Alþýðublaðið - 15.11.1973, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 15.11.1973, Blaðsíða 12
í dag og næsta sól- arhring spáir Veður- stofan vestan kalda og björtu veðri. Útlit er þvi fyrir bjart og fagurt veður næsta sólarhringinn. Einnig hljóðaði spáin upp á 5 stiga frost eða meira. KRILIÐ £fr/X/n/DDn<rS sx/rt INNLÁNSVIÐSKIPTj LEIÐ KOPAVOGS APÓTEK Æ\TIL LÁNSVIÐSKIPTA Opiö öli kvöld til kl. 7 œBÚNAÐARBANKi Laugardaga til kl. 2 ISLANDS Sunnudaga milli kl. 1 og 3 SENDIBIL A SfÖÐlN Hf 28 þúsund lítrar af blóði ,,Þetta er verst í fyrsta skipti, — mér leiö alveg bölvanlega allan daginn eftir aö ég gaf blóð fyrst", sagði pentari í Guten berg, sem sat á- samt nokkrum starfsfé- lögum sínum á kaff istofu Blóðbankans í gær og hámaði í sig rjómatertu eftir að hafa gef ið blóð í fjórða sinn. ,,En síðan finnur maður ekkert fyrir þessu, líður jafnvel betur á eftir", sagði hann. Ekki fá þeir félagar rjómatertu í hvert sinn sem þeir gefa blóð, en dagurinn í gær var alveg sérstakur, — þá vóru liðin 20 ár síðan Blóðbankinn tók til starfa, og í tilefni dagsins voru bakaðar stórár af mælistertur handa blóðgjöfum dags- ins, starfsfólki bankans, og einnig var nokkrum af bestu viðskiptavinum hans boðið í tertuna. Þeirra á meðal má nefna Jón Snorra Þorleifsson, formann Trésmiðafélags Reykjavíkur, en þarna voru einnig þeir Bjarki Elíasson og Óskar Óla- son, yf irlögregluþjónar. Þeim var boðið bæði sem tíðum gestum í bankan- um og sem fulltrúum eins þeirra hópa, sem best hefur reynst í sambandi við blóðgjafir, — lögregl- unnar. ,,Lögreglan er alltaf boðin og búin að koma hingað og gefa blóð, hvenær sólarhrings sem er", sagði Ólafur Jensson, forstöðumaður Blóðbankans við blaða- mann Alþýðublaðsins í gær. ,,Hvað hafa margir gefið blóð frá upphafi?" spyrjum við Ólaf. ,,Á þessum 20 árum eru blóðgjafirnar orðnar 69—70 þúsund eða 28 þús! lítrar af blóði", sagði Ólafur, ,,en það þýðir, að um 20 manns koma að meðaltali á hverjum degi. Fjöldinn er samt nokkuð breytilegur, stundum er þetta miklu minna, en fer allt upp i 80—90 í skorpun- um". Fyrstu tveir blóðgjaf- arnir eru frá Stykkis- hólmi, þeir Hans Hansson og Þorkell Ólafsson, en þeir sem oftast hafa gef- ið blóð eru Björgvin Magnússon, skólastjóri á Jaðri og Stefán Jónsson, — báðir hafa þeir gefið blóð yfir fimmtíu sinn- um. Það þýðir, að þeir hafa gefið 20 lítra af blóði, þ.e. f jórum sinnum það magn, sem i líkam- anum er. Auk þess eru margir, sem hafa gefið blóó yfir 25 sinnum. Ýmsir af þeim, sem Blóðbankinn hefur á skrá hjá sér og koma oftast til að gefa blóð, eru í sjald- gæfum blóðflokkum, og þarf þá iðulega að leita til þeirra um blóðgjafir. Sá sem komið hefur lengst að til að gefa blóð í þann- ig tilfellum er maður nokkur á Selfossi. Hann kom nokkrum sinnum að austan til þess að gefa blóð þungt höldnum sjúk- lingi, sem einnig var í þessum sjaldgæfa blóð- f lokki. Á meðan blaðamaður var að spjalla við Ólaf og aðra úr starfsliði bank- ans hvarf Ijósmyndari blaðsins af sjónarsviðinu, en þegar að var farið að gá lá hann uppílof t á bekk í blóðtökuherberginu, og blóðið var tekið að leka í stríðum straumum úr hægri handlegg hans í lít- inn plastpoka. Þá var skipt um hlutverk hið snarasta og blaðamaður greip til myndavélarinn- ar og myndaði þennan merka atburð. Á meðan Ijósmyndarinn horfði á hjartablóð sitt renna um plastpípuna sagði hann með stolt í röddu, að hann væri methafi dagsins á- samt prentara út Gutem- berg, — þeir reyndust báðir hafa 112% blóð. PIMM « förnum vegi HEFURÐU GEFIÐ BLÓÐ? Þorsteinn Hannesson, söngvari: Nei, ég hef aldrei gefið blóð, en það er vegna þess, að þeir i blóðbankanum vilja ekki blóðið mitt af sérstökum ástæðum. Hinsvegar hef ég fengið blóð. Sveinn Magnússon, gerir ekkert eins og er: Ég hef gefið blóð tvisvar sinnum, — og fór fyrst efir auglýsingu frá Blóðbankan- um að mig minnir. Þorgcir Baldursson, afgreiðslu- maður i ATVR: Nei, ég hef aldrei gefið blóð, — hef aldrei haft mig út i það. Vitið þið hvort það er vont? Þóroddur Oddsson, mennta- skólakennari: Ég hef nú aldrei gefið blóð, — ég veit eiginlega ekki hvers vegna. Knútur Jónsson, tæknifræðing- ur: Ég hef gefið blóö svona 10-15 sinnum á tveimur til þremur ár- um. Mér finnst það þegnskylda hvers manns að gefa blóð á meðan maður er heilbrigður. nmnHffigrasajBEaei

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.