Alþýðublaðið - 15.09.1973, Síða 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmálarit-
stjóri Sighvatur Björgvinsson.
Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson.
Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggsson.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður Freysteinn
» Jóhannsson. Aðsetur ritstjórnar Hverfis-
■'götu 8—10. Sími 86666. Blaðaprent hf.
ALLENDE FALLINN
Herinn i Chile, studdur erlendum og innlend-
um öflum afturhalds og auðhyggju, hefur gert
byltingu og hrakið réttkjörinn forseta landsins
frá völdum. Fregnir herma, að forsetinn og nán-
asti samverkamaður hans hafi svipt sig lifi i for-
setahöllinni skömmu áður en her landsins yfir-
bugaði lifvörð forsetans og fjölskylda forsetans
hefur leitað hælist i öðru landi. Fjöldamargir
samverkamenn forsetans og vinir hans hafa
verið handteknir og Chile rambar á barmi borg-
arastyrjaldar.
Forseti Chile, Salvatore Allende, var
maður friðsamur og bar i brjósti djúpa rétt-
lætistilfinningu. Hann var hvorki byltingarsegg-
ur né kommúnisti, heldur sannur jafnaðarmað-
ur, enda naut hann stuðnings Alþjóðasambands
jafnaðarmanna og jafnaðarmannaflokka viðs
vegar um heim. Lýðræðisást hans var við
brugðið. Hann trúði á lýðræðið og neitaði til
hinstu stundar að beita vopnuðu valdi gegn þeim
ómennsku öflum, sem hafa nú hrakið hann út i
dauðann. Hann vildi leiða þjóð sina friðsamlega
á braut sósiaiismans og þær aðgerðir, sem hann
reyndi að beita sér fyrir i landi sinu, voru af
sama toga spunnar og jafnaðarmenn t.d. á
Norðurlöndum hafa fyrir löngu leitt fram til sig-
urs.
t augum herforingjanna i Chile og hinnar
gamalgrónu forréttindastettar i landinu, en þó
fyrst og fremst i augum hinna ómennsku auð-
hyggjuafla, sem seilast með klær sinar yfir öll
landamæri, var Salvatore Allende glæpamaður.
Glæpur hans var sá, að hann var vinur alþýð-
unnar — þeirra fátæku og undirokuðu. Glæpur
hans var sá, að hann var vinur réttlætisins, sem
vildi færa aíþýðunni öryggi og jafnrétti. Glæpur
hans var sá, að hann hafði til að bera mannúð og
fann til samúðar og samábyrgðar með litil-
mögnunum. Glæpur hans var sá, að hann var
mennskur maður, en ekki sálarlaust skrimsli —
viljalaust og samviskulaust verkfæri grimmd-
arinnar. Ósigur þeirra hugsjóna, sem Salvatore
Allende var tákn fyrir i sinu heimalandi, er
meira en ósigur alþýðunnar snauðu og kúguðu i
Chile. Hann er jafnframt alvarlegt áfall fyrir
alla lýðræðissinnaða jafnaðarmenn og hugsjón-
ir þeirra um mannúð, manngildi og félagslegt
réttlæti.
Salvatore Allende trúði þvi, að hægt væri að
sigra — eða a.m.k. að halda i skefjum — mann-
vonsku og grimmd auðmagnsins með friðsemd
og lýðræði. Fyrir þá trú sina hefur hann nú fallið
i valinn. Með þvi hafa hinir valdasjúku auð-
hringar Ameriku og forréttindastéttir þeirrar
heimsálfu tilkynnt opinberlega, að grimmd
þeirra verði ekki yfirunnin nema með ennþá
meiri grimmd. Að glæpaverk þeirra verði ekki
stöðvuð nema með öðrum glæpaverkum. Að
mannvonsku þeirra verði ekki mætt nema með
mannvonsku.
Þrumuský hefur þvi dregið upp á himin hinn-
ar rómönsku Ameriku. Friðarsinnarnir meðal
alþýðunnar hafa verið felldir. Hugsjónir þeirra
hafa beðið skipbrot. í örvæntingu sinni kann
alþýða þessarar heimsálfu þvi að gripa til sams
konar úrræða og beitt hefur verið gagnvart
henni. Friðsemd og lýðræðisást hafa beðið ósig-
ur fyrir grimmdinni, hvernig sem á er litið.
Kjördæmisþing Alþýðuflokksins í Reykjavík um aðra helgi
UM 100 FULLTKÚAR
Eins og sagt hefur verið frá i
Alþýðublaðinu áformar stjórn
Fulltrúaráðs Alþýðuflokks-
féiaganna i Reykjavik að efna til
kjördæmaþings i Reykjavík um
aðra helgi. betta er fyrsta reglu-
lega kjördæmisþingið, sem
Fulltrúaráðið efnir til, en um
svipað leyti i fyrra efndu flokks-
félögin þrjú i höfuðborginni til
kjördæmaþings, þess fyrsta
sinnar tegundar, og tókst það ein-
staklega vel i alla staði.
Rétt tii setu á kjördæmisþinginu
eig afulltrúar i Fulltrúaráðinu, en
til ráðsins var kosið i vetur eftir
nýjum reglum þarum. Var kosið i
ráðið hjá öllum flokksfélögunum
þrem, en auk þeirra fulltrúa eru
sjáifkjörnir i ráðið þeir Alþýðu-
flokksmenn og konur, sem flokks-
bundin eru i Reykjavik og sátu
siðustu þing ASf og BSRB.
Umræddir fulltrúar i Fulltrúa-
ráðinu, sem þingið eiga að sækja,
eru:
Frá Alþýöuflokksfélagi
Reykjavikur voru kjörnir 52 full-
trúar i Fulltrúaráðið. bessir
fulltrúar eru:
Gylfi b. Gislason, Fggert G.
borsteinsson, Björgvin
Guðmundsson, Árni Gunnarsson,
Kmelia Samúelsdóttir, Björgvin
Vilmundarson, Aðalsteinn Hall-
dórsson, Baldvin Jónsson,
Sighvatur Björgvinsson, BeMb-
dikt Gröndal, Eiður Guðnason,
Sigurður Ingimundarson, Pétur
Pétursson, Sigurður Guðmunds-
son, Vilhelm Ingimundarson,
Björn Vilmundarsson, Jón Axel
Pétursson, Jón borsteinsson, Elin
Guðjónsdóttir, örlygur G'eirsson,
Albert Imsland, Emanúel Mort-
hens, Thorvald Imsland, Baldur
Guðmundsson, Helgi Sæmunds-
son, bóra Einarsdóttir,
Guðmundur R. Oddsson, Friö-
finnur ólafsson, Jón Ágústsson,
Skjöldur borgrimsson, Sigur-
oddur Magnússon, Bogi
Sigurösson, Guðlaugur Tryggvi
Karlsson, Ingvar Asmundsson,
Eyjólfur Sigurðsson, Baldur Ey-
þórsson, Guömundur Magnússon.
Ifelgi Hannesson, borgrimur
Einarsson, Gunnar Gissurarson,
Ingi B. Jónasson, Guðni
Guðmundsson, Hörður
óskarsson, Birgir borvaldsson,
Guöjón B. Baldvinsson, Oddbjörg
Kristjánsdóttir, Erlendur-
Vilhjálmsson, bórður Gislason,
Guðmundur t. Guðmundsson,
Guðrún ögmundsdóttir, Elias
Sigfússon, og Ragnar Emilsson.
Efstu varamenn voru kjörnir:
Einar Björnsson, Páll Jónsson,
SigurðurT. Magnússon, Kári Ing-
varsson, Sigurður M. Helgason,
Sigurjón Kristinsson.
Frá Kvenfélagi Alþýðu-
flokksins I Reykjavik voru þessar
konur kjörnar:
Helga Einarsdóttir, Aldís
K r i s t j á n s dó ttir , Kristin
Guðmundsdóttir Aldis Bene-
diktsdóttir, Hafdis Sigurbjörns-
dóttir, Fanney Long, Helga Kr,
Möller, Hervör Jónasdóttir,
Lisbet Bergsveinsdóttir, Guðný
Hclgadóttir og Halldóra Jóns-
dóttir.
t efstu varamannasætum eru:
Edda Imsland, Rose Marie
Christiensen, Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir og Álfheiður Bjarnadóttir.
Frá FUJ i Reykjavik voru
kjörnir sem fulltruar i Fulltrúa-
ráðiö:
Ólafur R. Eggertsson, Gylfi
Guðmundsson, Helgi Skúli Kjart-
ansson, Garðar Sveinn Arnason,
Gisli Már Helgason, Helgi E.
Helgason, Marias Sveinsson og
Karl Karlsson.
t efstu varamannasætum eru:
Brynhildur Bjarnadóttir, Mar-
grét Pétursdóttir, Hilmar Smith,
Jón Agúst Eggertsson og Vilmar
Pedersen.
Fyrir utan þessa fulltrúa, sem
kjörnir eru af félögunum þrem i
Reykjavík, eru sjálfkjörnir i
Fulltrúaráðið flokksbundnir
Alþýðuflokksmenn úr Reykjavik,
sem sæti áttu á siðustu þingum
ASt og BSRB. beir eru:
Indriöi Halldórsson, Pétur
Stefánsson, Guðbjörg borsteins-
dóttir, Helga Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Bjarnadóttir, Jenný
Jónsdóttir, Jóhanna
Sigurðardóttir, Jóna Guðjóns-
dóttir, Kristin Simonardóttir,
bórunn Valdimarsdóttir, Jón
tvarsson, Guðmann Hannesson,
Bjarni Sigfússon, Óskar
llallgrimsson, ólafur
borsteinsson, Hilmar Jónsson,
Jón Sigurðsson, Karl E. Karlsson,
Pétur Sigurðsson, og Sigfús
Bjarnason.
Varamenn þeirra eru hinir
sömu og voru varamenn til ASÍ
þings og eru fokksbundnir I
Reykjavík.
Frá BSRB eru:
Agúst Guðmundsson
Guömundur S igur þórsson.
Guðjón B. Baldvinsson og Her-
mann Guöbrandsson.
Sérstakt bréflegt fundarboð
hefur verið sent þessu fóki og
verður væntanlega borið til þess
strax eftir helgina.
KJÖRDÆMAFUNDIR
ALÞÝÐUFLOKKSINS
Á VESTURLANDI
Á MORGUN, SUNNUDAG, KL. 14,00
Stjórn Kjördæmisráðs Alþýðuflokksins i
Vesturlandskjördæmi boðar ráðið til fund-
ar á morgun, sunnudag, i Hótel Borgar-
nesi. Fundurinn hefst kl. 2 e.h.
GYLFI Þ. GÍSLASON, formaður
Alþýðuflokksins, og BENEDIKT GRÖN-
DAL, varaformaður flokksins, mæta á
fundinn.og hafa framsögu um stjórnmála-
viðhorfið.
STJÓRNIN
Gylfi b. Gislason Benedikt Gröndal
í REYKJAVÍK
laugardaginn 22. ög
sunnudaginn 23. sept.
Stjórn Fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélag-
anna i Reykjavik boðar til fyrsta reglu-
lega kjördæmisþings Alþýðuflokksfólks i
Reykjavik um aðra helgi — laugardaginn
22. og sunnudaginn 23. september n.k.
Seturétt á þinginu eiga kjörnir fulltrúar
i Fulltrúaráðinu ásamt þeim flokks-
bundnu Alþýðuflokksmönnum og konum
úr Reykjavik, sem sátu siðustu þing ASI
og BSRB.
Þingið verður háð i Kristalssal Hótel
Loftleiða og hefst kl. 2 e.h. á laugardag.
Á dagskrá verða:
1 . Alþýðuflokkurinn —
sameiningarmál,
skipulagsmál
2. Borgarmál
3. Verkalýðsmál
Þingið verður boðað bréflega og auglýst
nánar i Alþýðublaðinu eftir helgi.
STJÓRNIN
Laugardagur 15. september 1973