Alþýðublaðið - 09.05.1973, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 09.05.1973, Blaðsíða 2
Vor í Stokkhólmi Halló táningur! Blaðið sem tekur mestum framförum Þegar Stokkhólmur liggur hul- inn vorregnúða og allir veraldar- innar vindar hafa losnað úr læð- ingi — þá er illt að vera aumingja litla ég, sem hef dún i staðinn fyrir hár á höfðinu. Svona ljóst, þunnt, norskt hár, sem hægt er að greina hársvörðinn i gegn um og er svo hrifandi á ungabörnum — og Marilyn Monroe. En ekki lit ég út eins og unga- barn og ekki heldur eins og Mari- lyn Monroe, svo ekki er um að gera annað en að beina slitnum gúmmistigvélunum ákveðiö, en örvæntingarfullt i áttina að Sture- plan. A Stureplan er ein af „poppuð- ustu” hárgreiðslustofum Stokk- hólms — „Klippotekið”. Viö rif- um upp hurðina, slengjum af okk- ur regnslánni og tilkynnum meö glaðlegri röddu: það á að klippa hárið hingaö upp — er löng bið? — Undarlega litil eru viðbrigðin hjá fallegu stelpunni við afgreiðslu- borðið, en ástæðan er einfaldlega sú, aö Gilbert O’Sullivan er á fullu i stereó-tækjunum, svo viö kom- umst sannarlega i „stuð”. Með svipbrigöum og fingramáli getum við tjáð, hvað við viljum og stelpan tjáir okkur með sama hætti að fara á barinn og biða — Mariafina komi eftir kortér. A barinn? Rétt, kaffibarinn til vinstri við kissotekið. Kissotekið? Klósettiö þá hver skrambinn. Svei, hvilikir sveitamenn erum við ekki. Kissotekið veröur pisso- tekið á norsku — allt veröur jú að vera i samræmi við timann. Kaffibarinn er notalegur. Háir stólar með rauðum setum, staflar af sænskum vikublöðum og rauð klukka á veggnum svo kúnnarnir geti séð, hve lengi þeir hafa beöið. Kaffisjálfsali i horninu og bara 50 aurarsænskir fyrir heita vökvun. Sannkölluð hjálp i viðlögum eftir slagviðrið. Okkur liður vel — svo sannar- lega — með Gilbert, klukkuna og vikublöðin og sætu, vel greiddu stelpurnar, sem tipla um. Smá- vaxnar geishur i gailabuxum, sem eru svö þröngar, að það er eins og þeim hafi verið hellt ofan i þær. Það koma einnig ungir menn ár barinn. Starfa þeir hér? Ne-hei — þeir eru að koma i vorsnyrtingu með hár sitt og skegg. A borðinu er tágakarfa með iimandi kanelbolium. Gerðu svo vel og fáðu þér. En vinsamlega settu 50 aura i baukinn við hliðina fyrir hverja bollu. „Guð sér til þin”, stendur á litlu veggspjaldi fyrir ofan bollukörfuna. „Ein- mitt”, segir skessa af stærðinni 46. „Þá sá hann væntanlega lfka, að kaffisjálfsalinn var bilaður. Ég fékk ekki 50 aura til baka af krónunni, sem ég setti i sjálfsal- ann. „Hún ræðst meö ánægju á stærstu bolluna á diskinum án þess svo mikið sem að gjóta horn- auga á baukinn við hliðina. „Gerðu svo vel„’ segir Mariann ó póló-skyrtu og topp-snyrt og svo setjumst við i stólinn. „Do you never change your mind?” spyr Gilbert i stereó-tækjunum. En það er oröið of seint. Mariann er komin af stað. Stórar flyksur af ilmandi sjampói detta ofan i vaskinn, sterkir fingur nudda vel- liðan inn i hvert eitt og einasta höfuðhár. Hárgreiðslustofan er með dökkgrænum veggjum og eld- rauðum leðurstólum. Um allt eru skinandi messingstangir. Sem sagt löngu liðin tið sú með rauðu og hvitu — þegar allar hár- greiðslustofur voru meö rósrauö- um veggjum, kringlóttum spegl- um og konum i ljósbláu „buxna- dressi” úr næloni. Okkur geðjast nýja linan betur. Ef við hefðum getað myndum við hafa malað eins og köttur. Sá með vorsnyrtinguna malar einnig. Heimsins sætasta stelpa snyrtir skeggið á honum og við augum hans blasir T-skyrta án brjóstahaldara innanundir, rautt ennishár yfir dökkgráum augn- skuggum — og gallabuxurnar, sem við minntumst á áðnan. Klippa, klippa, segir Mariann. Svo stingur hún þurrkunni i sam- band og afleiðingin er mildur sunnanblær. Kraftaverkið gerist. Hárið lag- ar sig snoturlega aö höfðinu, fær einmitt þessa litlu bylgju yfir enninu, sem viö höfum lengi ósk- að okkur, og endar i tveim odd- mjóum toppum við kinnarnar. Ótrúlegt! „Það er þrjátiu kall”, segir Mariann og leysir af okkur ljós- rauða yfirbreiðsluna. „Borgaðu við kassann og mundu, að þetta hár þarf að bursta, bursta og bursta.” Hún brosir elskulega og er þegar byrjuð að nudda sjampói og velliðan inn i næsta höfuð. Þekkt höfuð, virðist okkur — sennilega fyrirsæta eða kvik- myndaleikkona. Viö borgum og flýtum okkur i áttina að neðanjaröarbrautinni. Heim til þess að bursta, bursta og bursta. Kveðja Tove ©P ib .<.ihfíE/26 — Þú segir alltaf að konur séu allar eins, — svo þú vilt kannski skipta? — Nei ég vil einfaldlega ekki dansa við þig af því að ég er strákur! Miðvikudagur 9. mai 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.