Alþýðublaðið - 23.12.1973, Blaðsíða 2
MAGGI
baö eru ekki lengur einungis
bækur, sem streyma á jóla-
Metsöluplöturnar um jolin:
Fyrirhugað er að gera '
rækilega breytingar á
formi og fyrirkomulagi
sjónvarpsþáttarins
,,Ugla sat á kvisti".
Verður síðasti þátturinn
með því sniði, sem verið
hefur á þættinum —
þ.e.a.s. stuttir leikþættir
og stærri skemmtiatriði
— fluttur á jólakvöldið
klukkan hálf ellefu. Enn
hef ur ekki verið ákveðið
hvaða form verður á
þættinum i framtíðinni,
en Jónas R. Jónsson
mun sjá um hann sem
áður.
Fyrst skal fræga telja
Wilmu Reading, sem á-
samt John Hawkins
flytur tvö lög, tekin upp í|
sjónvarpssal, sérstak-
lega fyrir þennan þátt.
Ragnar Bjarnason
syngur tvö jólalög á-
samt þeim Janis Carol,
Drifu Kristjánsdóttur og
Helgu Steinsen, Krist-
ján B. Snorrason spilar
á flöskur, Pónik ásamt
Þorvaldi Halldórssyni
og Erlendi Svavarssyni
flytja lögin af nýútkom-
inni plötu sinni, Steinþór
Einarsson úr ,,Lítið
eitt" syngur „Jól"
Gunnars Gunnarssonar
við Ijóð Arnar Arnar og
Hljómar f lytja tvö lög af
plötunni sem væntanleg
er um miðjan febrúar
(sjá frétt annars staðar
á síðunni).
—ó.vald.
KJARTANS EFSTUR!
markaðinn ár hvert, heldur og þriðja og fjórða sæti eru örvunar, verða sifellt yngrr —
hljómplötur. Þær verða æ barnaplötur, „Hanna Valdís” þótt kaupendumir séu vafa-
algengari til jólagjafa, enda með Hönnu litlu Valdisi laust nokkuð eldri.
liklega um einn umfangs- Guðmundsdóttur, og „Verk- Listinn, sem hér fer á eftir,
mesta bransa i heimi núorðið. stæöi jólasveinanna”, þetta er unninn á eftirfarandi hátt:
Ekki er gott aö giska á hversu sannar það eitt, að þeir, sem Haft var samband við 8
margar hljómplötur seljast hlusta á plötur sjálfum sér til stærstu hljómplötuversl-
hér á siðustu þrem til fjórum ánægju og andlegrar upp- anirnar i Reykjavfk
vikunum fyrir jól, en þær
skipta örugglega þúsundum. 1. Clockworking Cosmic Spirits ... Magnús Kjartans. 63
Samkvæmt könnun, sem 2.Ringo................................ RingóStarr46
Alþýðublaðiö gerði fyrir 3. Hanna Valdis......................... Hanna Valdis 33
helgina, þá er „Clockworking 4. Verkstæði jólasveinanna............... Ýmsir 30
Cosmic Spirits” söluhæsta 5.Razmanaz.............................. Nazareth24
platan á islandi á þessari 6. Pinups............................. David Bowie 23
„jólavertfö” en þar á eftir 7. Brain Salad Surgery.................. E.L.&P.22
kemur „Ringo” með Ringo 8-12. Mind Games (John Lennon) Goodbye Yellow Brick
Starr. Athyglisvert er, aö i Road (Elton John) I.itið citt og Sladest (Slade( . 16
Hljómplötur:
Þura & Pálmi trvggja sér forvstu
ÞURIÐUR
SIGURDARDOTTIR
og PALMI GUNNARSSON
Parlophone MOAK 31
LP — stereo
Fálkinn.
Það er nokkuö áberandi á
þessari plötu, að þau Þuriður
Sigurðardóttir og Pálmi
Gunnarsson hafa hlotið sitt
mesta og besta uppeldi i dans-
hljómsveit Magnúsar Ingi-
marssonar. Þvi er ekki að
undra, að haft sé eftir
Magnúsi, að þessi plata sé ein-
hver besta plata, sem gefin
hal'i verið út á Islandi.
Hvort það er rétt veit ég
ekki vel, en hitt veit ég, að hún
fer mjög ofarlega á lista.
Töluvert hefur verið lagt i alla
vinnu og gerð plötunnar og er
hún næstum þvi hnökralaus.
Þau Þuriður og Pálmi, sem
um all langt skeið hafa verið i
úrvalssveit islenskra dægur-
lagasöngvara, tryggja sér nú
forystuna — þvi langt er siðan
heyrst hefur i öðrum söngvur-
um af svipuðum kaliber, svo
sem Björgvin Halldórssyni,
Shady Owens og öðrum. Þau
eru bæði þjálfaðir söngvarar,
þekkja sinar raddir, sinar tak-
markanir, og fara frábærlega
vel með það, sem þau gera.
Lagavalið er kannski það,
sem helst mætti finna að. t þvi
er litið samræmi, lögin eru
samtiningur héðan og þaðan.
A hinn bóginn kann sú tilhögun
að vera heppileg, þannig má
reikna með, að eitthvað
sé fyrir alla. Þó þori ég næst-
um að fullyrða, að ekkert lag-
anna— nema kannski „Sveita-
sæla” Pálma — er liklegt til
vinsælda og það gæti staðið
sölu plötunnar fyrir þrifum.
Þuriður syngur sex lög, þar
af tvö, sem mjög nýlega komu
út hér með öðrum söngkon-
um: „Top og the World”, sem
Erla Stefánsdóttir söng ný-
lega, og „Sólbjart vor”, i með-
ferð Berglindar Bjarnadóttur i
„Litiö eitt” heitir „Tvö ein”.
Harla erfitt er að bera flutning
Þuriðar saman við þær tvær, •
en þó er ég ekki frá aö Þuriður
hafi vinninginn yfir Erlu, alla-
vega samsöngskaflann, enda
er ekki um slakari raddir þar
að ræða en Pálma, Gunnar.
Þórðarson og Rió.
Lög Pálma eru fimm, öll við
texta eftir Þorstein Eggerts-
son — en textarnir við lög
Þuriðar eru eftir hina og
þessa, þeirra á meðal hana
sjálfa og Pálma. Pálmi leikur
og á bassa i öllum lögum og
gerir það skinandi vel.
Gunnar Þórðarson á jafn
mikinn þátt i þvi hversu vel
heppnuð platan er, og þau
hjónin. Hann útsetti — skrifaði
— öll lögin og hefur gert það af
stakri smekkvisi. Hins vegar
hefði hann áreiðanlega tekist
betur upp með skemmtilegra
lagaval. A plötunni er þess
hvergi getið, að Gunnar hafi
átt þarna hlut að máli — hann
er jú skrifaður fyrir gitarleik
— en þessi gleymska er ófyrir-
gefanleg. Þá sér Karl Sig-
hvatsson orgel- og pianóleik
og raddir syngja þeir félagar i
Rió. Þess er heldur ekki getið
á smekklegu umslagi Bald-
vins Björnssonar. Eiguleg
plata. Ef min meðmæli skipta
einhverju, þá fylgja þau hér
með. En hvers vegna sungu
þau ekkert saman? Þess
sakna ég óskaplega.
KÁTIR VORU
KRAKKAR
ALLI RUTS
Parlophone GEOK 269
EP-mono
Fálkinn
Þá er Alli Rúts loksins kom-
inn á plötu, sem er sögð „eink-
Pálmi: Platan er væntanlega
forsmekkur af hljómsveitinni,
sem þau hjónin verða með i
nýju Sigtúni.
um ætluð börnum”. Alli fer
liklega i jólaköttinn fyrir
hana, þvi það er ljótt að
hrekkja og hræða börn, ekki
sist rétt fyrir jólin. 1 öðru
tveggja Grýlukvæða á plöt-
unni er Grýla gamla (hvernig
er það annars, var hún ekki
dauð? ) látin hóta öllu illu og ef
litil börn verða ekki skelfingu
lostin við að heyra i henni
sjálfri, þá er kominn timi til að
endurskoða uppeldi minnar
kynslóðar og allra þar á
undan.
Manni skilst, að þetta eigi
að vera jólaplata en ef „Lina
langsokkur”,franskur
instrúmental og „poppkorn”
eru jólalög, þá er óperusöng-
vari. Eina almennilega lagið,
sem með einhverjum rétti er
hægt að kalla jólalag, er „Ég
er jólasveinn”, skoskt lag við
texta Alla sjálfs. „Grýlupopp”
hlýtur að tala fyrir sig sjálft.
Þuriður syngur „Gleðin með
þér”, eitt laganna af plötunni,
á liljómleikum i Háskólabiói.
(og Alli Rúts fer í jólaköttinn)
110 TÍMAR ( UPPTOKU PLflTUNNAR.
SEM KEMUR ÚT UM MIÐIAN FEORÚAB
Það var i Stockbridge i
Massachusettes i Bandarikj-
unum sem gerðust þeir at-
burðir, er Arlo Guthrie lýsir i
„Alice’s Restaurant”. Þar var
i siðustu viku sett Islandsmet:
Hljómar luku þar við upptöku
á LP-plötu, sem væntanleg er
á markaðinn i febrúar, og
voru notaöir 110 stúdiótimar
til upptökunnar. Hefur ekki
áður verið notaður svo mikill
timi til upptöku á islenskri
hljómplötu (venjulega eru
notaðir 50 timar, eða um það
bil).
— Nú á hljóðblöndun (mix-
ing) eftir að fara fram, sagði
Gunnar Þórðarson i viðtali við
tiðindamann Rokkhornsins
fyrir helgina. — Við Rúnar
förum liklega aftur út strax
eftir áramótin, mig minnir að
við eigum bókaðan tima i
kringum 10. janúar, og mix-
um. Það er mikið verk og tek-
ur sinn tima. Þetta verður tvi-
mælalaust dýrasta plata, sem
við höfum gert, og að minum
dómi sú besta.
Á plötunni verða 10 lög, 6
eftir Gunnar og 4 eftir Rúnar
— sem þarna sýnir i fyrsta
skipti á sér tónskáldssvipinn.
Ýmsir ágætir menn voru með
Hljómum (Gunnari, Rúnari,
Engilbert Jensen og Birgir
Hrafnsson): Björgvin Hall-
dórsson söng tvö lög, og kom
vel út úr þvi, að sögn Gunnars,
þá var italskur trommuleikari
— „glettilega góður”, sagði
Gunnar — fenginn til að sjá
um áslátt og Roger nokkur
Powell lék á „synthesiser” i
þremur lögum. Sá hefur m.a.
gert sólóplötu og spilað allt
sjálfur. Auk þessa voru blás-
arar og strengjahljóðfæraleik-
arar.
Gunnar sagði stúdióið hafa
verið rétt fyrir utan Stock-
bridge, gamall bóndabær með
stúdiói á neðri hæðinni og
gistiherbergjum á þeirri efri.
— Þetta gerði það að verkum,
sagði Gunnar, — aö við vorum'
ekki bundnir af þvi að vinna á
einhverjum sérstökum timum
sólarhrings, heldur höfðum
við þetta eftir hentisemi. Yfir-
leitt byrjuðum við að taka upp
kl. eitt á daginn og vorum að
til sex næsta morgun.
Stúdióið sagði Gunnar hafa
verið gott, en hann hefði fyrst
heyrt um það talað er hann fór
til Stockbridge sl. sumar i lok
hljómleikaferðar Rióum USA.
HLJÓMAR
0
Sunnudagur 23. desember 1973.