Alþýðublaðið - 19.10.1973, Page 2
ÞETTA GERÐIST LÍKA
Fóstureyöing flótti
Aðalfundur Prestafélags Vest-
fjarða, haldinn i Flókalundi, 18.
september 1973, lýsir þeirri skoð-
un sinni, að frumvarp til laga um
fóstureyðingar, sem leggja á
fyrir alþingi, feli i sér árás á gildi
mannslifa, auk vonleysis og böl-
sýni, sem fái ekki samrýmst
kristinni trú. Telur fundurinn
fóstureyðingar vera ábyrgðar-
lausan flótta frá vanda, sem leysa
á með mannfélagslegum umbót-
um.
Skattabreytingar
ekki til bóta
segja prentarar
A fundi Prentarafélagsins ný-
verið var bent á að breytingar
sem geröar voru á skattalöggjöf-
inni i upphafi valdatimabils nú-
verandi rikisstjórnar, hafi ekki
komið launþegum til góöa, og þvi
þurfi breytingar á henni sem
tryggi lækkun skatta hjá launþeg-
um, og tryggi jafnframt aö at-
vinnurekendur og eignamenn
greiöi skatta i samræmi viö raun-
verulegar tekjur og eignir.
Þá var það skoðun fundarins að
reikna eigi kaupgjaldsvisitöluna
mánaðarlega, en ekki á þriggja
mánaða fresti, þvi samkvæmt þvi
kerfi þurfi launafólk aö biða bóta-
laust i þrjá mánuði.
Slökkviliösmenn
stofna samband
Framhaldsstofnþing Lands-
sambands slökkviliðsmanna var
haldið fyrir skömmu. Þingið sótti
41 slökkviliðsmaður, auk gesta
frá 18 aðildarfélögum. Formaður
var kjörinn Guðmundur Haralds-
son.
Systurnar hittusf
ekki aftur fyrr
en eftir 23 ár
Tvær enskar systur, sem ekki höfðu sést i 23 ár, hittust á dögun-
um og fögnuðu hvor annarri með brosi og tárum. Leiðir þeirra
skildu, þegar forcldrarnir leystu upp hjónaband sitt. Carole var
send á uppeldisheimili og Linda á einkaheimili tii fósturforeldra.
Fyrir skömmu kom Carolc í hug að leita systur sina uppi. Hún
ræddi við konu, sem hét henni hjálp sinni, og lokst tókst að hafa
uppi á Lindu.
Hér eru svo systurnar eftir 23ja ára aöskilnað. Carole er sú til
vinstri.
Ekki dropa af víni
fyrir klukkan tíu!
Bannið áfengi á morgnana!
Það er tillaga Ponitowsky, heil-
brigðismálaráðherra til þess að
reyna að stöðva alkóhólismann i
Frakklandi. Alkóhólismi er
þjóðarsjúkdómur Frakka nr. 1.
Heilbrigðismálaráðherrann
telur, að setja eigi bann við þvi
að reiöa fram áfengi fyrir kl. 10
á morgnana — en sliku banni
hafa bareigendur harðlega mót-
mælt.
Alkóhólisminn er sá sjúkdóm-
ur sem veldur þriðju flestum
dauðsföllum i Frakklandi. Þá á
hann hlut að þriðjungi allra um-
ferðarslysa og fimmta hluta
allra vinnuslysa.
Hvergi i heiminum er her-
pilifur (lifrarsjúkdómur, sem
hrjáir ofneytendur áfengra
drykkja) jafn útbreiddur sjúk-
dómur og i Frakklandi. 1 fyrra
létust 18 þúsund manns af hans
völdum. Fimm þúsund létust úr
bráöri áfengiseitrun. Þriðjung
dauösfalla lungnaberklasjúk-
linga má einnig með einu eða
öðru móti rekja til áfengisins.
Fjórðung allra sjálfsmorða má
rekja til ölvunar, og jafnframt
helming allra morða og mann-
drápa.
Ráðstafanir þær, sem gripið
var til i forsætisráðherratið
Mendes-France komust yfirleitt
ekki lengra en á pappirinn. Þær
fjölluðu fyrst og fremst um
Tilraun til að
stöðva
alkóhólismann
í Frakklandi
skyldaða meðhöndlun drykkju-
sjúkra á hælum. Þar fyrir utan
átti að stofna bindindisnefndir,
og var það gert á nokkrum stöð-
um i landinu. Slik nefnd, sem
um nokkurtskeiö hefur starfað i
héraði einu i Suður-Frakklandi,
hefur á þremur árum uppgötvað
22 áfengissjúklinga og aðeins 10
manns hafa leitað aðstoðar
nefndarinnar.
Afengissjúklingarnir iþyngja
einnig franska heilsugæslukerf-
inu mjög mikið. Eitt áfengis-
sýkitilfelli kostar rikið venju-
lega þrisvar sinnum meira en
annað sjúkdómstilfelli. Lifrar-
bólga útheimtir venjulega 70
daga meðhöndlun á spitala.
Poniatowsky heilbrigðis-
málaráðherra krefst þess einn-
ig, að þeir 1,3 milljarðar franka,
sem franska rikið hefur árlega i
tekjur af sköttum á vini og
brennivini, eigi að notast i bar-
áttunni gegn áfengissýkinni og
til hjálpar þeim fórnardýrum,
sem orðið hafa alkóhólismanum
að bráð.
Lítið við og kynnizt okkar glœsilega húsgagnaúrvali —
FINNSK
BORÐSTOFUSETT
Borðstofusett í sérflokki —
úr bœsuðu birki (brúnt)
2 skápar — borð — 6 stólar
Yerð kr. 129.800.-
Greiðslukjör allt að 15 mánuðir.
Hafnarfjarðar Apótek
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Helgidaga kl. 2 til 4.
PAIÍ
SÆIGA.T ISOCRO
Skipholt 29 — Sími 244fifi
BLOMAHUSIÐ
simi 83070
Skipholti 37
Opió tíl kl. 21.30.
Einnig laugardaga
og sunnudaga.
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐ VERZLA i KR0N
0
Föstudagur 19. október 1973