Alþýðublaðið - 23.03.1973, Page 12

Alþýðublaðið - 23.03.1973, Page 12
V alþýðu| aðið KOPAVOGS APÚTEK Opið öll kvöld til kl. 7, nema laugardaga til kl. 2, sunnudaga milli kL 1 09 3 Simi 40102. Ekki loku skotið fyrir góð úrslit BÍÐ SPEHNTUR TIL MANUDAGS SEGIR EYJfl- BÍLSTJÓRINN „Eg biö auövitað spenntur eftir lokaaf- greiðslu málsins á mánu- dag”, sagði Jóhann Ingi Einarsson, leigubilstjóri úr Eyjum, i samtali við Alþ.bl. i gær, en sifelldur dráttur á svari við beiðni hans um atvinnuleyfi i Reykjavik, vakti þann misskilning, aö beiðninni hefur verið neitað. Nú er hins vegar ljóst, að loka- afgreiðsla málsins verður á mánudag og kvaðst Jó- hann gera sér góðar vonir um jákvæða niðurstöðu. Jóhann sagðist hafa verið atvinnulaus meöan umsóknin hefur veriö til afgreiðslu. Af heilsufars- ástæðum er þetta eina at- vinnan, sem hann á gott meöaö stunda. „Við vor- um tveir úr Eyjum, sem reyndum að fá atvinnu við leigubilaakstur' f Reykjavik”, sagði hann. „Hinn gafst upp á aö fcíða og er farinn til K^fjjaWkur i atvinnu. En é|g ofNÍund- inn við bilinn/'Fafr évo ó- liklega,að beiðni Jóhanns verði neitað, sér hann sér ekki annað fært en að selja bílinn. Og hvað svo? „Ja. Það veit ég hreint ekki”, segir hann. „Þetta er það eina, sem ég með góðu móti get gert. Hreyfill hefur þegar boðizt til að taka mig, fái ég atvinnuleyfið. Málið horfði auðvitað allt öðru vísi við ef ég væri fær I flestan sjó. En einhvern veginn leggst það svo í mig, að mér verði leyft að stunda þá atvinnu, sem ég get.1' jru ■ Gosið lækkaði bílinn ekki lítið í verði „Tjóniö á bilnum minum er laus- lega áætlaö á 100 þúsund krónur, en lögreglan tók hann til handargagns fyrstu daga gossins, og varð hann þá fyrir miklu hnjaski,” sagði Jó- hann Ingi. Jóhann sendi billyklana út til Eyja fyrsta dag gossins, i von um að fá hann sendan i land, en þar sem það dróst á langinn fór hann sjálfur til Eyja að sækja hann. Þá var verið að setja hann i skip, og gaf lögreglan honum vottorð um að hún hefði notað bilinn. „Billinn sem er viðkvæmur eins og aðrir fólksbilar”, sagði Jóhann, „fór mjög illa á þessum fáu dögum, þvi aliar rúður eru ónýtar, lakkið ónýtt, allt króm ónýtt og ryðvörnin að mestu horfin af undirvagnin- um.” Sagðist Jóhann vona að Viðlaga- sjóður bætti honum eitthvað tjónið, þar sem það varð, er bfllinn var i notkun almannavarna, eins og Jóhann hefur vottorð upp á. ÞRIR I BLÓÐ- PRUFU HVERN SÓLAR- HRING Þetta mál hefur vissu- lega verið til athugunar, og i nýju lögreglustöðinni, er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir lögreglulækni ”, sagði Asgeir Friðjónsson fulltrúi lögreglustjóra i viðtali við blaðið. 1 svari yfirlæknis slysa- deildar Borgarspitalans vegna málsins, þegar læknar deilarinnar neituðu á mánudagskvöldið að taka blóðprufu úr manni, segir hann m.a., að honum sé ekki kunnugt um, að lög- reglan hafi reynt að gera nokkuð til að finna réttu lausnina á þessu. Einnig segir hann að læknar deild- arinnar séu engir lögreglu- læknar. Asgeir sagði, að hann skildi afstöðu lækn- anna, nokkurt ónæði væri af þessum sökum, þar sem að meðaltali væru um þrir menn færðir þangað til blóðprufu á sólarhring. Hins vegar gengi hann á, að læknaskortur væri i landinu, og maður, sem tekur blóðprufur, þarf að vera læknir. Einnig þarf hann að vera tiltækur allan sólarhringinn, allan ársins hring. Að lokum taldi Asgeir liklegt að atvikið á mánu- dagskvöldið yrði til þess að einhver ákveðin endanleg lausn fengist á þessu máli, en eins og blaðið hefur skýrt frá, eru læknar slysa- deildarinnar á móti því að taka blóðprufur úr mönn- um, sem neita að láta framkvæma slikt. TOCARABNIR AFRAM I HOFN VECNA REKSTRARFIÁRSKORTS? Einn af eigendum þeirra nýju skuttogara, sem keyptir hafa verið til lands- ins að undanförnu, spurði i gærmorgun bankastjóra viðskiptabanka sins, hvert rekstrarlán fengist úr bankanum, þannig að tog- arar útgerðarmannsins kæmust á veiðar strax og verkfall yfirmanna leyst- ist. Svör bankans voru þau, að þvi blaðinu er tjáð, að ekki kæmi til mála, eins og sakir stæðu, að nokkurt lán fengist vegna togaraút- gerðar vegna mikillar ó- vissu um aðstoð rikissjóðs við atvinnugreinina og mikils halla, sem fyrirsjá- anlegur væri framundan. 1 umræðum á Alþingi i gær og fyrradag var upp- lýst, að starfandi eru nefndir, sem kanna eiga rekstrarafkomu togaraút- gerðarinnar i landinu. Að sögn sjávarútvegsráðherra hafa togaraeigendur farið fram á það við rikisstjórn- ina m.a. að hún greiði úr Tveir ætluðu að bjarga einum — svo biargaði einn tveimur Sjúkraflugvél flutti i gær slasaðan mann frá Flateyri til Reykjavikur, eftir að maðurinn hafði slasazt við að bjarga öðrum manni frá drukknun, en þriðji maður- inn bjargaði þá báðum. Maðurinn er ekki i lifs- hættu. Um kl. sex i morgun féll maður fyripborðá vélbátn- um Sóleyju i höfninni á Flateyri. Hékk maður, sem er Flateyingur utan á hjálp, en tveir aðkomu- menn sem staddir voru á bryggjunni sáu til hans, og fóru þegar til hjálpar. Maðurinn, sem féll fyrir borð, var eitthvað við skál og er hann mjög þungur. Þegar mennirnir tveir voru rétt að ná honum inn fyrir borðstokkinn, misstu þeir hann úr höndum sér, og datt hann þá i sjóinn.. Stungu hinir sér þá þegar á eftir honum, þrátt fyrir að veður væri slæmt, og sjórinn mjög kaldur. Náðu þeir manninum, en hvernig sem það vildi til, þá slasað- ist annar björgunar- mannanna við það. Sá sem eftir var fullfær bjargaði mönnunum báð- um á öruggan stað, og brátt rankaði sá við sér. sem fyrst hafði fallið i sjóinn, og hefur hann náð sér. rikissjóði tap á togaraút- gerðinni á s.l. ári að upp- hæð 100 milljónir króna og greiði ennfremur áætlað tap hennar á árinu 1973 að upphæð 175 milljónir króna. 1 umræðum i efri deild Alþingis i gær sagði einn af þingmönnum Sjálfstæðis- flokksins, Jón Arnason, út- gerðarmaður á Akranesi: „Hver láir viðskiptabanka, þó að hann hiki við að veita miklu fjármagni til at- vinnugreinar, sem rekin er með gífurlegum halla?” Jón Arnason sagði enn- fremur við sömu umræðu, „að eins og nú horfir og með lögfestingu kjara- samnings yfirmanna á tog- urum, er togaraútgerðin skilin eftir i algerum ógöngum og ekki annað sýnt, en útgerðarmenn neyðist til að halda togur- um sinum bundnum áfram um ófyrirsjáanlega fram- tið, nema mjög verulega aukin aðstoð af hálfu rikis- sjóðs komi til”. Knattspyrnuhetjan og hálfgoð yngismeyja, George Best, hefur snú- ið sér að fasteignasölu ásamt tveim vinum sin- um frá Manchester. Stjarnan fyrrverandi frá Manchester United og irska landsliðinu sér- hæfir sig i sölu jarð- eigna á Spáni — en fyrirtæki þremenning- anna heitir Chelcombe. „Ég er loks að gera mér grein fyrir þvi að ég mun ekki leika knatt- spyrnu nokkru sinni framar”, sagði Best.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.