Alþýðublaðið - 09.09.1973, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 09.09.1973, Blaðsíða 7
BILAR OG UMFERD HEIMASMÍÐAÐUR LAMBORGINI MEÐ VEL UR VW 1600 Þaö fer ekki á milli mála, aö billinn á myndunum er sportbill, og þaö meira aö segja „ekta” sportbill. Þeir, sem þekkja vel til slikra bila eiga meira aö segja að geta sagt á stundinni, hvaða tegund hann er. „Enginn vafi, þetta er Lamborgini Countach”, kynni einhver aö segja. En þaö er aldeilis rangt. Sá bill er talinn hraöskreiöasti sportbill I heiminum og kostar lika um átta milljónir. Þessi bill kostaði eig- andann hinsvegar ekki nema rétt rúmar 600 þúsund krónur. En það skal þeim virt til vorkunnar, sem sögöu þetta vera Lamborgani, aö billinn er nauða- likur honum. Sá er bara munurinn, að hann heitir Gumaro og búinn til i bilskúr. Sé billinn skoöaöur nánar kemur lika I ljós, aö undirvagn og vél tilheyrir ekki Lamborgini, heldur Volkswagen 1600. Smiöurinn er Þjóöverji og heitir Roland Heier frá Hamborg og er talinn slyngasti „heimilis- bilasmiður” i Þýskalandi. Þótt bill Heiers hafi ekki - aksturseiginleika og afl Lam- borgini Countach nær hann þó meiri hraöa en venjulegur Volks- wagen 1600» Vélin er 54 hö, meö rafeindastýrðri bensininn- spýtingu, og þegar við er bætt, að billinn er léttur og þannig byggður, aö hann veitir loftinu litla mótstööu, nær hann 170 km hámarkshraöa, — sem er bara gott fyrir Volkswagen. Yfirbyggingin er úr trefjaplasti og áli, — og ekki er annað sýnna en mótun þessara efna hafi tekist vel. En það hefur kostað vinnu, og hún er ekki tekin með I 600 þúsundunum, — smiöi bilsins tók 500 klukkustundir. Þess má geta i lokin, aö kona Rolands Heier, sem situr undir stýri á minni myndinni, — og hefur reyndar þegið bilinn sem gjöf af manni sinum, — heitir Gudrun. Hún er þó ekki af Islensku bergi brotin? Hver veit. 1 I A FULLRI FERÐ Miklubrautin hættulegust Samkvæmt slysakorti lög- reglunnar á siðasta ári, hafa orðiö yfir 100 slys eða óhöpp i umferðinni á sex götum borgar- innar. Þar er Miklubrautin hæst á blaöi meö 346 slys, þá Lauga- vegur með 195, Hringbraut með 110. A öllum þessum götum slösuöust fleiri en tiu menn á árinu, en flestir slösuðust á Miklubrautinni, 45. Þessar tölur gefa þó ekki til kynna hver þeirra er hættulegasta gatan i borginni, þar sem þær eru mis- langar og mismikil umferð fer um þær. Einnig er fjöldi gang- andi vegfarenda mjög mis- munandi. Leiðin í skólann Þessa dagana hefja þúsundir barna allt niöur i sex ára aldur skólagöngu, og mörg þeirra stiga sin fyrstu spor út i lifiö. Meö þvi er mikil ábyrgö lögö á heröar ökumanna, ábyrgö, sem ekki allir risa undir. Skýrslur sýna, aö einmitt i september- mánuöi eykst fjöldi umferöar- slysa þar sem 6 og 7 ára börn eiga hlut aö máli óhugnanlega mikið, og I fyrra uröu flest slys á börnum einmitt I þeim mánuði. Staöreyndin er sú, aö umferö- arreglur eru sniönar fyrir full- oröna, og börnin skilja þær ekki nema aö takmörkuöu leyti, auk þess sem þroskaleysi þeirra veldur þvi, aö þau eiga erfitt meö aö varast ýmsar hættur. Þess vegna er nauðsynlegt, aö foreldrar fylgi börnum sinum fyrstu sporin i umferöinni, og i þvi skyni aö hvetja fólk til aö gera þaö hefur Umferðarráö sent foreldrum pésa, sem nefndur er „Leiöin i skólann”. 10 þúsund í stöðumælana Rösklega tiu þúsund krónur berast i hvern stöðumæli árlega þvi á siöasta ári innheimtu þeir röskar sex milljónir króna, en þeir voru i árslok 584. Fjölgaði þeim um 22 árinu. Engar hækk- anir hafa oröið á stööumæla- gjöldum I tvö ár, og óvist hvort þær verða I ár. Flestir stööumælar eru viö Tryggvagötu, eöa 63, og álika margir eru viö Hverfisgötu. Fimm stöðumælaverðir gæta þess aö staöaldri að menn svikist ekki um að greiða, en ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu miklar upphæðir berast i stöðumælasektir. Nýir sportbílar Bresku bilaverksmiðjurnar, British Leyland, leggja nú kapp á að koma i framleiöslu nýrri gerö af Triumph, sem á aö keppa viö BMW, Audi og Alfa Romeo. „Nýir fjögurra manna, kraftmiklir lúkusbilar” er grundvallarhugsunin á bak viö þennan nýja bil. Orðrómur hefur gengiö um þaö, aö British Leyland hafi I hyggju aö hætta viö framleiöslu á sportbilum, en forráöamenn verksmiöjunnar hafa visað hon- um á bug. „Þvert á móti er ver- ið aö undirbúa framleiðslu á nýjum gerðum sportbila undir hinum þekktu heitum I sport- bflaheiminum MG og Triumph” er svarið, sem forráöamennirn- ir gefa við orðrómnum. Bráðum ekur enginn drukkinn ölvun við akstur hefur aldrei verið meiri en I ár, aö sögn lög- reglunnar, og ekki virðist annað vænna en gripa til einhverra rót-' tækra aðgerða til aö stemma stigu viö þessari óheillaþróun. Að sjálfsögðuer besta ráðið til að koma i veg fyrir þetta alvarlega lögbrot, aö enginn aki bil undir áhrifum, — en þar liggur hundurinn einmitt grafinn, hvernig á aö koma þvi til leiðar? Hjá General Motors I Bandarikj- unum, þar sem þetta vandamál er sist minna en hér, hefur verið fundiö upp tæki, sem á að leysa þetta vandamál, — og Kaninn biöur spenntur eftir þvi, að það veröi tilbúið til isetningar I bila. Þetta tæki kemur beinlinis I veg fyrir, aö menn, sem hafa bragðaö áfengi, geti komiö bil sinum I gang. Tækiö er maöal fagmanna nefnt „CCT —simulator”, en manna á meðal gengur það undir nafninu „snafnsnálin”, og er komiö fyrir við stýrið, beint framan viö öku- manninn. Þegar reynt er aö koma bilnum I gang tekur visir að slá út, mismunandi mikiö, og til beggja átta. Þá hefst tiu sekúndna „próf”, sem er fólgið i þvi að snúa stýrinu sitt á hvað, þangaö til nálin stöövast aftur i miðjunni. Standist ökumaðurinn „prófið” dæmir tækiö hann hæfan til aksturs, og vélin fer i gang. Tilraunir hafa sýnt, að minnst helmingur þeirra, sem tóku þátt I þeim, og höföu um eða yfir eitt prómille vinanda i blóðinu, féllu á prófinu og komu vélinni ekki i gang. Um 75 prósent, sem höfðu 1.4 prómille vinanda i blóöinu, féllu, en allir, sem einskis áfengis höfðu neytt, komu vélinni auö- veldlega i gang. Nú hafa öryggismálayfirvöld i Bandarikjunum hafiö tilraunir meö tækiö, og þeir hjá GM biöa spenntir eftir niðurstööunum. 1 öllu þvi flóöi notaöra og nýrra amerlskra bila hingaö til lands um þessar mundir, koma aö sjálfsögöu margir bilar eins. Hingaö til hefur þaö ekki þótt tiltökumál, en nú upp á siðkastiö virðast menn kepp- ast viö aö gera bila sina frá- brugöna öðrum bilum af sömu gerö. Friöþjófur tók þessa mynd af nýinnfluttum Chevrolet Nova, en mikið hefur komiö af þessháttar bilum hingaö. Kaupandi hans er greinilega i flokki þeirra, sem vilja hafa bfla sina frábrugðna öörum, þvi ekki hefur honum dugaö minna en hækkuö fjaðra- hengsli, jafnvægisstengur á afturöxul, tvöföld dekkja- breidd, felgur úr léttmálmi og tvö viö púströr benda ótvirætt til þess að vélarorkan sé rétl meiri en I meöallagi. — Meö þessu hefur honum tekist að gera þennan annars snotra fjölskyldubil að virki- legu tryllitæki. — Leiðin Þorgrímur Gestsson og Gissur Sigurðsson skrifa um bíla og umferð Sunnudagur 9. september 1973 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.