Alþýðublaðið - 25.03.1973, Blaðsíða 2
Stjörnuspekin spurð
álits um sambúöina
Bogmaöurinn
2 3. nóvember-2 0.
desember.
Margir þeir karlmenn, sem
fæddir eru i Bogmannsmerkinu,
eru góöviljaðir menn og örlótir,
og þvi yfirleitt vinmargir. t>eir
hafa gaman af að skemmta sér,
og geta verið smástriðnir. fjrátt
fyrir það eru þeir mjög nær-
gætnir, taka yfirleitt tillit til
annarra og taka það nærri sér ef
glettni þeirra er misskilin og
einhverjum sárnar hún. Þeir
eru yfirleitt ákjósanlegustu
félagar; kjósa heldur að fara út
að skemmta sér að kvöldi dags
en sitja heima, margir þeirra
fara þannig Ut með vinum sin-
um reglubundið. Þeir kunna að
hafa mikinn áhuga á Utivist og
sporti allskonar, og einnig það
getur leitt til að þeir séu öðrum
minna heima. Þeir eru margir
hverjir vel gefnir, hafa áhuga á
öllu milli himins og jarðar og
samræður um ólikustu efni láta
þeim flestum öðrum betur.
Fæstir geta kallazt beinlinis
heimiliskærir, og svo gæti virzt
sem fjölskyldulifið væri þeim
mörgum hverjum minna virði
en þátttaka þeirra i viðskipta-
lifinu, iþróttum eða öðru þvi
sem þeir hafa áhuga á. Eigi að
siður eru þeir mjög traustir og
tryggir eiginmenn og fjöl-
skyldufeður yfirleitt, þótt um-
hyggjusemi þeirra mætti ef til
vill vera meiri hvað smáatriði
snertir. Og enda þótt þeir séu
yfirleitt mikið að heiman, kem-
ur það sjaldan fyrir að þeir
stofni til ástarævintyra, þó að
þvi tilskyldu að konur þeirra séu
þeim eftirlátar og fullnægi þeim
hvað ástir snertir. Þeir þurfa
helzt að kvænast hyggnum kon-
um, sem eru gersneyddar allri
■ drottnunargirni, og hafa sin
eigin áhugamál. Flestir eru
Bogmenn heiöarlegir mjög,
hreinskilnir og opinskáir, og
reyna sjaldnast að fara á bak
við konur sinar, hvaö snertir
störf þeirra og athafnir.
En — flestir eru Bogmenn lika
óþolinmóðir og fremur fljót-
færir, og eiga það þvi til að tefla
helzt til djarft, ekki hvaö sizt i
peningamálum og viðskiptum.
Fyrir óþolinmæði sina geta þeir
oft lent i óþægindum og
vandræðum, takist þeim ekki aö
hemja hana. Það er og til að
þeir, sem' fæddir eru i þessu
stjörnumerki, hafi rika hneigð
til að spila fjárhættuspil eða
taka þátt i veðmálum.
Karlmaður fæddur i
Bogamannsmerki
og kona fæddi i
Ilrútsmerki, 2 1.
marz-20. april.
Kona fædd i þessu merki
hentar Bogmanni betur en
flestar aðrar. Ættu og ekki ýkja-
mörg vandamál að segja til sin i
hjUskap þeirra, þar sem þau
eiga mjög vel saman. Bæði eru
yfirleitt harla sjálfstæö, en laus
við alla drottnunargirni, enda
þótt fyrir geti komiðað hUn finni
til nokkurra afbrýðisemi, ef
aðrar konur laðast að honum.
Hvorugt þeirra er liklegt til að
skipta séraf störfumeöa áhuga-
málum hins, og ekkert er lik-
legra en að þau eigi mörg sam-
eiginleg áhugamál sem þau
mundu þá geta haft um náið
samstarf. Sennilegt er að henni
væri það og ánægja að taka þátt
i Utilifi hans og sporti. Peningar
eru hvorugu þeirra hið mikil-
vægasta, og er þvi óliklegt að
mikiö ósamlyndi yrði með þeim
vegna fjármálanna. HUn er
oftast nær mjög vel gefin og á
sérstaklega auðvelt með að
fylgja hugsanaferli karlmanns-
ins, og getur þvi orðið honum
gagnlegasti ráðunautur, ef hann
leggur stund á viðskipti eða
hefur með höndum einhvern at-
vinnurekstur. Þó að hUn geti
verið skapbráð og skapheit,
rennur henni oftast nær reiðin
fljótt aftur, og langrækni á hUn
ekki til. Er naumast hætta á al-
varlegri vandamálum i hjóna-
bandi þeirra en svo, að hann
mundi eiga auðvelt með að
leysa þau með góðvild sinni og
lipurð.
Karlmaður fæddur i
Bogmannsmerki
og kona fædd i
Nautsmerki, 21.
april-20. mai.
Ekki er það margt sem þau
eiga sameiginlegt, konan sem
fædd er i Nautsmerki og Bog-
maðurinn, og ef þau gengju i
hjónaband mundi það krefjast
rikrar aðlöðunarhæfni og til-
slökunar af beggja hálfu. HUn er
oft mjög raunhyggin, og enda
þótt hUn geti verið kát og létt-
lynd, er liklegt að henni fyndist
meira en nóg um gáleysi hans i
peningasökum. Það er henni
næst skapi að leggja peninga á
rentur i banka, ef handbærir eru
til þess, en honum er það aftur á
móti rik freisting að tefla á tvær
hættur i fjármálum. HUn á það
til að vera talsvert drottnunar-
gjörn, og mundi reyna að koma
á hann hafti, en það er þó harla
BOGMAÐURIN
óliklegt að henni takist það. Ast
hennar er sennilega öllu
ástriðuheitari og holdlegri en
hans, en á þvi sviði kynnu þau
þó að vera tiltölulega samvalin.
En honum mundi hinsvegar
falla illa hve sein hUn er að
hugsa og taka' ákvarðanir, og
eins varUð hennar, þvi að yfir-
leitt er hugarfjör hans mikið, og
loks er það að henni mundi að
öllum likindum ekki falla glettni
hans eða hafa smekk fyrir
fyndni hans. Aftur á móti mundi
hUn verka sem nokkur hemill á
óþolinmæði hans og fljótfærni
og sennilega mundi honum falla
það vel hve dugleg og áhugasöm
hUsmóðir hUn er. HUn er fjöl-
mörgum góðum kostum bUin og
gæti hUn tekið þátt i áhugamál-
um hans eru að minnsta kosti
talsverðar likur til að þau gætu i
sameiningu leyst vandamálin i
hjónabandinu.
Karlmaður fæddur i
Bogamannsmerki
og kona fædd i
Tvibura merki, 21.
mai-20. júni.
Enda þótt persónugerð
þessarar konu sé þvi sem næst
gagnstæð persónugerð Bog-
mannsins, er alls ekki Utlokað
að þau geti bætt hvort annað
upp, og ef þau væru staðráðin i
að gera allt til þess að hjóna-
band þeirra gæti orðið
hamingjusamt, þá er ekki Uti-
lokað heldur að þeim takist það.‘
Það er ekki óliklegt aö honum
gangi illa að skilja sibreytilegt
eðli hennar og eirðarleysi, og
eins að honum þætti litið til
áhugamála hennar koma. HUn
er oft gagnrýnin og þolir illa á-
galla annarra, og þvi er ekki
ósennilegt að hUn kynni að
móðga einhverja af kunningjum
hans meö kaldhæðni sinni. Hann
er aftur á móti umburðarlyndur
og öllum góðviljaður, og þvi
harla liklegt að hann
hneykslaðist á gagnrýni hennar
og skyggni á galla annarra. Til-
finningar hennar eru öllu frem-
ur geðrænar en holdlegs eðlis og
þvi er ást hennar oft karl-
manninum ófullnægjandi. Atlot
hans mundu þvi vart vekja hjá
henni þá svörun, sem honum
nægði. En þau eru bæði vel gefin
yfirleitt og starfsöm, og senni-
legt að þau eigi mörg sameigin-
leg áhugamál. Ef svo er, eiga
þau að sjálfsögðu auðveldara
með að sigrast á þeim erfiðleik-
um, sem kunna að mæta þeim i
sambUðinni.
Karlmaður fæddur i
Bogmannsmerki
og kona fædd i
Krabbamerki, 21.
júni-20. júli.
Það þyrfti meira en meöal
þolinmæöi til þess aö hjónaband
Bogmanns við konu fædda i
þessu merki yrði hamingju-
samt. Valda þvi fyrst og fremst
geðbrestir hennar, óviðráðanleg
hneigð hennar til að móðgast ef
ekki af litilvægum atriðum, þá
af imynduðum eða rangtUlkuð-
um i þvi skyni að hUn geti talið
að sér vegið. Aftur á móti er
henni gefinn mikill ástriöuhiti,
og að þvi leyti til gætu þau átt
. vel saman. En þá er það, að hUn
mundi hafa rika hneigð til að
koma að öðru leyti fram við
hann eins og móðir, stjana við
hann.vera sifellt að aga hann og
þrefa Ut af smámunum. Það er
hætt við að slikt mundi valda
honum gremju þegar til lengdar
léti, nema ef hann hefði greind
og umburðarlyndi til að láta sér
skiljast að allt kemur þetta af
þvi hve mjög hUn ann honum —
og samt er hætta á aö honum
fyndist hann vera i einskonar
viðjum vegna þess arna. HUn er
oftast nær mjög heimakær og
mikil hUsmóðir, og má vera að
hann kynni að meta það, en þó
að hUn hefði ekki beinlinis á
móti þvi að hann færi Ut með
kunningjum sinum, mundi hUn
ólikt heldur vilja hafa hann
heima. Ef til vill mundi hann
smámsaman láta þar að viljan
hennar vegna umhyggju hennar
og ástrikis, en tvennt er til með
það. Þau yrðu bæði að vera við
þvi bUin að slá af kröfum sinum,
ef hjúskápur þeirra ætti að
verða farsæll.
Karlmaður fæddur i
Bogmannsmerki
og kvenmaður fæddur i
Ljónsmerki, 21. júli-21.
ágúst.
Kona fædd i þessu stjörnu-
merki ætti að reynast Bogmanni
góð kona og samvalin honum að
mörgu leyti, og hjónaband
þeirra að verða hið hamingju-
samasta. Drottnunargjörn er
hUn ekki, og mundi þvi ekki á
neinn hátt hefta frjálsræði hans.
HUn er oft ástriðuheit og atlot
hennar ofsafengin, sem mundu
örva ást hans og getu. HUn laðar
oft að sér aðra karlmenn, og
mundi það ekki valda honum af-
brýðisemi, heldur sannfæra
hann um góðan smekk hans
sjálfs. Þau myndu njóta lifsins
og alltaf hafa i nógu að snUast,
og hUn mundi vinna sér hylli og
álit meðal hinna mörgu vina
hans. Yfirleitt er hUn frábær
hUsmóðir og kann kvenna bezt
að taka á móti gestum, leið-
beiningar og ráð sem hUn gæfi
honum mundu reynast skyn-
samleg, og þrautseigja hennar
koma i veg fyrir að hann hætti
við hálfklárað verk, og þannig
mundi hUn verða til þess að efla
hann til fjár og frama á allan
hátt. Hins ber og að gæta, að
hUn getur reynzt honum skap-
mikil, ef þvi er að skipta, en
góðlyndi hans og umburðar-
lyndi mundi koma i veg fyrir öll
átök. Enda mundi heillandi
framkoma hennar og ástriki
bæta þar Ur skák, og mundu þau
þurfa litt á sig að leggja til þess
að hjónabandið yrði farsælt og
hamingjusamt.
Karlmaður fæddur I
Bogmannsmerki
og kona fædd I
Meyjarmerki, 22.
ágúst-22. september.
Erfiðleikar og vandamál
mundu fljótt segja til sin, ef
Bogmaður kvæntist konu fæddri
i Meyjarmerki, og þyrftu bæði
að slaka á og leggja talsvert á
sig til þess aö sambUðin gæti
fariö sæmilega. HUn er venju-
lega mjög raunhyggin, en dul og
hlédræg og feimin við að láta ást
sina i ljós við eiginmanninn.
Hann er aftur á móti oftast nær
léttlyndur; opinskár og lætur
hverjum degi nægja sina
þjáningu. Og þó að hann geti
verið ástrikur, er hann oft eins
og annars hugar heima fyrir og
umhyggjan gagnvart fjöl-
skyldunni ekki alltaf eins og hUn
mundi vilja að væri. Ekki
mundu atlot hans kalla fram þá
svörun hjá henni, sem honum
þætti fullnægjandi, og eflaust
þætti honum stöðug gagnrýni
hennar beinast um of að
smámunum. HUn er oftast vel
gefin, en áhugamálum hennar
og imyndunarafli þröngur
stakkur skorinn, en hann hefur
hinsvegar áhuga á öllum mál-
um, sem manninn snerta. Þá
mundi og sparsemi hennar og
gætni i peningamálum geta
orðið þeim ásteytingarsteinn,
þar eð hUn mundi reyna eftir
mætti að draga Ur örlæti hans.
En það er eins og oft er áður
fram tekið — séu bæði staðráðin
i að leggja allt á sig til þess að
hjónabandið megi vera
hamingjusamt, er eins vist að
þeim takist það.
Karlmaður fæddur í
Bogmannsmerki
og kona fædd i
Vogarmerki, 23
september-22. október.
Þau mundu mega kallast
samvalin, Bogmaðurinn og
kona fædd i Vogarmerki, og
óliklegt að mikil vandkvæði yrði
á sambUð þeirra. Bæði eru
óáreitin þegar til alvörunnar
kemur, og yfirleitt tillitssöm, og
ætti þvi samkomulagið að verða
hið bezta, auk þess sem henni er
gefin einstök hæfni til að halda
friði og samræmi heima fyrir,
og risi einhverjar deilur, er
henni það yfirleitt auðunnið
verk að höfða til skynseminnar
og koma öllu i eðlilegt horf
aftur. Bæði hafa þau ánægju af
að koma i margmenni og
kynnast fólki, og er ekki að efa
að þau mundu eignast vel gefna
og kynningarverða vini. Gáfur
hennar og kvenleiki mundi og
hrifa vini hans og kunningja.
Enda þótt hUn geti naumast
talizt heimiliskær, þá er hUn
yfirleitt mjög fær til að stjórna
heimili, en ekki mundi hUn láta
heimilisannir koma i veg fyrir
að hUn gæti tekið þátt i áhuga-
málum hans og tómstundaiðju.
ÞóaðhUnsérólegá yfirborðinu,
er hUn oft ástriðuheit, og þar
mundi ást hans og atlot fá
svörun, að hann hefði ekki yfir
neinu að kvarta. Hjónaband
þeirra ætti þvi að verða hið far-
sælasta, og sátt og samlyndi að
einkenna heimilisbraginn án
nokkurra verulegra undan-
tekninga.
Karlmaður fæddur i
Bogmannsmerki
og kona fædd i
Drekamerki, 23. októ-
ber-22. nóvember.
Það gæti reynzt Bogmanni
harla erfitt að skilja hið flókna
eðli Drekakonunnar. Likamlega
mundi hUn orka mjög sterkt á
hann, en þau eiga ekki vel
saman, og er þau' gengju í
hjónaband, mundu þau verða að
sigrast á mörgum erfiðleikum
og vandkvæðum af einbeitni og
samstillingu, áður en þau yrðu
fyllilega hamingjusöm. HUn er
oft áköf i skapi og tilfinningarik,
ástriðurnár ofsafengnar og
holdlegar og atlotahitinn i sam-
ræmi við það, og er hætt við að
hUn yrði alger ofjarl hans á þvi
sviöi. Þó yrði það erfiðasta
vandamálið, að hUn er oft Ur
hófi fram drottnunargjörn, og
mundi ógjarna vilja hafa augun
af honum. Þá mundi henni og
reynast erfitt að dylja afbrýði-
semi sina, ef aðrar konur sýndu
manni hennar áhuga, og væri
henni þá trUandi til að skapa
þær aðstæður, sem yrðu allt
annað en þægilegar. En þrátt
fyrir þessa galla sina er hUn að
mörgu leyti aðdáunarverð kona,
og yfirleitt mjög umhyggjusöm
bæði manni sinum og heimili.
Þá er hUn undantekningarlitið
ákaflega trygg, trU manni sin-
um og axlar byrðar hjóna-
bandsins af djörfung og trU-
mennsku. Astrik er hUn eins og
áður er getið, og gæti hann þolað
henni drottnunargirni hennar og
afbrýðisemi eru likur til að
&
Sunnudagur 25. marz. 1973
I