Alþýðublaðið - 15.11.1973, Blaðsíða 1
BSHKBiSKSSHBHinHHBBBSZSflBHBSBSBnBBKSaSSSflBUHBaii
I
Þaö er ekki á hverjum
degi, sem ljósmyndar-
inn okkar fær mynd af
sér i blaðinu, — en i dag
gerum við undantekn-
ingu þar sem hann
sýndi þá hreysti að láta
dæla úr sér hálfum litra
af blóði i gær, þegar Al-
þýðublaðið heimsótti
Blóðbankann i tilefni af
20 ára afmæli hans.
t BAK
Fimmtudagur 15. nóv. 1973 m4 ^1;
|alþýðu
inRmni
Blaðið sem þorir
Hættir
söngnámi
vegna
veikinda
Sigriður E. Magnús-
dóttir, sem af ýmsum
kunnáttumönnum hefur
verið talin ein efnileg-
asta söngkonan okkar,
og hefur undanfarin ár
verið við söngnám i
Vinarborg, kemur til
landsins i dag. Hún hef-
ur hætt námi um
stundarsakir vegna
veikinda og eru horfur
á, að þau veikindi tefji
eitthvað að hún geti tek-
ið lokapróf, sem var
fyrirhugað i vor.
Kærður fyrir
að menga
fiskihöfnina
N ú h e f u r
Hafnarstjórn i
Reykjavik i fyrsta
skipti kært bát
fyrir að hafa kast-
að oliu i höfnina,
en það atvikaðist
þann 15. október
sl.
Þann dag sást
mikil olia i fiski-
höfninni, og var
hún rakin til báts,
sem þar lá. Hafði
hann lensað sjó-
blandaðri oliu i
höfnina i talsverð-
um mæli.
Gunnar B.
Guðmundsson,
hafnarstjóri, sagði
i viðtali við blaðið i
gær, að verið væri
að stórherða allt
aðhald með þessu,
enda kæmi alltof
oft fyrir að skip og
bátar hentu oliu i
höfnina. Þrátt fyr- ^
ir tilmæli og
ábendingar sagði
Gunnar, að á-
standið batnaði
sáralitið, og svo
virtist sem beinar
fjársektir væru þá
eina leiðin til að
draga úr þessari
mengun.
Sovéski sendiherrann___________
tók beiöni islensku____________.
ríkisstjórnarinnar vel en í
Moskvu vildu menn ekki leyfa
Davíð Ashkenazy að fara til
sonar síns á íslandi
..lslensk stjórnvöld
reyndu fyrir cinu og hálfu
ári að hafa milligöngu um
að faðir Vladimir
Ashkenasy, Davið, fengi
að koma i heimsókn til ts-
lands, og leituöum við að-
stoðar rússneska scndi-
herrans hcr, sem tók
málinu vel, en allt kom
fyrir ekki.” sagði Hinar
Agústsson utanrikisráð-
herra, i viðtali við hlaðið i
gær, vcgna nýjustu synj-
unarsovéskra yfirvalda á
fararleyfi fyrir Davið að
heimsækja son sinn og
fjölskyldu hans hér um
jólin.
„Við munum að sjálf-
sögðu reyna þetta aftur,
ef þess verður óskað, cn
engu vil ég spá um árang-
ur, þar sem við höfum
ekki góða reynslu i þessu
máli,” sagði Einar að
lokum.”
★
Gengur Lúðvík
af Fiskvinnslu-
skólanum dauðum?
Sjávarútvegsráöherra
hefur það nú i hendi sér,
hvort Fiskvinnsluskólinn
I Reykjavik hættir störf-
um eða ekki. Eins og
kunnugt er hafa nemend-
ur fyrsta og annars
bekkjar skólans hætt
námi þar sökum óánægju
meö, að þriggja vikna
námskeið hjá Fiskmati
rikisins veitir sömu rétt-
indi og þeir fá eftir
þriggja ára nám.
Skólanefnd Fisk-
vinnsluskólans og fulltrú-
ar nemenda héldu fund
um málið siðdegis i gær,
og sagöi Sigurður V. Har-
aldsson skólastjóri, að
hann og skólanefndin
væru á sama máli og
nemendur um, að þetta sé
ekki rétt fyrirkomulag.
Nemendur sögðu eftir
fundinn, að þeir muni
ekki hefja nám að nýju
fyrr en sanngjörn lausn
finnist á málinu. Að áliti
þeirra er um annað
tveggja að ræða, að nám-
skeiðin verði stöðvuð eða
nemendur þeirra fái að-
eins timabundin réttindi.
Lúðvik hefur þegar
fengið málið i hendur, og á
meðan hann igrundar
hvað gera skal
stunda nemendurnir fyrr-
verandi störf i frystihús-
um landsins.
Næst er að
auðvelda
strætó
Laugaveginn
— I heild tel ég tilraun-
ina með Austurstræti
hafa gefið mjög góða
raun og ég tel hana hafa
gefið góða visbendingu
um, hvernig haga má
þessu i framtiðinni, sagði
Birgir Isleifur Gunnars-
son, borgarstjóri, i viðtali
við fréttamann Alþýðu-
blaðsins i gærkvöldi.
Endanleg ákvörðun um
Austurstræti verður tekin
á fundi borgarstjórnar kl.
17 i dag,en nú fyrir hádeg-
ið, kl. 11, fjallar borgar-
ráð um málið. Birgir Is-
leifur taldi öruggt, að um
talsverðan ágreining yrði
að ræða, en liklegast er,
að eystri hluti Austur-
strætis, þ.e. að Pósthús-
stræti, verði ætlaður
gangandi eingöngu á-
fram, en bilaumferð leyfð
á milli Pósthússtrætis og
Aðalstrætis, eins og
Alþ.bl. skýrði frá i gær. —
Að vori sjáum við svo til
um framhaldið, sagði
borgahstjóri, — en auð-
vitað þarf að gera ýmsar
breytingar á götunni, svo
sem yfirborðslagfæring-
ar. Þær framkvæmdir
hefjast væntanlega eftir
áramótin.
Borgarstjóri sagði
einnig könnun hafa leitt i
ljós, að viðskipti hefðu
dregist eitthvað saman i
vestari hluta götunnar og
hefði það að sjálfsögðu
sitt að segja við af-
greiðslu málsins. —
Næsta skref tel ég vera,
sagði borgarstjóri að lok-
um — að greiða fyrir um-
ferð strætisvagna um
Laugaveg, til dæmis með
þvi að takmarka lang-
timastæði þar.