Alþýðublaðið - 25.01.1974, Side 6

Alþýðublaðið - 25.01.1974, Side 6
ÉG VAR AUGU FBI gerði sitt besta til að fá Valachi til að leysa frá skjóðunni, en hann hafði ekki talað fyrr en nú. Hamfarir. Hann hafði verið i Mafi- unni i 30 ár, en aldrei þó sem yfirmaður, samt voru launin fyrir hann dauðan eða lifandi 100.000,00 dali dauðan eða lifandi — helst dauðan. Hver einasti glæpamaður hefði verið fús til að myrða mann fyrir slika upphæð. Valachi bCTiti m.a. á Vito Geovese, sem hafði myrt 33 fyrir Mafi- una. Bæði Mafian og Cosa Nostra voru i rúst. Ýmis mál, sem lögreglan hafði ekki leyst upplýstust nú. Klaus Klauke sá Mafiu- menn að morði og þekkti þá. Hans var gætt dag og nótt, en þó var hann myrtur daginn fyrir réttarhöldin. Tveir lögregluþjónar gættu hans þá við glugga á fjórðu hæð. Valachi benti á morð- ingjann. Mona Zeitsmann var heimsk og hugrökk. Hún sá Mafiumorðingja og kjaft- aðifrá. Hún var myrt á leið frá réttarsalnum. Valachi benti á morðingjana. ódauðleg? Mafian er mesta glæpa- fyrirtæki heims. Það er stundum hægt að segja skák en aldrei mát. Eld- fjallið Etna blundar árum saman gýs á ný eins og Mafian. Mafian er ódauð- leg. Umberto veiktist 1968. Allt var fyrir hann og konu hans gert, þvi að Mafian sér fyrir sinum. Kona Um- bertos hefði aldrei þurft að liða neyð þótt hann hefði látist, en hann hresstist og i ársbyrjun 1969 kom lagleg 15 ára stelpa að ræða við konu hans. Hún var útsend- ari Mafiunnar. „Þeir vilja ná i mann sem heitir Enriko Pizzoli”, sagði stúlkan. „Þetta eru þau nöfn sem hann hefur notað i Bandarikjunum”. Hún rétti mér lista með þremur nöfnum á: Quirino Pizzini, Carlo Arata og Ottavio Bertini. Seinni hluti skilaboðanna var munnleg- ur. „Pizzoli er hið rétta nafn”, sagði stúlkan, „en hann býr núna i Feneyjum undir öðru nafni, sennilega eitt af þessum þremur. Ar- ið 1944 var hann handtekinn i Chicago fyrir bankarán og morð. Hann var einn af fimm mönnum sem rændu banka og drápu tvo verði. Pizzoli kiaftaði um hina. Joseph Valachi sagði bandarisku alrikislög- reglunni allt af létta um Mafiuna. Þeir voru handteknir og enduðu i rafmagnsstólnum, á meðan að Pizzoli fékk 20 ár. Hann slapp út fyrir sex vikum og er nú staddur á Italiu. Þeir vilja ná hon- um”. Umberto var helsti sér- fræðingur Mafiunnar i þvi að leita uppi fólk, en samt sem áður er ástæða til að vekja athygli á þvi að stúlkan notaði aldrei orðið Mafian. Hún talaði allan timann um „Þá”. Umberto sagði að sin á milli töluðu meðlimir Mafi- unnar aldrei um Mafiuna heldur um Bræðralagið. Hann ferðaðist til Feneyja og leitaði fyrir sér meðal þeirra manna sem hann hélt að gætu aðstoðað sig i leit sinni að Pizzoli. Það tók hann 24 tima að finna mann sem hét Otta- vio Bertini. Hann var ný- kominn frá Bandarikjun- um, og dulbúinn sem starfsmaður frá útlend- ingaeftirlitinu. Leitaði Um- berto hann uppi undir þvi yfirskyni að hann þyrfti að aðgæta landvistarleyfi hans. Umberto fannst maðurinn nautheimskur. Umberto sagði, að sér hefði þótt maðurinn svo heimsk- ur, að hann ætti það skilið að deyja. „fig verð vist að segja þér allt af iétta”, sagði hann. „Ég verð að tala við einhvern. Ég heiti ekki Bertini, heldur Pizzoli og er hræddur við Mafiuna”. „Þú þarft ekkert að ótt- ast hér”, sagði Umberto. „En ég þarf vist að hitta þig út af landvistarheim- ildinni á föstudaginn, ef það hentar þér?” Það hentaði vininum vel og hann bauð Umberto drykk. Mafian er fingralöng. Aumingja heimski Pizz- oli. Umberto og hann fengu sér I glas og gengu út á ró- legt strætið. Pizzoli tók ekki eftir bilnum með mönnunum tveim þegar Umberto tók i hönd hans og sagði: „Bacio le mani! (Ég kyssi hönd þina!) Það er hin fræga eða alræmda kveðja Mafiunnar, og Um- berto langaði til þess að láta Pizzoli vita að skapa- dægur hans væri upprunn- ið. Umberto flýtti sér af stað. Er hann kom að næsta horni þá sneri hann sér og leit við. Pizzoli stóð með furðusvip vegna þess að kveðja sú sem Umberto haföi notað var aðeins not- uð af Mafiunni. Þá hlýtur að hafa runnið upp fyrir honum að Um- berto hafi lokkað hann i gildru. Umberto sá hann ekki hlaupa en hann las um það i dagblööunum eftir á, að Pizzoli reyndi að hlaupa þegar bfllinn stefndi að honum. Vélbyssukjafti var stungið út um bilgluggann, og Pizzoli dó i kúlnaregni, 25 árum eftir að hann sveik félaga sina úr Mafiunni. Viku siðar fór Umberto til Palermo. Hann var veikur og bað Mafiu-ráðið um leyfi til þess að hætta starfi sinu. Það samþykkti það: „Akveddu dvalarstað þinn og láttu okkur fá heimilisfangið ef eitthvað skyldi vera á seyði i borg þeirri sem þú býrð. Alveg laus verður þú ekki fyrr en þú deyrð, en við látum þig ekki gera neitt nema það sé algjör nauðsyn”, voru skilaboðin sem Umberto fékk. Umberto þakkar sjö- manna-nefndinni, Hann tók I hendur þeirra og sagði: „Bacio le mani! ” Árunum i Mafiunni var lokið.... eða var þeim lokið i raun og veru? Var hann frjáls i raun og veru? Gat hann nokkurn timann orðið frjáls? Og hann vissi að svarið var neikvætt. Hann verður Mafiumað- ur til dauðadags. ENDIK. 3Umberto Aquilini, sem var njósnari Mafiunnar i Róm, sendi marga menn út i dauð- ann. Fólk sem var dæmt tii dauða af Mafiunni fyrir það að hafa brotið þagnareiðinn, var leitað uppi af Um- berto, sem visaði morðingjunum á fórnariömbin.Samviskubit iþyngir hon- um ekki, þvi að hann drakk boðorð Mafiunnar með móðurmjólkinni. Nú segir Umberto frá Mafiu-foringjunum og lögieysi þeirra. BANDARÍSKU BLÖÐIN AFHJÖPA NÝTT HNEYKSLISMÁL S1ARFSMANNASTJÖRI NIXONS NJÚSNADI UNI ALLAR GJÖRÐIR HENRYS KISSINGER Alexander Haig — hershöfðingi. Hann neitar öllum ákæruatriðun- um. Hinn núverandi starfsmanna- stjóri i Hvita húsinu, Alexander Haig, hershöfðingi, lék aðalhlut- verkið i síðasta stjórnmála- hneykslinu i Bandarikjunum, njósnunum, sem reknar voru gegn Henry Kissinger, segir stærsta sjónvarpsstöð Banda- rikjanna, ABC. Rannsóknin. sem framkvæmd var af hinum svokallaða „pjátursmiðahóp” Hvita hússins, á að hafa leitt i ljós, að háttsettir liðsforingjar ráku njósnir gegn núverandi utanrikisráðherra Bandarikjanna árið 1971, þegar hann sem ráðgjafi Nixons hafði fullt i fangi með að reyna að leiða Vietnam-striðið til lykta með friðarsamningum. Astæðan til njósnanna að sögn fréttamanna ABC var sú, að hinir háttsettu liðsforingjar töldu, að Kissinger leyndi herstjórnina mikilvægum upplýsingum, sem leyniþjónustan hefði komist yfir. ABC-fréttamennirnir hafa 'upplýst, að ákveðinn maður i þjóðaröryggisráði Banda- rikjanna hafi bent á Alexander Haig, hershöfðingja, sem aðal- manninn á bak við njósnirnar. A þessum tima var Kissinger for- maður ráðsins og Haig varafor- maður þess. í fréttaútsendingu neitaði Haig þvi harðlega, að hann hefði lekið upplýsingum, sem bárust þjóðar- öryggisráðinu, yfir til varnar- málaráðuney tisins. ABC minnti þá á, að Haig hafi verið mjög á öndverðum meiði við Kissinger um viðræðutækn- ina, sem beita ætti Le Duc Tho, samningamann Hanoistjórnar- innar i Paris. Stjórnmálaréttaritarar spá þvi, að ný „Watergate-barátta” sé nú i uppsiglingu hjá bandariskum fjölmiðlum þar sem leitað verði að öllum þeim einstaklingum, sem ábygð beri á hinu nýja pólitiska hneyksli, njósnum her- stjórnarinnar um sjálfan hinn nú- verandi utanrikisráðherra Bandarikjanna. Þannig hefur stórblaðið „New York Times” sagt nú alveg nýlega, að fyrir þvi séu sannanir að ákveðinn hópur af háttsettum liðsforingjum i Bandarikjaher hafi safnað leynilegum upplýsingum frá öðrum banda- riskum stofnunum, sem þeir hafi siðan komið á framfæri við varnarmálaráðuneytið. Frá forsetabústaðnum I San Clemente i Kaliforniu, þar sem Nixon hélt sig um það leyti, sem byrjað var að ympra á þessu nýja hneykslismáli i blöðunum, voru sendar út mjög varlega orðaðar fréttatilkynningar. Þar segir m.a. á þá leið, að við lok ársins 1971 hafi uppgötvast, að lágt settur embættismaður sem hafði aðgang að leynilegum skýrslum vegna starfs sins, hafi sent mjög leynilegar upplýsingar til utanað- komandi afls. Ekkert er sagt um, hvað af manninum varð, eh upplýsingar herma, að honum hafi verið sagt upp störfum á stundinni eftir að „pjátursmiðahópurinn” hafi komið upp um hann. í frétta- tilkynningunni frá Hvita húsinu er ekki minnst einu orði á „lekann” frá þjóðaröryggis- ráðinu yfir til varnarmálaráðu- neytisins. Stærsta tryggingasvindl Norðurlöndum SJÓNIN ER SÖGUNNI RÍKARI MggkMr ÞpÖbátídamefndar 1914 Mglegir minjagripir. VerÖmœt gjöf. r a Rétt eftir s.l. áramót má segja, að sprengja hafi sprungið i mál- efnum tryggingafélaga i Sviþjóð. Sven nokkur Stenheim, sem var einn af 600 útibússtjórum hins stóra tryggingafélags Trygg- Hansa, var handtekinn og ákærð- ur fyrir að hafa svikið fjóra við- skiptavini um 10—15 milljón sænskar krónur á 10 árum. Sven Stenheim tókst að fá fjóra af auðugustu viðskiptavinum fyrirtækisins til þess að leggja þetta fé fram. Aðalsaksóknarinn I málinu hefur viðurkennt, að upp- hæðin sé sú, sem nefnd er. Sænsk blöð hafa hins vegar giskað á, að svindlið nemi margfalt hærri upphæð — þ e.a.s. 400 millj. kr. — en sllk æruatriði hafa ekki borist yfirvöldunum. Annað mál er það, að við rannsóknina hefur komið i ljós, að málið hleður i sifellu utan á sig. Svindlið var raunar fram- kvæmt' með þeim hætti, að Sven Stenheim notaði tryggingaumboð sitt til þess að reka eigin banka- stofnun. Til þess að laða að sér efnaða viðskiptavini, þá gaf Steinheim þeim heilmikla afslætti af eigin umboðsþóknun. Þessu hélt hann i gangi með þvi að taka á móti stórum innlánum gegn himinháum vöxtum og peningana notaði hann svo ýmist til okur- lánastarfsemi eða til þess að geta gert upp við aðalumboð Trygg- Hansa vegna þeirra viðskipta- vina, sem fengu tryggingarnar keyptar undir sannvirði. Og fólk vildi gjarna láta Sven hafa peninga i „innlánsdeildina”. Það hélt nefnilega, að trygginga- félagið stæði á bak við banka- afhjúpað starfsemina. Og vaxtakjörin voru ekki slök. Sten bauð allt að 11% vöxtum á mánuði, eð a u.þ.b. 150% vexti á ári. Fyrir viðskipta- vinina var þetta auðvitað hreinasta gullnáma. Þekktur auðmaður, sem lagði fram mill- jón, gat einum mánuði seinna kvittað fyrir vöxtum upp á 110 þús. kr. En svo kom að þvi, að kúnnarn- ir þurftu að skerða innlánin sjálf - fá eitthvað til baka af þeim peningum, sem þeir upphaflega lögðu inn. Og þá komu þeir að tómum kofanum hjá Stenheim. Þar sem allt bókhald þessa „einkabanka” Stenheims hafði verið unnið á skrifstofu tryggingaumboðsins og öll bréf „bankans” rituð á bréfsefni Trygg-Hansa, sneru viðskipta- mennirnir óánægðu, sem vildu nú fá innlán sin aftur til baka, sér til aðalskrifstofu tryggingafyrir- tækisins,Nep þar komu menn auð- vitað af fjÖUum. Og svo komst svindlið upp. Stenheim" fékk tilkynningu frá aðalskrifstofunni um, að hann yrði kærður fyrir lögreglunni. En hann varð sjálfur á undan og gaf sig fram við yfirvöldin. Hvernig getur slik starfsemi þrifist undir hatti eins öflugasta tryggingafyrirtækis á Norður- löndum án þess að nokkur verði þess var? Er okkur ekki ávallt sagt, að fá fyrirtæki hafi bók haldsmál sin i betra lagi, en ein- mitt tryggingafélögin, þvi ágóða- hlutur þeirra sé svo rýr umfram áhættuna? Þannig spyrja Sviar nú og forstjórum Trygg-Hansa vefst tunga um tönn. En alla vega viðurkenna þeir, að álit fyrirtækisins hafi beðið mikinn hnekki, þótt þeir haldi þvi staðfastlega fram, að fyrirtækið hafi verið allsendis óvitandi um allt svindlið. LIF OG HEILSA Líkaminn er flókinn og enginn verkf ræðingur gæti t.d. gert byggingu hand- leggsins betur, en skapar- inn. Það er annað um tennurnar, sem sífellt eru að skemmast. Mannlegt auga er í sér- flokki, því að Ijósmynda- vélar, sem eru margfalt stærri geta ekki framkall- að myndir né liti eins og augað gerir, hvort sem er í myrkri eða sólskini. Augað er stórkostlegt og afskap- lega létt á voginni. Augað hefur allskonar varnir eins og tárin, sem þvo brott ryk og smyrja augnalokin. Augnahárin, sem sjá fyrir skordýrum og flugum og sjálfkrafa samdrætti augasteinsins, ef Ijósiðer of skært. Ennis- beinin verja augað gegn höggum, en samt er ekkert öruggt. Það er hægt að fá brunablett á sjáaldrið, ef menn horfa of lengi á eld, sólinaeða snjó, meðan þeir eru á skíðum. Vindurinn getur einnig haft slæm áhrif á sjónina og augn- vöðvarnir þreytast, ef þú lest of lengi í litilli birtu eða bíl. Svo verða nri^nn rauðeygðir af of litlum svefni. Þúsundir manna þjást af fjarsýni, nærsýni eða öðrum álíka kvillum. Við þessu er að vísu ekkert að gera, en sumir læknar telja þó, að það sé verra að nota gleraugu en ekki. Sjónin er eitthvað það dýrmætasta, sem við eig- um. Blindur maður þarf að sætta sig við80% skerðingu á hæfileikum mannsins. Það er heimskulegt að líta ekki alvarlega á augnsjúk- dóma eða skerta sjón og þá ekki eingöngu vegna þess, að sjónin gæti farið versn- andi, heldur og vegna þess, að slíkt getur verið hættu- legt fyrir bíleiganda. Aug- un eru ekki jafnfljót að að- lagast myrkri og áður. Ell- in hefur einnig sín áhrif, því að firmtugur maður þarf fimm sinnum meiri birtu til að sjá við eins Ijós- lega og áður, ef þú ert fimmtugur eða tiu ára. Það er ef til vill ástæðan fyrir því, að birtan virðist daufari, og sjónin verri með aldrinum. Leitið til læknis, ef ykkur virðist sjónin dofna, því að það er allt í lagi með sjónina, ef litið er eftir henni. Verðlaunaveggskildir Sigrúnar Guðjónsdóttur. Framleiðandi: Bing & Grandahl. Efni: Postulín. Stærð: 18 cm þvermál: Smásöluverð: kr. 7.205.— serían. Veggskildir með teikningum eftir Einar Hákonarson, sem hlutu sérstaka viðurkenningu í samkeppni Þjóðhátíðarnefndar. Framleiðandi: Gler og postulín sf. Efni: Postulín og Ramingviður. Stærð: 16 X 16. Smásöluverð: kr. 2.640.— serían. Þessir fallegu veggskildir til minningar um 11 aida afmæli Islandsbyggðar eru eingöngu seldir sem sería. Kjörgripir, sem aukast aá gildi d komandi árum. Heildsöludreifing: Samband íslenzkra samvinnufélaga, Búsáhaldadeild, Reykjavík. O. Johnson & Kaaber, Sætúni 8, Reykjavík. O Föstudagur 25. janúar 1974. Föstudagur 25. janúar 1974 o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.