleik- og borðtennis- mönnurn sem voru á æfingu. Lyftingamenn hafa kært þetta at- hæfi, jiar eð þeir greiddu fulla leigu fyrir húsnæðið. íslandsmeistarar i hinum ýmsu flokkum urðu þessi: Fluguvigt: Sigurður Grétars- son, Selfossi 115 kg (Isl.met). Dvergvigt: Gunnar Jóhanns- son, KR, 140 kg (tsl.met). Fjaðurvigt: Jón Pálsson, Sel- fossi, 117,5 kg (Isl.met). Léttvigt: Skúli Óskarsson, ÚlA, 212,5 kg. (Isl.met). Léttþingavigt:, Björn Ingason, Ármanni 202,5 kg. Milliþungavigt: Guðmundur Sigurðsson, Ármanni 300 kg. Þungavigt: Óskar Sigurpáls- son, Armanni 315 kg. Yfirþungavigt: Sigtryggur Sigurðsson, KR. STASAH Staðan i 1. deild I körfuknattleik er þessi: stig. 1R 11 11 0 1001:722 22 KR 11 10 1 955:753 20 Arm 10 6 4 705:711 12 IS 11 6 5 810:838 12 UMFN 12 4 8 875:1042 : 8 HSK 9 2 7 603:682 4 Valur 10 1 9 538:737 2 Þór 10 1 9 538:737 2 Stigahæstir: David Dewany, UMFN 240 Agnar Friðrikss . IR 215 Kolbeinn Pálss. KR 200 ÞORSTEINN MEISTARI Þorsteinn Iiallgrimsson e • sannkallaður undramaður i körfuknattleiknum. Þegar liann lék hér með ÍR, var liðið ósigr- andi, en tapaði svo titlinum til KR þegar Þorsteinn fór til náms i Danmörku. Þegar þangað kom gekk hann i félagið SISU, sem varð ósigrandi i Danmörku á meðan Þorsteinn var ytra. Siöan datt SISU niður aftur er Þorsteinn flutti heim, en IR fór að biómstra og endur- heimti islandslitilinn. 1 fyrra flutti Þorsteinn og nýju til Danmerkur, og var þá ekki að sökum að spyrja, SISU náði Dan- merkurtitlinum að nýju, og um siðustu helgi tryggði félagið sér titilinn annað árið i röð, vann alla sina leiki. — SS. LEIKA í KVÖLD I kvöld klukkan 20,30 fer fram landsleikur f handknattleik milli tslands og Noregs. Fer leikurinn fram i Laugardalshöllinni. Þetta er i áttunda skipti sem þessar þjóðir mætast á hand- knattleiksvellinum. Við höfum einu sinni unnið, Norðmenn i fjög- ur skipti og tvisvar hafa leikir endað með jafntefli. Islendingar tefla fram einum nýliða i kvöld, Gunnari Einars- syni úr Haukum. Föstudagur 23. marz. 1973

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.