Alþýðublaðið - 09.05.1973, Qupperneq 4
Frá mönnum
og málefnum
Spurninga-
keppni
Þjóðviljans
Um þessar mundir stendur
yfir einskonar spurningakeppni
i Þjóðviljanum. 1 gær spurði
biaðið Ólaf Ragnar Grimsson,
en i dag spyr það Steingrim
Hermannsson. Hin næmu eyru
heyra allsstaðar óm af svikum,
eins og það hafi ekkert haft aö
segja að lesa stjórnarsamning-
inn kvölds og morgna og um
miðjan dag. Og Ólafur Ragn-
ar svarar einhverju og Stein-
grúmur svarar einhverju og all-
ir eru jafnnær, þvi engum dettur
i hug að þessir tveir menn fari
að trúa Þjóðviljanum iyrir
innstu hugrenningum hvað þá
pólitiskri vitneskju um her-
stöðvarmálið, sé hún einhver á
annað borð. Fyrir utan blaða-
menn hafa einstaklingar utan úr
bæ fengið að gripa inn i spurn-
ingakeppni blaðsins. Útvarps-
stjóri hefur verið spurður um K-
sjónvarpið. Hann trúði bjóðvilj-
anum heldur ekki fyrir neinu, og
á sömu lund fór, þegar mennta-
málaráðherra var spurður af
sama tilefni, hvað liöi lokun K-
sjónvarpsins. Hann hengdi
samvizku sina á kerfið.
Nú eru vanalega veitt verð-
laun i spurningakeppni. Þeim
hefur ekki verið heitið enn, en
liklega verða þau ókeypis
áskrift að Þjóðviljanum. En þá
vaknar sú spurning hvort nokk-
ur vilji vinna keppnina. Þó er
Steingrimur liklegastur sigur-
vegari af þeim, sem þegar hafa
svarað. Hann er svo afdráttar-
laus i yfirlýsingum sinum. Hann
er spurður hvort Framsóknar-
flokkurinn sé meö miöstjórnar-
samþykkt um herstöðvamálið
búinn að gefa endurskoðun her-
stöðvarsamningsins upp á bát-
inn. Það tel ég alrangt, segir
Steingrimur. Það er ekki hægt
að komast lengra i spurninga-
keppni en að svara afdráttar-
laust spurningu, sém enginn
kann svör við. Slikan mann er
ekki hægt að sigra.
Hér i blaðinu hefur Fram-
sóknarflokknum vérið lýst sem
kamelljóni. Grunnurinn sé ekki
annað en svart ihald, sem taki á
sig alla liti regnbogans fyrir
kosningar og tindri eins og
óðinshani i tilhugalifi, en birtist
á raunveruleikastundum eins og
Lagarfljótsormurinn, gljáandi á
belginn og einlitur, svartur eins
og erfðasyndin. Þetta er nokkuð
hastarleg pólitisk úttekt á for-
ustuflokki vinstri stjórnar i
landinu. En svona litaskipta-
flokkur hvetur auðvitað til
spurninga. Þá hafa ungu menn-
irnir i flokknum ekki auðveldað
neinum að komast að hinum
svarta kjarna flokksins fyrir
moldviðri lýðræðis, samvinnu
og jafnaðar, sem þeirhafa þyrl-
að upp bláeygir af hugsjónum.
En nú fer þetta að breytast fyrst
þeir voru felldir mitt i yfirlýs-
ingaflóði sinu um stuðning við
rikisstjórnina. Kannski endar
þetta með þvi að Þjóöviljinn
þurfi einskis að spyrja. Svörin
liggi á borðinu.
Næst ætti Þjóðviljinn að beina
spurningum sinum til Jóns
Skaftasonar og Björns Pálsson-
ar og Björns Fr. Björnssonar.
Allt eru þetta góðir og gildir
þingm. Framsóknarflokksins.
beir ættu að geta frætt blaöið
um framtiöarhorfur i her-
verndarmálum og gefið af-
dráttarlaus svör ekki siður en
Steingrimur. En svo visað sé til
litaskipta kamelljónsins, þá ber
að hafa i huga að það sem er al-
rangt i dag getur oröið alrétt á
morgun. Þeim eðliseigindum
getur engin spurningakeppni
breytt, þótt hún geti dregið stað-
reyndina i ljós. Þjóðviljinn tek-
ur herverndarstefnu eða stefnu-
leysi Framsóknar eins og hvert
annað Watergate-mál, og boðar
rannsókn fyrir opnum tjöldum.
Og hér er svo ein spurning i
keppni Þjóðviljans. Fyrst
Ólafur Ragnar er titlaður ,,ung-
ur maður” hvenær varð þá
Steingrimilr svo gamall að vera
talinn i hópi öldunganna. Og
miðað við slika flokkun: Hverjir
eru kararaumingjarnir. Eru
það kannski þeir sem sakir elli
hafa misst eiginleikann til að
skipta um lit.
VITUS
ÞESSIR ERU
TlU STÆRSTU
Tiu stærstu sparisjóðir landsins
eru þessir samkvæmt nýjasta
hefti Hagtiðinda:
Sparisjóður Reykjavikur og
nágrennis, Sparisjóðurinn i
Keflavik, Sparisjóður Hafnar-
fjarðar, Sparisjóður Mýrasýslu,
Sparisjóður Kópavogs, Spari-
sjóður vélstjóra, Sparisjóður
Sigluf jarðar, Sparisjóöur V-
Skaftafellssýslu, Sparisjóður
Norðfjarðar og Sparisjóður Vest-
mannaeyja.
*
LÍTT HRIFNIR
AF EYJABYGGÐ
Af réttum Suðurnesjatiðinda
má dæma, að Keflvikingar séu
ekki of hrifnir af skipulagi Eyja-
byggðarinnar sem nú er að risa i
Keflavi'c, en þar reisir Viðlaga-
sjóður 10 hús. ,
„Sigurður Thoroddsen, arki-
tekt, sem hefur verið potturinn og
pannan i þessari skipulagningu, á
greinilega vinkil og reglustiku, og
allt skal vera beint og hornrétt,
fyrir utan að fram hjá honum
virðist alveg hafa farið þær auknu
kröfur, sem viða er farið að gera i
sambandi við umhverfismál, og
að slita eins litið og hægt er tengsl
mannsins og náttúrunnar”.
Þannig segir orörétt i frétt
Suðurnesjatiðinda.
KLUKKU
STREDGIRNIR
HANS JðKULS
Leikfélag Akureyrar fitjaði upp
á þeirri nýjung i vetur að fá Jökul
Jakobsson til að semja leikrit
fyrir félagið, og var það æft jafn-
óðum og hver þáttur var tilbúinn.
Leikritasmiðin tók þrjá mánuði,
og á laugardaginn kemur fá
Akureyringar tækifæri á að sjá
árangur vinnunnar.
Þetta nýja leikrit Jökuls nefnist
Klukkustrengir. Leikstjóri er
Magnús Jónsson, Jón Þórisson
gerði leikmyndir, og leikendur
eru sjö.
*
EINLEIKARI
FYRSTA SINNI
Guðný Guðmundsdóttir leikur
fyrsta sinni sem einleikari með
Sinfóniuhljómsveit Islands i
Háskólabiói á fimmtudagskvöld,
en þar er ma.a á efnisskrá fiðlu-
konsert i A-moll eftir Dvorak.
Stjórnandi verður Alexander
Rumpf. Siðustu hljómleikar Sin-
fóniuhljómsveitarinnar á þessu
starfsári verða svo 24. mai. Þá
stjórnar Finninn Okko Kamu og
einleikari verður hollenzki fiðlu-
leikarinn Szymon Goldberg.
Meðal verka á þeim tónleikum
verður verk eftir Jón Nordal.
Vegna skorts á vörubrettum eru þeir, sem
hafa undir höndum vörubretti merkt —
EIMSKIP — beðnir að skila þeim nú þegar
til Vöruafgreiðslu félagsins i Reykjavik
eða til umboðsmanna félagsins utan
Reykjavikur.
H.f. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
ATHUGIÐ
—Vesturbæingar—
ATHUGIÐ
Munið skóvinnustofuna
að Vesturgötu 51.
Ef skórnir koma i dag,
tilbúnir á morgun.
Virðingarfyllst
Jón Sveinsson
OKKUR VANTAR
BLADBURÐAR-
FÚLK IEFTIR-
TALIN HVERFI
Laugarteigur
Laugarnesvegur
Rauðilækur
Sundin
Vogar
Hvassaleiti
Iláaleitisbraut
Sogavegur
Langageröi
HAFIÐ SAM-
BAND VIÐ AF
GREIÐSLUNA
MJOR ER MIKILS
§ SAMVINNUBANKINN
WM
Auglýsingasími
Alþýðublaðsins
er 86660
Garðleigjendur á Akranesi
Tekið verður á móti greiðslum fyrir
garðaleigur á bæjarskrifstofunni, til 18.
mai n.k. Óheimilt er að setja niður i garða,
nema leigan hafi verið greidd.
Þeir sem skulda leigu fyrir slægjulönd
geri skil nú þegar, annars verða löndin
leigð öftrum. Bæjarritari.
Skrifstofustúlka óskast
í röntgendeild Landspitalans er laust starf
fyrir skrifstofustúlku. Vinnutimi frá kl. 10
til 16. Nánari upplýsingar gefur skrif-
stofustjóri röntgendeildar Landspitalans
á staðnum og i sima 24160.
Reykjavik, 8. mai 1973.
Skrifstofa rikisspitalanna.
Leyfi
til rekstrar faarnaheimifa
Mennlamálaráðuneytið vekur athygli á því að sækja þarf
um leyfi til ráðuneytisins til þess að reka sumardvalar-
heimili og önnur barnaheimili. Sérstök umsóknareyðublöð
i þessu skyni fást i ráðuneytinu og hjá Barnaverndarráði
islands og barnaverndarnefndum. Umsóknum fylgi með-
mæli héraðslæknis og barnaverndarnefndar, svo og saka-
vottorð umsækjanda.
Þeir aðilar, sem fengu slik leyfi síðastliðið sumar eða fyrr,
þurfa að sækja um leyfi á ný til ráðuneytisins.
MENNTAM ALARAÐUNEVTIÐ,
7. MAÍ 1973.
Tilboð óskast
i 20 tn. valtara er verður sýndur að
Grensásvegi 9 næstu daga. Tilboðin verða
opnuð i skrifstofu vorri fimmtudaginn 17.
mai kl. 11 árd.
Sala varnarliðseigna.
RAFVIRKJAR - RAFTÆKNAR
Staða rafmagnseftirlitsmanns III hjá Raf-
magnsveitum rikisins á Suðurlandi er laus
til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi rikisins.
Umsóknir um stöðuna ásamt upplýsing-
um um aldur, menntun og fyrri störf send-
ist starfsmannadeild fyrir 15. mai n.k.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 116
Reykjavik.
Slökkviliðsmenn
STOFNÞING
Landssambands slökkviliðsmanna verður
haldið að Hótel Esju dagana 12. og 13. mai
1973 og hefst kl. 14.00 báða dagana.
Athygli skal vakin á, að þótt ekki sé búið
að stofna aðildarfélag að sambandinu,
hafa allir slökkviliðsmenn rétt til seiu á
þinginu.
Áriðandi að sem flestir mæti.
Undirbúningsnefnd
o
Miðvikudagur 9. maí 1973