Alþýðublaðið - 22.08.1973, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 22.08.1973, Blaðsíða 4
Viðlagasjóður auglýsir Umsóknarfrestur um bætur fyrir tjón á bifreiðum af völdum eldgossins i Vest- mannaeyjum samkvæmt 39. grein reglu- gerðar nr. 62 frá 27. marz 1973 rennur út 28. ágúst 1973. Þeir, sem enn eiga eftir að skila umsókn- um sinum eru vinsamlega beðnir að gera það fyrir ofangreindan dag. Viðlagasjóður. Auglýsing frá Viðlagasjóði Tjónaskoðun bifreiða Vestmannaeyinga i Reykjavik og nágrenni mun ljúka i lok þessa mánaðar. Siðustu skoðunardagar eru sem hér segir: þriðjudaginn 21. ágúst fimmtudaginn 23. ágúst mánudaginn 27. ágúst þriðjudaginn 28. ágúst fimmtudaginn 30. ágúst. Bifreiðaskoðunin fer fram i Skeifunni 8 áðurnefnda daga frá 5.30 til 10 siðdegis. Viðlagasjóður. Þetta er orðsending til þín frá Alþýðublaðinu! Það líður óðum á sumarið og því erum við farnir að hugsa fyrir blaðburðinum i vetur. Þeir, sem vilja starfa við hann eru beðnir að hafa samband við útbreiðslustjóra Alþýðublaðsins. Sendisveinn óskast Sendisveinar óskast nú þegar eða fyrsta september næstkomandi. Upplýsingar á skrifstofunni, Borgartúni 7. Fyrirspurn- um ekki svarað i sima. ÁFENGIS- OG TÓBAKSVERZLUN RÍKISINS LYFJAVERZLUN RÍKISINS Innilegustu þakkir færi ég'öllum þeim er minntust min með höfðinglegum gjöfum og heillaóskum á áttræðisaf- mæli minu þann 10. ágúst siðastliðinn. Guð fylgi ykkur i framtiðinni. Gunnar ó. Kristófersson Hrafnistu MAGNÚS E. GUÐJÓNSSON, framkvæmdastjóri: KAUPSTAÐUR EÐA HREPPUR? SÍÐARI HLUTI Þessi grein er tekin úr nýjasta hefti Sveitar- stjórnarmála Skattgreiðslur hreppa til sýslusjóða bvi er ekki að leyna, að skatt- lagning sýslunefndanna er mik- ill þyrnir i augum margra hreppa, bæði að þvi er varðar sýsluvegasjóðsgjöld og sýslu- sjóðsgjöld. I þessu sambandi má vekja athygli á þvi, að sýslunefndarmenn eru kosnir beint, einn sýslunefndarmaður i hverjum hreppi án tillits til stærðar hreppa. Þannig kjósa ibúar Selvogshrepps einn sýslu- nefndarmanna og ibúar Selfoss- hrepps einn sýslunefndarmann, þótt ibúar á Selfossi séu nær 100- sinnum fleiri en i Selvogi. Mörgum hreppum, sérstak- lega þéttbýlishreppum, finnst þeir fái litið til baka af þvi fé, sem þeir greiða til sýslufélags- ins. Að visu er þetta mismun- andi. (Jtgjöld og framkvæmdir á vegum sýslunefnda eru mjög mismunandi og sýslusjóðsgjöld- in þar af leiðandi. Samkvæmt hagskýrslum námu t.d. meðaltalsútgjöld hreppa árið 1965 vegna sýslu- sjóðsgjalda 7.7% af heildarút- gjöldum þeirra og vegna sýslu- vegasjóðsgjalda 2.2%. útgjöld þessi voru hins vegar mjög mis- munandi eftirsýslum eða sýslu- sjóðsgjald allt frá 0.6% (Gull- bringusýsla) til 12.3% (Skaga- fjarðarsýsla). 1 Húnayatnssýslu voru meðaltalssýslusjóðsgjöld árið 1965 11.8% af heildarút- gjöldum hreppanna og i Árnessýslu 10.3%. Þess ber að geta, að i þeim sýslufélögum, þar sem sýslusjóðsgjöldin eru hæst, eru sameiginlegar fram- kvæmdir sveitarfélaganna á vegum sýslufélaganna mjög miklar, s.s. rekstur skóla, bygg- ing og rekstur sjúkrahúsa, safna, elliheimila o.fl., og spar- ast þvi oft hliðstæð útgjöld á vegum sveitarfélaganna, sem ella hefðu þurft að koma til. Samanburður á útgjöld- um kaupstaða og hreppa begar borin eru saman út- gjöld eða einstakir útgjalda- flokkar kaupstaða annars vegar og hreppa hins vegar, virðist ekki um mikinn mun að ræða, ef undan eru skilin framlög hreppa til sýslusjóða sbr. áður sagt. Skv. hagskýrslum 1965 var t.d. maðaltalsstjórnunarkostn- aður kaupstaða og hreppa 7.7%. Var meðaltalsstjórnunarkostn- aðurinn hjá hreppunum annars vegar og kaupstöðunum hins vegar nokkurn veginn sá sami. Hins vegar reyndist innbyrðis um mikinn mun að ræða i þess- um útgjaldalið. Þannig reyndist stjórnunarkostnaður hjá kaup- stöðunum árið 1965 frá 3.8%—10% af heildarútgjöldum þeirra og i kauptúnahreppunum frá 3.5%—10%. Form sveitarfétagsins virðisl ekki skipta máli i þessu sam- bandi. Samkvæmt þessu virðisl mega álykta, að stjórnunar- kostnaður kaupstaðar þurfi ekki að vera meiri en hrepps með sama ibúafjöida. Hvað snertir aðra útgjalda- flokka, var um hliðstæð útgjöld að ræða hjá kauptúnahreppum annars vegar og kaupstöðum hins vegar, og væri um mismun að ræða, var ekki unnt að rekja hann til forms sveitarfélagsins, heldur virtust koma þar aðrar ástæður til. Hvenær gerist hreppur kaupstaður? Engar reglur eða lög eru til um það, hvenær hreppur gerist kaupstaður. Það er háð mati og óskum sveitarstjórna viðkom- andi hreppa og ákvörðun lög- gjafans, þar sem kaupstöðum verður ekki fjölgað, nema með lögum, skv. ákvæðum sveitar- stjórnarlaga. Reynslan sýnir, að i öllum til-' vikum hafa viðkomandi sveitar- stjórnir orðið að hafa frum- kvæðið gagnvart löggjafarvald- inu, enda virðist það ekki óeðli- legt. Þótt ekki séu til almennar reglur um það, hvenær heppi- legt þyki, að hreppur öðiist kauðstaðarréttindi, má þó nefna nokkuratriði, sem hafa má hlið- sjón af í þessu sambandi. t fyrsta lagi má telja,að ein- ungis þéttbýlishreppar komi til greina i þessu sambandi. Fólks- flestu kauptúnin kæmu helzt til greina, s.s. Garðahreppur með 3363 íbúa, Selfosshreppur með 2484 ibúa og Seitjarnarnes- hreppur með 2389 ibúa. Næst fólksflestu kauptúnin eru Njarð- víkurmeð 1641 ibúa, Grindavik með 1350 ibúa og Borgarnes með 1235 ibúa. Þá koma næst i röðinni sjö kauptún með um eða yfir 1000 ibúa: Sandgerði (1084) Ólafsvik (1048), Stykkis- hólmur (1049), Patreksfjörður (989), Dalvik (1087), Eskifjörð- ur (928) og Höfn (1013). Helztu matsatriðin Mörg atriöi koma til álita i sambandi við mat sveitar- stjórnar (hreppsnefndar) á þvi, hvort rétt sé, að hún æski þess, að hreppurinn verði með lögum gerður að kaupstað. Meðal þessara atriða má nefna: 1. ibúafjöldi hreppsins, sbr. hér að framan. 2. Hvortteija megi, að útgjöid sveitarfélagsins hækki við breytinguna. 3. Mat á þvi annars vegar, að sveitarfélagið fái aukið sjálfsforræði og hins vegar, að tengsl þess við nágranna- sveitarfélög og byggðarlög rofni við brottför úr sýslufé- laginu. 4. Hagræði og aukin þjónusta við fbúa sveitarfélagsins við stofnun bæjarfógetaembætt- is, ef sýslumaður hefur ekki veriö búsettur f sveitar- félaginu. Afstaða rikisvaldsins til fjölguna^ kaupstaða Nú eru liðin átján ár síðan hreppur fékk siðast kaupstaðar- réttindi, það var Kópavogs- kaupstaður, með lögum nr. 30 frá 11. mai 1955. Ekki er til þess vitað, að nokk- urt sveitarfélag hafi siðan form- lega óskað eftir þvi við stjórn- völd að fá slik réttindi, fyrr en hreppsnefnd Dalvikurhrepps fékk nú nýverið flutt á Alþingi frumvarp um kaupstaðarrétt- indi til handa Dalvikurhreppi, og þvi er ekki vitað, hvernig rikisvaldið (Alþingi) muni nú bregðast við ósk eða óskum hreppa um að öðlast slik rétt- indi, þvi að frumvarpið um Dal- víkurhrepp var svo seint fram borið, að það náði ekki að hljóta þá meðferð á þinginu, að nokkuð reyndi á. Þar eð bæjarfógeti verður að hafa aðsetur i kaupstað, er ljóst, að lögfesting kaupstaðarrétt- inda til handa hreppi hefur i för með sér útgjaldaaukningu fyrir rikissjóð, hafi sýslumaður ekki verið búsettur i viðkomandi hreppi (kauptúni). Hafi sýslu- maður hins vegar verið þar bú- settur, virðist ekki ætti að vera um útgjaldaaukningu fyrir rikissjóð að ræða. Af 13 kauptúnum, sem talin eru hér að framan, eru 5 aðsetur sýslumanna. Af framansögðu er þvi ekki óeðlilegt aö álykta, að nokkurr- ar tregðu muni gæta hjá lög- gjafarvaldinu við að samþykkja lög um að veita hreppum kaup- staðarréttindi. Að lokum má geta þess, að á siðasta fulltrúaráðsfundi Sam- bands islenzkra sveitarfélaga 28. marz s.l. var samþykkt til- laga, framborin af tiu fulltrúa- ráðsmönnum um, að stjórn sambandsins vinni að þvi, aö af- numinn verði úr lögum sá mis- munur, sem gerður er á sveitar- félögum. AUGLÝSINGASÍMI OKKAR ER 8-66-604 a Miðvikudagur 22. ágúst 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.