Alþýðublaðið - 27.03.1973, Blaðsíða 6
BAK-
VERK-
URINN
ERDÝR
• Sifellt fleira fólk finnur nú
fyrir bakverkjum eða veröur
fyrir hryggskööum. 1 Dan-
mörku t.d. hafa á síöustu
tveim árum 2265 manns
komizt á öryrkjabætur
vegna hryggskaöa — og var
þaö næstum 6% allra þeirra,
sem þau tvö árin komust á
öryrkjabætur.
Ekki er vitað, hversu
margir hljóta nú öryrkja-
bætur I Danmörku vegna
bakskaða — þar eð hætt er að
halda spjaldskrá um fjölda
öryrkja innan hvers sjúk-
dómshóps.
En eftir likum aö dæma
ætti aö mega margfalda töl-
una 2265 með 10 til þess að
finna fjölda allra þeirra, sem
I Danm. þiggja örorku-
bætur vegna skaða á
hryggjarsúlu eða á bakvöðv-
um. Margt af þessu fólki er
tiltölulega ungt að árum. Og
ef slikir örorkubótaþegar eru
u.þ.b. 22 þúsund, eins og lik-
ur benda til, þá samsvarar
það árlegum örorkubótum
að upphæð 330 millj. d.kr.
En ef gera á reiknings-
dæmið upp frá sjónarmiði
samfélagsins, þá verður
einnig að reikna með þeim
framleiðslumöguleikum,
sem forgörðum fara vegna
þessa sjúkdóms — þ.e.a.s.
þeim verðmætum, sem
vinna þessara 22 þúsunda
myndi hafa s,kilað hefðu þeir
verið vinnufærir. Og þá er ó-
hætt að bæta a.m.k. öðrum
330 m.d.kr. viö.
Sem sagt: Ef gera á upp
kostnaðinn við „slæmu bök-
in” — án þess að taka kostn-
að við sjúkrahússmeðhöndl-
un inn i það dæmi — þá er
hann a.m.k. 700 m. d.kr. á
ári.
Jaínvel þótt örsök ymissa
hryggskaða megi rekja bein-
linis til slæmrar aðbúðar á
vinnustað, þá mun það aldrei
hafa komið fyrir, að launþegi
hafi fengið dæmdar bætur af
þeim sökum — bakveiki er
einfaldlega ekki á listanum
yfir atvinnusjúkdóma, jafn-
vel ekki i sjálfum velferðar-
rikjunum á Norðurlöndum.
Per Gregersen, læknisfræði-
legur ráðunautur D.A.S.F.,
segir:
— Málið er, að mikið af
brjósklosi i hryggjarliðum,
kölkun og hryggskekkjum
má beinlinus rekja til vinnu-
staðanna. Það er of mikið á-
lag á hryggsúluna, röng
staða o.s.frv. Það er svo sem
hægt að segja, að það sé sök
fólksins sjálfs ef það situr i
rangri stellingu eða lyftir
þungum hlutum með röngum
hætti. En innréttingarnar á
vinnustaðnum —borð, stólar
o.s.frv. — ráða þvi, hvort
unnt sé að gæta þeirrar var-
úðar sem til þarf svo hrygg-
inn ekki saki. Það er að visu
sagt, að búið sé að fjarlægja
þrældóminn af vinnustöðun-
um — flestum a.m.k. — en
þær kringumstæður verða þó
oft, að beita verði öllu afli og
þá oft þegar likaminn er i
stöðu, sem ekki getur talizt
beinlinis heppileg.
En i heildina séð þá er ekki
svo auðvelt að færa sérstak-
ar töluskýrslur um eymsli I
baki — svo næstum þvi
ómögulegt er að gera sér i
hugarlund, hversu margir
ganga um með sllka kvilla.
O------------------
ERÞÉR
ILLTf
Er þér illt í bal
inu? Líkast til.
Athuganir, ser
gerðar hafa
verið í Dan-
mörku benda
nefnilega til
þess, að u.þ.b.
annar hvor
maður þjáist a
bakveiki og
flestir hafa
fengið slæmsk
í bakið a.m.k.
einu sinni á
ævinni.
Bakkvillar og
bakverkir starl
yfirleitt af því,
að fólk notar
líkama sinn
rangt. Menn
sitja rangt,
standa rangt,
liggja rangt og
beygja sig
rangt. Kjarni
málsins liggur
svo í því, sem
,,einstaklingur-
inn" til vinstri (
myndinni hér t
hliðar sýnir —
nefnilega
hryggjarliðun-
um. Sakir
rangrar notkun
ar slitna þeir o
mikið eða
ójafnt, van
skapast ellegar
rýrna og afleið-
ingarnar verða
slitgikt, vöðva
bólga —
jafnvel alger
örorka.
ÞJODIN
MES BAKVERK?
• Athuganir, sem gerðar hafa
verið i Danmörku, benda til
þess, að u.þ.b. helmingur þjóðfé-
lagsþegnanna þjáist af bak-
verkjum — og eru þær niðurstöð-
ur þannig fengnar, að ætla má,
að ástandið hér á landi sé ekki
svo ýkja ósvipað. Þessi niður-
staða er að visu ágizkun, en þau
atriði, sem benda i þá átt, eru
mörg.
Tiu prósent allra þeirra, sem
ekki eru taldir hæfir til herþjón-
ustu i Danmörku, eru dæmdir
frá vegna bakkvilla.
Sex prósent þeirra, sem kom-
ast á örorkubætur, eru öryrkjar
vegna bakkvilla.
Og talsverður hópur af þeim
hermönnum, sem sleppa i gegn-
um fyrstu læknisskoðun, eru sið-
ar sendir heim vegna slæmsku i
baki.
Á biðstofum læknanna situr
fjöldinn allur af fólki með eymsli
i baki.
Iðnfyrirtækin og sjúkrahúsin
hrópa á sjúkraþjálfara til þess
að vinna bug á bakverkjunum —
og margir sjúkraþjálfarar fá
sjálfir slæmsku i bakið vegna
vinnuálagsins.
Þriðjudagur 27. marz. 1973
SLÆMSKA í
BAKI NOTUÐ
SEM AFSðKUN
• Hversvegna hefur helm-
ingur dönsku þjóöarinnar
bakverk?
— Þetta er aö visu ágizk-
un, en slæmska i baki er án
efa algengasta orsökin fyr-
ir þvi, að fólk leiti læknis.
Og orsakir frávisunar frá
herþjónustu ásamt ástæð-
unum fyrir þvi, aö fólk
dæmist öryrkjar, segja
einnig töluvert, segir Ib
Russel, yfirlæknis.
— En hvers vegna eru nú
skyndilega svo margir,
sem hafa eymsli I baki?
— Það er ekki vist, aö
þeir séu neitt fleiri nú en
áður, en málið er, að i dag
gefum við sjúkdómsein-
kennum meiri gaum en áð-
ur. Lltum á orsakirnar
fyrir þvi, að fólk fær ör-
orkubætur. Slæmska i baki
• Þeir eru mjög fáir, sem
ekki hafa einhvern tima á
ævinni fengið verk i bakið
og i flestum tilvikum hef-
ur orsökin verið sú, að
fólk hefur notað bakið
rangt. Ef maður beygir
sig niður með beina fæt-
ur til þess að lyfta 20 kg
(eða t.d. gosgrykkja-
kassa) þá þurfa
hryggjaliðirnir ekki aö-
eins að geta staðizt 20
kilógramma þunga —
aldeilis ekki. Hinir þrir til
fjórir fersentimetrar,
sem hver brjóskdiskur á
milli hryggjarliðanna er
á stærð og þunginn liggur
á, verður að mæta u.þ.b.
380 kg. þrýstingi. Það er
oftast röng notkun baks-
ins, sem er orsök
sársaukans — vegna þess
að aðeins litill hluti
manna er fæddur með þá
bak-galla, sem orsakað
geta sársauka.
Ib Rossel er yfirlæknir
á beinsjúkdómadeild
Bispebjerg-sjúkrahúss-
ins, en það mun vera sá
staður i Danmörku, þar
sem finna má flest veiku
bökin.
— Þegar tala á um or-
sakir bakveiki, þá er
sennilega bezt að byrja á
að slá þvi föstu, að likami
mannsins er byggður út
frá þvi, að hann gangi á
fjórum fótum — en ekki
tveimur, eins og hann nú
gerir. Meginatriðið er, að
u.þ.b. helmingur af
likamsþunga mannsins er
borinn uppi af hryggsúl-
er oft tilgreind sem ástæða
— en þaö er spurning, hvort
bakveikin sé einasta orsök-
in. Breytingar i iðnaði,
hraöinn, streita o.s.frv.
gera það oft að verkum, að
fólk á aldrinum 50—60 ára
gefur miklu meiri gaum að
bakverkjum sínum, en það
myndi hafa gert, ef allt
gengi sinn rólega gang. Við
megum ekki gleyma þvi,
að meö aldrinum eykst
hættan á bakkvillum einnig
af liffræðilegum orsökum.
— En hvers vegna
veröur ungu fólki illt I bak-
inu?
— Margt af þvi er með
Scuermann-bak — þ.e.a.s.
hryggjarliðirnir hafa ekki
vaxið rétt á unglingsskeið-
inu. En miklu fleiri þjást af
unni. Spjaldhryggjarlið-
irnir 5 eru viðkvæmastir
— að sumu leyti vegna
þess, að þeir eru neðstir,
en einnig vegna þess, að
það er einmitt þar, sem
hryggsúlan bognar, þeg-
ar fólk lýtur áfram. Og
það er næstum alltaf I
spjaldhryggnum, sem
fólk kvartar undan verkj-
um.
Röng notkun baksins
leiðir til þess, sem við
nefnum „slitgikt” —
þ.e.a.s. kvilla, sem á ræt-
ur sinar að rekja til þess,
að slitfletir hryggjarlið-
anna hafa eyðzt.
Fólk talar mikið um
brjósklos, en I rauninni er
það ákaflega sjaldgæft.
Miklu algengara er
brjóskskekkja eða
brjóskrýrnun. 1 hryggjar-
súlunni liggja brjóskplöt-
ur á milli allra hryggjar-
liða — þessar brjóskplöt-
ur er ekki hægt að greina
á röntgenmyndum, en
með þvi að athuga fjar-
lægðina á milli hryggjar-
liðanna er hægt að sjá,
hversu stór hver plata er.
Ef slik brjóskskifa verður
fyrir miklum þrýstingi,
þá skekkist hún eða rýrn-
ar. Þá aðeins ef þrýsting-
urinn er svo mikill, að
brjóskplatan skýzt úr
skorðum sinum milli
hryggjarliðanna er um
brjósklos að ræða. Þá
þrýsta brjóskflögurnar i
hinni sundurrifnu plötu á
taugarnar. Þá fær maður
ischias ef þrýstingurinn á
Ib Rossel, yfirlæknir við
sjúkrahúsið i Bispebjerg:
--- Djúpstæðasta orsök
allrar bakveiki er sjálfsagt
sú, að manneskjan gekk
eiginlega á 4 fótum — en
ekki upprétt á tveimur.
þvi, að brjóskið á milli
hryggjarliðanna hefur
losnað og færst úr sinum
rétta stað.
Við höfum einnig meö-
höndlað fólk meö brjósklos,
brjóskummyndanir, sem
engan sársauka fann.
Röntgenmyndir af mið-
aldra fólki sýna, að margt
af þvi ætti að vera með
verki i baki vegna þess, að
slitfletir hryggjarliðanna
eru gengnir upp — en það
finnur engan sársauka.
taugarnar veldur meiri
eða minni lömun á fæti.
En sem sagt: Brjósk-
rýrnun er miklu algeng-
ari en brjósklos. Og það,
sem er enn algengara er
vöðvabólga (myosis). Oft
eru þessar vöövabólgur
miklu sársaukafyllri, en
brjóskrýrnun.Þær eiga sér
margar orsakir, en oft
slæmar likamsstöður viö
vinnu og einnig oft vegna
þess, að fólk reynir að
spenna bakvöðvana til
þess að draga úr verkjum
vegna brjóskrýrnunar.
En orsakirnar fyrir
bakveiki geta einnig verið
meðfæddar. Þar ber mest
á þeim fæðingargalla, að
annar fóturinn sé styttri,
en hinn.
Littu bara á eyrun á þér
i spegli. Eru þau alveg
eins? Áreiðanlega ekki og
á sama hátt eru báðir fæt-
ur aldrei alveg eins. Oft
er á þeim hæðarmunur og
hann hefur i för með sér
hryggskekkju, sem bæði
getur valdið vöðvabólg-
um, brjóskrýrnunum og
gigt. Þá er það einnig til,
sem við nefnum Sceur-
mann — en það er rangur
vöxtur hryggjarliðanna á
unglingsaldri. Það var
þessi sjúkdómur, sem
hrjáði hina kengbognu
erfiðismenn fyrri daga.
Oft hélt fólk, að þeir hefðu
„klofinn” hrygg eða
hefðu slitið hann skakk-
an. En oftast var orsökin
Sceurmann-sjókdómur.
RETTU
UR
BAKINU
t
• Hvort heldur sem maður á
sér heilbrigt bak ellegar er
svo ólánsamur að vera veik-
ur I baki, þá er það maður
sjálfur, sem til lengdar ræð-
ur mestu um, hvort bakverk-
irnir láti að sér kveða.
Þau duga ekki öll þessi
bognu bök. Fólk á að liggja
rétt (ekki á of mjúku). Fólk á
að sitja rétt (með beint bak
og stuðning við lendarnar).
Fólk á að iyfta rétt (lyfta
með fótunum, en ekki með
bakinu). Og umfram allt má
maður aldrei vinda upp á lik-
amann og lyfta þunga um
leið. Og fólk á að hafa rétta
likamsstöðu við vinnu — i
verksmiðjunni, að skrifstof-
unni eða heima.
Meðhöndlun á sjúkum bök-
um er viðfangsefni lækn-
anna. En þeir geta ekki til
eilifðarnóns „gert við” aumt
bak. Þeir geta aðeins hjálpað
um stund (með teygjun,
nuddi, hitameðferð, stutt-
bylgjumeðferð eða meö þvi
aðsprauta sérstökum lyfjum
I hina sáru vöðva. Og ef
brjóskios er alvarlegt þarf
vitaskuld aö beita skurðar-
hnifnum.
En eftir að slík fyrsta hjálp
hefur verið veitt er það undir
sjúklingnum sjálfum komið
að gæta baksins — og um-
fram allt er mikilvægt að
gæta þess frá unga aldri.
Vegna þess, að þá skaða,
sem hryggsúlan kann að
verða fyrir (slit, rýrnun
o.s.frv.) er ekki unnt að lag-
færa aftur — það er aðeins
hægt að deyfa einkennin og
draga úr þeim.
Þegar maður lyftir með bognu baki þá er
OLKASSINN 380
KlLÚ Á ÞYNGD
og þessi 380 kíló eru borin uppi af 3—4
fersentimetra stórri brjóskflögu milli
hryggjarliðanna og á einu vetfangi getur
það eyðilagt heilbrigt bak.
• Atvinnulýðræði
— Við höfum komið á atvinnulýðræði hér i
fyrirtækinu. Þú mátt velja um hvort þú vilt
gula eða rauða skrúfjárnið.
BÍLISMINN ; Nærri
sturlaður af örvæntingu greip 48
ára gamall búðareigandi,
Sabino de Freitas I bænum
Goiana i Brasiliu, grjót og grýtti
að bflum er óku fram hjá þar
sem bifreið hafði ekið yfir ung-
an son hans. Þrir bflar stönzuðu
við grjóthriðina, eigendur
þeirra gengu út og mölbrutu
höfuð kaupmannsins á vegar-
kantinum og héldu svo leiðar
sinnar.
5 ÁR TIL: Tékkneska
þingið samþykkti samróma á
fimmtudaginn að kjósa Ludwig
Svoboda forseta næsta fimm
ára kjörtfmabil.
LENGRI FRÍ: Laun-
þegar i Vestur-Þýzkalandi geta
árið 1980 búizt við að fá átta
vikna sumarfri, haldist fram-
leiðniaukningin og ef vinnuvik-
an styttist ekki niður fyrir 41
stund. Þetta er álit nefndar sem
skilað hefur skýrslu til stjórnar-
innar i Bonn. Nefndin leggur
einnig til að stefnt verði að þvi
að eftirlaunaaldur verði þá
kominn niður i 60 ár.
VIÐS
VEGAR
AÐ
FORSETI 1976: siagur
er hafinn innan bandariska
Repúblikanaflokksins um hver
hljóta skuli útnefningu sem
frambjóðandi flokksins i for-
setakosningunum 1976. Spiro
Agnew varaforseti stefnir að
sjálfsögðu að útnefningu, en upp
á siðkastið hefur verið rætt um
að John Conally, fyrrum fjár-
málaráðherra og rikisstjóri i
Texas, hafi hug á að reyna við
embættið. Conally er reyndar
demókrati, en hefur i hyggju að
skipta um flokk, og hann var
forsvarsmaður herferöarinnar
„Demókratar fyrir Nixon” i
kosningunum i fyrra. 1 hana-
stélssamkvæmum i Washington
er haft fyrir satt að Conally
muni reyna að fá Edward
Brooke, öldungadeildarþing-
mann frá Massachusetts sem
varaformannsefni, en Brooks er
þeldökkur.
PAFAGAUKURINN A FERÐ: Henri Charriere, höfundur met-
sölubókarinnar „Papillon” (Páfagaukurinn) fór fyrir skemmstu
i ferðalag, en hann býr I Parfs. Fyrsti viðkomustaðurinn var
Marbella á Spáni, en þaöan fór hann til Þýzkalands, Kanada og
Jamaika, þar sem veriö er aö hefja töku kvikmyndar eftir bók-
inni. Steve McQueen mun leika aðalhlutverkið. Hvar sem
Charriere kemur kynnir hann nú nýju bókina sina „BANCO”. A
myndinni er kona höfundarins með manni sfnum við brottförina
frá Paris.
Þriðjudagur 27. marz. 1973
o