Alþýðublaðið - 29.09.1973, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 29.09.1973, Blaðsíða 1
BRÉF UR FANGELSI ^HORNID Laugardagur 29. sept. 1973 ■ slT'á™.’ r- ÞORIR ER HIHIR ÞÉEBTI (H)ROS I HNAPPA- GATIÐ! Ritstjórn Alþýðublaðsins hefur ákveðið að veita vikulega „rós i hnappagat” til þeirra einstakl- inga, félagasam- taka eða stofnana, sem koma al- menningi þægileg- ast á óvart eða veita einstakling- um eða almenn- ingi bestu þjón- ustu eða fyrir- greiðsluna. Blaðið óskar eftir sam- vinnu við lesendur sina um útdeilingu rósarinnar, svo ef einhver lesandi Alþýðublaðsins finnur þörf hjá sér til þess að hrósa einhverjum aðila sérstaklega fyrir þægilegheit i við- skiptum eða fram- kvæmd til al- menningsheilla, ætti hann að hafa samband við rit- stjörn Alþýðu- blaðsins i sima 86666 og láta vita. Einnig mun Alþýðublaðið veita sérstaka „kaktus- orðu” þeim, sem gert hafa sig seka um sérstaklega, fálkalega eða mið- ur þekkilega framkomu og ósk- ar, eins og áður, eftir samvinnu lesenda sinna um þá tilfinningu. obak TJON SUNNU METIÐ Á 35,4 MILLJ. Tjón Ferða- skrifstofunnar Sunnu vegna sviptingar á flug- rekstrarleyfi er metið á kr. 35.4 milljónir, og er þá ekki metið til fjár það óbeina tjón, sem ferðaskrif- stofan hefur orðið að mæta, meðal annars það, sem leiddi af rýrðu trausti hennar á alþjóðlegum flug- leigumarkaði. í gær var Sunnu- málið tekið fyrir i borgardómi og þar lögð fram mats- gerð dómkvaddra matsmanna; Bárðar Daniels- sonar, verkfræð- ings og Guðmund- ar Magnússonar prófessors. Eins og Alþýðublaðið hefur áður sagt frá, höfðaði Ferðaskrst. Sunna hinn 15). okt. 11)71 mál á hendur Samgönguráðu- neytinu og fjár- málaráðherra f.h. ríkissjóðs, vegna sviptingar á flug- rekstrarleyfi, sem henni hafði verið veitt. Gerði Sunna bóta- kröfur upp á rúm- ar 60 miiljónir króna, vegna beins og óbeins tjóns af þeirri ákvörðun is- lenskra stjórn- valda að svipta hana flugrekstrar- leyfi á sinum tima. Sérstaku ir rannsóknar- maður ti 1 AAoskvu! ► Frétt Alþýðublaðsins um „Islenskt hneyksli I Moskvu” hefur vakið gif- urlega athygli. Langt er I frá að öll kurl þessa máls séu komin til grafar, en svo alvarlegt var það tal- ið, að hugsanlegt misferli sendiherra og sendiráðs- ritara Islands i Moskvu, byggt á kæru til utanrik- isráðuneytisins frá fyrr- verandi starfsstúlku við sendiráðið, var tekið fyrir á fundi rikisstjórn- arinnar og máliö þar með tekið úr höndum embætt- ismannánna. Alþýðublaðið hafði i gær samband við Pétur Thorsteinsson, ráðuneyt- isstjóra i utanrikisráðu- neytinu, en hann, neitaði að ræða þetta mál við blaðamann blaðsins i sima. ,,Ég tala ekki við yður um einkamál manna,” sagði ráðuneyt- isstjórinn, þegar hann var spurður um mál is- lenska sendiráðsins i Moskvu. Þegar kæran barst, uröu fyrstu viðbrögð embættismannanna svo hörö, að þegar rikis- stjórnin komst i málið, þótti það best úrræða að bæta Inga R. Helgasyni, hrl., inn i islenska við- skiptasendinefnd til Moskvu og skyidi hann ekki sinna öðrum við- skiptum en reyna að komast til botns i þessu máli. t fyrrgreindri kæru koma fram fleiri atriði en Alþýðublaðið hefur skýrt frá og sum mjög alvar- legs eðlis, ef sönn reyn- ast. Ingi R. Helgason, var I gær erlendis, þegar Alþýðublaðið hugðist spyrja hann um málið. Tímanum lokað fyrir Sambandi ungra Framsóknarmanna Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri Timans, hefur stöðvað birtingu á efni frá ungum framsóknar- mönnum að fyrirmælum Ólafs Jóhannessonar, for- sætisráðherra og for- manns Framsóknar- flokksins. Var SUF -siðu, sem formaður Sambands ungra framsóknar- manna, Elias Snæland Jónsson, blaðamaður, hafði gengið frá. Forsaga þessa máls er sú, að skrif ungra fram- sóknarmanna á SUF-siðu Timans hafa gert flokks- forystunni mjög gramt i geði upp á siðkastið — og þá einkum og sér I lagi mjög alvarlegar ásakanir ungra framsóknarmanna á hendur ólafi Jóhannes- syni og nánum sam- starfsmönnum hans fyrir aö hafa staðið. á bak við þær atlögur, sem gerðar hafa verið að SUF-foryst- unni og vinstri mönnum i flokknum. Skömmu eftir að Ólafur Jóhannesson hafði látið sameiginlegan fund þingflokks og fram- kvæmdastjórnar Fram- sóknarflokksins gefa sér „skirnarvottorð upp á sálina” að þessu leyti hélt blaðstjórn Timans fund, ar sem samþykkt var að senda stjórn SUF' bréf, þar sem stjórninni væri falið að skipa sérstaka ritstjóra SUF-siðunnar til þess að bera ábyrgð á efni hennarog stjórninni jafn- framt tilkynnt sú sam- þykkt blaðstjórnarinnar, að ekki mætti skrifa ó- málefnalega um fram- sóknarmenn i Timanum og væri ritstjórum blaðs- ins falið að hafa eftirlit með þvi, að sliks gætti ekki i skrifum þess. Stjórn SUF sendi blað- stjórn Timans svarbréf, þar sem stjórnin tjáði sig fúsa til þess að tilnefna sérstaka ritstjóra og á- byrgðarmenn SUF- siðunnar Voru þeir Pétur Einars- son og ólafur Ragnar Grimsson skipaðir af hálfu SUF til þess starfs. Jafnframt tjáði stjórn SUF blaðstjórn Timans, að henni væri ekki fylli- lega ljóst hvað átt væri við með orðalaginu „að ekki mætti skrifa ómál- efnalega um framsóknar- menn i Timann’’og hvort skilja bæri þessa sam- þykkt sem svo, að rit- stjórar Timans ættu að ritskoða efni SUF-siðu, þótt það birtist á ábyrgð ákveðinna ritstjóra SUF- slðunnar, eins og blaða- stjórnin hafði óskað eftir að gert yrði. Sagðist stjórn SUF ekki geta sætt sig við slika ritskoðun á efni, sem væri á ábyrgð hennar. Skömmu siðar hugðist stjórn SUF svo birta efni frá sér i Timanum og hafði Elias Jónsson, blaðamaður, gengið frá efninu á SUF-siðu. Efni þetta var tviþætt: annars vegar var skýrt frá af- mælisriti SUF og hins vegar átti að birta bréfa- skitpin, sem átt höfðu sér stað milli SUF-stjórnar- innar og blaðstjórnar Tlmans um SUF-siðuna. Ólafur Jóhannesson fékk hins vegar fregnir af þvi, hvað til stæði, og hafði hann umsvifalaust samband við Þórarin Þórarinsson, aðalrit- stjóra Timans, og fyrir- skipaði Þórarni að stöðva umsvifalaust birtingu efnisins frá ungum fram- sóknarmönnum a.m.k. fram yfir næsta fund blaðstjórnar Timans. Fór Þórarinn að þeim fyrir- mælum flokksformanns- ins og kippti siðunni fyrir- varalaust út úr blaðinu en setti annað efni i staðinn. Sex konur i lögregluna Lögreglunni i Reykja- vik berst ánægjulegur liðsstyrkur i jóla- umferðina, en 12. desember næstkomandi birtast á götum borgarinnar lyrstu lögreglukonurnar og taka m.a. til við að stjórna umferðinni. Umsóknarfresturinn um störf fjögurra lögreglukvenna rann út i gær, og að sögn Bjarka Eliassonar, yfir- lögregluþjóns sóttu um þau sex konur á aldrinum milli tvitugs og þritugs. 1 gær hafði Bjarki rætt við þrjár kvennanna, og sagöi hann i viðtali við Alþýðublaðið i gær. kvöldi, að sér hefði litist mæta vel á þær, „en að sjálfsögðu er ekki hægt aö segja til um hæfni þeirra til starísins fyrr en að loknum þeim tveggja ára reynslu- tima, sem allir lögreglumenn verða að gangast undir ”, sagði Bjarki. Þær fjórar konur, sem verða ráðnar, hefja nám i lögreglu- skólanum 16. október, eins og aðrir, sem sækja um starf hjá lög- reglunni, og fá þar sömu undirbúnings- menntun og aðrir. Skólanum lýkur 12. desember og stiga þá lögreglukonurnar út á götu i fyrsta sinn i skrúða sinum, og taka að sveifla hvitu kylfunni.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.