Alþýðublaðið - 24.12.1973, Síða 20
m
Látið LETUR
fjölrita fyrir yður
Offset fjölritun er fullkomnasta
fjölritun, sem völ er á.
2Ö
GLEÐILEG JOL!
LETUR
Grettisgötu 2, simi 23857.
Olíusamlag j_ A -ý-
útvegsmanna
Neskaupstað
Óskar viðskiptavinum landsmönnum öllum sinum og
gleðilegra jóla og farsældar ári. á komandi
iNGOLFS CAFÉ
Veizlusalur — Fundarsalur
í nágrenni mið-borgarinnar.
Pantið tímanlega húsnæði til starfsemi yðar.
MÆLIÐ YKKUR MOT I
INGÓLFS-CAFÉ
Félög -
Starfshdpar
Leigjum sali til hverskonar félagsstarfsemi
svo sem
fundarhalda, veizluhalda, árshátíða o. fl.
TRYGGIÐ YKKUR HÚSNÆÐI
TIL STARFSEMI YKKAR TÍMANLEGA
IÐNÓ
Sími 12350
________
ÞEGAR
SPRAKK
1 siðasta mánuði voru
liðin rétt 50 ár frá þvi
norskir kommúnistar
samkvæmt fyrirskipunum
frá Moskvu klufu sig út úr
norska Verkamanna-
flokknum og stofnuðu
Kommúnistaflokk Noregs
— aðeins sjö árum áður,
en svipaður atburður
gerðist á Islandi, einnig
samkvæmt fyrirmælum
hins erlenda valds. Nánar
til tekið var það hinn 2.
nóvember árið 1923, sem
aukaþing það var haldið i
norska Verkamanna-
flokknum, þar sem leiðir
skiidu með kommúnistum
og jafnaðarmönnum og
minnihlutahópur
kommúnista klauf sig út
úr Verkamannaflokknum
og hóf aðgerðir gegn
jafnaðarmönnum bæði á
hinum pólitiska vettvangi
og i verkalýðsfélögunum.
Og litlu munaði, að
kommúnistar næðu meiri-
hluta á aukaþingi flokk-
sins, — miklum mun færri
atkvæði tiltölulega skildu
norska jafnaðarmenn og
kommúnista en islenska
jafnaðarmenn og
kommúnista við svipaðar
aðstæður árið 1930.
1 Noregi eins og á Islandi
voru sósialistar —
kommúnistar og jafnaðar-
menn — i sömu flokks-
• samtökum á frumbýlings-
árum verkalýðshreyfing-
anna i þessum löndum. Á
fyrstu árunum eftir
byltinguna var sú lina uppi
höfð i Moskvu — sem þá og
lengi siðan var óumdeild
stjórnstöð kommúnista-
flokka og hreyfinga út um
allan heim — að kommún-
istar og jafnaðarmenn
ættu að starfa saman,
enda þótt Lenin hefði eitt
sinn sagt, að þessi sam-
fylking ætti að styðja
jafnaðarmenn eins og
snaran styður hengdan
mann. Þessi sam-
fylkingarstefna hafði það i
för með sér, að
kommúnistar bæði i
Noregi og á Islandi sem i
öðrum löndum, þar sem
samfyiking var við lýði,
höfðu hljótt um sig i flokk-
unum með jafnaðar-
mönnum, þótt þeir rækju
sellustarfsemi sina innan
flokkanna meira eða
minna á laun.
En fljótlega eftir 1920 fór
að bera á vaxandi ósam-
lyndi milli kommúnist-
anna annars vegar og
jafnaðarmanna hins
vegar. Aðalágreinings-
efnið var afstaðan til
Rússlands og Alþjóða-
sambands kommúnista,
sem margir sam-
fylkingarflokkarnir voru
annað hvort beinir eða
óbeinir aðilar að. Vald-
hafarnir i Kreml vildu öllu
ráða um stefnu sósiölsku
flokkanna utan Rússlands
og fengust aldrei til þess
að viðurkenna, að
aðstæður i hinum einstöku
löndum gætu verið mis-
jafnar. Þannig gáfu þeir
oft út pólitiskar fyrir-
skipanir um starfsaðferðir
og stefnumál sósialskra
flokka um allan heim, sem
e.t.v. gátu átt við i einu
landi, en alls ekki i öðru.
Slik var t.d. fyrirskipun
sú, sem Alþjóðasambandið
gaf út i júnimánuði árið
1923, um að sósialskir
0
Jólablað 1973