Alþýðublaðið - 15.11.1973, Page 10

Alþýðublaðið - 15.11.1973, Page 10
TÆKI SEM SEGIR SJÖ Þér finnst nú kannske, að hér sé dálítið einkennilega að orði komist, en málið skýrist. — Bæði er það, að menn eru að verða hálfþreyttir á SEX(!?) eftir allt það SEX tilstand, sem yfir hefur gengið síðustu miss- eri, og eins er hitt, að SJÖ er mjög þýðingarmikið í sambandi við tæki þetta, eins og reyndar öll GRUN- DIG sjónvarpstæki. Ástæða þess er sú, að við gefum viðskiptavinum okkar kost á að sannreyna mynd- og tóngæði GRUNDIG sjónvarpstækjanna í einmitt SJÖ daga án endanlegra skuldbindinga. Við vitum sem er, að allir sjónvarpstækjasalar lýsa kostum tækja sinna æði fjálglega fyrir væntanlegum viðskiptavin- um, og getur því verið erfitt fyrir menn að átta sig á hlutunum. Þess vegna tökum við af skarið og bjóð- um fólki SJÖ daga skilyrðislausan skilarétt (þú getur jafnvel skilað tæki, ef þér finnst, að það passi ekki í stofuna hjá þér, þegar til kemur), og viljum við á þennan hátt veita viðskiptavinum okkar tækifæri til að sannreyna fullyrðingar sölumanna okkar um á- gæti GRUNDIG sjónvarpstækjanna. Myndskýrleiki og tóngæði eru auðvitað mikilvæg atriði, en við gleymum heldur ekki hinu, að ending og örugg fram- búðar afnot hafa ekki síður gildi. Við getum að visu ekki boðið SJÖ ára ábyrgð á GRUNDIG sjónvarps- tækjunum, en hins vegar bjóðum við ÞRIGGJA ára ábyrgð, eða þrefalt lengri ábyrgð, en nokkur annar sjónvarpstækjasali býður. — Er nokkru við þetta að bæta? 1NESCO HF LEIÐANDI FYRIRTÆKI Á SVIÐI SJÓNVARPS-, ÚTVARPS- OG HLJÓMTÆKJA. LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 19150 - 19192 © Fimmtudagur 15. nóvember 1973

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.