Alþýðublaðið - 12.12.1973, Side 3
Ræktun Galloway nautgripa
ekki hentug hér á landi?
Lánið leikur
við Stokks-
eyringana
1 dag mun sá leyndardómur
upplýsast, hverjir hljóta jóla-
glaöning frá Háskólahappdrætt-
inu i ár. Er þar um að ræða 4,968
vinninga á 10 þúsund og 8,115
vinninga á 5 þúsund.
t fyrrakvöld var hins vegar
ljóst hverjir höfðu fengið stóru
vinningana, milljónirnar. Lukku-
númerið reyndist 1073, og komu á
það númer fjórir tveggja miljón
króna vinningar. Tveir miðanna
vora seldir á Stokkseyri, einn á
tsafirði og einn i Vestmannaeyj-
um. Stokkseyri virðist hafa sér-
stakt aðdráttarafl fyrir milljóna-
vinninga, þvi þangað fór einnig
hæsti vinningurinn i fyrra.
Fyrir nokkru var heimilað að
flytja hingað til lands sæði úr
Galloway-nautuni. Var jafn-
framt hafinn undirbúningur að
gerð nautaræktarstöðvar I Hris-
ey, til að útiloka alla hættu á
þvi, að smitsjúkdómar gætu
borist i islenska gripi.
i viðtaii, sem Búnaðarblaðið
átti nýlega við Svein Kunólfs-
son, landgræðslustjóra, kemur
fram, aö hann telur Galloway-
kynið ekki heppilegt til ræktun-
ar hér, og ennfremur telur hann
að stöðin i Hrisey sé ekki trygg-
ing fyrir þvi, að sýkingarhætta
verði ekki fyrir hendi. Land-
græðslan, sem Sveinn veitir for-
stöðu, hefur ræktaö holdanaut i
25 ár.
Sveinn segir að Galloway-kyn
sé gamalt og gott kyn, en hafi
litla praktiska þýðingu hér. l>að
sé seinþroska hjarökyn, og illa
fallið til kjötframleiðslu á rækt-
uðu landi og fóðurbæti eins og
hér er.
Sveinn landgræðslustjóri
bendir á heppilegri kyn i viðtal-
inu, svo sem llerefordkynið
breska og tvö önnur kyn þaðan.
svo og, miðevrópsk holdakyn,
seni séu að ryðja sér til rúms.
Kendir Sveinn á breska sæð-
ingarstöð, Krithis Seman Ex-
port Ltd, sem hafi flutt sæði til
100 landa, án sýningar, og sé
heppilegt að skipta við hana.
l>á segir Sveinn, að litlar likur
séu á. að sjúkdómar berist með
breska sæðinu, og fari svo
vegna handvaminar, sé fyrir-
huguð sæðingarstöð i Hrisey
ekki fullkomin. Til að smiða ör-
ugga stöð, þurfi tugi eða jafnvel
hundruö milljóna. Frá Hrisey
geti sjúkdómarnir borist til
meginlandsins með vindi og
fuglum, eins og skipulag
stöðvarinnar sé hugsað.
Kaupjöfrar Keflavíkur í stórmarkaðsstríði
-og kaupfélagið dembirsér máske í slaginn
Tveir heistu kaupjörfar Kefla- I nokkurt skeið háö mikið við-
vikur, þeir Jósafat Arngrimsson skiptastrið, sem spannað hefur
og Arni Samúelsson, hafa nú um | hin ýmsu svið verslunarreksturs-
Þjófurinn stal Ekkert stendur i vegi fyrir þjófunum hcr i borg, ekki einu- sinni þjófabjöllur, þvi fyrir nokkru var brotist inn i fyrir- tæki i borginni, en þar var full- komið þjófabjöllukerfi tengt. Þjófurinn aftengdi bjöllukerfiö, og stal þvi. Þegar lögreglan kom að þjófnum heima hjá honum, var þjófabjöflunni hann með bjölluna uppi á stofu- boröi, og dundaði við aö láta hana hringja fyrir rafhlöðu- straumi. Þetta er ekki i fyrsta skipti, scm þjófabjöllu er stolið, þvi þegar brotist var inn i Háaleitis- apótck i sumar, stálu þjófarnir þá einnig þjófabjöllukerfinu, og köstuðu þvi i sjóinn.
HORNI 0
Gangandi veg-
farandinn
gleymist alltaf
„Blá og marin” skrifar:
Það er góöra gjalda vert að
dreifa salti á götur borgarinnar
og láta bilana aka á nagladekkj-
um, þó að allir viti, aö þetta
eyöileggur fyrir milljónir króna
árlega. Allt fyrir öryggið.
Mitt i öllu þessu öryggishjali
virðist enginn muna eftir gang-
andi vegfarendum. Vegna gler-
hálku eru flestar gangstéttir
gersamlega ófærar. Eina leiöin
til aö komast hjá stórmeiðslum
er að fara út á akbrautirnar.
Þótt þaö sé ekki hættulaust, er
þaö þó mun skárra en að byltast
blár og marinn á þessum renni-
brautum fyrir okkur, sem ferð-
umst á postulunum.
Þá er engin sérstök tilhlökkun
að hugsa til þess, þegar snjón-
um fer að kyngja niður og öllu
er mokaö upp á gangstéttirnar.
Þá er ekki nóg með ófæröina,
heldur kemur þá til viðbótar vel
úti látin saltvantsböð með mal-
biksdrullu, sem tillitslausir öku-
menn láta okkur i té endur-
>jalds- og bótalaust.
AÐSEND VÍSA
Vill nú ekki þingflokkurinn þegja?
Þvi að aðrir hafa svo margt að segja.
Þú átt ekki Bjarni minn að gala
rétt á meðan hinir eru að tala.
Kom<iu. þMÍ £ \
..... ....... n
ins. Hefur Alþ.bl. áður skýrt frá
ýmsum þáttum þessa striðs, svo
sem I sambandi við hljómplötu-
sölu.
Samkvæmt fregnum Suður-
nesjatiðinda, er það nýjast af
striðinu að frétta, að báðir hafa
þeir opnað stórmarkaði, þar sem
hægt cr að fá vörur i stærri ein-
ingum og á hagstæðara verði en i
minni verslunum. Segja Suður-
nesjatiðindi, að fátt sé meira rætt
þessa dagana i Kelavik, en þessar
nýju verslanir, og getgátur séu á
lofti um, að kaupfélagið á staðn-
um muni brátt l'ylgja fordæminu,
og stofna þriðja stórmarkaðinn i
plássinu.
BOKAUNNENDUR
TAKIÐ EFTIR
Erlendur Jónsson skrifar
Morgunblaðið:
.... Guðjóu Ármann Eyjólfsson er
sjóliðsforingi að menntun, skóla-
stjóri að atvinnu og hefur nú einnig
gerst rithöfundur. Og ris undir
nafni. Þessi bók hans
um bókmenntir I
Isafoldarbók er góð bók
Vestmannaeyjar,
byggð og eldgos
.... er ekki aðeins glæsileg að ytra
frágangi og heilmikill fróðleiks-
banki, heldur einnig prýðilega rituð
.... Enn, sem komið er, hef ég ekki
komið auga á vandaðri og eigulegri
bók á þessa árs markaði.
Miðvikudagur 12. desember 1973.
o