Alþýðublaðið - 12.12.1973, Side 11
■■■■■■■■■
íþróttir
Myndin er frá leik Vestur- og Austur-Þjóðverja, og sýnir Peter
Bucher skora fyrir Vestur-Þjóðverja, en tvo af bestu mönnum
þeirra austan múrsins verjast, Rost og Lakenmacker. i gærkvöld
mættum við Austur-Þjóðverjum, en við mætum Vestur-Þjóðverj-
um i lokakeppni HM i feb—mars.
ísland — A-Þýskaland
Hörmungarúrslit 35:14
islenska landsliðið tapaði stórt fyrir þvi austur-þýska í gær-
kvöldi í hraðmótinu I Rostock. Lokatölurnar 35:14, stórtap is-
lenska liðsins. Staðan i hálfleik var 15:6. Þessi úrslit gefa visbend-
ingu um, að staða okkar i handknattleiknum sé orðin heldur aum-
leg.
Svo virðist sem dómarar leiksins hafi leyft ýmislegt sem okkar
mönnum kom á óvart, i það minnsta var Auðunn Óskarsson eini
leikmaðurinn, sem virkilega baröist á hæl og hnakka, og var besti
maður liðsins. Sóknin var þokkaleg, vörnin slök og markvarslan á
núllpunkti, sögðu þeir okkur, fararstjórar Islenska liðsins.
Mörk islands: Viðar3, Guðjón, Hörður, Axel og Sigurbergur tvö
hver, Gunnsteinn, Gisli og Auðunn eitt mark hver. Orslit annarra
leikja urðu þau, að Tékkar unnu Ungverja 18:16 og Rúmenar unnu
b lið Austur-Þjóðverja 19:14. í kvöld leika islendingar gegn Tékk-
um, og veröur skýrt frá úrslitum þess leiks i blaðinu á morgun SS
Kínversku borötennissnillingarnir hafa að undan-
förnu sýnt úti á landsbyggðinni við mikla hrifningu
sem vænta mátti. í kvöld halda þeir sina siðustu sýn-
ingu, er þeir taka þátt í opnu móti, ásamt islensku
borðtennisfólki, i Laugardalshöllinni klukkan 20.30.
Hafi einhver misst af snilli þeirra fram til þessa, er
tækifærið i kvöld, þegar þeir keppa hver gegn öðrum
i opnu móti.
• Sá dýrasti
i siöustu viku lét Norwich
frá sér Graham Paddon til
West Ham og fékk i staðinn
Ted Macdougall. Þetta er i
þriðja sinn á rétt rúmu ári
sem MacDougall fer milli fé-
laga, og er hann fyrstur
breskra knattspyrnumanna til
að ná 500 þúsund pundum
samtals eöa 532 þúsund ná-
kvæmlega.
•Alsír áfram!
Alsir hefur mjög svo óvænt
tryggt sér sæti i úrslitakeppni
HM i handknattleik. i úrslita-
leik Afrikuriðilsins sigraði
Alsir það liðjsem allir reikn-
uðu með að kæmist i úrslitin,
Túnis, og urðu lokatölurnar
14:9.
Alsir verður með Júgóslöv-
um, Ungverjum og Búlgörum
frekar en Norðmönnum I riðli
um HM.
CQ
C=
co
Miðvtkudagur 12. desember 1973.
Þú kaupir ekki
Völvo vegna
útlitsins
Volvo selst fyrst og fremst vegna traustra eiginleika, jafnt í byggingu
sem í akstri. Enda tala sölutölur í Volvo verðflokki sínu máli:
BÍLAR í VOLVO VERÐFLOKKI 1972 SELDIR :
1. VOLVO 140 381
2. TOYOTA CORONA 161
3. FORD MERCURY 124
4. SAAB 99 79
5. OPEL REKORD 68
6. CITROEN DS 66
7. CITROEN GS 57
8. PEUGEOT 504 505 52
9. TOYOTA CROWN 47
10. CHEVROLET NOVA 35
Volvo öryggi er meöal annars:
Innbyggður öryggisbiti í öll-
um huröum til varnar í
hliðarárekstrum.
Öryggispúði í miðju
stýrinu. i árekstri gefur
stýrisbúnaöurinn eftir
á tveim stöðum, auk
þess sem púðinn ver
ökumanninn fyrir
meiðslum.
Stillanleg stólbök búin sérstökum
öryggislokum, sem gefa eftir við
mikinn þrýsting, t.d. ef ekið er
aftan á bifreiðina.
Hemlakerfi, löngu heims-
þekkt sem eitt hið örugg-
asta, sem til er.
Þríhyrningsvirkni tvöfalda
kerfisins í Volvo heldur 80%
hemlunargetu, þó að annað
kerfið bili skyndilega.
Farþegarými, sem er hannað innan í niðsterka öryggisgrind,
til verndar ökumanni og farþegum.
SUÐURLANDSBRAUT 16. SÍMI 35200
Viö tökum notaða bíla upp í greiöslu á nýjum. Athugið lánakerfi Veltis h.f.