Alþýðublaðið - 27.03.1973, Page 11

Alþýðublaðið - 27.03.1973, Page 11
í SKUGGA MARÐARINS Saga ástar og örlaga eftir Victoriu Holt stoltur og fátækur og sá sjálfan sig i anda sem óðalsherrann. — Og svo? — Það kastaðist i kekki. Hon- um var sagt að fara og hann fór. En hann kom aftur eftir móður þinni. Þau ætluöu að strjúka sam- an. Lizzie fór að hlæja. —- Hann kom upp á stiga. Hún beið hans reiðubúin. Fékk honum skart- gripina sina. Sumir þeirra voru mjög verðmætir. Hann lét þá i i vasa sina og þá . . . þá ruddust þeir inn i herbergið og gripu hann ... og það var i siðasta skipti sem við sáum hann. — Einhver hefur gert þeim við- vart. — Já, sagði Lizzie slóttug á svip. — Það varst þú, Lizzie var það ekki? Gretta kom á andlit hennar. — Þú veizt það! hrópaði hún. — Móð- ir þin vissi það. Ég sagði henni það nóttina sem hún dó. Afallið varð henni að bana. Hún hefði aldrei fyrirgefið mér hefði hún lifað. Hún las yfir mér. Hún sagði að það væri mér að kenna að lif sitt skyldi ekki hafa orðið allt öðruvisi. Hún hefði farið á brott með honum. Hann hefði aldrei farið til Astraliu. — En þangað fór hann og þar strengdi hann heit, og vegna þess, Lizzie, vegna þin . . . Ég gekk út úr herberginu og skildi hana eftir starandi fram fyrir sig. Ég var á báðum ,áttum, vissi enn ekki hvað gera skyldi. Ég gat ekki farið niður til há- degisverðar vegna þess að mér var ómögulegt að horfast i augu við neinn. Lucie kom upp til min. — Minta, hvað er að? — Mér er illt, Lucie. KRÍLIÐ Z^/Vg- ASKjf) SA/T) HL Fkoni VEFJlK öamu/n d 5fí/AY KjftH u/n I Svftfi ftVi nrmR SKMl l| e/NK s r TiTill 30RÐ ftR fóTjZ /9/v2? l/TS hlut /fV/U A K£VR! SKR/F^ Sm'ft TuHrtU iPÍRJR EVDD UR FÓR VjúPf KvEH DÝR — Góða min, þú skelfur. Ég ætla að ná i hitapoka. — Nei, Lucie. Sittu bara hjá mér og talaðu viö mig. Hún settist og ég hóf mál mitt. Hverjum gat ég trúað fyrir raun- um minum ef ekki Lucie, sem hafði i svo mörg ár staðið mér nær en min eigin móðir? Ég sagði henni hvers ég hefði oröið visari i söngleikjasalnum. — Þú skilur það Lucie, hann elskar Noru. Hann kvæntist mér vegna Whiteladies. Lucie var hugsi um stundí svo sagði hún. — Nora er nú á förum til Astraliu. Þið Stirling munuð finna ykkur lifsform. Það verður málamiðlun, en þannig er hjóna- bandið oft. — Nei, sagði ég. — Hann elskar hana og honum tekst ekki að gleyma henni. Þau eru tengd sterku bandi — það er bæði úr ást og hatri, eða svo virtist mér, þvi það var að heyra á Noru að hún hataði hann og elskaði hann um leið. Hún hatar hann vegna þess að hann særði hana með þvi að kvænast mér. Ég hef legið hérna og verið að hugsa um hvað ég geti gert. — Minta min, elsku barn. það bezta sem þú getur gert er að gera ekki neitt. Svona lagað hefur komið fyrir áður. Stirling er kvæntur þér. Þú gengur með barn hans. Nora fer til Astraliu. Sannaðu til, eftir fáein ár verður hann búinn að gleyma henni og þú sömuleiðis. — Hann lætur hana ekki fara, þrætti ég. — Hann sagðist ekki gera það. — Það er bara fljótfærnistal. Hann ræður engu um það og Nora er skynsöm og veraldarvön kona. Hún veit að héðan af verður ekk- ert að gert. Hann getur orðið úr- illur fyrst eftir að hún fer, en tim- inn læknar öll sár. Hann sættir sig við orðinn hlut. Þú hefur margt til brunns að bera, Minta. — Nei, nei. Ég hef verið að reyna að hugsa mér hvað ég ætti að gera. Ég var jafnvel að hugsa um að fara i burtu. — Hvert þá? —• Ég veit ekki hvert. — Ekki ertu nú hagsýn. Þú verður hér og ég verð þér innan handar og lit eftir þér. — En ég var nú samt að hugsa um að fara . . . eitthvað. Ég var meira að segja byrjuð á bréfi til hans. Hún gekk að skrifborðinu minu og tók þar upp pappirsörk.Á hana hafði ég skrifað: — Elsku Stirling. Ég var i söngsalnum þegar þið Nora voruð að tala saman svo ég veit að þú elskar hana og mér virðist aðeins einn vegur fær. Ég verð að vikja . . . Ég hafði ekki komizt lengra, en farið að velta þvi fyrir mér hvað til bragðs skyædi taka. Lucie fleygði blaðinu reiðilega i rusla- körfuna. Svo kom hún aftur að rúminu til min. — Þú hefur ofreynt þig, sagði hún. — Ég skal sjá um þig og ég fullyrði að með timanum læturðu þér þetta allt i léttu rúmi liggja. Hann getur ekki hafa verið svo mjög ástfanginn af Noru þvi þá hefði hann ekki farið að kvænast þér. — Það er mikil huggun að hafa þig, Lucie, en . . . — Treystu mér. Nú verður þú i rúminu það sem eftir er dagsins, þá þarftu ekki að tala við neinn. Ég ætla svo að bregða mér til Hunters læknis og biðja hann að koma og lita á þig. A ég ekki að gera það? — Hunter læknir getur litið bætt úr þessu. — Jú, það getur hann. Hann getur gefið þér eitthvað sem þú sofnar af, og það er i rauninni það, sem þú þarfnast. Þú hefur ekki verið með sjálfri þér eftir fallið þarna i turninum. Hrollur fór um mig. Ég gat ekki einu sinni sagt Lucie frá hinum hræðilega grun, sem hafði gripið mig. En það eitt að tala við Lucie gerði mér hughægra. Hún fór út frá mér og ég lá kyrr, reyndi að trúa þvi sem hún hafði sagt mér, en mistókst það hrapallega. Ég lá i rúminu það sem eftir var dagsins. Lucie færði mér kvöldmatinn á bakka, en ég hafði hvorki lyst á steikta kjúklingnum né ostinum og ávöxtunum. Hún hafði farið til Hunters læknis, en hann hafði verið i vitjun og af- glapinn frú Devlin hafði virzt drukkin. Lucie hafði hinsvegar skilið eftir boð til læknisins um að koma til min daginn eftir. Lucie sagði að ég gæti tekið eina af töfl- unum sem hann hafði gefið mér eftir fallið. Hún skyldi senda mér mjólk til að drekka með henni. — Ætlarðu ekki að reyna að borða eitthvað? spurði hún. — Mér er það ómögulegt, Lucie. Um niuleytið sendi Lucie mér heita mjólk og kexkökur. Lizzie virtist eitthvað miður sin og það stóð greinilega i sambandi við hegðun hennar fyrr um daginn. Ég gat- ekki borið sama hug til Lizzie og áður. Gerðir hennar höfðu haft svo gifurleg áhrif á lif okkar allra. Ég horfði með ógleði á mjólkina og sneri mér undan, svo Lizzie lagði bakkann frá sér á náttborðið hjá mér. Ég lokaði augunum og hlýt að hafa blundað, þvi þegar ég vakn- aði fékk ég dynjandi hjartslátt við að sjá einhvern standa við rúmið hjá mér. Þetta var Stirling. Ég gat ekki komið mér til að tala við hann svo ég lézt sofa. Hann stóð þarna og horfði á mig og ég braut heilann um hvað hann hefði i hyggju. Var hann að hugsa um að þrýsta kodda yfir andlit mitt og kæfa mig? Mér var sama þótt hann gerði það. Hver hefði trúað þvi að mögulegt væri aö elska nokkurn, sem maður grunaði um að ætla að drepa mann. Nora elskaði hann og hataði i senn, og ég elskaði hann þótt ég grunaði hann um að vilja mig feiga. Mannlegar tilfinningar eru sannarlega margslungnar! Eftir stundarkorn fór hann út aftur. Ég lá kyrr og sömu hugsan- irnar hringsnerust i huga mér og skyndilega hrökk ég við að heyra einhverja hreyfingu við glugg- ann. Ég settist upp i rúminu, en velti um leið bakkanum niður. Kettlingurinn kom hlaupándi frá glugganum með Bellu á hælun- um. Mér varð ljóst að ég hafði vaknað við leik þeirra með gluggasnúruna. Kettlingurinn uppgötvaði mjólkina og tók að lepja i ákafa svo ég lét bakkann niður á gólf og þau luku við hana I sameiningu. Bella stökk malandi upp i rúmið til min og ég strauk henni. Innan tiðan hljóp hún niður aftur og ég reyndi að sofna. Auð- Utboð Dalvikurhreppur óskar eftir tilboðum i að gera heimavistarbyggingu á Dalvik fok- helda og jarðvegsskipti á lóð. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Dal- vikurhrepps frá og með miðvikudeginum 28/3 gegn 10.000.00 kr. skilatryggingu. Sveitarstjórinn Dalvik. Ljósmóðurstarf Starf ljósmóður i Neskaupstað er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. mai 1973. Veitir frá 1. júni 1973. Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Þorleifsson, forstöðumaður Fjórðungssjúkrahússins i Neskaupstað, simi (97) 7402. Bæjarstjórinn i Neskaupstað. Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar Skipholti 25. Simar 19099 og 20988. Frá Velskola Islands Ef nægileg þátttaka fæst, verður haldið námskeið fyrir vélstjóra við Vélskóla ís- lands i Reykjavik frá 28. mai til 10. júni 1973. Verkefni: 1. Stýristækni. 2. Rafeindatækni. 3. Rafmagnsfræði. Námskeiðið er ætlað fyrir vélstjóra, er lokið hafa prófi úr rafmagnsdeild skólans eða 4. stigi. Þátttaka tilkynnist bréflega fyrir 15. mai til: VÉLSKÓLA ÍSLANDS Sjómannaskólanum. Pósthólf 5134, Reykjavik. Miðstöðvarofnar Reyndir með 12 kg/cm2 þrýstingi. Leitið verðtilboða. ÍSLEIFUR JÓNSSON HF., byggingavöruverzlun, Bolholti 4, sími 36920 - 36921. Þriðjudagur 27. marz. 1973 0

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.