Alþýðublaðið - 25.03.1973, Qupperneq 3
N - KARL
hjónaband þeirra gæti orðið
hamingjusamt.
Karlmaður fæddur i
Bogmannsmerki
og kona fædd i
Bogmannsmérki, 23.
nóvember-20. desem-
ber.
Þótt svo að liklegt megi
teljast að þessar elskulegu, létt-
lyndu og lifsglöðu manneskjur
væru samvaldar til hjúskapar,
er ekki með öllu tryggt að
hjónaband þeirra yrði
hamingjusamt. Þó að þau séu
mörgum góðum eiginleikum
búin, bæði tvö, þá hafa þau lika
bæði sina galla, og þar sem um
er að ræða mikið til sömu kosti
og sömu galla hjá báðum, bæta
þau ekki hvort annað upp. Þap
geta lika verið svo lik um flest,
að þau yrðu fljótlega þreytt
hvort á öðru, og mundu þá leita
tilbreytingar i kynnum við aðra.
Ob bar sem fátt eitt gæti talizt
áhugavert við makann frá báð-
um séð, er liklegt að þau mundu
velja sér ólik áhugamál, en
sinna hvort öðru minna sem
eiginmaður og eiginkona. Ættu
þau hinsvegar nokkur
sameiginleg áhugamál er þess
meiri von að hjónabands-
hamingjan entist — en hættara
er þó við hinu, að áhugamálin
yrðu ekki sameiginleg, en ólik
viðfangsefni verða báðum svo
umsvifamikil iðja, að sjálft
hjónabandið yrði vanrækt. Þau
mundi með öðrum orðum bera
stöðugt fjær hvort öðru, ef að
þvi kæmi, en hitt getur lika átt
sér stað, ef bæði gera sér grein
fyrir hættunni, að hjónabandið
verði hið farsælasta.
Karlmaður fæddur i
Bogmannsmerki
og kona fædd i
Steingeitarmerki, 21.
des.-19. janúar.
Hætt er við að erfiðleikarnir
yrðu ekki lengi að segja til sin,
ef þau gengju i hjónaband, Bog-
maðurinn og Steingeitin. Hún er
honum ólik um flest. Oftast nær
er hún hæglát og dul, hann kátur
og opinskár og stöðugt á
ferðinni. Ástriðuheit getur hún
verið, en atlot hennar og sá
þáttur ástarinnar sem þessu er
tengdur, fyrst og fremst hold-
legur en mundi skorta huglæga
einlægni, sem hann þarfnast.
Hún litur oft raunsæum og al-
varlegum augum á lifið, og
hneigð hans til glaðværðar og
skemmtana mundi henni ef til
vill þykja krakkaleg. Hún er og
oftast nær mjög gætin i peninga-
málum og ráðdeildarsöm, en
það kynni honum að þykja
nizka. Eflaust mundi hún reyna
að leggja hömlur á frjálsræði
hans og vilja að hann yrði meira
heima á kvöldin i stað þess að
skemmta sér með kunningjun-
um. Drottnunargjörn er hún oft
úr hófi, svo að jafnvel Bog-
maðurinn kynni að reiðast og
missa á sér alla stjórn. Hún vill
hafa aga og stranga reglusemi á
öllu heimafyrir, en hann er ekki
mikið gefinn fyrir þessháttar.
Þó er aldrei að vita nema glað-
værð hans og ástriki mundi
kalla fram hið bezta i henni og
hjónabandið verða farsælt.
Karlmaður fæddur i
Bogmaunsmerki
og kona fædd i
Vatnsberamerki, 20.
jan.-18. febrúar.
Kona fædd i þessu merki er
ein af þeim, sem völdust er til
hjúskapar með Bogmanninum.
Mundu þau sennilega litið þurfa
fyrir þvi að hafa aðhjónaband
þeirra yrði hið farsælasta. Bæði
leggja hvað mest upp úr
óskoruðu frjálsræði, og það er
harla óliklegt að annað hvort
þeirra mundi sýna hinu
drottnunargirni eða ráðriki.
Hjónabandið gæti orðið einkar
ástrikt, samkvæmt eðli þeirra
beggja. Bæði eru þau yfirleitt
mjög vel geíin, og miklar likur
til að þau ættu mörg áhugamál
sameiginieg. Glaðværð hennar
og vinnandi framkoma mundi
afla henni vinsæida meðal
kunningja hans og vina. Þó hún
hafi mikinn áhuga málum utan
heimilis, er ekki þar með sagt
að hún sé ekki fær húsmóðir, og
vist er um það að oftast nær
kemst hún vel frá\þvi. Ef þau
yrðu að einhverju leyti ósam-
mála mundu þau ræða það af
skynsemi og hreinskilnislega.
örlát er hún oft, og mundi ef
efni leyfðu verja fé sinu til að
bæta neyð annarra. Þau eru
bæði glaðvær og létt i lund og
kjósa að heimilið sé fyrst og
fremst friðsæll staður, og ætti
að verða auðvelt fyrir þau að ná
þvi marki.
Karlmaður fæddur i
Bogmannsmerki
og kona fædd i
Fiskamerki, 19.
febrúar-20. marz.
' Sérstakir eiginleikar þeirrar
konu gera hana ekki mjög
heppilega eiginkonu Bogmanns,
og er hætt við að ýmis vand-
kvæði og örðugleikar mundu
fljótt segja til sin ef þau gengju i
hjónaband. Hún er oft mjög
ástrik og umhyggjusöm, en um
leið er hún manni sínum alger-
lega háð, og mundi Bogmanni
þykja meir en nóg um ósjálf-
stæði hennar. hún mundi hjúfra
sig stöðugt að honum, i óeigin-
legri merkingu, likt og
vafningsviður, og þó að hann
kynni ástriki hennar og einlægni
vel, en þegar frá liði er hætt við
að honum gremdist hve hún
teldi sig þurfa að leita til hans
um alla hluti. Ef hann missti
stjórn á skapsmunum sinum,
mundi hún falla i grát, en yfir-
leitt jafnar hún sig þó fljótt
aftur, sé um smámuni að ræða.
En svo viðkvæm er hún og veik-
lunduð að eðlisfari að hann
mundi stöðugt þurfa að gæta
tungu sinnar, að hann særði ekki
tilfinningar hennar; er eins vist
að hann segði eitthvað i gamni,
og mundi verða furðu lostinn er
hún tæki það ekki einungis al-
varlega, heldur og mjög nærri
sér. Takist honum hins vegar að
skilja hana, og sýna henni um-
burðarlyndi samkvæmt þvi,
gæti hjónaband þeirra orðið hið
farsælasta.
KONA í
STEIN-
GEITAR-
MERKI
HIOLHÝSI - MD SEM
OKKIIR SKORTI SfZT
f UMFERDINA
Þá höfum við það. Það er búið
að stofna félag hjólhýsaeigenda.
Eflaust ekki i óþökk neins inn-
flytjenda slikra húsa, öllu
fremur að tilstuðlan einhvers
þeirra. Og takmarkið hlýtur að
vera jafn göfugt og annarra
klúbba af sliku tagi: Hjólhýsi
inn á hvert heimili, varla
minna.
Nú væri það svo sem góðra
gjalda vert ef einhver innflytj-
andinn tæki sig til og forðaði is-
lenzku þjóðinni frá þvi að hjól-
húsnæðisvandamál bættust ofan
á öll okkar fyrri húsnæðis-
vandamál — væri slikt vanda-
mál á annað borð til i landinu.
En svo er bara ekki.
Bandarikin eru föðurland
hjólhýsamenningarinnar, þar
eru starfandi fjölmennir klúbb-
ar eigenda slikra aftanivagna
og þeir eru orðnir hluti af
bandarisku þjóðlifi.
Talið er að um sex milljónir
Bandarikjamanna búi i slikum
vögnum og hjólhýsamenning
þar i landi hefur haft slik áhrif
að þar er alls staðar gert ráð
fyrir þeim i umferðinni, enda
þjóðvegir allir viðir og breiðir,
þannig að langar lestir bifreiða
með gljáandi álvagnana i eftir-
dragi hindra litið sem ekkert
hina eðlilegu umferð bifreiða.
Hjólhýsabúar þurfa ekki að
fara þingmannaleið til að kom-
ast á hjólhýsasvæði þar sem öll
þjónusta er veitt, — fyrir vægt
leigugjald komast ferðalang-
arnir þannig á eins konar bíla-
hótel, mótel, þar sem fjöl-
skyldan hefur sitt heimili með
sinum eigin innanstokksmunum
allri þjónustu i þessu hjólhýsa-
hverfi, en getur samt skipt um
riki daglega.
Milljónamæringurinn Wally
Byam varð einmitt milljóna-
mæringur á þvi að uppgötva
möguleika hjólhýsanna og gera
þá að almenningseign. Fleiri
fylgdu svo i kjölfarið, nokkrir
græddu milljónir og aðrir fóru á
hausinn eins og gerist og gengur
i öllu viðskiptalifi. En vegur
aftanikerrunnar óx, og hún náði
fótfestu i Evrópulöndum, þar
sem einmitt Hitler og svo siðari
tima ráðamenn hafa lagt
áherzlu á greiðar og breiðar
umferðaræðar, sem að fæstu
leyti minna á þjóðvegi norður i
Þingeyjarsýslu eða vestur á
Barðaströnd.
Það var svo ekki fyrr en á
siðasta ári að verulega ,tók að
bera á þessari tegund bilkerra á
islenzkum þjóðvegum. Að visu
hafði einn og einn góðborgarinn
drattast með fjölskyldu sina i
kerru aftan i Merkúrinum um
þjóðvegina að sumri til, og fræg
er sagan af hjónunum, sem fóru
upp i Borgarfjörð i fyrra sumar
með slikt tæki.
Frúin var geymd ásamt
pottum, pönnum og öðrum
heimilisþægindum i kerrunni en
bóndinn ók. 1 Hvalfirðinum
þurfti bóndinn að pissa, — og er
frúin tók eftir þvi ákvað hún að
gera slikt hið sama, en að gam-
alli og góðri islenzkri umferðar-
venju pissaði hún hinu megin
við farkostinn.
Að visu láðist henni að æpa til
bónda sins um að hún hefði farið
út, svo hann sté strax að loknu
verki upp i bilinn og ók af stað.
Nú var úr vöndu að ráða,
konan pissaði ein og fáklædd
einhvers staðar i Hvalfirðinum
á islenzkri sumarnóttu — og
bóndinn á leið upp i Borgar-
fjörð, jafnvel eitthvað enn
norðar.
Samkvæmt sögunni varð það
frúnni til láns að unga menn bar
að i bifreið fljótlega. Óku þeir
konunni sem leið liggur á eftir
bóndanum, en tóku einhvers
staðar krók, og komust þannig
fram fyrir hann, þvi það eykur
ekki á hraðann að hafa hjólhýsi
dinglandi aftan i heimilis-
bilnum.
Á heppilegum gatnamótum
slepptu þeir konunni út þar sem
hún beið bónda sins— og má
nærri geta hve undrandi hann
var að finna konu sina stand-
andi eina á náttkjólnum á kross-
götum uppi i Borgarfirði.
En þetta var ef til vill útúrdúr.
Aðalatriðið er það, að hér á
tsl. búum við við svolitið annað
vegakerfi en á meginlandinu, —
og við verðum að miða okkar
umferðarmáta og umferðar-
menningu við það. Velmegunin
er orðin þó það mikil hér á landi,
að flestir geta leyft sér að njóta
hins skamma sumars með þvi
að bregða sér eitthvað út á land
o}| i nánari snertingu við nátt-
úruna (og vegarrykiðj um
helgar. Alagið er hins vegar
orðið það mikið á öllum helztu
þjóðvegum, að það má ekkert
verða til þess að draga niður eða
tefja umferðina.
Það eru sérstakir útvarps-
þættir allt sumarið þar sem
fólki er leiðbeint hvernig það
getur bezt komizt leiðar sinnar
án þess að verða öðrum til
trafala eða umferðin lendi i hnút
á hánnatimunum, og þrátt fyrir
alla þessa viðleitni og mikið
starf lögreglumanna við að
greiða fyrir umferð, þá er rétt á
mörkunum að vegakerfið þoli
þetta álag.
Það var þess vegna sizt af öllu
að okkur skorti breiðar og
þungar aftanikerrur, sem
BJARNI
SIGTRYGGSSON
UM
HELGINA
hindra framúrakstur á
þröngum og oft á tiðum hættu-
legum vegum okkar, gera
viðkomandi ökumanni auk þess
allan akstur erfiðari. Það er
nánast orðin spurning um
öryggisatriöi af þvi tagi hvort
ekki skuli banna með reglugerð
umferð þessara vagna.
Enda er mér spurn: Hver er
ávinningurinn af þessum
vögnum? 1 Bandarikjunum er
viðast svo að það er hægt að aka
dag eftir dag án þess að komast
i skjólgóðan hvamm eins og þeir
gerast beztir i Borgarfirðinum,
vestur á fjörðum, austur á landi
og þar fram eftir götunum.
Við höfum hér þessa dásam-
legu aðstöðu til að gista hjá
sjálfri nátturunni, algerlega að
kostnaðarlausu, — og það varla
hægt að segja að fyrirhöfnin sé
nokkur að reisa tjald — i fal-
legum hvammi við niðandi læk.
Það er sölumaðurinn. Hann vill vita hvort við
séum að hugsa um að kaupa hjólhýsið.
o
Sunnudagur 25. marz. 1973