Alþýðublaðið - 07.12.1973, Page 4
Jólagjöfina i dag velur sér
Egill Eövarösson, dagskrár-
maður hjá Sjónvarpinu. Hann
kvaðst vera i töluverðum vanda
með aö velja, þvi margt væri
það, sem gaman væri aö eign-
ast, allskonar smáhlutir. A end-
anum ákvaö Egill að æskja
þess, að sér yrðu gefnir tveir
miðar á hljómleika bandarisku
hljómsveitarinnar Chicago
Transit Authority, sem haldnir
verða i Carnegie Hall i New
York 24. janúar nk. — Farið
borga ég sjálfur, sagði Egill.
Sú jólagjöf gæti verið torsótt,
en verð miöanna er frá 4 dollur-
um og upp i 8 eftir sætum, eða
ca. 320—650 kr.
HVAÐ VILT ÞÚ FÁ f JÚLAGJðF?
CHICAGO
AÐGONGUMIÐA
AÐ HLJÓMLEIKUM
LUKKUDISIH ER
SJO TÍMA Afi
IÍTDEILA JÖLA-
GLADNINGI HHf
Það eiga ýmsir eftir að fá jóla-
glaðning hjá Háskólahappdrætt-
inu nú i desember. Alls verða 102
milljónir i jólapottinum að þessu
sinni, og skiptast þær i 13,500
vinninga. Dregið verður 10.
desember, og tekur það verk sjö
klukkutima. Þá tekur skrásetning
og prófarkalestur langan tima, en
á miðvikudagsmorgun i næstu
viku ætti svo að verða ljóst hverj-
ir eru þeir heppnu i ár.
Hæsti vinningurinn eru tvær
milljónir i fjórum röðum og ef
einhver á sama númerið i öllum
röðunum, verður sá hinn sami
átta milljónum króna rikari. Þá
koma fjórir 200 þúsund króna
vinningar og átta 100 þúsund
króna aukavinningar, 4,968 vinn-
ingará 10 þúsund krónur og 8,516
vinningar á 5 þúsund krónur.
Útborgun vinninga hefst þriðju-
daginn 18. des, og þá munu ef-
laust margir stika léttum skref-
um til Happdrættisins i Tjarnar-
götunni.
Hagræðingar á nú nýja
W
BUR-Spánartogaranum
Nýrri Spánarskuttogari BÚR,
Snorri Sturluson, kom 'úr sinni
fyrstu veiðiferö á mánudaginn, en
skipið seldi afla sinn i Þýska-
landi. Voru það 150 tonn.
Siðan hefur togarinn verið i.
höfn i Reykjavik, og var sá grun-
ur farinn að læðast að mönnum,
aö eitthvað væri að, eins og raun-
in var með systurskip Snorra,
Bjarna Benediktsson.
Blaðið hafði samband við
Martein Jónasson forstjóra, og
sagði hann engar bilanir né gallar
hefðu komið i ljós, en hinsvegar
væri verið að framkvæma smá-
vægilegar breytingar á útbúnaði,
til hagræðis. Væru þær ekki meiri
en svo, að skipið ætti að geta
haldiö til veiða á laugardag, ef
allt stæðist. —
Loftur dregur sig í hlé
Loftur Bjarnason. útgerðar-
maður hefur að undanförnu látið
af störfum i stjórnum ýmissa fé-
lagasamtaka sjávarútvegsins
vegna aldurs, en Loftur varð á
þessu ári 75 ára. Nú siðast lét
hann af formennsku i Félagi is-
lenskra botnvörpuskipaeigenda,
eftir 14 ára formennsku. Aður
hafði hann dregið sig i hlé úr
stjórnum Ltú og SIF.
Loftur var kjörinn heiðurfélagi
á aðalfundi FIB. Nýr formaður
þessa elsta vinnuveitendafélags
landsins er Valdimar Indriðason,
Akranesi.
FLOKKSSTARFIÐ
VIÐTALSTIMAR
Alþýðuf lokksfélag
Hafnarfjarðar minnir
á viðtalstima bæjar-
fulltrúa flokksins á
hverjum laugardegi kl.
11—12 í skrifstofu
flokksins í Alþýðuhús-
inu.
Á morgun verða til
viðtals þeir KJARTAN
JÓHANNSSON og
HAUKUR
HELGASON.
□ □ □
Alþýðuf lokksfélag
Reykjavíkur minnir á
viðtalstímana með
þingmönnum og öðrum
framámönnum flokks-
ins i Reykjavík, sem
eru á hverjum laugar-
degi kl. 11—12 á skrif-
stofu Alþýðuflokksins
við Hverfisgötu, simi
15020.
Á morgun verður til
viðtals SIGURÐUR E.
GUÐMUNDSSON,
varaþingmaður Al-
þýðuflokksins i
Reykjavík.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA tSLANDS
Á mánudag verður dregið i 12. flokki.
13.500 vinningar að fjárhæð 101.860.000 krónur.
í dag er seinasti endurnýjunardagurinn.
Happdrætti Háskóia tslands
12. flokkur
4 á 2.000.000 kr. . 8.000.000 kr.
4 á 200.000 kr. . 800.000 kr.
4.968 á 10.000 kr. . 49.680.000 kr.
8.516 á 5.000 kr. 42.580.000 kr.
Aukavinningar:
8 á Í00.000 kr. . 800.000 kr.
13.500
101.860.000 kr.
Föstudagur 7. desember 1973