Alþýðublaðið - 27.02.1974, Blaðsíða 10
SSSl.
Stúdentar í óstuði i
Ármann
mun berjast
á toppnum
íslandsmeistararnir komu á óvart með góðum ieik
■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■--------------------------------------
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•-■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i
KR mátti þola tap gegn ÍR-ingum
ÍR— KR
85:82 (39:39)
Þetta var mjög haröur leikur
og eins og úrslitin gefa til
kynna, afar jafn. tR geröi fyrstu
körfuna, en Gunnar Gunnarsson
besti maður KR i leiknum jafn-
ar strax. Siðan er ÍR t.d. yfir 5:4
en KR skorar siðan nokkur stig
og nær mest 5 st. forskoti 16:11
IR-ingar saxa á forskotið og
jafna 20:20, þá skorar KR eina
körfu en 1R tvær og staðan er
24:22 1R i vil. Þá bæta þeir við
forskot sitt og ná 5 stiga forystu
33:28, en KR hefur náð að jafna
fyrir hlé 39:39.
1 upphafi seinni hálfleiks
skiptast liðin á um tveggja stiga
forystu þangað til staðan er
47:47. Þá kemur lélegur kafli
hjá KR, og 1R kemst yfir og sá-
ust þá tölur eins og 57:51, 63:57
og 66:61 fyrir 1R, en KR tekst að
minnka muninn i aðeins 1 stig
70:69 fyrir 1R.
Af næstu 10 stigum leiksins
áttu IR-ingar 6, þannig að stað-
an var orðin 76:73. KR skorar
næstu körfu þannig að aðeins
munaði einu stigi á liðunum,
stuttu siðar var 1R einnig með
eins stigs forskot 81:80. 1R leik-
maður hittir úr einu vitaskoti,
og stuttu siðar hitta ÍR-ingar
einnig úr öðru vitaskotinu, svo
að staðan var orðin 83:80 fyrir
1R. Siðustu minútuna gerðu
bæði leikmenn og dómarar sig
seka um mistök, Kolbeinn
Kristinsson 1R og Hjörtur Hans-
son KR gerðu sina körfuna hvor
i lokin, þannig að 1R bar sigur
úr býtum 85:82.
Leikmenn beggja liða voru
mjög taugaóstyrkir i leiknum,
sérstaklega gerði Kolbeinn
Pálsson sig sekan um mörg
mistök, hann átti nú sinn léleg-
asta leik i manna minnum. Þá
var vitahittni liðanna heldur
slök.
IR-ingar börðust vel i leiknum
og virtust fyrirfram staðráðnir i
að sigra leikinn. Bestir að þessu
sinni voru þeir Agnar Friðriks-
son sem hitti vel, sama hvaðan
af vellinum hann skaut, og
Kristinn Jörundsson sem hitti
þó óvenju illa úr vitaskotum.
Kolbeinn Kristinsson var frekar
litið með vegna þess að hann
var kominn með 4 villur strax i
fyrri hálfleik, en hann gerði
margt laglegt þá stund sem
hans naut við.
Það verður að segjast eins og
er, að þrátt fyrir þaö aö aðeins
munaði 3 stigum á liðunum i
lokin, þá átti KR nú sinn léleg-
asta leik i mjög langan tima.
Allir leikmenn liðsins léku undir
getu nema Gunnar Gunnarsson
sem átti nú sinn besta leik með
KR siðan hann kom aftur i liðið
eftir tveggja ára leik með Borg-
nesingum. Þá var Bjarni Jó-
hannesson með ágæta skotnýt-
ingu utan af velli, Kristinn fyr-
irliði, Hilmar og Hjörtur voru
með daufasta móti, og Kolbeinn
mjög mistækur.
Þrátt fyrir tapið stendur KR
best að vigi i deildinni, en Valur,
1R og Ármann eiga öll mögu-
leika ennþá. Þá má geta þess að
Guttormur Ólafsson einn besti
maður KR i vetur, var ekki með
og veikti bað liðið mikið.
Lið KR er mun jafnara að
getu, og ef litið er á heildina þá
hefur liðið betri einstaklingum á'
að skipa, leikmenn eins og Kol-
beinn, Kristinn, Gunnar, Gutt-
ormur og Hjörtur eru allir
þrautreyndir landsliðsmenn, og
það hlýtur að koma aö þeim leik
að þessir leikmenn ná vel sam-
an. Þá eru i liðinu ungir mjög
efnilegir leikmenn ein^og Birg-
ir Guðbjörnsson, Bjarni Jó-
hannesson og Hilmar Victors-
son sem allir hafa leikið með
landsliðinu.
1 liði 1R bera þeir Agnar og
Kristinn mjög af, en Kolbeinn
Kristinsson kemur næstur.þeim,
þá hefur Jón Jörundsson verið
að sækja sig i siðustu leikjum,
og er hann efnilegasti leikmað-
ur 1R i dag.
Leikurinn var spennandi eins
og alltaf er þessi iið mætast.
Það var mjög hart barist og
ekki færri en 3 fengu 5 villur,
það voru þeir Birgir og Hilmar
hjá KR og Sigurður Gislason 1R,
auk þess voru þeir Agnar Frið-
riksson og Kolbeinn Kristinsson
báðir komnir með 4 villur, og
sömuleiðis Bjarni hjá KR, svo
eitthvað hefur gengiö á.
Stigin: 1R: Agnar 28, Kristinn
23, Kolbeinn 12 og Sigurður 8.
KR: Gunnar Gunnarsson 20,
Kolbeinn 15, Bjarni og Kristinn
10 hvor, Birgir 9 og Hjörtur 8.
Vitaskot: 1R: 29:15 og KR: 11:4.
t)k
Ármann-IS 95:78(42:34)
Búist var við miklum bar-
áttuleik milli þeirra liða sem
hafa sigrað Islandsmeistara
1R i vetur, jú baráttuna vant-
aði svosem ekki en leikurinn
var laus við allan spenning, til
þess voru yfirburðir Ármenn-
inga of miklir.
Armann byrjaði vel og
komst i 6:0, en 1S gerir næstu 4
stig, 6:4 fyrir Ármann, svo sá-
ust tölur eins og 30:22 og 38:26
fyrir Ármann i fyrri hálfleik.
1 hálfleik var Ármann 8 stig-
um yfir, en þeir bæta við það
forskot i siðari hálfleik, og
stundum munaði 16—19 stig-
um i liðunum.
Birgir Guðbjörnsson KR og
Kristinn Jörundsson 1R berjast
um knöttinn.
Ármenningar börðust vei,
en voru þó full grófir á köflum,
alls fengu stúdentar 35 vita-
skotsem er óvenju mikið i ein-
um leik.
Þeir Hallgrimur Gunnars-
son og Simon Ólafsson voru
bestir i liði Ármanns i leikn-
um, en Haraldur og Jón
Björgvinsson áttu báðir góða
kafla, þá stóð Jón Sigurðsson
að vanda fyrir sinu.
Hjá Stúdentaliðinu var að-
eins einn leikmaður sem eitt-
hvað gerði af viti i leiknum,
það var Steinn fyrirliði
Sveinsson, en hann fékk 5 vill-
ur i leiknum. Þá var Guðjón
með þolanlegan leik, en aðrir
léku langt undir venjulegri
getu, sérstaklega þó Ingi
Stefánsson sem var siskjót-
andi með hörmulegum
árangri. Þá hitti Bjarni
Gunnar nú fyrir ofjarl sinn,
þar sem Simon Ólafsson var.
Stigahæstir: Ármann: Simon
18, Hallgrimur 16, Jón Sig. 16,
Haraldur 14 og Jón Björgvins-
son 12.
1S: Steinn Sveinsson 23 og
Guðjón 10, aðrir minna.
Vitaskot: Árm: 8:7. 1S. 35:18.
Staðan
Skipting
komin á
1. deild
Segja mó að skipting sé komin
ó 1. deild i körfuboltanum. 1R,
KR, Valur og Ármann berjast
um sigur, en UMFN, 1S, HSK
og UMFS blanda sér vart i þá
baráttu:
ÍR 862 737:639 12
Valur 8 6 2 706:639 12
KR 6 5 1 513:448 10
Árm. 7 5 2 589:547 10
UMFN 7 3 4 534:547 6
Stúdent 6 2 4 470:517 4
HSK 6 1 5 438:478 2
UMFS 8 0 8 496:683 0
Stigahæstir: st. leikir
Þórir Magnúss. Vai 200 8
Kristinn Jör. 1R 184 8
Gunnar Þorv. UMFN 163 7
Kolbeinn Kristinss.
1R 155 8
Kolb.Pálss. KR 144 6
Bragi Jónss. UMFS 144 8
Miðvikudagur 27. febrúar 1974.