Alþýðublaðið - 09.09.1973, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 09.09.1973, Blaðsíða 2
Umferðaslys geta valdið sálranum truflunum í börnum Um þaö bil 1500 böm farast árlega i umferöarslysum i Vest- ur-þýska sambandslýöveldinu og rúmlega 50 þúsund börn slas- ast þarárlega i bilslysum. Hag- skýrslur um umferðarslys greina frá fjölda látinna og slas- aðra, en enginn getur talið fjölda þeirra, sem viröast sleppa frá slysunum án þess að fá skrámu og eiga þó viö sál- ræna þjáningu að búa. Aðeins örfáir þessa hóps fá meöferð lækna eða sálfræðinga. Oft er litið á óeðlilega og óheppilega hegðun þessara barna sem óþekkt, og léleg frammistaða i skólum er talin afleiðing leti eða hæfileikaskorts. Tengslum þessa við umferðarslysið, sem að baki er, er ekki veitt athygli. Hvort sem börnin slasast eða ekki, og hvort sem þau hafa lent I slysi eða aðeins verið áhorf- endur að þvi, hafa umferðarslys allt önnur áhrif á börn en full- orðið fólk. Og þau verða fyrir enn frekari þjáningum ef þau eru tekin til meöferðar á sjúkra- húsum. Þegar þau hafa slasast alvarlega fá þau aftur meðvit- und I umhverfi og við aðstæður, sem valda þeim ótta og eru þeim óskiljanlegar. Simio Tod- orow við Taugalækningasjúkra- húsiö I Tubingen lýsir i nýlegra grein hugsunum barns, er fær aftur meðvitund á Gjörgæslu- deild sjúkrahúss: „Slysið slitur barnið með skyndilegumog ofsalegum hætti úr tengslurn við hið eðlilega lif þess og fólkið, sem þaö þekkir. En þvi er komið fyrir I gjörsam- lega frábrugðnum heimi án nokkurs aðiögunartima eða beinna tengsla þar I milli. Slanga er rekin niöur I vélinda þess og hendur og fætur eru bundnar i rúmið. Nokkrar slöngur liggja frá likamanum að verkfæraskáp, þar sem ým- iss konar vökvar eru fyrir hendi á flöskum sem þar standa. Við þetta bætast þræðir, sem koma úr rafmagnstækjum þeim, er safna upplýsingum um liöan barnsins. Þeir eru festir við lik- ama þess, rauð ljós blikka og þunnir grænir „ormar” hlykkj- ast á skermum athugunartækj- anna. Hvit- og bláklæddar verur hreyfast um sjónarsvið barns- ins. Þær virðast vera mannleg- ar og tala mál likt og menn gera. En engin þeirra virðist hafa neinn áhuga fyrir barninu. Þá sjaldan, að einhver þessara vera kemur til barnsins gerir hún eitt og annað, sem þvi finnst einkennilegt, oft óþægilegt og stundum sárt, t.d. með þvi aö setja slöngu inn I munninn eða brjóstið, sem veldur þvi að barnið hóstar, eða hún setur gulleitan þykkan vökva inn I llk- amann gegnum slöngu, sem liggur inn I nefið”. Hvernig á nú barnið að túlka það, sem það stendur frammi fyrir og fær aö reyna i þessu herbergi skelfingarinnar? Hvað á það að halda? „Ef barn reynir að lyfta hönd sinni i varnarskyni — eins og börn gera — veröur þvi ljóst, að þaö getur ekki hreyft einn vöðva”, skrifar Todorow i grein sinni. „Ef barn hrópar i örvæntingu á móöur sina — eins og börn gera — veröur þvi ljóst, að þaö getur ekki komið upp einu orði. Ef barnið vissi hvað dauðinn væri myndi þaö halda, að það væri látið og það væri komið á verri staðinn”, skrifar hann. Auðvitað liður fullorönu fólki ekki alltof vel viö svipaðar að- stæður, en það er þó að minnsta kosti fært um að gefa sjálfu sér skynsamlega skýringu á um- hverfinu. Það lætur sér ekki detta I hug,'að það sé fórnardýr I skelfingar-kvikmynd, stjórnað af Alfred Hitchcock. Nú er ekki svo að skilja, aö það þurfi heila Gjörgæsludeild til að barni finnist sem það sé komið I annan heim. Reinhardt Lempp, sálfræðingur við Taugasjúkrahúsið I Tubingen, segir frá telpu, sem 8 ára gömul varð fyrir alvarlegu höfuðslysi i bilárekstri. Vikum saman var hún meðvitundarlaus á tauga- sjúkrahúsinu, sem var i óra fjarlægð frá heimili hennar. Var foreldrum hennar bannað að heimsækja hana, eins og svo oft gerist. Þegar loks stúlkan kom aftur til sjálfrar sin var hún i al- gjör.lega ókunnum heimi, þar sem fólkið talaði með öðrum áherslum en hún hafði vanist og þessu kom hún ekki heim og saman við fyrri reynslu sina. Mörgum vikum síðar var hún útskrifuð af spitalanum. Ein fyrsta spurningin, sem hún lagði fyrir móður sina, var: A þetta skritna lif að halda áfram eða verður nú allt gott aftur?” Barnið gat sýnilega ekki með nokkru móti fært eða komiö saman hinum aðskildu heimum sjúkrahússins og heimilis fjöl- skyldunnar. Og eftir að það hafði einu sinni orðið svo óvænt fyrir þvi, aö vakna i hinum heiminum getur það aldrei ver- ið öruggt um, að þessi ofsa- fengna sviðsbreyting muni ekki gerast aftur. Það er barninu af- ar árlðandi að sjá fólkið, sem það þekkir, meðan það dvelur á sjúkrahúsinu. „Það er enginn vafi á þvi, að það hefur verulega þýðingu fyrir sálarheill barns- ins er þaö kemur aftur til sjálfs sin i ókunnugu umhverfi og timabilið þar á eftir. Hiö sama gildir um hæfni þess til að túlka ástandið og siðar meir tengsli þess við umhverfið”, segir Lempp I grein sinni. Þvi er nauösynlegt að hjálpa börnum til þess að ná tengslum viö fyrri reynslu sina og minni, svo að þau nái tökum á hinum nýju tengslum sinum við umhverfið, sem oft er brotin og brömluð. Er þetta sannast sagna mikilvæg ástæða fyrir þvi, aö foreldrum eða ættingjum ætti' að leyfa heimsóknir til barna á sjúkra- húsum, meira aö segja meðan barnið virðist vera eða er i raun meðvitundarlaust. Meira að segja leikfangabangsinn getur haft vissu hlutverki að gegna i sliku tilfelli. Ógerlegt er að greina milli þeirrar sálrænu og likamlegu þjáningar, er barnið liöur. Anna Freud benti á, að þjáningarnar væru ekki i réttu hlutfalli við veikindin, heldur færu fyrst og fremst eftir sálarástandi barns- ins. Biermann prófessor i Sál- sýkissjúkrahúsinu i Köln heldur þvi einnig fram, að andlegar þjáningar og sálrænar truflanir, er fylgja i kjölfar slyss, séu eng- an veginn I réttu hlutfalli við það eða umfang þess. Biermann prófessor segir, að þrir þættir hafa mikla þýðingu þegar barn verður fyrir slysi: Asigkomulag barnsins áður en slysið varð, sá missir ástúöar, er fylgir i kjöl- far slyssins og sú mikla þrúg- andi áreynsla, er fylgir slysinu sjálfu. Byggir Biermenn þessa niðurstöðu sina á ransóknum, er hann gerði á hópi þriggja barna, sem hann fékk til athugunar i þessu skyni. Foreldrar tólf barnanna lýstu hegðun þeirra sem algjörlega eðlilegri — ó- sætti bræðra og systra i helm- ingi tilfella (15) er talin vera eðlileg. 1 fimm barnanna hefðu orðið breytingar á persónuleika erkomu fram sem aukinn kviði, erfiðleikar i stofnun kynna við önnur börn eða verulegar hindr- anir i þvi efni, jafnvel áður en þau urðu fyrir slysum. 11 mæðr- anna var lýst sem taugaveikluð- um, óttaslegnum eða óstöðug- um i skapgerð, tvær voru sagð- ar þunglyndar. Sjö mæðranna höfðu þróað I sálum sinum sam- lifs-tengsl með barni sinu. Þær voru aðallega mæður einka- barna, síðustu barna i röð eða ynsta barnsins I fjölskyldunni. Fjögur barnanna höfðu áður orðið fyrir slysum ýmist á heimilum, á leikvöllum eða á götunum. 1 þrem fjölskyldn- anna voru hjúskaparerfiðleikar og þar var einnig um sambúðar- vandamál að ræða vegna drykkjuskapar heimilisföður- ins. Eitt barnið kom frá upp- leystu heimili. Sálrænn þrýst- ingur af þessu tagi virðist ryðja umferðarslysum braut að börn- unum. Missir ástúöar i kjölfar slyss er mikilvægur þáttur, þegar manneskja, sem barnið ann, ferst i slysinu. Biermann prófessor segir frá dæmi þessa. Er þar um að ræða 5 ára gamla telpu, er missti ömmu sina I bil- slysi. Barnið meiddist ekkert i slysinu, en hegöan þess breytt- ist mjög verulega, hún varð mjög hljóölát og einangraði sig með öllu frá umhverfi sinu. Þegar hún hóf skólanám ári sið- ar dreymdi hana dagdrauma og námið var með öllu misheppn- að. Leitaö var til sálfræðings og á meðan á rannsókn hans stóð teiknaði telpan hvað eftir annað mynd af hinni látnu ömmu sinni. Umhverfis hana stóð fólk, dýr og tré, en krókódill með gapandi gin gætti hennar að framanveröu. Þegar læknirinn talaði við foreldra telpunnar komsthann að þvi, að þau höfðu haldiö öllu óbreyttu i herbergi ömmunnar frá þvi að hún lést, sem tákn fyrir minningu henn- ar. ’Telpunni hafði aöeins einu sinni verið leyft að leika sér þar inni, en slðan ekki meir. Nú var foreldrunum ráðlagt að leyfa telpunni að leika sér þar aftur. Skömmu siðar tókst barninu að komast yfir sorg sina og eftir það varö gatan greiðari i skól- anum. Þegar barni tekst ekki að ná fullum tökum á þeirri reynslu, sem það verður fyrir i umferð- arslysi, getur það leitt til árás- arhneigðar af hálfu þess, auk- innar óttahneigðar, svefnleysis og þess, að barnið væti rúm sitt i tima og ótima. í öðrum börnum koma fram andlitskækir eða þau verða ófáanleg til þess að G Sunnudagur 9. september 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.