Alþýðublaðið - 22.08.1973, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 22.08.1973, Blaðsíða 7
Hún bar myndavélina upp að öðru auganu án þess að gefa til kynna, hvað hún hefði i hyggju, beindi henni að þremenningun- um og smellti af. Það liða þrjátiu sekúndur, þar til litmyndin er tilbúin, hugsaði Gloria. Hún togaði i myndar- lampann og byrjaði að telja. Trumbuslátturinn yfirgnæfði lágan smellinn. Striðsmennirnir horfðu tor- tryggnir á hana. Þremenning- arnir lögðu höfuðfestarnar á jörðina fyrir framan Gloriu, og maðurinn með beinaskrautið á höfðinu tók eins konar hringlu, harðþurrkaðan ávöxt með steinvölum, innan úr fjaðraham sinum, og hristi. Tuttugu og átta.... tuttugu og niu... þrjátiu. Gloria dró filmuna út og dró hlifðarpappirinn varlega ofan af henni. Myndin var velheppnuð: Þrir menn i skrautlegum fjaðrabúningum. Gloria sagði ekki orð, en sýndi mönnunum myndina. Gamli maðurinn horfði á hana, þekkti sjálfan sig, en hann var orðinn miklu, miklu minni en saman- skroppið höfuð. Nú sá hann sjálfan sig skyndilega utan lik- ama sins. Þvi hlaut hann að vera dauður, en hann lifði samt. Hann var svo forviða, að hann fórnaði höndum til himins, rak upp hvellt vein og féll til jarðar. „Taktu hjarta mitt, gyðja” Hinir mennirnir tveir báru einnig kennsl á sjálfa sig. Maðurinn með beinaskrautið henti frá sér hringlunni og flúði upp í þorpið. Ungi maðurinn starði á Gloriu stórum, glampandi augum, reif fjaðrahaminn af líkama sinum, kraup nakinn fyrir framan hana og benti á brjóst sér. „Taktu hjarta mitt, gyðja ', táknaði þetta. ,,Þú átt það". Gloria hristi höfuðið. ,,Ég vil ekkert illt gera ykkur", sagði hún sefandi röddu. ,,Bg vil að- eins sýna ykkur, að ég kann meira fyrir mér en þið og er auk þess sterkari. Þið verðið að veita mér éina bón. Ég ætla að reyna að gera ykkur ljóst, hvers ég vænti. Littu á þetta, ungi höfðingi: Þetta ert þú. Þekkir þú sjálfan þig?” Hún beygði sig niður og sýndi honum myndina. Gamli höfðinginn lá hreyfing- arlaus við hlið hans. Vonandi er hann ekki dauður, hugsaði Gloria skefld. Það er ekki góðs viti að byrja á þvi að drepa höfðingja. Ungi maðurinn leit enn einu sinni á myndina, en hrifsaði hana siðan úr hendi Gloriu og vöðlaði henni saman. Síðan stóð hann upp, móður og másandi, og beið. Hann hafði eyðilagt imynd sina. Hvað gerðist næst? Myndi likami hans verða að dufti? Ilann gaut hornauga til töfra- læknisins, sem stóð uppi á göngubrúnni og beið þess, að slokknaði á sólinni. En ekkert gerðist. Þá kastaði ungi hermaður- inn samanvöðlaðri ljósmynd- inni að fótum Gloriu. Ég ef beðið ósigur, hugsaði Gloria. Og henni var ljóst, að frá þessari stundu var þessi smá- vaxni, hugrakki maður helzti ó- vinur hennar. t hans augum var hún ekki gyðja. - Hún gat ekki hegnt honum, og þvi var hún magn- laus. Peters í lífsháska Krókódiilinn kom á miklum hraða. Er hann var rétt kominn að Peters, opnaði hann ginið, og sólin glampaði á hvössum tönn- unum. Nú var orðið of seint að bjarga sér á flótta. Varla myndu liða nema nokkrar sekúndur, unz hann biði bana á hinn hroðaleg- asta hátt. En þá fékk hann brjálæðis- lega hugmynd. Hann þreif ofan blikkfötuna, sem hann hafði á höfði sér, rétti hana i áttina til krókódilsins og sló á botn henn- ar með lófanum. Dýrinu varð við, eins og það hefði fengið bylmingshögg á kjaftinn, þegar það heyrði hvellan hljóminn. Það lagði snarlega á flótta. Peters var allan daginn á ferð niður með ánni. Hann klöngrað- ist yfir dauða, rotnandi trjáboli og brauzt i gegnum vafningsvið- arflækjur, og stundum óð hann vatnið i hné. Og hann fjarlægðist Gloriu æ nieir, enda þótt hann héldi, að saman drægi með þeim. Það var komið að kvöldi, er hann kom að háum fossi. í fjarska steig mjó reykjarsúla til lofts. Viðskipti í frumskóginum „Hve mikils virði er yður líf Gloriu?” Gloría er á ferðalagi með flugvél, sem hrapar í frumskóginn Hausaveiðarar telja hana hvíta gyðju UTILL PERSÓNULEIKI NS, FANNST MÉR þingdeildunum. Þessir fundir voru yfirleitt haldnir á mánu- dögum og miðvikudögum. Á þessum fundum var rædd af- staða flokksins til ýmissa mála er til meðferðar voru i þinginu og þingmennirnir skiptust á skoðunum um þau. Þá greindu þingmennirnir frá ýmsum mál- um, sem þeir vildu beita sér fyr- ir i þinginu, skýrðu frá störfum þingnefnda er þeir áttu sæti i og þar fram eftir götunum, Þingfréttaritarastarfið var i- kaflega annasamt, en ég hafði gaman af þvi fyrri veturinn sem ég var i þvi starfi. Ef vel átti að vera þurfti ég að fylgjast sam- timis með þvi, sem fram fór i báðum þingdeildunum, en var auðvitað of mikið fyrir einn mann. Gekk mér þó stóráfalla- laust að koma þvi i blaðið, sem þurfti til að hafa flesta þing- menn flokksins sæmilega á- nægða. Auðvitað fékk ég oft orð i eyra frá hinum og þessum þingmanni flokksins, fyrir að hafa ekki skýrt nægjanlega frá þvi, sem hann hafði sagt á þess- um og hinum þingfundinum, eða hreinlega gengið framhjá máli hans. Reyndi ég auðvitað að finna sem skynsamlegasta lausn á málinu, og finndist mér þingmaður ekki skilja nægjan- lega vel, að takmörk voru fyrir þvi, hversu miklu af frásögnum af störfum þeirra i þinginu var hægt að koma fyrir i blaðinu dag hvern, auk þess að vinnutimi þingfréttaritara er takmarkað- ur eins og annarra starfs- manna, lét ég orð hans sem vind um eyru þjóta. Þingmenn Framsóknar- flokksins voru 18 að tölu fyrri veturinn, sem ég stundaði blaðamennsku fyrir flokkinn. Siðari veturinn voru þeir 17 að tölu, enda höfðu þingkosningar farið fram um sumarið. ólafur Jóhannesson. Þótt ólafur Jóhannesson væri leiðtogi flokksins og formaður blaðstjórnar Timans og siðar forsætisráðherra, bar ég aldrei. virðingu fyrir honum. Mér fannst maðurinn ákaflega litill persónuleiki. Stjórnmálaleið- togar á tslandi hin siðustu ár, hafa ekki verið upp á marga fiskana. Þá skortir kraft mikil- mennisins, — þann kraft, sem manni er sagt, að stjórnmála- leiðtogar landsins á fyrri árum hafi haft. Ekki si.zt skorti ólaf Jóhannesson þennan kraft. Þótt Ólafur Jóhannesson virð- ist, öðrum framsóknarmönnum fremur hafa fengið jájáneinei- stimpilinn á sig, hef ég sterkan grun um, að undir niðri hafi hann ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. En hann virðist hræddur við að láta þess- ar skoðanir sinar uppi við hvern sem er. Maðurinn virðist þvi helzt dunda við skoðanaskipti i skúmaskotum, þar sem hann er nokkurn veginn óhultur fyrir al- menningi, og framkvæma marga hluti þar. Þetta mun þvi hafa valdið nokkurri óvissu hjá hinum almenna flokksmanni um, að hverju flokkur hans raunverulega stefni. Ég hafði litil kynni af þessum flokks- og þjóðarleiðtoga þau tvö ár, sem ég vann fyrir mál- gagn hans. Persónulega hafði hann litil afskipti af störfum minum og minnti mig afar sjaldan á, að hann hefði tekið til máls á þingfundi. En þar sem maðurinn var höfuð flokksins gerði ég yfirleitt grein fyrir um- svifum hans i þinginu, sem fengu góðan uppslátt i blaðinu. Þá þingflokksfundi Fram- sóknarflokksins, sem ég sat vet- urna tvo gustaði ekki mikið af Ólafi. Þar fannst mér hann ó- ráðin gáta, eins og fyrri daginn. Hann var hæglágur og ihugull, Tómas Karlsson ... og það var tauga- óstyrkur maðun sem sat við símann heima hjá sér síðustu klukkustundir prófkjörsins og bölvaði hippanum Baldri óskars- syni. en ef hann átti til að byrsta sig virkaði það eins og látbragðs- leikur, enda brosti maður þá oftast. En þegar á öllur er botninn hvolft, er Ólafur Jóhannesson liklega ágætur fulltrúi þess flokks, sem hann er fyrir: Skip- stjóri á gamalli skútu meö rifn- um seglum sem stefnir ekki lengur að ákveðnu marki og þvi liklegt, að endalok hennar verði þau, aðhún liðist i sundur i öldu- Alþingishúsið. Og svo var ég kominn með penna og blað inn í Alþingi, sem ég i ræðu i Samvinnuskólanum i Bif- röst veturinn áður hafði kallað elliheimilið við Austurvöll — og það með réttu. róti milli skerja. An efa er heilabú þessa manns ágætlega gert af Guðs hendi, þótt honum farnist skip- stjórnin ekki vel, og hef ég svo ekki meira um Ólaf að segja i sérstökum kafla. Á morgun segir Einar Björg- vin svo frá þingflokksfundum Framsóknarflokksins og lýsir skipstjóranum á skútunni.... ,,bar ég aldrei virðingu fyrir honum”. Einar Ágústsson. Þessu næst var skálað og i heimsókn komu hinir stærri menn flokksins. Miðvikudagur 22. ágúst 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.