Alþýðublaðið - 08.03.1974, Page 11
Iþróttir
Sigurlið Vikings, efri röð frá vinstri: Jón Sigurðsson, Elias Leifsson, Skarphéðinn óskarsson, Asmund-
ur Sigurðsson, Sigfús Guðmundsson og Páll Björgvinsson. Fremri röð frá vinstri: Stefán Haildórsson,
Viggó Sigurðsson, Rósmundur Jónsson, fyrirliði og liðsstjóri, Sigurgeir Sigurðsson og Viðar Jónsson.
Vikingur sigraði örugglega i
hraðmóti þvi sem HKRR gekkst
fyrir á meðan landsliðið keppti i
HM. Segja má, að sigur Vikings
hafi verið óvæntur, þvi tvo bestu
menn liðsins vantaði, þá Einar
Magnússon og Guðjón Magnús-
son. En sigurinn var engin til-
viljun, því Vikingur lagði ÍR,
FH og Þrótt örugglega að velli á
leið i úrslitin, og sigraði svo
Val 14:9 i sjálfum úrslitaleikn-
um.
Víkingur—Þróttur 13:9 (7:3)
Þessi lið léku um réttinn til að
mæta Val i úrslitunum. Þróttur
komst i 2:0, en þá fór Vikingur i
gang, skoraði fjögur mörk i röð
og sigraði örugglega. Mestur
var munurinn 13:7. Stefán
Halldórsson var besti maður
Vikings, enda skoraði hann 8
mörk. Páll, Jón Sigurðsson og
Jafnhliða siðustu leikjum hraðmótsins fóru fram úrslitaleikir i
3. flokki kvenna og 2. flokki karla Reykjavikurmótsins.
í 3. flokki kvenna sigraði Vikingur Armann i úrslitum 4:3, eftir
að staðan hafði verið 2:2 i hálfleik. Sigurgleðin var ósvikin að leik
loknum. í 2. flokki karla sigraði Þróttur Viking nokkuð óvænt
13:12. Var leikurinn útkljáður i fyrri hálfleik, þvi þá skoruðu
Þróttarar 8 mörk gegn 2 Vikinga.
Sigurgeir Sigurðsson mark-
vörður Vikings stóð sig mjög vel
i öllum leikjum hraðmótsins.
Sigurgeir markvörður voru
einnig góðir. Þróttarliðið var
frekar slakt, og ekki liklegt til
að ná árangri, nema liðsmenn
geri átak i megrunarmálum.
Þeir eru alltof sverir um mittið
til að geta náð árangri.
Vikingur-Valur 14:9 (8:3)
Vikingarnir léku þennan leik
af skynsemi og öryggi. Þeir
nýttu sér til ýtrasta slaka mark-
vörslu Vals i byrjun, og höfðu
gert út um leikinn i hálfleik.
Valsmenn náðu sér aldrei á
strik, hafa væntanlega komið of
sigurvissir til leiks.
Páli Björgvinsson var besti
maður Vikings, ásamt þeim
Stefáni, Skarphéðni Sigfúsi i
vörn og ógleymdum Sigurgeiri,
sem þarna átti enn einn stór-
leikinn, varði m.a. þrjú vita-
köst. Páll skoraði 5 mörk, og
Stefán 3 mörk.
Valsliðið var allt i molum og
varla hægt að tala um að einn
hafi verið öðrum betri. Þetta
var slakur endir fyrir Val á
mótinu, eftir marga skinandi
góða leiki.
Óvænt úrslit í hraðmótinu
Úruggur sigur Víkings
Þróttur og Víkingur unnu
Stéttarfélag verkfræðinga
Fundarboð
Félagsfundur verður haldinn i Stéttarfé-
lagi verkfræðinga i dag að Hótel Esju kl.
17.30.
Fundarefni: Aðgerðir i samningamálum.
Félagsmenn fjölmennið.
Stjórn Stéttarfélags verkfræðinga.
E53 Starfsmenn
^ óskast
Sauðárkrókskaupstaður óskar eftir að
ráða eftirtalda starfsmenn nú i vor eða
fyrr eftir samkomulagi:
1. Vélvirkja.
2. Trésmið.
3. Verkstjóra.
4. Verkamenn.
Umsóknir, er greini aldur og fyrri störf,
sendist undirrituðum fyrir 15. marz n.k.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.
Auglýsingasíminn okkar er 8-66-60
HAGKAUP
Opið til kl. 10 í kvöld og
til kl. 12 á hádegi á morgun.
Komið og gerið góð kaup
amamaourinn
Bókamarkadur
Bóksalafélags
íslands,
í noröurenda
Hagkaups,
Skeifunni 15
Góöar bækur-
gamatt verö
Föstudagur 8. marz 1974.
o