Alþýðublaðið - 23.06.1973, Page 8
^ V
JJ11 Jf * 1 !
LEIKHÚSIN
í«;
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
Sjö stelpur
sýning laugardag kl. 20.
Síöasta sinn.
Kabarett
sýning sunnudag kl. 20.
Fáar sýningar eftir.
Kabarett
sýning fimmtudag kl. 20
Aðeins örfáar sýningar eftir.
Miðasala 13.15 - til 20. Simi 11200.
EIKFÉIAG
YKJAYÍKUR’
m&k
IKUKfS
Fló á skinni f kvöld, uppselt.
Sunnudag kl. 15,00, uppselt.
Síðustu sýningar á leikárinu.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er opin
frá kl. 14, simi 16620.
BIOIN
HASKOLABIO s,„,i
í strætó
On the Buses
Sprenghlægileg litmynd með
beztu einkennum brezkra
gamanmynda
Leikstjóri: Harry Booth
Aðalhlutverk: Kcg Varney, Doris
Hare, Michael Kobbins.
tslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Það er hollt að hlæja.
HAFNARBÍÚ
Simi 161-14
Rakkarnir
ABC PICIURES C0RP presents
DUSTIN
HOFFMAIU
mSAMPECKINPAHS
II
Mjög spennandi, vel gerð, og sér-
lega vel leikin ný bandarisk lit-
mynd, um mann sem vill fá að
lifa i friði, en neyðist til að snúast
til varnar gegn hrottaskap öfund-
ar og haturs. Aðalhlutverk leikur
einn vinsælasti leikari hvita
tjaldsins i dag
Dustin Hoffman
ásamt Susan George
Leikstjóri:
Sam Peckinpah
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 9, og 11,15.
SAFNAST ÞEGAR
SAMAN
UTVARP KL. 15.00:
STJORNMALAERJUR
VIKUNNAR
Þáttur Páls llciöars Jónssonar „Vikan scm leið” verður á
dagskrá útvarpsins i annað sinn klukkan þrjú i dag, og við báð-
um liann i gær að segja litillega, um hvað hann fjallar.
I þessum þáttum cr efni, sem hefúr borið að höndum i vikunni,
fyrst og fremsl hcr á landi”, sagði Páll. ,,En Gunnar Eyþórsson
verður lika nieð crlent yfirlit, sem hann flytur i kapp við sjálfan
sig. i þæltinum á morgun vcrður m.a. fjallað um stjórnmálaerj-
ur, t.d. um efnið ,,er Heimdallur i banni hjá Morgunblaðinu?" og
sillbvað fleira. Meðal fastra liða i þættinum er dagbók vel met-
ins góðborgara. Eg fæ i hvern þátt einn slikan borgara og
skaminla lionum fimm minútur til þess aö tjá sig um atburði
vikunnar. sem var að liða.
Annar fastúr liður er Gullkornasafn, þar sem ég les gullkorn,
sem liafa birztá prenti eða opinberlega á annan hátt. Mig langar
til að koma þvi á framfæri við hlustendur, að þeir hjálpi mér við
þetta safn og sendi mér gullkorn, scm þeir rekast á, — þvi þessi
söfnun er crfið og seinleg einum manni”.
.Vikan sem leið” verður á dagskrá á laugardögum i sumar, en
ekki hefur verið ákveðið, hvort hann fær að komast inn i dagskrá
næsta vetrar.
LAUGARASBÍÓ
Simi 32075
Systir Sara og asnarnir
CLINT EASTWOOD
SHIRLEY maclaine
twÓmulesfor
SISTERSARA
ÍHörkuspennandi og vel gerö amer
iisk ævintýramynd i litum og
ÍPanavision. tsl. texti.
Endursýnd kl. 5, 7 og 9.
iBönnuð börnum innan 16 ára.
jSTJÖRNUBI^jjjijjj
Gullrániö
The Wrecking Grew
ISLENZKUR TEXTI_____
, .\f. with the wildest
wreckersthat -
everdidina
Spennandi og viðburðarik ný
amerlsk sakamálamynd i litum
Leikstjóri: Phil Karlsen.
Aðalhlutverk: Dean Martin, Elke
Somraer, Sharon Tate.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 12 ára.
KÓPÁYÖGSBÍO
Simi 119X5
Hættuleg kona
Islenzkur texti
Hressileg og spennandi litmynd
um eiturlyfjasmygl i Miðjarðar-
hafi. Leikstjóri Frederic Goody.
Aðalhlutverk: Patsy Ann Noble,
Mark Burne, Shawn Curry.
Endursýnd kl. 5,15 og 9.
Bönnuð börnum.
TÚMABfÚ
Simi 311X2
Nafn mitt er'Trinity.
Thcy call ine Trinity
Bráðskemmtileg ný~ Jtölsk
gamanmynd i kúrekastil, með
ensku tali. Mynd þessi hefur
hlotið metaðsókn viða um lönd
Aðalleikendur: Terence Hill, Bud
Spencer, Farley Granger
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 12 ára
íslenzkur texti.
UR UG SKARIGHIPIR
KCRNELÍUS
JONSSON
SKÖLAVÖRÐUSt lU 8
0ANKASIR4 116
tf-nHSHe-ieGoo
ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR
Að lokinni velheppnaðri æfingu. F.v. Þorvaldur Asgeirsson, Loftur ó-
lafsson, Jóhann Ó. Guðmundsson, Óttar Yngvason, Þorbjörn Kjærbo,
Einar Guðnason og Páll Asgeir Tryggvason, form GSÍ.
Gildi alþjóðlegra golf-
móta og þátttaka í fjöl-
þjóðastarfi í íþróttum
Eins og ég hef oft áður drepið á,
höfum við hingað til, nema að
allra siðustu árum undanskild-
um, mjög litið sinnt umheiminum
eba tekið þátt i alþjóða samstarfi.
Aðild Islands að Evrópusam-
bandinu og Norðurlandasam-
bandinu varð t.d. ekki virk fyrr en
eftir 1970, er ný stjórn tók við
G.S.Í. Golfsamband Islands, sem
er hið elzta af sérsamböndum
innan I.S.Í., hefur ekki lagt það i
vana sinn að reisa sér hurðarás
um öxl og hefur aldrei safnað
skuldun, þó tekjur hafi jafnan
verið rýrar. Að sönnu hefur oft
lítið orðið úr verki en þó hafa
málin mjakazt i áttina án bægsla-
gangs. Siðan um 1965 hefur kylf-
ingum f jölgað um meira en helm-
ing og um leið hafa gifurleg störf
bætzt á hendur stjórnar G.S.l.
einkum þó ritara, gjaldkera og
forseta. Tekjustofnar sambands-
ins eru enn sem komið er fremur
rýrir, en aukast þó aðeins t.d. I ár.
1 tekjuáætlun G.S.l. fyrir starfs-
árið 1972 — 1973 eru heildartekjur
áætlaðar kr. 360.000.-, sem ég tel
að geti ef til vill aukizt i 400.000.-.
Starfsárið 1971—’72 urðu tekjur
alls um 332.000.- og var um
197.000.- eða nær 60% varið til
styrktar keppendum i Scandi-
navian Open 1971 og Norður-
landsmeistaramótinu i sveita-
keppni 1972. A liðandi starfsári
má gera ráð fyrir eftirfarandi út-
gjöldum vegna utanferða golf-
landsliða: ----
EM i Portúgal
Em i Silkeborg (ungl.)
Heimsmeistaramót unglinga San Diego
Þjálfun og þátttgj. allra ofangreindra
karlalandsliðið 1973. Slik þróun er
ekki æskileg og gengur i berhögg
við tilgang iþrótta, að allir séu
jafnir en getan og ástundunin séu
hin eina viðmiðun við val úrvals-
liða. Ég tel þetta nesjamennsku,
skammsýni og uppgjöf. Leiðin
hlýtur að liggja fram veg og sköp-
un nýrra tekjustofna er farsælli
leið en að draga sig inn i skel og
hætta öllu alþjóðastarfi, sem get-
urekkiog má ekki vera bréfavið-
skiptin ein.
Við getum heilmikið lært af
þjóðum, sem hafa lagt stund á
golf I 1-2 aldir, enda þótt við ber-
um ekki sigurorð af þeim i mót-
um. Sá hafsjór reynslu og þekk-
ingar, sem hingað berst að utan,
hlýtur að geta orðið okkur að
gagni. Hreppapólitik og einangr-
un islenzkra kylfinga bætir ekki
úr neinu. Hitt skal játað, að eins
og tekjustofnar G.S.I. eru i dag,
veröur þvi miður litið afgangs til
uppbyggingar golfsins út um
landið. Hins vegar er hægt að
koma við meiru sjálfboðaliðs-
starfi á heimavigstöðvunum og
láta peninga nýtast betur. Allur
kostnaður við utanlandsferðir
verður ekki greiddur með öðru en
reiðufé. Vib verðum að Laka alla
fjáröflun til G.S.I. til endurskoð-
unar og skapa sem flestum að-
stöðu til bæði félagsskapar- og
keppnisgolfs. Sú breyting á formi
fjáröflunar, er gerð var sl.haust
er til mikilla bóta og einföldunar,
Kr. 30.000.- (6menn)
” 200.000.- (6menn)
” 40.000.- (lmaður)
” 40.000.-
í alþjóðamót fara þvi
yfir 75% af tekjum G.S.l. i ár,
þrátt fyrir það að beinn styrkur til
karlalandsliðs sé aðeins 30.000.-
kr.. Ljóst er þvi, að allar núver-
andi tekjur G.S.l. hrykkju ekki
til, ef styrkja ætti þátttöku i EM i
Portúgal i sama mæli og ung-
lingalandsliðið. A framhaldsgolf-
þingi s.l. haust var mörkuð sú
stefna að leggja meiri áherzlu á
að styðja og styrkja unglinga-
landsliðið, sem þá var ekki til og
hafði aldrei keppt við aðrar þjóð-
ir, til þátttöku i EM unglinga 21
árs og yngri I Silkiborg i Dan-
mörku i júlimánuði 1973. Að sjálf-
sögðu amaðist enginn við þvi að
koma upp unglingaliði, enda þótt
með þvi yrði karlalandsliðið sett
til hliöar. Eins dauði er annars
brauð. Ýmsir þingfulltr. vöruðu
þó við hættunni af þvi, að ef til vill
yrði efnahagur að ráða vali i
Alls kr. 310.000,-
svo langt sem hún nær. Full
reynsla fæst þó ekki á það fyrr en
að loknu yfirstandandi leiktima-
bili.
Við verðum að standa saman og
lita stundum framhjá þröngum
sérhagsmunum klúbba okkar og
lita yfir til heildarsamtaka okkar
og hugsa okkur alla klúbba sem
eitt bræðralag. Þau umfangs-
miklu sjálfboðaliðsstörf, sem
unnin eru I öllum klúbbum og
hafa verið unnin undanfarin 40 ár,
eru sá trausti grunnur, er framtið
golfsins byggir á, nema vilji sé
fyrir hendi að gera golfið aftur að
þvi montsporti fyrir rika fólkið og
forréttindastéttir og það var áður
fyrr. Hinir framsýnu baráttu-
menn, sem börðust fyrir fram-
gangi golfsins, tryðu þvi varla, að
á áttunda áratug aldarinnar væru
enn til raddir, sem útiloka vilja
Framhald á bls. 4
o
Laugardagur 23. júni 1973.