Alþýðublaðið - 22.08.1973, Page 12
INNLÁNSVIÐSKIPT) LEIÐ
TIL LÁNSVIDSKIPTA
JBUNAÐARBANK
mm ÍSLANDS
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
kl' 1 °93'Simi 40102.
SENDI8IL AS7ÖDIN Hf
Spáö er áframhaldandi hæg
viðri um land allt i dag. Þó má
búast við rigningu undan suð
vesturströndinni, og nær si
rigning kannski inn á Reykja
nesinu.
A fimmtudaginn er spáð hægr
suðaustan átt og smá vætu í
Suður- og Vesturlandi.
Annars staðar á landinu ei
spáð hægviðri og björtir.
KRILIÐ
umF£fH> SMflÞyM
□ SP/K £&/í> VERSti RÐ/ my/vT
6£Ð vonb
EFNI
LfíUU
L Sfí/flTR 50*0 B/r//V
iW/a zm SvflRfl
□ 'fiTF ro/?m /R/NN S HFN ADI
NVTft S T 6/ÍFU
l
c mr r//na 3/E (j£LT
I CrLÖÐ Í5ÖáA'
_ F>£F!
Eina lífsmarkiö að
rífa niður hús
Engar framkvæmdir þrátt fyrir ítrekaðar
óskir íbúa
Við Stangarholt i Reykjavik
er opiö svæði, heldur óhrjálegt á
að lita. Svæðið hefur mikið að-
dráttarafl fyrir börn ur ná-
grenninu, enda hefur verið
komið þar fyrir leiktækjum. Sá
gaili er þó á gjöf Njaröar, að
leiktækin eru meira og minna
biluð. Hefur engin lagfæring
fengizt þar á af hálfu borgarinn-
ar, þrátt fyrir itrekaöar beiönir
fólks i nágrenninu, nema hvað i
gær var gert við aðra róluna af
tveimur sem þarna eru, en hún
hafði verið biluð siðan i vor.
Körfuboltahringur brotnaöi i
mai i vor, og hefur ekki verið
lagfærður. Aðsögn ná-
grannanna sést aðeins lifsmark
hjá bæjarstarfsmönnunum þeg-
ar krakkarnir hafa byggt sér
hús úr kassafjölum á svæöinu.
Þá eru óðar komnir menn frá
bænum til að fjarlægja húsin.
Alþýöublaðsmenn litu á svæð-
ið I gær. Þar var nýbúið að reisa
hús úr kassafjölum, en krakk-
arnir voru vondaufir um að þaö
fengi að standa lengi. Það hélt
þó ekki aftur að þeim við fram-
kvæmdirnar, þvi þau áformuöu
að reisa tvö hús til viðbótar.
Sem fyrr segir er þetta svæöi
heldur óhrjálegt, einkum i
bleytu, þvi þá er það ein sam-
felld leðja. Hafa nágrannarnir
margsinnis beðið um að svæðið
verði skipulagt og eitthvað gert
fyrir það, en litið orðið um svör
hjá borgaryfirvöldum.
barnanna
Ráðstefnuhald, heilsulindir
og sport eru framtíðin í
okkar ferðamálum
Skýrsla um möguleika til að lengja
ferðamannatímann
Nú er til meðferðar hjá
rikisstjórninni fyrsti hluti
skýrslu um könnun á
möguleikum til að lengja
ferðamannatímann á ári
hverju. „Þessi athugun
stefnir ekki að fjölda —
„túrisma" heldur fremur
hægfara þróun. Og á-
herzla er lögð á náttúru-
vernd", sagði ólafur
Steinar Valdimarsson,
skrifstofustjóri i sam-
gönguráðuneytinu, í við-
tali við blaðið.
Könnun þessi er framkvæmd
á vegum Samgönguráðuneytis-
ins í samvinnu við Sameinuðu
þjóðirnar, og hefur ameriskt
sérfræðifyrirtæki aðallega gert
hana. Til þess að lengja ferða-
mannatimann hér á landi, hafa
þessar athuganir fyrst og
fremst beinzt að: 1) Ráðstefnu-
haldi á Islandi, 2) Vetrariþrótt-
um, 3) Sportveiði i ám, i vötnum
og á sjó, 4) Nýtingu jarðhitans
til heilsuræktar.
Lúðvik Hjálmtýsson, frkvstj.
Ferðamálaráðs, sagði, að frá
áramótum til júniloka hefði
ferðamannastraumur hingað til
lands aukizt um ca. 10%, miðað
við árið 1972, en frá þeim tima
hefði aukningin orðið til muna
minni en á sama tima i fyrra.
Sagði Lúðvik, að brezkum
ferðamönnum hefði fækkað
verulega, og væri ekkert vafa-
mál, að orsök þess væri land-
helgisdeilan. Þá hefði lakari
staða dollarans einnig haft sin
áhrif hér. Arið 1972 urðu beinar
og óbeinar tekjur af ferðamál-
um 1,3 milljarður króna, og eru
þá fargjöld meðtalin.
PIMM á förnum vegi
Hvað gerir þú í tómstundunum?
Sigriður Sigurjónsdóttir, skrif-
stofustúlka.: Ég geri nú mest
litiö. Fer i bió öðru hverju og
horfi á sjónvarpið. Ég les nokk-
uð mikið. Ég bý I Hveragerði og
fer stundum á sveitaböllin þar i
kring og skemmti mér auðvitað
alveg konunglega.
Sigurður Kristjánsson, fram-
lciðslumaður.:Það er nú svo til
ekki neitt, sem ég geri i tóm-
stundum. Maður gerir þetta
venjulega, fer i bió,horfir á sjón-
varpið. Eða hlustar á útvarpið.
Siðan les ég þó nokkuð. Þegar
ég hef tima til, þá reyni ég
stundum að fara I golf.
Hjálmar Jónsson, verkamað-
ur.: Ég geri nú ýmislegt, samt
hugsa ég að ég geri mest af þvi
að tefla. Þá spila ég oft bridge
og önnur spil. Yfir sumartim-
ann fer ég mikið i ferðalög. Svo
fer maður mikið i bió. Iþróttir er
ég alveg hættur aö stunda.
Kolbrún óskarsdóttir, starfar 1
kirkjugörðunum.: Ég leik á
pianó, þó varla sé hægt að kalla
það tómstundagaman, þvi ég
geri svo mikið af þvi. Svo geri
ég bara þetta sama og allir hin-
ir, fer i bió, horfi á sjónvarp,
hlusta á útvarp og les góðar
bækur.
Halla Arnardóttir, nemi.: Ég
fæst aðallega við saumaskap og
er útsaumur þar efstur á blaði.
Stundum fer ég á böll og þá helzt
i Ungó I Keflavik og Þórscafé.
Þá spila ég stundum á spil, þó
ekki flókin spil eins og bridge.
Einnig hef ég gaman af að fara i
bió.