Alþýðublaðið - 09.12.1973, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 09.12.1973, Qupperneq 5
Teddy - hugrakki drengurinn minn EFTIR EDWARD KENNEDY A veggnum I einkaskrifstofu Edwards Kennedys þingmanns i gamla þinghúsinu hangir inn- rammað bréf, sem sonur hans Edward yngri, skrifaði fyrir fjórum árum. Þá var hann átta ára. Bréf þetta er kallaö „Uppreisn Teddys” og Kennedy hefur mikið dálæti á þvi. t þvi stendur: ,,Þú ert ekkert að hlýða mér yfir. Þú ert ekkert aö leiðrétta stilana mina. Þetta er frjáls heimur.” Þetta er frjáls heimur og á stundum strangtað lifa i honum. Heimur, sem tólf ára drengur — Teddy Kennedy — sem unni fót- bolta, sundi, skiðaferðum og sigl- ingum — verður aö horfast i augu við vitandi, að hann verður að byggja upp lif sitt á nýjan leik eftir að fótleggurinn var tekinn af fyrir ofan hné á hægra fæti til að koma i veg fyrir beinkrabba. ,,Ég held, aö eitt þaö erfiöasta sem ég hef gert, hafi verið, þegar ég sagði Teddy frá uppskurö- inum,” segir Kennedy. ..Hann grét og ég grét. Teddy brást afar manneskjulega við. Hann var hræddur. Hann er hugrakkur af litlum dreng að vera, en nú sá ég allt það, sem litil börn óttast, koma upp á yfirborðið. Gat hann farið Amerísk HRÍSGRJÓN (%iana) RIVER hrísgrjón þekkir húsmóöirin og veit hve hagkvæm þau eru, sérstaklega i grauta. RIVIANA býöur nú einnig: AUNT CAROLINE hrisgrjón, sem eru vítaminrík, drjúg, laus í sér, einnig eftir suöu og sérstaklega falleg á boröi. SUCCESS hrísgrjón koma hálfsoðin i poka, tilbúin í pottinn. RIVER brún hýðishrisgrjón holl og góö. FLUFFY whi brand $ KAUPFÉLAGIÐ aftur i útilegu? Gat hann farið i siglingar? Mátti hann fara á skiði með fjölskyldunni? Sem betur fer gat ég fullvissað hann um allt þetta. Ég held — ég von að eg hafi hughreyst hann Htillega.” Hvernig er þessi drengur, sem er svo likur móður sinni, Joan Kennedy? Þingmaðurinn svarar þessari spurningu hikandi: „Hann vildi fá að vita, hvað yrði um fótinn eftir, að hann hefði verið tekinn af honum," sagði hann. „Teddy vildi endilega, að hann yrði notaður til rannsókna.” Það var engu likara en það væri kökkur i háisi þingmannsins. Hann leit andartak á inn- rammaða mynd, sem hékk á veggnum andspænis honum. Það var ein af þessum augnabliks- myndum — Teddy og faðir hans i faðmlögum. Þingmaðurinn virtist skyndi- lega svo ungur og auðsærður. Brúntháriðliðaðistum enni hans, blá skyrtan var opin i hálsinn og röndótta bindið út á öxl. Þetta viðtal, sem hér um ræðir, fór fram I innri skrifstofu hans, skammt frá þeirri dieild, sem hann átti eftir að vinna allan daginn. Hann var einn af formæl- endum nefndar um almennings- styrk til handa öllum frambjóð- endum stærri flokka, bæði hvað við kæmi forsetakosningum og þingmannakosningum. Þetta frumvarp samþykkti þingið með 57-34 atkvæðum. HANN ER FORVITINN OG HUGRAKKUR. MJÖG IIUGRAKKUR... Hvarvetna var eitthvað, sem minnti á Teddy yngri. Módel-bátur, sem gerður var úr spýtum og nöglum, stóð á bóka- hillunni fyrir aftan gljáfægt maghónl-skrifborö þing- mannsins. „Var þetta ekki bara vel af sér vikið?” spyr þingmaðurinn hreykinn eins og hver annar faðir. „Linurnar eru góðar og vinnan ekki siðri.” Það var erfitt að spyrja nokkurs, en þingmaðurinn var reiðubúinn til að tala. Hann sagði már, að Teddy litli ætti að fá gervifót og allt um framfarir hans. Hann lýsti þessum syni sinum, sem hann elskar svo heitt og sem tekur framtiðarhorfunum svo hetjulega. „Teddy er vel gefinn, elsku- legur og viðkvæmur,” sagði faðir hans. „Hann er forvitinn og þrunginn ævintýraþrá. Hann er hugrakkur. Mjög hugrakkur.” Guðfaðir drengsins, Johan Tunney þingmaður, sem var skólabróðir föður hans i laga- skóla, er mjög hrifinn af kimni- gáfu Teddys litla. „Hann er afar glaðvær krakki. Hann er glettinn og strákslegur. Hann gæti gert, hvað sem er — farið með fljótaskipi, ekið á dráttavél á búgarði frænda mins, talað við fullorðna yfir málsverði. Honum likar vel við alla og öllum likar vel við hann.” ÁHYGGJUR MÍNAR GERÐU HANN ÁHYGGJU- FYLLRI. Frænka Teddys, Jean Kennedy Smith, gleymir þvi aldrei, þegar hann vaknaði eftir að fóturinn hafði verið tekinn af honum og hugsaði fyrst og fremst um aðra. „Teddy bað pabba sinn og mömmu blátt áfram afsökunar á Óhamingja Kennedyanna riður ekki við ein- teyming. Kennedyfjölskyldan er vafalaust ein- hver mest elskaða og hataða fjölskylda Banda- rikjanna og sífellt fórnarlamb harmleikja, sem myndu riða þrekminni f jölskyldu að fullu. Mesta áfallið var morðið á bræðrunum John og Robert, en siðasta áfallið lenti á syni Edward Kennedys, Teddy, sem varð að láta lima af sér fótinn vegna beinkrabba, aðeins tólf ára gamall. Drengurinn er nýkominn heim af s júkrahúsi og hér á eftir er þvi lýst, hvernig hugrekki hans hefur hjálpað fjölskyldunni til að lifa einn harmleikinn enn af. ónæðinu, sem hann hefði valdið þeim,” segir hún. „Og hann hafði lika áhyggjur af þvi, að hann hefði með þessu eyðilagt þakkar- hátiðina fyrir allri fjölskyldunni. Það eru ekki margir tólf ára drengir, sem hefðu hugsað svona.” Teddy er hrifinn af iþróttum, en samt vildi hann frekar stjörnu- sjónauka en reiðhjól, þegar faðir hans spurði hann, hvað hann vildi fá i afmælisgjöf. „Það kom mér á óvart,” segir þingmaðurinn brosandi. „Ég hélt, að hann langaði i reiðhjól, en hann skemmti sér svo vel við stjörnusjónaukann og fylgdist með ferli reikistjarnanna. Hann hefur mikinn áhuga á halastjörn- unni, sem nú nálgast jörðu. Það er lærdómsrikt að virða stjörnurnar fyrir sér. Þær eru stærri en við. Ég held, að það skipti Teddy miklu máli nú. Þessi reynslutimi hefur ekki verið átakalaus fyrir þing- manninn... „En,” segir hann,” áhyggjur minar gerðu Teddy aðeins áhyggjufyllri og þvi varð ég að vera jákvæður og glaðvær.” Hann minnist þess,, hvað Teddy var alvarlegur, þegar hann spurði um gervifótinn. Hvað var hann þungur? Væri sárt að hafa hann? „Móðir min kenndi okkur, að eina leiðin til að horfast i augu við erfiðleikana, væri að bera höfuðið hátt,” sagði Kennedy þingmaður. „Hún kom til Teddys og hug- hreysti hann mikið. Hún var i hálftima hjá honum. Hann sýndi henni bréf frá fótboltaliði Washington Redskins, sem allir leikmennirnir höfðu skrifað undir og hún lagði strax til, að hann hæfi undirskriftasöfnun.” Kennedy þingmaður átti einnig erfitt með að segja systkinum Teddys — Kara, 13 ára og Patreki, 6 ára — fréttirnar. „Kara varð mjög áhyggjufull. Hún var I fjórar eða fimm klukkustundir hjá Teddu á þakkarhátiðinni og næstu sunnu- daga. Patrekur heimsækir bróður sinn á hverju kvöldi. Hann er sispyrjandi um uppskurðinn. Hvers vegna og hvernig afli- munin fór fram. Hann hafði mikinn áhuga á þessu öllu og var forvitinn.” MIKIÐ ÁFALL, SEM TENGIR OKKUR FASTARI BÖNDUM. Aflimunin var mikið áfall fyrir Joan Kennedy, móður Teddys. „Hún tók þetta mjög nærri sér,” segir þingmaðurinn. ,, Hún brotnaði alveg, þegar hún frétti það. Við höfðum stöðugt samband, meðan hún var i Evrópu, en það var mikið áfall fyrir hana, þegar hún fékk að vita, hvað þetta var alvarlegt. Hún hefur verið mikið á sjúkra- húsinu og návist hennar hefur hjálpað Teddy mikið.” Hefur þetta áfall tengt þau fastari böndum? Þingmaðurinn er hugsandi um stund, en svarar svo: „Já, það held ég.” Teddy Kennedy er mjög félags- lega hugsandi eins og föður- bræður hans, Johan F. og Bobby Kennedy. „Hann sá alltaf um gjafirnar handa þeim, sem þurftu að sitja heima, þegar við fórum út að sigla, ” sagði Kennedy þing- maður. „Honum liggur mjög á hjarta allir þeir, sem skildir eru útundan, ekki áðeins i fjölskyld- junni, heldur og um viða veröld.” En Teddy litli er alls ekkert ofsa góður strákur. Tunney guð- faðir hans rifjar upp ferðalag, sem hann fór i með Teddy og tólf ára syni sinum. „Strákarnir ákváðu að sofa i svefnpokunum undir beru lofti, en við þingmennirnir sváfum i fjallakofanum,” sagði hann. ,, Teddy yngri striddi okkur enda- laust og sagði, að við værum eins og eldgamlar pöddur, sem kysu heldur hlýjuna og velliðanina. Hann gerði þetta glettnislega og góðlátlega. Það eru alltof mörg börn, sem eru munnhvöt við foreldra sina.” IIANN VERÐUR BARA STERKARI. Þegar Tunney hugleiddi fram- tiðina, bætti hann við: „Ég held, að hann eigi eftir að sigrast á bækluninni og verða enn sterkari. Hann hefur forystuhæfileika og það hefur mikið að segja.” Fólk um viða veröld hefur brugðist við þessum siðasta harmleik innan Kennedy- fjölskyldunnar. Á tæpri viku fékk Teddy yngri rúmlega 30 þúsund bréf. Þeim var hlaðið snyrtilega upp i skrif- stofu þingmannsins og einkaritari hans, Frú Angelique Lee tók á móti rúmlega 200 gjöfum, sem sendar voru hvarvetna að úr Bandarikjunum til drengsins. Teddy er hrifnastur af upp- trekktum húsmerði, sem maður i Akron, Ohio, sendi honum með þessari kveðju: „Hélt, að þú gætir leikið þér að honum. þessum.” „Teddy er yfir sig hrifinn af honum,” sagði Kennedy þing- maður brosandi. „Hann er afar likur húsmerði i búri og svo er þetta góðs viti, þvi að húsmerðir borða bæði slöngur og annað, sem hættulegt er. Hann var einnig mjög hrifinn af ár, sem fljótastrákarnir sendu honum. Þeir skýrðu fyrirhonum, hvernig árinni væri beitt i straumköstum, hvernig þessi ár hefði bjargað þeim úr voða og frá þvi að lenda i fossum og hvernig ætti að róa af öllu afli til að komast á fast land aftur. Þessi gjöf var falleg og Teddy skildi merkingu hennar. Hann hafði hana inni I herbergi sinu á sjúkra- húsinu.” Frændi Teddys, Chris, sonur Ethels Kennedys, skrifaði honum bréf á rauð-,hvit- og bláröndóttan pappir.”Kæri Ted. Ég vona, að þér liði betur. Ég vona, að þér liði vel, þegar þú kemst af sjúkra- húsinu.” Fótboltaliðið Green Bay Packers bað ekki aðeins fyrir Teddy, heldur buðu þeir honum að koma á kappleik um leið og hann teldi sig hafa heilsu til og það boð ætla hann að þiggja. Einhver manneskja á Italiu sendi tólf rauðar rósir. Allir bekkjabræður hans i St.Albans, sem er skóli i Washington, skrifuðu honum bréf. Teddy er önnum kafinn við að sem ja bréf — þakkarbréf til allra, sem óskuðu honum góðs bata... það er langur listi og á honum er m.a. Nixon forseti og forseti Pakistans. Einn margra vina Teddys, sem heimsóttu hann á sjúkrahúsið var efnafræðikennari hans við St. Albans, Alexander Haslam, en hann sagði seinna: „Teddy fær aukatima, þangað til að hann getur komið aftur i skólann. Hann hefur sifellt bætt sig, hvað námið snertir. Þetta er mjög kröfuharður skóli og meðal nemanda i St. Albans er hámarki þeirra náð er þeir fá námsstyrk i Bandarikjunum.” Minnir St. Albans skólinn á skóla „hr. Chips”, sem við lásum um i skóla? Hasíam brosir við, þegar hann svarar: „Að vissu leyti. Við göngum enn i skikkjum og aginn er strangur. En ýmislegt hefur breyst. Bekkjardeildir eru opnar og við höfum samkennslu við stúlkna- skóla.” Haslam og Teddy ræddu aðal- lega um stjörnufræði i heimsókninni á sjúkra- húsið.,,Hann langar mikið til að vita allt, sem vitað verður um halastjörnuna,” sagði kennarinn. Það er áhugavert, að tveir menn, sem aldrei höfðu rætt Teddy innbyrðis höfðu báðir það sama um hann að segja. Þeir eru Haslam og séra James English i The Holy Trinity Church, en þar hefur drengurinn verið altaris- drengur i þrjú ár. „Hann hefur innri trú, sem ber hann uppi,” segir Haslam. „Ég held, að hann hafi mikla innri trú, þvi að hann hefur sýnt slikt þrek i raunum sinum,” segir séra English. HANN ER TRÚAÐUR... OG ÞAÐ STYÐUR HANN. „Teddy var afar sorgmæddur, þegar hann frétti um aflimunina, en brátt sigraði innri ró,” sagði séra English. „Ég held, að þetta sé styrkur, öryggi. Ég held, að trúin hafi hjálpað honum mikið. Ég sagði Teddy, að þetta væri mælikvarðinn á það, hvort allt, sem við tölum um i kirkjunni væri raunverulega það, sem hann tryði á. Ég sagði honum, að hann myndi skilja seinna, hvers vegna guð hefði látið þetta koma fyrir. Tólf ára drengir eiga ekki auð- velt með að orða hugsanir sinar, en ég fann, að ég átti athýgli hans óskipta.” Séra English vigði Kathleen Kennedy, dóttur Bobbys, og David Townsend 17. nóvember, morguninn, sem fóturinn var tekinn af Teddy. „Þetta var dagur þrunginn gieði og sorg,,, segir hann.” Ég vona, að ég sjái Teddy bráðum við altarið. Við komumst ekki af án hans.” S.l. sumar fékk Teddy að vinna fyrir föður sinn. Hann stimplaði vegabréf, fór i sendiferðir, bjó til gátur fyrir starfsliðið og hleypti ólgu og lifi i skrifstofuhaldið hjá þingmanninum. AHs staðar má sjá merki tenglsa feðganna — allt frá óróanum úr sogstráum úr plasti — sem er furðugóðður — sem þingmaðurinn hefur hengt upp i loftið. Teddy skrifaði ritgerð um föður sinn fyrirnokkrum árum og faðir hans hefur látið ramma hana inn. t henni stendur: „Faðir minn er meðalmaður. Hann er 115 kg. Faðir minn er þingmaður. Hann er ágætur og hann spilar við mig fótbolta. Tómstundaiðja hans er sælgætisát.” Þingmaðurinn lagði hendurnar fyrir aftan bak, leit á ritgerðina og sagði: „Eina huggunin var sú, að það er óliklegt að beinkrabbi Teddys (Chondrosxcoma) valdi æxlum annars staðar i likamanum. Ég er vongóður — og bið heitt — um að framtiðin verði heilla- vænleg fyrir Teddy.” am „Læra má af leik” LEGO DUPLO Stórir LEGO-kubbar fyrir yngstu börnin. Einkum ætlaðir ungum börnum, sem enn hafa ekki náð öruggri stjórn á fingrum sínum. LEGO TANNHJÓL Þroskandi skemmtun fyrir unglinga á vélöld. Ný tækifæri til þjálfunar og þátttöku í tækni nútímans. Njótió góórar skemmtunar heima AÐALSKRIFSTOFA REYKJALUNDI, Simi 91 66200 Mosfellssveit SKRIFSTOFA Í REYKJAVÍK Suðurgata 10 Sími 22150 0 Sunnudagur 9. desember 1973 Sunnudagur 9. desember 1973

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.