Alþýðublaðið - 23.06.1973, Blaðsíða 9
á
c ^OL F
Landsliðið í
golfi lagði
upp til
Portugals
í morgun
1 morgun hélt landsliöiö i golfi
után til keppni á Evrópumeist-
aramótinu sem fram fer i Portu-
gal dagana 28. júni til 1. júli. Er
þetta i fyrsta skipti sem islend-
ingar taka þátt i þessu móti, en
vonandi ekki það siðasta. Lands-
liöið hafði siðustu æfinguna fyrir
utanferðina á miðvikudaginn á
Nesvellinum og þar tók ljós-
myndarinn okkar, Friðþjófur
Helgason, þessar myndir af
landsliðsmönnunum.
Alþýðublaðið óskar golf-
mönnunum góðrar ferðar og góðs
gengis i hinni erfiðu keppni.
Úþekktur kylfingur
skákaði stór-
stjörnunum í
IIS Open.
Johnny Miller, ungur og litt
þekktur golfleikari, kom mjög á
óvart með þvi að vinna US OPEN
keppnina á samtals 279 höggum,
fimm höggum undir pari. Var
hann einu höggi betri en John
Schlee, sem lenti i öðru sæti. Arn-
old Palmer lenti i fjórða sæti
ásamt öðrum þekktum kylf-
ingum, Jack Niklaus og Lee
Trevino.
Johnny Miller er heittrúaður
Mormóni og hann gefur 10% af
launum til safnaðarins. Hann
segir að golfið komi á eftir fjöl-
skyldunni og trúnni og hann trúir
þvi að fjölskyldan og kirkjan hans
standi að baki honum á golf-
vellinum.
Miller vann það frábæra afrek i
keppninni að fara hringinn á
hinum erfiða Oakmont velli á 63
höggum, eða 8 höggum undir
pari. Þrátt fyrir þennan frábæra
sigur kemst Miller ekki i Ryder
Cup liðið þar sem atvinnusam-
band golfleikara i Banda-
rikjunum viðurkennir hann ekki
enn.
Hvað gera
KR-ingar í
Keflavík?
Heil umferð í
I. deildinni
um helgina
Að vanda fer fram heil um-
ferð i 1. deildinni um helgina
og auk þess 2 leikir i II. deild,
fjölmargir leikir i III. deild-
inni og yngri flokkunum og svo
' hefst keppnin i íslandsmóti
kvcnna um helgina. Við skul-
um, áður en lengra er haldið,
lita á listann yfir helztu leik-
ina:
I. DEILD:
Laugardagur.
Melavöllur kl. 14.00: Breiða-
blik - ÍBV.
Sunnudagur.
Akureyrarvöllurkl. 16.00: IBA
— 1A.
Keflavikurvöllur kl. 20.00:
IBK — KR.
Mánudagur.
Laugardalsvöllur kl. 20.00:
Fram — Valur.
II. DEILD:
Neskaupstaður kl. 16.00:
Þróttur NK. — Ármann.
Melavöllur kl. 16.00: Vikingur
— Völsungur.
Leikirnir i I. deildinni eru nú
ekki allir á sama tima, þannig
að þeim áhugasömustu hér
sunnanlands gefst kostur á að
sjá þrjá leiki ef þeir vilja hafa
sig eftir réttunum.
Breiðablik — IBV: Þeir
Kópavogsmenn fengu a 11
skverlegan skell um siðustu
helgi þegar Skagamenn vægð-
arlaust sölluðu á þá 10 mörk-
um og ekki þarf að efast um að
Breiðabliksmenn hyggjast
hrista þetta áfall af sér sem
allra fyrst. Þarna komast þeir
aftur i ljónagryfjuna sina á
Melunum og hvað skeður þá.
IBV-liðið er nokkuð dæmigert
graslið, leikmenn þess kunna
mun betur við sig á grasinu en
bévaðri mölinni. Eyjaliðið er
nú óðum að ná sér á strik og
lék vel um helgina gegn IBK
og var óheppið að tapa leikn-
um.
IBA — ÍA: Botnliðið IBA
mætir hér „stórskotaliði” Ak-
urnesinga. Ekki er ósennilegt
að Akureyringarnir gangi til f
þessa leiks með blendinn hug
og sú spurning mun brenna
heitast á vörum þeirra, verða
Skagamenn i sama banastuð-
inu nú og um siðustu helgi. Ak-
ureyringar eru nú i heldur ó-
þægilegri stöðu i deildinni,
leikirnir renna úr höndum
þeirra, en aðeins eitt stig sem
þeim hefur tekist að festa
hendur á. Ef þessi leikur tap-
ast er voðinn vis.
IBK — KR: IBK-liðið geng-
ur til þessa leiks sem eina liðið
i deildinni, sem ekki hefur tap-
að stigi. Það hefur þót mátt
greina nokkra hnignun i leik
liðsins að undanförnu, hvað
sem veldur. Hefur enski
þjálfarinn farið og geyst meö
liðsmenn sina, þannig að þeir
eru nú að springa á limminu?
En hvað um það, liðið er gott
og það hefur sett stefnuna á
titilinn. KR-liðið er nokkuð
snúið, og erfitt að átta sig á
þvi. Ekki vantar baráttuna og
flestir leikmenn eru leiknir og
liprir með boltann, en ein-
hvern veginn gengur dæmið
ekki upp hjá þeim.
Fram — Valur: Við þennan
leik er óhætt að setja eitt stórt
spurningarmerki, liðin eru
mjög jöfn að getu og allt eins
liklegt að hrein heppni komi til
með að skera úr á milli þeirra,
ef leikurinn endar þá ekki með
jafntefli. Bæði liðin hafa verið
að ná sér á strik að undan-
förnu og þau ætla sér að halda
uppi heiðri Reykjavikur i
mótinu.
Ölafur Ólafsson hcfur verið jafnbczti maður KR-liðsins i sumar.
Eyjamenn hyggja
á æfingar í Eyjum
I. deildarlið IBV hefur þurft að
sækja æfingar um langan veg
eftir að liðiö hraktist hingað upp á'
fastalandið vegna eldgossins á
Heimaey. Æfingar liðsins hafa
verið i Njarðvikunumog upp i
Mosfellssveit og svo inn á milli á
KR-vellinum og i Kópavogi. Og á
næstunni mun liðið e.t.v. halda til
sinnar heimabyggðar, Vest-
mannaeyja, til æfinga.
Að undanförnu hefur verið
unnið við að hreisa vikurlagið
sem þakiö hefur grasvöllinn við
Hástein, og mun völlurinn vera
litið skemmdur undir vikrinum,
en eðlilega nokkuð hrár. Verður
sáð i hann og verður hann þá
eflaust fljótur að taka við sér.
Það rikir mikil stemning meðal
leikmanna og forráöamanna IBV-
liðsins, að fara einhverja helgina
heim til Eyja og æfa þar.
Þess má einnig geta, að golf-
menn i Eyjum hafa unnið við
hreinsun golfvallarins i Herjólfs-
dal.
flllt frá dvergvikt
upp í þungavikt
Keppni i lyftingum tviþrautar
milli liös KR og sameinaðs liös
utanbæjarfélaga fer fram
fimmtudaginn 5. júii kl. 20.
Keppt verður i7 þyngdarflokkum
frá dvergvigt til þungavigtar.
Nánar auglýst siöar.
Danir sigruðu Norðmenn 1-0
Danmörk sigraði Noreg i landsleiknum á limmtudaginn með 1—0
að viðstöddum 22.300 áhorfendum. Danir höfðu yfirburði i f.h. en i
þeim siðari réðu Norðmenn aftur á móti gangi leiksins á löngum
köflum. Sigurmark Dana kom strax á 8. min. f.h. og það skoraði
Peter Dahl.
Norðmenn fengu gott tækifæri að jafna i s.h. þegar Hans Edgar
Paulsen skaut i markið, markvörðurinn hálf varði skotið, en Hans
Edear skaut framhjá úr frákastinu.
Enn sigra
Brazzarnir
Enn sigra heimsmeistararnir I knatt-
spyrnu, Brazilia, I Evrópuferð sinni. A
fimmtudaginn léku þeir við Sovétmenn á
Lenin-leikvanginum f Moskvu og sigruðu
1—0. Markið skoraði Jair á 69. mfn með
skalla. Áhorfendur voru 103.000.
I iþróttaþætti sjónvarpsins á þriöjudaginn
verður sýndur leikur Brazilfu og V.-Þjóð-
vcrja sem leikinn var í siðustu viku.
Þessi mynd cr frá lcik Braziliu við V.-Þjóð-
verja, sem Brazilia vann einnig 1—0 með
marki Dirceu. Það er Gerd Muller sem liggur
afvelta og Jupp lleynckes hefur fengið sér
sæti á höfði Marco Antonio.
Þeir verða í sjónvarpinu ó þriðjudaginn
Laugardagur 23. júní 1973.
o