Alþýðublaðið - 09.05.1973, Page 5

Alþýðublaðið - 09.05.1973, Page 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmálaritstjóri Sighvatur Björgvinsson. Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson. Ristjórnarfulltrúi Bjarni Sig- tryggsson. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Freysteinn Jóhannsson. Aðset- ur ritstjórnar Hverfisgötu 8—10. Sími 86666. Blaðaprent hf. ER PÓLITÍKIN ÞÁ FYRIRLITLEG? Stjórnmál eru miklu meira en það eitt, sem stjórnmálaflokkar gera eða ræða. Stjórnmálabar- átta fer fram á ölium sviðum þjóðfélagsins. Bak við flestar félagslegar athafnir einstakl- inga eða hópa liggja atriöi stjórnmálalegs eðlis hvort held- ur fólk er sér þess meðvitandi eða ekki. Það er þvi hin mesta firra ef einhver heldur, að eng- inn faist við stjórnmál nema nokkrir pólitikusar. Allt lifið — öll samskipti manna eru pólitik að einhverju leyti. Þetta ættu menn að hafa i huga og þá ekki hvað sizt þeir, sem þykjast hafa skömm á stjórnmálum — en slik og þvílík afstaða er nú mjög i tizku hér á landi. Jafnvel þótt stjórnmálin væru þar skilin hinum þrengra skilningi — scm valdaumfjöllun stjornmálaflokka og stjórn- máiaforingja — þá ætti fólk að gera sér grein fyrir þvi, hvað það hefði i för með sér, ef fyrir- litningn á stjórnmálunum ætti rétt á sér. Væri þá öll sjálf- stæðisbarátta tslendinga fyrir- iitleg, því hvað var hún annað en pölitik? Og hvað um sjálf- stæðishetjurnar okkar gömlu eins og t.d. Jón Sigurðsson og Hannes Hafstein? Eða siðari tima menn eins og Jón Bald- vinsson, ólaf Thors, Einar Olgeirsson og Jónas frá Hriflu svo nefndir séu nokkrir þeirra manna úr ólfkum flokkum, sem fólk hefur hvað fastast fylgt — eru þessir menn þá fyrirlitn- ingarinnar verðir gagnsleys- ingjar, scm ekki er annað hægt en að hafa skömm á? Það er annað mál með þá — þetta voru svo miklu hæfileikarikari menn, en stjórnmálamennirnir i dag, segir sumt fólk. En það er ekki satt. Við lestur samtimaheim- ilda sjáum við, að fornar sjálf- stæðishetjur og gamlir baráttu- kappar úr flokkapólitikinni voru nákvæmlega sams konar stjórn málamenn og stjórnmálamenn- irnir eru i dag: hvorki betri né verri. Og eru þá öll þau vcrk, sem stjórnmálin hafa unnið fyrir okkur islendinga fyrirlit- leg — þjóöarsjálfstæði, velsæld, öryggi og velferð fyrir öll lands- ins börn? Að sjálfsögðu ekki. Þeir, scm hafa skömm og fyrir- litningu á stjórnmálum geta fundið staði, þar sem umhorfs er eins og var á islandi áður en stjórnmálabaráttan kom til sög- unnar, þar sem rikir fátækt, ör- yggisleysi, kúgun, harðrétti og gróf mismunun. Vilja þeir skipta? Fyrirlitningin á stjórnmálun- um, sem einn étur upp eftir öðr- um i fulikomnu aðgátarleysi, er varhugaverð — ekki fyrst og fremst fyrir stjórnmál og stjórn málamenn, heldur þjóðina. Fyrirlitning á stjórnmálaaf- skiptum er fyrirlitning á lýð- ræðinu og þeir, sem hafa fyrir- litið lýðræðið hafa iðulega glat að þvi og orðið svo að berjast harðri baráttu við að öðlast það aftur. Óskar nokkur tslending eftir slfku? örugglega ckki. Hitt er svo að sjálfsögðu satt og rétt, að nauðsynlegt er að breyta bæði pólitisku Iffi og pólitiskum flokkum. En hvað er slikt annað en stjórnmálabar- átta? Og hvernig geta menn ætl- azt til þess, að umbæturnar séu framkvæmdar fyrir þá þegar fólk nennir ekki sjálft? Forsenda hamingjusams og heilbrigðs þjóðfélags er almenn þátttaka fólksins i öllum mál- efnum samfélagsins. Það verð- ur ekki öðru visi en með öflugu stjórnmálalegu starfi almenn- ings og tizkan um andúð á stjórnmáium cr ekkert annað en bein ógnun við það fagra og réttláta mannlif, sem við öll viljum skapa — en sem ekki verður skapað nema með bar- áttu og sigrum á stjórnmála- sviði. GLÆSILEG SUMAR- HÁTÍÐ HJÁ F.II.J. Guðrún Á. Símon- ar, óperusöng- kona, söng fyrir fólkið á FUJ- fagnaðinum. Hljómsveit Þor- steins Guðmunds- sonar, sem lék fyrir dansi á sumarhátiðinni. Laugardaginn 5. mai hélt Félag ungra jafnaðarmanna i Reykjavik sumarhátið sina að félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli. Hátiðin hófst klukkan 9 e.h. um kvöldið og lauk henni klukkan tvö um nóttina. Mikið fjölmenni sótti hátiðina. Að sögn Guðlaugs Tryggva Karlssonar, sem sá um allan undirbúning hátiðarinnar, sóttu hana langt á fimmta hundrað gestir og var húsfyllir. Mest var þetta ungt fólk, bæði af Suður- landi og eins úr kaupstöðunum á Suð-Vesturlandi, en úr Reykjavik komu tveir áætlunarbilar fullir af fólki og á Selfossi bættust tveir við setnir ungu fólki úr Arnes- sýslu. Mjög fjölbreytt skemmtiatriði voru á hátiðinni. Ómar Ragnarss. flutti gamanþátt af sinni alkunnu snilld og Guðrún Á. Simonar, óperusöngkona, söng við undir- leik Guðrúnar Kristinsdóttur. Var flutningi skemmtiatriðanna mjög vel tekið. Þá flutti Guðlaugur Tryggvi Karlsson ávarp. t ávarpinu bauð Guðlaugur Tryggvi gesti vel- komna og lýsti ánægju sinni með það, að FUJ i Reykjavik skyldi efna til sumarhátiðarinnar á svo fögrum stað og i svo fögru um- hverfi. Þá þakkaði hann skemmtikröftunum þeirra þátt i hátiðarhaldinu og kynnti atriðin. Að sögn Guðlaugs Tryggva Karlssonar fór sumarhátiðin mjög vel fram og skemmti fólk sér yfirleitt mjög vel. Gott starf hefur verið hjá Félagi ungra jafnaðarmanna i Reykjavik i vetur. Félagið hefur i vetur gefið út þrjú blöð — eitt helgað menntamálum, annað helgað iðnaðarmálum og svo jólablað. Voru blöðin öðrum þræði ætluð til tekjuöflunar fyrir félagið og hefur fjáröflunarstarf- ið gengið sæmilega vel i vetur. AÐ OFAN: Omar Ragnars- son skemmtir viö mikil fagnaðarlæti frá áhorfend- um. AÐ NEÐAN: Séð yfir hluta þess stóra hóps af ungu fólki, sem sótti hina glæsi- legu sumarhátíð FUJ í Reykjavík í vetur efndi FUJ til funda- seriu. 1 seriunni voru sex fundir um ólik efni. Allir fundirnir voru haldnir á Hótel Esju og fékk félagið sérstaka fyrirlesara á hvern fund. Fundirnir, sem voru með fræðslu- og upplýsingasniði, voru yfirleitt sæmilega sóttir. Þá efndi félagið til fjölmennrar árshátiðar seinni partinn i vetur auk þess sem það efndi til annara skemmtana fyrr. Hefur skemmtanastarfið gengið mjög vel hjá félaginu. Félag ungra jafnaðarmanna i Reykjavik hefur verið og er stærsta FUJ-félagið i landssam- tökum ungra jafnaðarmanna. Margvisleg starfsemi helur jain- an átt sér stað á vegum félagsins — m.a. iþróttastarfsemi, sem oft hefur veriö rekin af miklum krafti. Það hefur háð störfum félagsins, að nokkur undanfarin ár hefur það ekki átt sér neinn samastað, eða siðan það missti félagsheimilið BUIIST fyrir nokkrum árum. o Miðvikudagur 9. maí 1973

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.