Alþýðublaðið - 29.09.1973, Síða 12

Alþýðublaðið - 29.09.1973, Síða 12
alþýðu mum INNLÁNSVIÐSKIPTILEIÐ ^.i\TIL LÁNSVIÐSKIPTA Bbúnaðarbanki fþ ÍSLANDS KÓPAVOGS APÚTEK Opið öll kvöld tii ki. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og 3 SENDIBIL ASTÖDiN Hf í nótt var spáö næturfrosti i fyrsta skipti á Suövesturlandi i haust. A Suðvesturlandi er spáð noröaustan kalda og slö- an golu. Vestanlands er gert ráö fyrir noröaustan átt og þoku, en siöan mun létta til. A Noröurlandi er spáð norðan átt og léttskýjuöu. A Austur- landi er spáö norðaustan kalda og skúrum. Á sunnudaginn er gert ráö fyrir léttskýjuöu viöast hvar, en siðan mun þykkna upp. KRÍLIÐ FL OK//VU t. STRAUm /T>U KÖST JbKí) ÍFNH mm Hfwmí S JAI eft/R u £NÍ>. i Ebb/Pt BLo/m RÚÐft 6Lf!Ð UR Z>/?£6- //V L'/NA FaRFA LB/T c ■ Tómu 2B/NS HR /fiYNN /Ð fíRm ÍÍ/ND/ UELT t/t/ll SKERA Tumfí + 5 l FÆW I í 'RRH'OK P£N. SrofuuH (H)RÚS í HNAPPA- GATIÐ Fyrstur til aö fá (H)Rós i hnappagatiö er Þorvaldur Þorvaldsson, strætisvagna- stjóri, meðlimur Björgunar. sveitarinnar Ingólfs. (H)Rós fékk Þorvaldur fyrir hönd björgunarsveitarinnar fyrir frábær störf aðfaranótt mánu- dags, þegar fellibylurinn Ellen barði á húsum Reyk- vikinga svo eftirminnilega. Ragnheiður Pétursdóttir, ein af sýningarstúlkum Pálinu Jónmundsdóttur, festi (h)rós i hnappagat Þorvalds, sem hann tók viö fyrir hönd þeirra björgunarsveitamanna. Það var mikil mildi, aö eng- inn lést eöa stórslasaöist i þessu veðri. Mér stóö alla vega ekki á sama þegar ég sá 30-40 bárujárnplötur slengjast af miklu afli á húsvegg, svona á aö giska 5-10 metra frá mér, þar sem ég stóð og var aö negla fyrir glugga, sem haföi brotnað meö þeim afleiðing- um að kona skarst nokkuð illa og fékk taugaáfall,” sagði . Þorvaldur þegar við spuröum hann um fárviðriö. Arnarson Um föður landsins við ortum ódauðleg kvæði, sem eign sinni sló á himin, jörð og flæði og reif i sig eins og úlfur náttúrleg gæði. útnesjakall sem byggði á hverasvæði, viðdáðumog heiðruðum Ingólf Arnarson og efldum hans landsnámshróður lon og don. Uns fornleifagrafarinn gerði okkur uppnæm og hissa, hann gekk út i Aðalstræti að fá sér að pissa og stakk niður reku, sem reyndar var óttaleg skyssa, við röskunina varð grunur hans bláköld vissa: lngólfur kallinn er uppdiktan sagnamanns og alls ekki fyrsti grasasni þessa lands. Nú lifuin við Ingólfslausir i dauflegri sól og litum sneyptir á styttuna á Arnarhól. A KAKTUS- ORÐAN Kaktusorðuna veitum við nú fyrsta sinn meiri- hluta útvarpsráðs fyrir einstaklega fálkalega framkomu háns í garð starfsmanna Ríkis- útvarpsins, þegar skammir á einstaka fréttamenn voru látnar berast þeim og yfir- mönnum þeirra gegnum aðrafjölmiðla. Skorturá innanhússkurteisi er sem sé tilefnið til fyrsta kaktussins okkar. Um afhendingu kaktusorðunnar giida þær reglur, öðru vísi en um (h)rós-orðuna, að kaktus sá, sem með- fylgjandi mynd er af, bíður síns eiganda á rit- stjórn blaðsins í Skipholti 19, efstu hæð. Fyrir skort ó innanhúss- kurteisi PIMM á fttrnum vegi ÆTLARÐU AÐ GERA SÉRSTAKAR RÁÐSTAFANIR VARÐANDI VETRARFATNAÐ í HAUST? \ Gréta Siguröardóttir húsmóðir: Já, maður veröur aö gera þaö. Ég kaupi mér oft vetrarfatnaö á haustin, ef ég á hann ekki fyrir. Eriingur Einarsson, bókbind- ari: Já, ætli það ekki. Annars fer þaö eftir þvi, hvernig er ástatt fyrir mér fjárhagslega hverju sinni. Guörún Petersen, kennari: Vissulega, — bæði haust og vor- fatnað, og maður er alltaf ógur- lega spenntur fyrir að fá sér ný föt. Reyndar er ég aö fara i verslanir núna til að kaupa föt fyrir veturinn. Valdimar Bjarnfreösson, kokkur: Nei, ég verö á sjó i haust, og þar sem ég er kokkur og þarf ekki að vera mikið útivið þarf ég ekki að gera miklar ráð- stafanir, — nema kannski fá mér hlýja peysu. Hákon Sigurjónsson, fram- kvæmdastjóri: Ég er að fara aö býggja, og verð liklega að fá mér hlý föt og vatnsgalla til að geta unniö i húsinu i vetrar- veðrunum.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.