Alþýðublaðið - 20.06.1973, Blaðsíða 10
ÞETTA' ER SARASAKt/
Aðvörun
um stöðvun atvinnurekstrar
vegna vanskila á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik
og heimild i lögum nr. 10, 22. marz 1960,
verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja
hér i umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt fyrir janúar — marz s.l., og nýálagð-
an söluskatt frá fyrri tima, stöðvaður, þar
til þau hafa gert full skil á hinum van-
greiddu gjöldum ásamt áföllnum dráttar-
vöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja kom-
ast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú
þegar til tollstjóraskrifstofunnar við
Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn i Reykjavik,
18. júni 1973
Sigurjón Sigurðsson
Lausar stöður
Nokkrar kennarastöður við Mennta-
skólann við Hamrahlið eru lausar til um-
sóknar. Kennslugreinar: liffræði, lifefna-
fræði og jarðfræði, efna- og eðlisfræði,
stærðfræði.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum
ummenntunogstarfsferil sendist mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykja-
vik, fyrir 18. júli n.k. — Umsóknareyðu-
blöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
18. júni 1973.
Athugasemd 5
saman var tekin eftir viðræöur
við bæði framsögumennina tvo
og forráðamenn kjördæmis-
ráðsins, var svo greint frá gangi
fundanna almennt og sérstak-
lega vikið að málflutningi fram-
sögumannanna. Margir aðrir
tóku til máls á fundunum en al-
mennar umræður voru ekki
raktar i frásögninni. Vissi ég
ekki annað, en að Bárður Hall-
dórsson myndi hafa verið einn
af þeim, sem töluðu i þessum al-
mennu umræðum að loknum
framsöguræðum og hefði að
sjálfsögðu verið mjög óeðlilegt
að segja aðeins frá málflutningi
eins ræðumanna undir þeim
dagskrárlið fundanna en láta
sjálfsagt ágætis framlags ann-
arra ræðumanna þar ógetið.
Mér þykir það mjög leitt ef
svo kemur á daginn, að um allar
frásagnir af fundunum hafi
þriðji framsögumaðurinn verið
sniðgenginn. Ég efa ekki, að
Bárður Halldórsson hefur flutt
mál sitt vel og skörulega og full
ástæða hafi verið að geta um
málflutning hans. En þar er
ekki við okkur hér að sakast.
Astæðan fyrir þvi, að það var
ekki gert, er ekki sú, að okkar
heimur nái ekki út fyrir mörk
Kópavogs og Breiðholts. Ástæð-
an var einfaldlega sú, að okkur
var ekki sagt, að um neinn
þriðja framsögumann væri að
ræða, og þeir, sem sögðu okkur
það voru þeir, sem allan veg og
vanda höföu af fundarhaldinu af
hálfu heimamanna.
Um leiö og ég tek áminning-
um Steindórs vinar mins og
flokksbróður vel og þakka hon-
um þær upplýsingar, sem fram
koma i athugasemd hans, þá
vildi ég jafn vinsamlega beina
þvi til hans að hann athugaði við
rétta aðila heimafyrir — þ.e.a.s.
fundarboðendurna — hvort at-
hugasemd hans sé ekki á ein-
hverjum misskilningi byggð.
Sighv. Björgvinsson
WM
MJOR ER MIKILS
§ SAMVINNUBANKINN
R
SINFQNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS ISCM
Tónleikar
i Háskólabiói fimmtudaginn 21. júni kl.
21.00
Stjórnandi Páll P. Pálsson
Einleikari Werner Taube, cellóleikari.
Flutt verða verk eftir Leif Þórarinsson,
Mallnes, Stevens, Endres, Gentilucci,
Lachenmann, Krauze.
Aðgöngumiðar i bókabúðum Lárusar
Blöndal og Eymundssonar og við inn-
ganginn i Háskólabió.
Laus staða
Staða húsvarðar við Menntaskólann við
Hamrahlið er laus til umsóknar.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri
störf, sendist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 20. júli n.k.
Menntamálaráðuneytið.
18. júni 1973.
Atvinna
Bifvélavirkjar, vélvirkjar eða menn vanir
bifreiðaviðgerðum óskast.
Upplýsingar i simum 20720 — 13792.
ÍSARN HF.,
Reykjanesbraut 12.
0
Miðvikudagur 20. júní 1973