Alþýðublaðið - 25.09.1973, Page 3
ALÞYDUFLOKKURINN
SKRIFAR WILSON
Framkvæmdastjórn Al-
þýðuflokksins ákvað i s.l.
viku, að flokksforystan
skyldi skrifa Harold Wil-
son, formanni breska
Verkamannaflokksins,
bréf um landhelgismálið,
þar sem skýrð yrði afstaða
Islands í málinu og hvatt til
þess, að breskir jafnaðar-
menn sýndu málstað okkar
aukinn skilning og stuðn-
ing.
Frá þvi var skýrt á kjördæmis-
þingi Alþýðuflokksins i Reykja-
vik, sem haldið var um s.l. helgi,
að s.l. laugardag hefði slikt bréf
verið póstlagt til Harold Wilson
og undir það hefðu ritað þeir Gylfi
Þ. Gislason, formaöur Alþýðu-
flokksins, Benedikt Gröndal,
varaformaður flokksins og Egg-
ert G. Þorsteinsson, ritari hans.
Þá var jafnframt frá þvi skýrt,
aö ráðstafanir hafi verið gerðar
til þess að allir þingmenn Verka
mannaflokksins fái sérstaka
greinargerð senda um málstaö
tslands i landhelgismálinu, þar
sem viðhorf tslendinga eru skýrö
og afstaða þeirra rökstudd.
Þing breska Verkamanna-
flokksins hefst i borginni Black-
pool i Englandi þann 1. október
n.k. og mun landhelgismálið að
likindum bera þar eitthvað á
góma. Þegar þar að kemur munu
Harold Wilson og samþingsmenn
hans úr Verkamannaflokknum
væntanlega vera búnir að fá bréf
þau og greinargerðir, sem for-
ystumenn Alþýðuflokksins hafa
sent þeim.
HVALIRNIR
MALAÐIR
GRAIR
Hvalvertið er iokiö i ár, og
allir hvalbátarnir komnir i
höfn. Veröur i vikunni gengið
frá samningum við Hval hf um
leigu tveggja hvalbáta til
landhelgisgæslu i vetur, að þvi
er Hafsteinn Hafsteinsson
talsmaður Gæslunnar tjáði
Alþ.bl. i gær. Bátarnir, Hvalur
8 og Hvalur 9, verða málaðir
gráir á næstu dögum, og skipt
um byssur á þeim. Þá fá þeir
ný nöfn, Hvalur 9 mun sem
áður heita Týr en ennþá hefur
Hval 8 ekki verið valið goða-
nafn.
Hjá Hval hf fengust þær
upplýsingar i gær, að alls
hefðu veiðst 452 hvalir á
vertiðinni i sumar. Er þetta
ágæt vertið. Mest var veitt af
langreyði, 267, sandreyðar
voru 138 og 47 búrhvalir.
Fjórir bátar voru við veið-
arnar i sumar.
Stígvél og góð skjólföt
verður happadrýgsti
fatnaðurinn í dag eins
og í gær, en vonandi
ætti að geta farið að
byrta yfir svip fólks
úr þessu.
POSTMÁLIN
HÖFUÐLAUS
Póstmál landsins höfuðlaus,
segja póstmenn. Landsþing póst-
manna beinir þeim tilmælum til
nefndar þeirrar, sem skipuð var
af ráðherra 1973, til að endur-
skoða lög um stjórn og starf-
rækslu pósts og sima frá 1935, að
hún athugi vandlega, hvort ekki
sé timabært að aðskilja póst og
sima meira en nú er. Telur þing-
ið, að samstarfið hafi verið fjötur
um fót póstþjónustunnar á undan-
förnum árum. Bendir þingið á, að
enginn sérstakur aöili fjallar um
póstmál landsins i heild hjá póst-
og simamálastjórninni.
Segja póstmenn, aö nú sé svo
komiö eftir áratuga yfirstjórn
simamanna á póstmálum lands-
ins, að algert ófremdarástand
hafi skapast á mörgum sviðum.
Kemur þetta hart niður á þjónust-
unni við almenning, jafnt sem á
starfsmönnum póstsins.
Póstmannaþingið fagnar frum-
kvæði samgönguráöherra til und-
irbúnings að byggingu höfuð-
stöðvar póstþjónustunnar. Telja
póstmenn, að húsnæðismái pósts-
ins i Reykjavik, séu komin i slikt
öngþveiti, að allsendis ómögulegt
sé að veita þá þjónustu, sem
krefjast verður i nútima þjóðfé-
lagi. Aðalpósthúsið i Reykjavik
var byggt árið 1916 og á enn að
heita höfuðstöðvar, en óhjá-
kvæmilega hefur orðið að flytja
burt ýmsar deildir, sem skilyrðis-
laust ættu að vera undir sama
þaki.
LIFLEGAR
SÖLUR ER-
LENDIS
Lif er aö færast í sölur is-
lenskra togara og báta í er-
lendum höfnum. Sölur
haustsins benda til þess að
markaðir séu góðir, og
búast megi við líflegum
sölum.
Tveir bátar seldu i Þýskalandi i
gær.Gunnar frá Reyðarfirði seldi
621estir fyrir 3,4 milljónir, eða 55
krónur kilóið að meðaltali, sem er
gott verð fyrir stórufsa úr netum.
Gunnar sledi i Bremerhaven, en i
Cuxhaven seldi Asver frá Vest-
mannaeyjum 72,5 lestir fyrir 3,8
milljónir, eða 52,40 krónur hvert
kiló.
t þessari viku selja tveir bátar
úti, Halkion og Glettingur, og
tveir togarar selja afla sinn, Júni
i Þýskalandi og Röðull i Belgiu.
,,Ef markaður helst góður, má
búast við mörgum söluferðum is-
lenskra skipa á næstu vikum”,
sagði Ingimar Einarsson hjá LtO
i samtali við Alþ.bl.
Þaö var þjófur
en ekki
Seðlabankinn
Forstjóri sælgætisgerðar-
innar Freyju við Lindargötu,
heyrði skruðninga á laugar-
dagskvöldið, en hann býr i
sama húsi og verksmiðjan er
i. Taldi hann umsvifalaust aö
enn væri verið að sprengja
fyrir grunni Seðlabankans, og
hugði ekki að hávaðánum nán-
ar.
Daginn eftir sá hann svo, að
hávaöinn mundi hafa stafað af
innbrotsþjóf, sem braut sér
leið inn i verksmiðjuna, og stal
sér talsverðu af sælgagti i
poka, sem hann hafði með sér.
Þjófurinn hefur náðst, og er
hann af yngri kynslóðinni og
hrifinn af sælgæti. Hann hefur
fleiri afbrot á samviskunni. —
Olvaður tekinn í
tvígang af sömu
lögregluþjónunum
Alltaf er eitthvað um að menn
aki undir áhrifum áfengis, og einn
létt kenndur lenti i árekstri á
laugardagskvöldið. Areksturinn
varð ekki harður, og engan sak-
aði.
Var maðurinn færður til blóð-
prufu, og ja'taði hann strax að
hafa neytt áfengis. Var bíllinn
tekinn af honum og geymdur á
bilastæði lögreglunnar, og tók
lögreglan billyklana i sina vörslu.
Lögregluþjónarnir, sem komið
höfðu að árekstrinum, voru ekki
lengi búnir að aka um þegar þeir
sáu bilinn, sem þeir voru þá ný-
búnir að taka úr umferö, á fullri
ferö i umferðinni aftur.
Stöðvuðu þeir hann og var þar
sami maðurinn undir stýri og
fyrr, og sýnu drukknari. Hafði
hann farið heim til sin eftir blóð-
tökuna, sðtt varalykla af bilnum,
og sótt bilinn á stæði lögreglunn-
ar.
Ekki tók lögreglan áhættu á að
maðurinn ætti enn fleiri lykla og
geymdi hann i fangageymslun-
um, þar til af honum rann. —
m
m
%
%
m
Hættuleg
stétt
HORNIÐ
n
fÁ undan
___
framan verslunarhús Silla
og Valda i Austurstræti.
„Þegar rignir mikiö eins
og þessa stundina# er stór-
hættulegt aö ganga um
gangstétt fyrir stéttina, þvi hún er svo
Gísli Helgason hringdi í
Hornið i gær, og kvartaði
URlWC-bO
LIQGUR ÞB£
ElTTMúAfe 'A
HÖAÆTA ?
STmi
$
m
(M
m
sleip. Núna áðan datt
vinnufélagi minn á stétt-
inni og slasaði sig. Þetta 32?
er einhverskonar steinn £&
sem er ágætur i þurru, en
stórvarasamur í bleytu. M
Öryggisins vegna ætti að f|j
skipta um efni i gang- íV:
stéttinni, og setja venju- ||
legar hellur". ||
*
m
|
&
t)
Þriðjudagur 25. september 1973